Morgunblaðið - 30.12.2008, Blaðsíða 30
30 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2008
Raðauglýsingar 569 1100
Nauðungarsala
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Heiðarvegi
15, Vestmannaeyjum, fimmtudaginn 8. janúar 2009
kl. 09:30 á eftirfarandi eignum:
Ásavegur 30, 218-2406, þingl. eig. Ásta Steinunn Ástþórsdóttir,
gerðarbeiðandiTryggingamiðstöðin hf.
Bárustígur 11, 218-2625, þingl. eig. Dominik Lipnik, gerðarbeiðandi
Íbúðalánasjóður.
Brekastígur 5a, 218-2850, þingl. eig. Jólína Bjarnason,
gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Lögmannsstofa Vestmannaeyja
ehf. og Sjóvá-Almennar tryggingar hf.
Brekastígur 7a, 218 2853, þingl. eig. Jón Ingvi Hilmarsson,
gerðarbeiðandi Vátryggingafélag Íslands hf.
Foldahraun 39, 218-3446, þingl. eig. Gunnar Jónsson, gerðarbeiðandi
Vátryggingafélag Íslands hf.
Hásteinsvegur 11, 218-3580, þingl. eig. Guðrún Linda Atladóttir og
Sverrir Þór Guðmundsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Heiðarvegur 43, 218-3781, samkvæmt kaupsamningi, þingl. eig. Sig-
urður Einar Gíslason og Gerhard Guðmundsson, gerðarbeiðendur
Sigurður Einar Gíslason og Vestmannaeyjabær.
Kirkjuvegur 15, 218-4375, þingl. eig. Sigtryggur H. Þrastarson,
gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Vestmannaeyjabær.
Kirkjuvegur 21, 218-4385, þingl. eig. Lundinn-veitingahús ehf. og
Hvassafell ehf., gerðarbeiðendur Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
og Vestmannaeyjabær.
Kirkjuvegur 53, 218-4418, samkvæmt þinglýstum kaupsamningi,
þingl. eig. Kristín Halla Stefánsdóttir, gerðarbeiðendur Glitnir banki
hf. og Vörður tryggingar hf.
Kirkjuvegur 86, 218-4444, þingl. eig. Þórir Þorsteinsson,
gerðarbeiðandi Sparisjóðurinn í Keflavík.
Vestmannabraut 37, 218-4990, samkvæmt kaupsamningi, afsal Sig-
mundur Andrésson, þingl. eig. Hvassafell ehf., gerðarbeiðandi Vest-
mannaeyjabær.
Vesturvegur 19, 218-5078, þingl. eig. Gylfi Valberg Óskarsson,
gerðarbeiðandi Vestmannaeyjabær.
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum,
29. desember 2008.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Bjarkasel 11, fnr. 229-2942, Fljótsdalshéraði, þingl. eig. Bjarkasel ehf.,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 5. janúar 2009
kl. 12:00.
Bjarkasel 15, fnr. 229-2938, Fljótsdalshéraði, þingl. eig. Bjarkasel ehf.,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 5. janúar 2009 kl.
13:00.
Bjarkasel 16, fnr. 229-2948, Fljótsdalshéraði, þingl. eig. Bjarkasel ehf.,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 5. janúar 2009 kl.
13:30.
Bjarkasel 7, fnr. 229-2891, Fljótsdalshéraði, þingl. eig. Bjarkasel ehf.,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 5. janúar 2009 kl. 11:30.
Bjarkasel 9, fnr. 229-2893, Fljótsdalshéraði, þingl. eig. Bjarkasel ehf.,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 5. janúar 2009 kl. 11:00.
Blómvangur 2, fnr. 227-8151, Fljótsdalshéraði, þingl. eig. Ómar Boga-
son, gerðarbeiðandi Frjálsi fjárfestingarbankinn hf., mánudaginn 5.
janúar 2009 kl. 14:30.
Egilssel 3, fnr. 230-5309, Fljótsdalshéraði, þingl. eig. Hrjót ehf.,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 5. janúar 2009 kl.
10:30.
Egilssel 5, fnr. 230-5311, Fljótsdalshéraði, þingl. eig. Hrjót ehf.,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 5. janúar 2009 kl.
10:00.
Laufás 10, fnr. 217-5878, Fljótsdalshéraði, 50% eignahl. gerðarþola,
þingl. eig. Loftur Magnússon, gerðarbeiðandi Landsbanki Íslands hf.,
aðalstöðv., mánudaginn 5. janúar 2009 kl. 14:00.
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði,
29. desember 2008.
Tilkynningar
Dregið hefur verið í síma-
happdrætti Styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra
Vinningar komu á eftirtalin númer:
Toyota Prius að verðmæti kr. 3.660.000
kom á miða númer:
74601
ToyotaYarisTerra 1.0 að verðmæti
kr. 2.240.000 komu á miða númer:
3419 • 25602 • 26365 • 38491 • 40267 • 42633
43079 • 45704 • 56359 • 69339 • 70868 • 78576
90669 • 99070 • 107938
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra þakkar
landsmönnum veittan stuðning og óskar
vinningshöfum til hamingju.
Handhafar vinningsmiða framvísi þeim á skrif-
stofu félagsins að Háaleitisbraut 13, Reykjavík,
sími 535 0900. Byrjað verður að afhenda
vinninga 5. janúar 2009.
Aðalfundur
Sjómannafélags Íslands
verður haldinn að Skipholti 50d, 3. hæð,
þriðjudaginn 30. desember kl. 17:00.
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál.
Minnum félagsmenn á heimasíðu félagsins
www.sjomenn.is
Stjórnin.
Þjónustuauglýsingar 5691100
Raðauglýsingar
sími 569 1100
Farðu inn á mbl.is
✝ Þorsteinn Sig-urðsson fæddist í
Purkugerði á Vopna-
firði 3. ágúst 1924.
Hann lést á heimili
sínu 23. desember
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru Sig-
urður Þorsteinsson, f.
1886, d. 1982 og Elín
Salín Grímsdóttir, f.
1893, d. 1991. Systk-
ini Þorsteins eru
Grímhildur Margrét,
f. 1916, d. 1979, El-
ísabet Sigríður, f.
1917, og Ólafía Jóhanna, f. 1920, d.
1922.
Þorsteinn kvæntist 31. desember
1952 Guðmundu K. Jónsdóttur frá
Björnskoti undir Eyjafjöllum, f.
1931. Foreldrar hennar voru Jón
Gunnlaugur Jónsson, f. 1884, d.
1945 og Ingigerður Sigurðardóttir,
f. 1891, d. 1952. Börn Þorsteins og
Guðmundu eru: 1) Kristbjörg Jóna,
f. 1951, börn hennar eru Ann-
Katrín, f. 1972 og Þorsteinn Olof, f.
1974, 2) Sigurður, f.
1953, kvæntur Giselu
Mörthu Lobers, f.
1959, börn þeirra eru
Anna Kristína, f.
1992 og Lena Kat-
arína, f. 1994, 3) Er-
lingur, f. 1955,
kvæntur Kristínu
Pálsdóttur, f. 1963,
börn þeirra eru
Gunnþóra Elín, f.
1985, Bryndís Eva, f.
1992, Hrafnhildur
Edda, f. 2000 og Sól-
veig Erla, f. 2003, 4)
Þorsteinn Gísli, f. 1958.
Þorsteinn stundaði nám í barna-
og unglingaskólanum á Vopnafirði
en fór síðan til Reykjavíkur. Þar
tók hann stúdentspróf, utan skóla,
við Menntaskólann í Reykjavík.
Hann vann jafnan með námi sínu.
Hann nam lögfræði við Háskóla Ís-
lands í eitt ár, en varð að hverfa
frá námi vegna veikinda barns.
Kennaraprófi lauk hann árið 1952.
Þorsteinn starfaði m.a. við flugvöll-
inn í Reykjavík og síðar við skrif-
stofustörf á Keflavíkurflugvelli þar
sem hann vann við samræmingu
launakjara. Á tímabili vann Þor-
steinn hjá SÍS og kenndi nokkur ár
uns hann varð skólastjóri á Hólma-
vík. Árið 1968 varð hann fulltrúi
við Seðlabanka Íslands og gegndi
því starfi til ársins 1994 en þá lét
hann af störfum fyrir aldurs sakir.
Hann settist þó ekki í helgan stein
heldur vann seinustu ár ævinnar
óeigingjarnt starf á Elliheimilinu
Grund við íslenskukennslu og að
félagsstörfum fyrir aldraða. Þor-
steini var margt til lista lagt. Hann
lék með Leikfélagi Kópavogs um
árabil enda átti hann auðvelt með
að bregða á leik. Hann var söng-
hneigður og söng m.a. í Stúdenta-
og Rangæingakórnum og í kór Há-
teigskirkju, en lengst var hann í
kór Kópavogskirkju um þrjátíu ára
skeið. Söngurinn var mikilvægur
þáttur í lífi Þorsteins og Guð-
mundu og kirkjan staðurinn. Síð-
ustu tíu árin söng Þorsteinn í Ár-
bæjarkirkju og kór aldraðra í
Garðabæ.
Þorsteinn verður jarðsunginn
frá Árbæjarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.
Þorsteinn var sonur hjónanna Sig-
urðar Þorsteinssonar frá Hestgerði í
Suðursveit og Elínar Salínar Gríms-
dóttur frá Krossavík í Vopnafirði.
Sigurður var vélstjóri lengstan hluta
ævinnar. Hann var skáldmæltur og
vel að sér í íslenskum bókmenntum.
Elín, móðir Þorsteins var mjög tón-
elsk og lék m.a. á harmonikku undir
dansi. Þau fluttu til Reykjavíkur árið
1946.
Þorsteinn og Guðmunda leigðu í
Reykjavík uns þau fluttu í Kópavog.
Þar reisti þau hús ásamt foreldrum
hans árið 1955. Seinna byggðu þau
hús í Garðabænum og fluttu þangað
árið 1967. Þorsteinn var mjög hand-
laginn og tók mikinn þátt í að byggja
hús sín; steypti, múraði og málaði.
Þá var hann í eðli sínu mikill nátt-
úruunnandi og garðyrkjumaður,
ræktaði kartöflur og aðrar matjurt-
ir. Á Móaflötinni var oft gestkvæmt
og glatt á hjalla, mikið spilað og
sungið. Þá kunni Þorsteinn mikið af
sögum sem var gaman að hlusta á.
Hann hafði góð tök á hefðbundinni
ljóðstafasetningu, orti kvæði og kvað
vísur öðrum til ánægju. Nánasta
skyldfólk hans kallaði hann jafnan
Denna og var hann oft hrókur alls
fagnaðar. Þorsteinn var vinamargur,
en nú er hans sárt saknað.
Blessuð sé minning hans.
Guðmunda K. Jónsdóttir
og börn.
Elsku afi, ég vil byrja á því að
þakka þér fyrir allt sem þú hefur
sagt mér og kennt. Það sem ég man
mest eftir eru vísurnar sem þú
söngst fyrir mig, öll spilin sem þú
kenndir mér og allar sögurnar sem
þú sagðir mér.
Upp á síðkastið hef ég heyrt
margar sögur af þér, sem góðum,
söguríkum og skemmtilegum manni,
en fyrir mér verður þú alltaf afi
minn, sem ég á eftir að sakna að
deila afmælisdeginum mínum með.
Ég vona að þú hafir það gott þar
sem þú ert, laus við þjáningarnar
sem þú barst svo vel.
Þín sonardóttir
Lena Katarína Lobers.
Þorsteinn Sigurðsson
AKRANESKIRKJA | Gamlársdagur. Aftan-
söngur kl. 18. Nýársdagur. Hátíðarguðs-
þjónusta kl. 14. Prestur sr. Björn Jónsson.
AKUREYRARKIRKJA | Gamlársdagur. Aft-
ansöngur kl. 18. Sr. Sólveig Halla Krist-
jánsdóttir, félagar úr Kór Akureyrarkirkju
syngja, organisti er Sigrún Magna Þór-
steinsdóttir. Nýársdagur. Hátíðarguðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Jóna Lovísa Jónsdóttir,
félagar úr kór Akureyrarkirkju syngja, org-
anisti er Eyþór Ingi Jónsson.
ÁRBÆJARKIRKJA | Gamlársdagur. Hátíð-
arguðsþjónusta kl. 18. Sr. Þór Hauksson
þjónar fyrir altari og prédikar, Örnólfur
Kristjánsson leikur á selló og kirkjukórinn
leiðir hátíðarsöng. Nýársdagur. Guðsþjón-
usta kl. 14. Sr. Petrína Mjöll Jóhann-
esdóttir þjónar fyrir altari og prédikar, Bald-
vin Oddsson leikur á trompet, kirkjukórinn
leiðir almennan söng undir stjórn organist-
ans Krisztine Kalló Szklenár.
ÁSKIRKJA | Gamlársdagur. Aftansöngur
kl. 18. Kór Áskirkju syngur, organisti
Magnús Ragnarsson.
BESSASTAÐAKIRKJA | Gamlársdagur. Aft-
ansöngur kl. 17. Sr. Hans Guðberg Al-
freðsson predikar og þjónar fyrir altari
ásamt sr. Friðrik J. Hjartar. Sungið er Há-
tíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar. Álft-
aneskórinn syngur undir stjórn Bjarts Loga
Guðnasonar organista.
BORGARNESKIRKJA | Gamlársdagur. Aft-
ansöngur kl. 18.
BRAUTARHOLTSKIRKJA Kjalarnesi |
Gamlársdagur. Aftansöngur kl. 17. Gunn-
ar Kristjánsson sóknarprestur.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Gamlársdagur. Aft-
ansöngur kl. 18. Prestur sr. Bryndís Malla
Elídóttir, kór Breiðholtskirkju syngur, org-
anisti er Julina Edward Isaacs. Nýárs-
dagur. Hátíðarmessa með altarisgöngu kl.
14. Prestur er sr. Gísli Jónasson, kór
Breiðholtskirkju syngur, organisti er Julian
Edward Isaacs. Sjá breidholtskirkja.is.
BÚSTAÐAKIRKJA | Gamlársdagur. Aftan-
söngur kl. 18. Einsöngvari er Gréta Hergils
Valdimarsdóttir, kór Bústaðakirkju syngur,
organisti og kórstjóri Renata Ivan, tromp-
etleikari Guðmundur Hafsteinsson, prest-
ur sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir. Nýársdagur.
Hátíðarguðsþjónusta kl. 14. Ræðumaður
Páll Skúlason, prófessor og fyrrv. háskóla-
rektor. Einsöngur Nathalia D Halldórs-
dóttir, kór Bústaðakirkju syngur, organisti
og kórstjóri Renata Ivan, prestur sr. Pálmi
Matthíasson.
DIGRANESKIRKJA | Gamlársdagur. Aftan-
söngur kl. 18. Hátíðartón sr. Bjarna Þor-
steinssonar sungið af kór Digraneskirkju.
Sr. Gunnar Sigurjónsson prédikar og tekur
saman atriði úr starfi safnaðarins á árinu.
Einsöngvari Þórunn Freyja Stefánsdóttir og
organisti er Kjartan Sigurjónsson.
DÓMKIRKJAN | Gamlársdagur. Aftan-
söngur kl. 18. Sr. Hjálmar Jónsson prédik-
ar og sr. Anna Sigríður Pálsdóttir þjónar fyr-
ir altari. Dómkórinn syngur, organisti er
Marteinn Friðriksson. Nýársdagur. Hátíð-
armessa kl. 11. Biskup Íslands prédikar,
dómkirkjuprestar þjóna fyrir altari. Dóm-
kórinn syngur og organisti er Marteinn
Friðriksson. Sjá kirkjan.is.
EGILSSTAÐAKIRKJA | Gamlársdagur. Aft-
ansöngur kl. 18. Organisti Torvald Gjerde,
kór Egilsstaðakirkju, tvísöng syngja Her-
björn Þórðarson og Lisa Fröberg.
EYRARBAKKAKIRKJA | Gamlársdagur.
Aftansöngur kl. 18. Prestur sr. Sveinn Val-
geirsson.
FELLA- og Hólakirkja | Gamlársdagur. Aft-
ansöngur kl. 18. Prestur sr. Svavar Stef-
ánsson. Gissur Páll Gissurarson ten-
órsöngvari syngur og Hjörleifur Valsson
leikur á fiðlu, kór Fella- og Hólakirkju leiðir
safnaðarsöng undir stjórn Ásdísar Arn-
alds, organisti Hilmar Örn Agnarsson.
Meðhjálpari Jóhanna F. Björnsdóttir. Ný-
ársdagur. Hátíðarmessa kl. 14. Prestur sr.
Þórhildur Ólafs, einsöngvari er Björg Þór-
hallsdóttir, organisti er Hilmar Örn Agn-
arsson og kór Fella- og Hólakirkju leiðir
safnaðarsöng undir stjórn Ásdísar Arn-
alds. Meðhjálpari Kristín Ingólfsdóttir.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Gamlársdagur.
Aftansöngur kl. 18. Hanna Björk Guðjóns-
dóttir syngur einsöng, kór Fríkirkjunnar
syngur undir stjórn Arnar Arnarsonar,
prestur er Sigríður Kristín Helgadóttir.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Gamlársdagur.
Aftansöngur kl. 18. Prestur Hjörtur Magni
Jóhannsson. Tónlistarstjórarnir Anna Sig-
ríður Helgadóttir og Carl Möller leiða tón-
listina ásamt kór Fríkirkjunnar. Anna Hulda
les ritningarlestrana og stendur vaktina í
dyrunum.
GRAFARVOGSKIRKJA | Gamlársdagur.
Barnastund kl. 15. Sr. Guðrún Karlsdóttir
Orð dagsins:
Símeon og Anna.
(Lúk. 2)
MESSUR UM ÁRAMÓT