Faxi - 20.01.1942, Blaðsíða 7
í ol'viðrinii á fimmtudaginn, (15.
janúar) urðu stórskemmdir víðsvegar
um land, eftir ]iví sem spurzt hefur.
Skip rak á land eða sukku við legu-
færi sfn og þak eða þakhluta tók af
húsum og heyhlöðum. Manntjón mun
þó ekki hafa orðið, svo vitað sé.
f Grindavík brotnuðu tveir bátar
allmikið. A Njarðvíkurhjöfn len.ti bát-
unum Freyju og Ársæli saman og ollu
nokkru tjóni á hvorum öðrum.
Tveir bátar sukku hér i Keflavík.
Annar, Erlingur, (11 msál.), á leg-
unni, en hinn, Hafalda, (7 smál.), við
ga.rðinn. Tekizt hefur að ná Haföldu
upp, en Vélbátaábyrgðarfélag Kefla-
víkur auglýsir eftir tilboðum í Erl-
ing, þar sem hann liggur á marar-
botni, þegar þetta er ritað.
Þá urðu nokkrar skemmdir á liafn-
armannvirkjunum við Vatnsnes og
þak tók af barnaskólanum og íleiri
húsum.
★
Króðlr uienn tiildu í byrjun þessa
árs, að janúar myndi ekki verða
gæftasæll. Hafa spár þeirra rætzt,
það sem af er mánaðarins, og horf-
ur á, að ótfðin og gæftaleysið hald-
ist fram í febrúar. En, um þetta leyti
f fyrra, var hver dagurinn öðrum
mildari, og þeir, sem fastast sóttu
sióinn þá, höfðu um 20 róörardaga
í janúar.
★
:>Svana il,iót« Á sínum tíma sýndi
Nýja-bíó f Keflavík kvikmyndina
Við Svanafljót. Meðal þeirra mörgu,
er sáu kvikmyndina, vo-ru. nokkrar
blómarósir úr Innri-NjarðvSkum, og
er ein þeirra, — sú, er hér kernur við
sögu, —- kölluð Svana.
Þegar stúlkurnar nálguðust byggð-
ina í Innri-Njarðvík um kvöldið að
lokinni sýningu myndarinnar, slóust
nokkrir ungir menn. í hóp þeirra.
Varð það upphaf að slðasta-leik út
um hvippinn og hvappinn, eins og
gengur og gerist hjá þeim, sem lífs-
gleðinnar vilja njóta úti í náttúr-
unni.
En svo illa tókst til fyrir Svönu.
I el'tingarleiknum, að hún hafnaði I
for einni, skammt frá veginum.
Sem betur fór, gekk björgun stúlk-
unnar vel og greiðlega, — en forin
er sfðan kölluð Svanafljót.
Og þeir, sem um veginn f.ara síðan,
eru þá að líkindum við Svanafljót’
★
Borgarafundnrinn. Frambjóðeffdur
hinna þriggja lista, er lagðir haía
verið hér fram við í hönd farandi
hreppsnefndarkosningar, efndu tii
sameiginlegs fundar í Félagshúsi
mánudagskvöldið 19. þ. m. kl. 8.
Húsið v.arð brátt þéttskipað áheyr-
endum og umræður hófust um kl. 8,30
og stöðu til kl. 2,15 eftir miðnætti.
I upphafi fundarins skýrði lög-
reglustjóri frá hag hreppsfélagsins á
síðastliðnum 4 árum.
Fundarstjiírar voru s.vo þeir, Alfred
Gíslason, lögreglustjóri og Steindór
Péturss.on, útgerðarm. Þrjár umferðir
voru ákveð.nar, en auk þess voru á-
kveðnar nokkrar mínútur til handa
þeim, er ekki voru á framboðslistun-
um.
Ræðumenn af hálfu A-listans voru
þessir: Ragnar Guðleifsson, Guöni
Magnússon, Danival Danivalsson,
Valdimar Guðjónsson og Jón G. Páls-
son.
Af hálfu B-listans,: Sigurþór Guð-
finnsson, Stefán Franklin og Einar
G. Sigurðsson..
Og af hálfu C-listans.: Guðmundur
Guómundsson, Karvel ögmundsson,
Sigurbjörn Eyjólfsson. Auk þess tóku
t.il máls Kristinn Jónsson, Arinbjörn
Þorvarðsson og Trausti Jónsson.
★
FráfarandJ hreppsncfnil reifaði
gerðir sínar, varðandi líðandi kjör-
tímabil. Urðu þær umræður ekki með
öllu hávaðalausar, og sýndist sitt
hverjum.
Sannaðist þar, að sjaldan veldur
einn, þegar tveir eða fleiri deila.
Að öðru leyti snerist svo mál manna
um verkefni, þau, er bíða úrlausnar
korsandi hreppsnefndar.
Var margt leitt fram í dagsljósið
af því, sem gera þarf byggðarlaginu
til heilla,
Merkustu málin sem rædd voru, eru
hafnarmálin, vatsn- og skolpveitumál-
in, og ræktunar og rafmagnsmálin.
Og þegar manni tókst að hlera á bak
við persónuádeilur, og skyggnast á
bak við tjöld þeirra, er héldu, að þeir
væru á leiksviði, þá kom I ljós, að
áhugi fyrir lausn fyrrnefndra mála
er ótvíræður.
Svo verður sjón ríkari. sögu um
framkvæmdirnar, þegar kosningu er
lokið, og nýtt kjöirtímabil hefst.
★
Blaðinu cr ætlad að gera hinum
ýmsu flokkum sem jafnast undir
höfði. Þvf er ekki farið hér út á þá
hálu braut að 'tilfæra málflutning
einstakra manna. Væri svo gert,
---------FAXI----------------
Blaðstjórn skipa:
Hallgr. Th. Björnsson
Ingimundur Jónsson
Ragnar Guðleifsson
Ritstjóri og ábyrgðarm.:
Kristinn Pétursson
Afgreiðslumaður:
Jón Tómasson
Símstöðinni, Keflavík
Verð i lausasölu 50 aurar.
myndi einn e. t. v. þræta fyrir sín
löluðu orð, annar telja tilvitnanirnar
slitnar úr samhengi, og þriðji full-
yrða, að hann hefði komizt miklu
spaklegar að orði.
»En gaman er að börnunum, þeg-
ar þau fara að sjá«, og fundarmenn.
skemmtu sér vel með köflum. Voru
það einkum mismæli og óliklegustu
líkingar sem vöktu hlátursöldu um
salinn við og við.
Aftur á móti voru þau orð viðhöíð
um þrjá gamalkunna Keflvíkinga und-
ir fundarlokin, að áheyrendum fannst,
vægast sagt, fátt um.
Er að sjálfsögðu stofnað til slikra
funda, sem þessi var, til þess að ræða
málin, en í sambandi við það er svo
oft kastað hnútum að frambjóðendum.
sem þá jafnharðan gripa þær á lofti
og endursenda til föðurhúsanna.
Hitt ber ekki vott um, að almenn
kurteisi sé reidd í þverpokum, þeg-
ar verstu. fúkyrðum tungunnar er
hrönglað sama.n og kastað framan f
r.ndstæðingana, sem væru þeir óalandi
og óferjandi.
★
Ptsölumenn blaðsius, víðsvegar uir.
Suðurnes, eru vinsamlega beðnir, að
gera skil fyrir I. árg., og endursenda
óseld blöð, ef þau kynnu að fyrir-
finnast.
Næsta b 1 að Faxa kemur væntan-
lega út um miðjan febrúar.
★
Eftirfarandi saga gæti heitið: Gildi
auglýsinga:
Ameríska kímniskáldið Mark Twain
var einu sinni ritstjóri blaðs, sem
ætla má, að hafi verið töluvert stærra
að flatarmáli en Faxi. Kvöld nokk-
urt kom kónguló vappandi og fór
yfir handrit hans á skrifborðinu.
Hann spurði hana, hverju þessi for-
vitni' sætti. »fig er«, sagði hún, »að
gæta að því, hverjir auglýsi í blað-
inu þfn.u«.
»Nú, hvers vegna?« spúrði, Twain.
»Til þess að velja mér dyr einhverra
þeirra, sem ekki auglýsa, — fyrir
vefinn minn. Þar fæ ég nefnilega að
vera í friði fyrir viðskiptavinunum«.
‘ —krp—