Prentarinn - 01.01.1973, Page 3
PRENTARINN
Blað Hins islenzka prentarafélags
51. árgangur
1—4. tölublað 1973
Ritsjórar:
Guðjón Sveinbjörnsson
Haukur Már Haraldsson
Prentsmiðjan Hólar hf.
Efnisyfirlit
Uppsögn samninga . 1
Fréttir af starfseminni . 3
Verknámsskóli fyrir allan
prentiðnaðinn í undirbúningi . 5
Svíar eru ágætis fólk og gott
að vinna með þeim . 6
Með austur-þýzkum starfsbræðrum . 8
Bókahilla Prentarans . 13
Ríkisprentsmiðjan færir út kvíarnar . 14
Félagsþroski . 15
Orlofsuppbótin . 15
Hólar kaupa Prenthús
Hafsteins Guðmundssonar . 16
Skýrslan um úttekt prentiðnaðarins
komin til Iðnþróunarsjóðs . 16
Morgunblaðið brátt offsetprentað . 17
Fréttir af
starfseminm
Á síðasta aðalfundi félagsins kom það
sjónarmið fram að nauðsyn væri að
auka tengslin milli stjórnar félagsins
og annarra félagsmanna. Skoðun
manna var sú að það yrði bezt gert
með útgáfu félagsbréfs eða með föst-
um jtáttum af starfseminni i Prentar-
anum, og að hann kæmi þá oftar út.
Á fundi stjórnarinnar 7. maí s.l. var
ákveðið í samráði við ritstjórn Prent-
arans að í blaðinu yrði fastur þáttur,
sem bæri yfirskriftina „Fréttir af starf-
seminni", og var undirrituðum falið
að sjá um efnissöfnun. Á sama fundi
var ákveðið að blaðið kæmi út á tveggja
mánaða fresti, ef þess væri nokkur
kostur. í þessum fyrsta þætti verður
auk frétta af aðalfundinum drepið á
helztu mál, sem unnið hefur verið að
frá jrví að hann var haldinn.
Aðctlfundur HÍP
Aðalfundurinn var haldinn lielgina
28. og 29. apríl s. 1. í félagsheimilinu.
Formaður setti fundinn og minntist
tveggja látinna félaga.Sigurðar Straum-
fjörð Ólafssonar og Hafliða Helga-
sonar.
Pjetur Stefánsson flutti skýrslu
gjaldkera og skýrði reikninga félagsins,
ennfremur kynnti Pjetur þrjár tillög-
ur frá stjórninni. Sú fyrsta var um 50
þúsund króna fjárveitingu til bóka-
safns félagsins, önnur var um 10 þús-
ttnd króna styrk til Lúðrasveitar verka-
lýðsins og sú þriðja var um að dagpen-
ingar í veikindum og slysatilfellum
hækki úr 80 krónum í 150 krónur. All-
ar þessar tillögur voru samþykktar.
Miklar umræður urðu um reikning-
ana, jafnframt því að margar fyrir-
spurnir komu fram, og svöruðu gjald-
keri og formaður þeim jöfnum hönd-
um. Að loknum umræðum bar for-
maður reikningana upp og voru þeir
samþykktir.
Formaður flutti Jtvx næst skýrslu
stjórnar og Ellert Ág. Magnússon flutli
skýrslu hátíðarnefndar, en hún fékk
ekki rúm í Prentaranum. Allmiklar
umræður urðu um skýrslur stjórnar
og nefnda og voru vinnubrögðin bæði
löstuð og lofuð. í gagnrýninni vó
þyngst það álit manna að ekki ltefðu
verið nóg tengsl á milli stjórnarinnar
og félagsmanna. Hins vegar var stjórn-
inni hælt fyrir dugnað í sambandi við
Norræna prentaraþingið, afmælið og
fleira. Þegar umræður um skýrslurnar
stóðu yfir komu fulltrúar norðanprenl-
ara á fttndinn þeir Þór Þorvaldsson og
Hörður Svanbergsson, og bauð for-
maður þá Itjartanlega velkomna. For-
maður kynnti hugmynd um að breyta
skyndilánafyrirkomulaginu og færa
Jtað inn í banka, með Jtað fyrir augunt
að lánsupphæð hækki og að skrifstof-
an losni við Jtá vinnu sem hefur verið
samfara Jtessari fyrirgreiðslu. Fundur-
inn samþykkti að stjórnin reyndi að
ná samningum við banka í þessu sam-
bandi. Þegar Itúið var að afgrciða
skýrslurnar fóru fram stjórnarskipti,
en aðeins einn listi kom fram, og var
hann Jtannig skipaður:
AÖalstjórn:
Þórólfur Danfelsson, formaður
Magnús Einar Sigurðsson, ritari
Gísli S. Guðjónsson, 2. meðstjórnandi
Pétur Ágústsson, 3. meðstjórnandi.
Varastjórn:
Haukur Már Haraldsson, ritari
Baldur H. Aspar, gjaldkeri
Ásgeir Gunnarsson, 1. meðstjórnandi
PRENTARINN
3