Stundin - 01.10.1940, Side 44

Stundin - 01.10.1940, Side 44
44 STUNDIN “Eg trúi því ekki”, sagði vinkona hennar, leiddi hana frá búrinu og breiddi í snatri aftur yfir páfagaukinn, sem var aö ná sér eftir hræðsluna, “en ég læt hann halda að ég trúi því”. “Þetta kalla ég hreinustu forsmán”. sagöi frú Cluf- fins og veifaöi sólhlífinni í vígahug. “Aldrei á minni ævi hef ég heyrt annað eins. AÖ hann skuli ekki skamm- ast sín! Hann ætti svei mér skilið, aö ég talaöi dug- lega yfir hausamótunum á honum”. Frú Gannett reyndi aö sefa vinkonu sína, leiddi hana til sætis og tók af henni hattinn, en frú Cluffins náöi, sér ekki fyrr en búiö var aö bera páfagaukinn út úr herberginu. Frú Cluffins var komin í bezta skap aftur. þegar þær komu niöur aö skipinu. Hún var með nefið niöri í öllu og spuröi um alla hluti, meira af forvitni en fróöleiks- þorsta, og fór ekki dult meö álit sitt á þeim, sem ekki gátu leyst úr spurningum hennar. “Eg skal hugsa til þín á hverjum einasta degi, Jem”, sagði frú Gannett blíölega. “Eg skal hugsa til þín hverja mínútu”, sagði vélstjór- inn ásakandi. Hann stundi þungan og starði hneykslaður á frú Cluffins, sem geröi sér dælt við háseta einn þar skammt frá. “Hún er léttlynd og gamansöm”, sagði kona hans. “Þaö mætti segja mér það”, sagði Gannett þurrlega um leið og frú Cluffins klappaði hásetanum í gamni meö sólhlífinni. “ÞaÖ lýtur út fyrir aö hún sé fljót aö afla sér kunningja. Eg er viss um, aö þau hafa aldrei sézt áöur"’. Frú Cluffins stökk upp af stólnum, sem hún sat á, “Blessuð börnin”, sagði frú Cluffins hátíðlegaj þeg- ar hún kom til þeirra. “Þér skuluð vera öldungis ó- hræddur, Gannett, ég skal líta eftir henni og sjá um að henni leiðist ekki”. “Þakka yður fyrir”, sagði vélstjórinn tortryggnislega. “Viö skulum svei mér skemmta okkur”, sagöi frú Cluffins. “Eg hef oft óskað þess, að maðurinn minn væri sjómaður. Sjómannskonurnar eru svo miklu frjáls- ari”. “Miklu, — hvaö?” sagði vélstjórinn, rámur af geðs- hræringu. “Frjálsari”, sagði frú Cluffins alvarlega. “Eg öfunda sjómannskonurnar. Þær geta gert hvað sem þeim sýn- Beztur lækna Kínverji nokkur, sem haföi verið svo veikur, að honum var ekki hugaö líf, varö skyndilega heill heilsu og lét í ljósi þakklæti sitt viö læknastéttina með svo- felldum oröum: “Eg var veikur. Eg lét sækja læknirinn Yan Sen. Eg tók inn meðöl hans, en mér elnaði sóttin. Þá lét ég sækja læknirinn Hang. Eg tók einnig meööl hans, en mér batnaði ekki. Þegar ég fann aö ég átti ekki langt eftir, geröi ég boö eftir hin- um fræga lækni, Hong Tsi-Yu. Hann var önnum kafinn og gat ekki komið þann daginn. Og ekki gat hann komið næsta dag. Á meðan varö ég heill heilsu. Hong-Tsi-Yu, er ágætur læknir, framúrskarandi læknir!” Skynugur hundur Þeir voru aö tala um hunda. “Eg á skynsamasta hund í heimi”, sagöi Brown. “Skömmu eftir aö ég keypti hann, fórum viö hjónin í næsta hús. Þegar viö kom- um heim aftur, lá hundur- inn uppi í legubekknum i dagstofunni, svo aö ég skammaði hann duglega. Þegar ég kom inn næst, lá hann á gólfinu, en ég fann

x

Stundin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stundin
https://timarit.is/publication/737

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.