Faxi - 20.01.1942, Síða 6
6
F A X I
Barnaskólinn í Keflavík og
kosningarnar 25. janúar
Nú á sunnudaginn verður kos-
in ný hreppsnefnd hér í Kefla-
vík og er um þrjá lista að velja,
sem allir hafa á prjónunum sitt-
hvað þarft og nýtilegt fyrir
byggðalagið. Verkcfni, sem
hafa beðið óleyst allt til þessa
dags, eru nú dregin fram í dags-
Ijósið og þeim heitið stuðningi,
ef hlutaðeigandi listi fái við
kosningarnar meirihluta að-
stöðu í hinni nýju hreppsncfnd.
Loforðum listarina rignir svo
að segja daglega yfir kjósendur
Keflavíkur, enda er það ekkerí.
undarlegt, því hér eru mann-
virki í hrörnun og niðurnýðslu
og ný verkefni bíða fiam-
kvæmda.
Það er því mjög þýðingarmik-
ið, að kjósendur geri sér vcl
Ojóst, áður en þeir koma að kjör-
borðinu, hver þessara þriggja
lista er iíklegastur til þess að
efna loforð sín, því núverandi
kyrstöðuástand um öll fram-
fara og menningarmál hér í
Keflavík hlýtur níí að vera úr
sögunni, sökum þess, hve fólk-
inu fjölgar hér ört og byggðin
eykst, án þess nokkuð það sé
gert, af hreppsfélagsins hálfu,
vsem forráðamönnum hvers ört
vaxandi byggðalags ber bein
skylda til að framkvæma.
Eitt af því sem öllum þessum
háttvirtu mönnum, sem á list-
unum standa, ber saman um að
hrinda þurfi í framkvæmd nú á
þessu í hönd farandi kjörtíma-
bili, er bygging nýs, voldugs
skólahúss hér í Keflavík. Skóla-
húsið, sem nú er í notkun, og
sem hefir vissulega getað talizt.
myndarleg bygging á sínum
tíma, er reist árið 1911, en þá
munu íbúar Keflavíkur og
Njarðvíka hafa verið ca þriðj-
ungur þess sem þeir eru nú, eða
jafnvel færri. Af þessu má
nokkuð ráða, hve aðkallandi
það er, að hafist sé nú þegar
handa um byggingu nýs skóla-
húss hér í Keflavík, því auk
þess að gamli skólinn er að
verða állt of lítill, þá er hann
að sama skapi óvistlegur og lítt
til þess fallinn að auka fegurð-
arsmekk barnanna og hátt-
prýði. — Sökum rúmleysis hér
í blaðinu, get ég ekki lýst ná-
kvæmt göllum gamla skólans,
enda gerist þess ekki þörf. því
ölluiri mun það kunnugt mál. —
Nú nýverið mun skólanefnd
hafa sent hreppsnefndinni bréf,
þar sem skorað er á hana að
taka skólamálin til athugunar.
Hreppsnefndin mun hafa orðið
við þessari áskorun og sam-
þykkti að fela skólanefnd að
gera tillögur um, hvort hag-
kvæmara mundi að byggja nýj-
an skóla eða stækka þann
gamla.
Skólanefnd hefir haft þetta
Hér í Keflavík er mjög erfitt
fyrir hreppinn að taka kvik-
myndareksturinn í sínar hend-
ur vegna þess að nú sem stend-
ur er hann í höndum einstakl-
inga og félaga. Hér hafa að
minnsta kosti tveir aðilar leyfi
lil slíks reksturs. Því nú fyrir
skömmu mælti meiri hluti
hreppsn. með því að U.M.F.K.
yrði veitt leyfi til kvikmynda-
sýninga í húsi sínu, sem svo síð-
an hefir verið veitt.
Til þess nú, að hreppurinn
geti tekið kvikmyndarekstur-
inn í sínar hendur þarf hann
annað hvort að semja við þá
aðila, er nú hafa leyfi til slíks
reksturs, eða að fá samþ. lög cr
heimila hreppnum einum slík-
an rekstur.
Svar við 5. spurningu:
Við viljum beita okkur fyrir
því að símstöðin í Keflavík fái
réttindi 1. fl. stöðvar A. En gera
má ráð fyrir að það takist ekki
án fjárframlaga símnotenda
íyr en Keflavík hefur fengið
kaupstaðaréttindi.
R. G.
mál til athugunar nú um tíma
og er mér tjáð. að athuganir
henriar leiði í Ijós að heppileg-
ast verði að byggja nýtt skóla-
liús, en nota þáð gamla heldur
til annara þarfa fyrir byggðar-
lagið.
Þessa frétt tel ég gleðilegan
vott um vaknandi framfara-
vilja, sem spáir góðu um úr-
lausn annara vandamála sem
sigli í kjölfar þessa, en til þess
þarf borgurunum á sunnudag'-
inn að auðnast að velja í hrepps-
nefndina sína hæfustu raenn.
Eg trúi því ekki að Keflavík,
sem forsjónin hefir lagt að
brjósti auðugustu fiskimiða ver-
aldar þurfi um allan aldur að
sýna sig í kotungsklæðum. Ég
trúi því, að hér í miðju hrjóst-
urlendinu rísi upp með tíman-
um glæsileg borg, fyrir samtök
viðsýnna manna, — borg með
þeim menningarbrag sem hinni
íslenzku sjómannastétt sé til
verðugs sóma.
Hallgr. Th. Björnsson.
Skoti nokkur vildi fara ásamt
frú sinni í flugleiðangur. Eftir
langt og mikið þref lofar flug-
maðurinn að taka þau fyrir ekki
neitt, ef Skotinn steinþegi á
hverju sem gangi, meðan þeir
séu í loftinu. Hefst nú flugið,
og tekur flugmaðurinn hverja
fífldjarta sveifluna af annari,
unz hann að lokum lætur síga
til jarðar og tekur lendingu.
Spyr hann þá Skotann, hvernig
í dauðanum hann hafði getaö
þolað við, að gefa aldrei hljóð
frá sér. »Það munaði nú litlu«,
sagði Skotinn, »þarna um þaó
leyti' er konan mín datt út«.
★
Nýkomið:
Vasaljós og
B attarí
í miklu úrvali.
Margeir Jdnsson
Sími 65 ★ Keflavík.