Prentarinn - 01.09.1929, Page 1
PRENTARINN
BLAÐ HINS ÍSLENZKA PRENTARAFÉLAGS
IX. AR
Uk
SEPTEMBER 19Q9
3
FIMMTÍU ÁRA AFMÆLI HRAÐPRESSUNNAR A ISLANDI.
Á þessu ári teljasl liðin vera, eins og almanakið
kemst að orði, 50 ár, síðan hin fyrsta hraðpressa
fluttist til landsins. „Prentaranum" þyhir rétt að
minnast þessa afmælis, og hefir
mælst til þess, að ég ritaði
nokkur orð um þennan við-
burð íslenzkrar prentlistarsögu.
Það var Isafoldarprent-
smiðja, sem fékk þessa hrað-
pressu árið 1879, og í 50 ára
minningarriti prentsmiðjunnar
eftir Klemenz Jónsson, fyrr
verandi ráðherra, er það haft
eftir almanaki Þjóðvinafélags-
ins fyrir árið 1881 í yfirliti
ársins 1879, að hún hafi komið
með póstskipinu „Phönix" 28.
apríl það ár, og verður það
ekki véfengt. Hitt er aftur á
móti ekki rétt, sem þar stendur,
að fyrsta blaðið, sem prentað
sé í hraðpressunni, sé dagsett
9. júl! 1879, og að ekkert sé
getið um þennan merka at-
burð í blaðinu sjálfu, því að fyrsta blaðið úr
hraðpressunni er 13. tölublað V. árgangs og dag-
sett þriðjudaginn 6. maí 1879, og í því er á 1.
dálki 4. síðu svo látandi grein:
„FYRSTA HRAÐPRESSA Á ÍSLANDI.
Þetta blað ísafoldar er hið fyrsta, sem prentað
er í hraðpressu hér á landi. Hraðpressan er keypt
í Lundúnum. Lærði yfirprentari ísafoldarprent-
smiðju, Sigmundur Guðmundsson, þar jafnframt
fyrstur íslendinga öll handtök að hraðprentun og
annaðist kaupin. Hefir honum farið þetta vel úr
hendi með greind og lagi. — Hraðpressa þessi
Fyrsta hvaðprcssa á íslandi.
er Iítil að vísu á við það, sem slíkar vélar gerast
í öðrum Iöndum, en nógu stór til vorra þarfa.
Hún prentar 5-faIt fljótara en hraðvirkustu prent-
arar prenta í beztu handpressu með eins manns
aðstoð eða tveggja smásveina, en við handpressu
veitir eigi af 2 fullefldum karlmönnum".
Þessi fyrsta hraðpressa á íslandi var notuð í
ísafoldarprentsmiðju til ársins 1897, að Stefán
Runólfsson keypti hana og flutti til ísafjarðar.