Stundin - 01.10.1940, Side 21

Stundin - 01.10.1940, Side 21
STUNDIN 21 Margar getgátur komu upp í sambandi við heimsókn jap- anska aðmírálsins, Kichisaburo Nomura til hafnarborgarinnar Davao á Filippseyjum og borg- arinnar Menado í nýiendum Hollendinga í Austur-Indíum, Japönsk stjómaryfirvöld töldu hann vera á eftirlitsferð til þess að kynna sér heilsufar Japana á Suðurhafseyjum. * * * 4. Kaupmaður við búðar- svein sinn: Eg heyrði á tal yðar og kon- unnar, sem gekk út áðan, og þér sögðuð: Nei, það höfum við því miður ekki haft lengi. — Svona megi þér ekki svara, heldur skuluð þér segja: — Nei, því miður, en við skulum útvega yður það strax. — Hvað var það annars, sem konuna vanhagaði um? Búðarsveinninn: — Sólskin. söm eins og á'öur, en stundum datt á dúnalogn, og þá var þögnin eins og í gröf. í stuttu máli sagt, eftir því sem á leiö feröina kvaldist ég meir af þessum einkenni- lega ugg, sem ég gat ekki fundið neina skýringu á. Þar aö auki bætti þaö gráu ofan á svart, aö ég þóttist fullviss um, aö skipstjórinn vissi og skildi allt, en ég gat ekki verið þekktur fyrir aö spyrja hann. Og þó var framkoma hans mjög svo undarleg. Viö höföum tekiö höfn í Vestmannaeyjum, afhlaöiö og siglt áfram í austurátt meö svalan andvara á stjórnboröa, þegar ég kom að skipstjói'anum óvörum og sá nokkuð, sem ég gat ekki skiliö. Eg haföi lagt mig til svefns niðri í klefanum, en þar sem mér kom ekki dúr á auga klæddi ég mig aftur og gekk upp á þilfar, til þess að sjá jökl- ana gnæfa upp í blýgrá skýin þarna í næturhúminu. Allt í einu nam ég staðar. Ut úr klefa sínum kom skipstjórinn og læddist aftur á, en undir hendinni bar hann pakka, sem hann haföi vafiö inn í gömul dagblöð. Skyndilega hægöi hann enn meira á sér, læddist meira að segja á tánum, þar til hann í einu vetfangi reif upp hurðina á skonsu, sem aöeins endrum og eins var not- uð. Nokkur augnablik stóö liann í dyrunum og skimaöi inn, en lokaöi því næst huröinni og stundi þungan um leið og hann gekk niður í skipiö. Eftir stundai’fjói’Öung kom hann upp aftur og var nú án pakkans. Eg skauzt undir stiga meðan skipstjórinn gekk fram hjá mér, og í daufri skímu frá fjarlægu ljóskeri gat ég séö andlit þessa gamla vinar míns, og piér varö hverft við, því aö þetta var andlit gamals og áhyggjufulls manns. Næsta morgun sá ég að nú var skipshöfnin líka orð- in móðursjúk. Þegár ég kom upp, sátu tveir strákar á kassa og pískruðu saman, en jafnskjótt og þeir komu auga á mig ruku þeir hvor frá öörum og virtust hiöur- sokknir í aö fægja messinghúna. Stöku sinnum sá ég hásetana líta gaumgæfilega í ki’ing um sig, og einu sinni endurtók einn þeirra þaö sama og ég hafði séö skipstjórann gera um nóttina. Undir boröum kom enn eitt undarlegt atvik fyrir. Til aö byrja meö áleit ég það aöeins bera vott um slæmt skap, en brátt komst ég að annarri niöurstööu. ViÖ vor- um aö ljúka viö a'ö snæ'öa, þegar matsveinninn kom inn og hirti leifarnar af boröinu, en áöur en hann fór út, beygöi hann sig niöur og ýtti nokkrum kjötbitum niður á kattai'diskinn, sem stóö í horninu. Skipstjórinn þaut upp.

x

Stundin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stundin
https://timarit.is/publication/737

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.