Morgunblaðið - 01.12.2008, Side 9

Morgunblaðið - 01.12.2008, Side 9
Fréttir 9INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. DESEMBER 2008 E R N A sími 552 0775 HREIN SNILLD Drjúgt, fjölhæft og þægilegt... Gott á: gler plast teppi flísar stein ryðfrítt stál fatnað áklæði tölvuskjái omfl. ATH. frábært á rauðvínsbletti og tússtöflur S. 544 5466 • www.kemi.is • kemi@kemi.is Flott jólaföt fyrir allar flottar konur Skeifan 11d 108 Reykjavík sími 517 6460 www.belladonna.is Stærðir 40-60 SKIPULEGGJENDUR búast við miklu fjölmenni á Þjóðfund Ís- lendinga sem haldinn verður á Arnarhóli kl. 15 í dag, 1. desem- ber. Ýmis aðildarfélög innan laun- þegahreyfingarinnar hafa hvatt félagsmenn sína til að mæta á fundinn, þar á meðal Rafiðn- aðarsamband Íslands. Auk þess vekur BSRB athygli sinna félaga á fundinum. Í tilkynningu frá samtökunum, sem að fundinum standa, Borg- arahreyfingu um þjóðfund 1. des- ember, segir að núverandi stjórn- völd sem og stjórnarandstaða hafi glatað trausti landsmanna. Borg- arahreyfingin telji að vegið hafi verið að fullveldi landsins í því gjörningaveðri sem stjórnvöld og embættismenn hafi kallað yfir fólkið í landinu. Í tilkynningunni eru landsmenn hvattir til að leggja niður vinnu í dag og mæta á fundinn og krefj- ast með þeim hætti breytinga á stjórnsýslu landsins. Mótmælaganga Frummælendur á fundinum verða þau Einar Már Guðmunds- son rithöfundur, Lárus Páll Birg- isson sjúkraliði, Margrét Péturs- dóttir verkakona, Snærós Sindradóttir nemi og Þorvaldur Gylfason hagfræðingur. Borg- arahreyfing um Þjóðfund 1. des- ember er samstarfsvettvangur margra þeirra hreyfinga og ein- staklinga sem hafa verið virk í mótmælum og andófi að und- anförnu, að því er segir í tilkynn- ingu. Hreyfingin standi utan við alla stjórnmálaflokka. Þá hafa samtökin Nýir tímar blásið til mótmælagöngu í dag. Hefst gangan klukkan 14 og verð- ur gengið frá Hlemmi niður Laugaveg og endað á Arnarhóli klukkan 15. Flutt verða fimm stutt og snörp erindi. – sjá fréttatilkynningu í viðhengi. bjarni@mbl.is Þjóðfundur á Arnarhóli Krefjast breytinga EFTIR einnar viku dvöl í grennd við Keflavík er hnúfubakurinn sem var merktur í Eyjafirði 6. nóv- ember nú kominn suður fyrir land. Tveir hnúfubakar og tvær hrefnur voru merkt með gervitunglas- endum. Merki hafa aðeins borist frá hnúfubökunum síðustu daga og hefur hinn að mestu haldið sig í Eyjafirði, hugsanlega í smáloðnu. Markmið verkefnisins er að kanna ferðir skíðishvala við landið og far þeirra frá íslenskum haf- svæðum á haustin. Ólíkt öðrum skíðishvölum í Norður-Atlantshafi eru þekktar einar vetrarstöðvar (æxlunarstöðvar) hnúfubaks, í Kar- íbahafinu. Af greiningu ein- staklinga á ljósmyndum og erfða- fræðirannsóknum er ljóst, að hluti þeirra hnúfubaka, sem halda til við Ísland á sumrin, fer á þetta haf- svæði á veturna en hluti hnúfubak- anna er af öðrum meiði og eru vetrarstöðvar þeirra óþekktar. Þá er einnig vitað að talsverður fjöldi hnúfubaka er við Ísland á veturna og hefur þá einkum sést á loðnu- miðum. Gísli Víkingsson, sérfræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, stjórnar þessu verkefni. aij@mbl.is Hnúfubakurinn kom- inn suður fyrir land            UM leið og Dorrit Moussaieff forsetafrú tendraði ljósin á jólatré Kringl- unnar hófst góðgerðarsöfnun á jólapökkum fyrir börn við tréð. Jólapakka- söfnunin er árviss viðburður á aðventunni. Mæðrastyrksnefnd og Fjöl- skylduhjálp Íslands munu deila gjöfunum út fyrir jólin, til fjölskyldna sem hafa úr litlu að moða. Hafa gjafirnar komið sér vel á mörgum heimilum. Ljósin á jólatré Kringlunnar tendruð Morgunblaðið/Golli Safna pökkum fyrir börnin KVENNAKÓRAR frumfluttu í gær nýtt jólalag eftir Jón Ásgeirsson tónskáld í átta kirkjum víðsvegar um landið. Lagið samdi Jón við ljóð eftir Snorra Hjart- arson, „Ég heyrði þau nálgast“, að ósk kvennakóra landsins, í tilefni áttræðisafmælis hans 11. október sl. Mikil gróska er í starfi kvennakóranna í landinu. Nú eru 28 kórar starfandi, með á annað þúsund félaga. Gígjan, landssamband kvennakóra, stofnaði tónverka- sjóð fyrir skömmu. Honum er ætlað að efla og styrkja kvennakóra, meðal annars með því að fá tónskáld til að semja tónverk fyrir kórana. Jólalag Jóns Ásgeirssonar er fyrsta verkið sem tónverkasjóðurinn kostar. Kvennakórarnir fluttu lagið í gær í Ytri-Njarðvík- urkirkju, Kópavogskirkju, Vídalínskirkju kl. 11 og kl. 20, Fríkirkjunni í Hafnarfirði, Bústaðakirkju, Breið- holtskirkju og Seljakirkju. Tónskáldið var viðstatt þeg- ar Kvennakór Reykjavíkur söng lagið í Breiðholts- kirkju. helgi@mbl.is Morgunblaðið/Golli Jólalag frumflutt á átta stöðum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.