Prentarinn - 01.06.1929, Síða 1

Prentarinn - 01.06.1929, Síða 1
PRENTARINN BLAÐ HINS ÍSLENZKA PRENTARAFELAGS IX. AR ‘°X c JUNi 1929 TjC 2. BL. 4 BENEDIKT GABRÍEL BENEDIKTSSON er fæddur 27. sept. 1881, aö Qnúpi á Skarðs- strönd í Dalasyslu, sonur Benedikts Qabríeis Jónssonar, amtsskrifara og hómópata, og Guðríðar jóhannesdóttur. Hann fluttist til Reykjauíkur árið 1891 og byrjaði prent- nám 1. júní 1897 í prentsmiðju Dagsskrár og vann hann þar um nokkurra ára bil. Hætti þá við prentiðn um tíma, en starfaði að skrifstofustörfum á skrifstofu Edinborgar um hríð og nam þá bókhald. — 2. janúar 1905 tók hann aftur til starfa við prentiðn í Félagsprentsmiðjunni og vann þar til vors- ins 1919, að hann fór að vinna í prentsmiðjunni Gutenberg og starf- aði þar til vorsins 1925. — Pá hætti hann að mestu leyti prentstörfum. Stundaði þó þá iðn um tíma, bæði í Alþýðuprentsmiðjunni og prentsmiðju Ljósberans. Síðan haustið 1926 hefir hann ekkert að prentiðn unnið. —- I Prentarafélagið gekk Benedikt Gabríel 13. sept. 1908. Eftir að Prentar- inn hóf göngu sína, skrifaði hann talsvert í hann um hríð og var einn af ritnefndarmönnum hans árið 1912. í Afmælisminning Prentarafélagsins samdi hann skrá yfir alla þá, sem í það hafa gengið frá upphafi. Nú fæst hann mest við ættfræði, sagn- fræði, skrautritun og teikningu, enda er hann fróð- ur maður og listfengur. 7- A ELLISTYRKTARS]ÓÐURINN STOFNAÐUR. Fyrir tæpum þrem árum var því hreyft á fundi í Reykjavikurdeild H. I. P., að prentarar færu að vinna að því, að koma sér upp ellislyrktarsjóði. Var þá kosin nefnd í málið, sem skilaði síðar á- liti. Ur framkvæmd varð þó ekki að sinni. Mun þar mestu hafa ráðið, hve erfiðir tímar voru þá fyrir prentara. En á síðasta ári fekk málið aftur byr undir báða vængi, og var sjóðurinn stofnaður 24. apríl síðastl. með mjög myndarlegu framlagi úr atvinnuleysisstyrktarsjóði og sjóði Reykjavíkur- deildar H. I. P., um leið og sú deild var lögð niður. Samtals er stofnféð nær 11 ’/2 þús. kr. — Reglugerð hefir verið samin og samþykt af fé- laginu. Verður hún prentuð með félagslögunum. Með sjóðsstofnun þessari hefir verið rent nýrri og öflugri stoð undir félagsskap prentara. Verður nú hlutverk þeirra að viðhajda stoðinni og styrkja með ári hverju sem líður, svo hún veröi öflugri og viðameiri. Margir af hinum eldri prenturum, sem á sín- um tíma voru stofnendur félagsins, hafa fylgst vel með sjóðsstofnun þessari og virðast líklegir til að vinna sjóðnum talsvert gagn. Skyldi þó eigi síður mega búast við, að hinir yngri menn stéttarinnar rétti honum öfluga hjálparhönd og vinni ófrauðir að vexti hans og viðgangi, enda mun sú raunin á verða, þá er mönnum er fyllilega Ijóst, hve sjóðs- stofnun þessi er merkilegt og mikilsvert skref á þroskabraut félagsskaparins og félagslífsins í framtíðinni. Prentarastéttin er ekki fjölmennari en það, að með öruggri samvinnu og sæmilegri framsýni ætti að vera hægt að gera kjör hennar vel lífvænleg, Benedikt Gabríel Benediktsson.

x

Prentarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.