Árroði - 01.02.1947, Blaðsíða 20
Ekki ölmusur, heldur fækifæri
Úr The Progressive. Eftir William F. Mc. Dermott.
George Barr, ungur efnafræðingur, sem
vann hjá fyrirtæki í St. Paul í Ameríku,
missti fótinn fyrir 9 árum síðan og atvinn-
una um leið. Honum tókst ekki að fá aðra
vinnu, svo hann byrjaði á eigin spýtur. Nú
framleiðir lyfjavöruverksmiðja hans í Chicago
vörur fyrir 5 millj. dollara á ári og við hana
vinna 147 karlar og konur — þar af 130
svo alvarlega fötluð, að þau virtust dæmd
til að eyða lífinu í iðjuleysi og ófrelsi. Þau fá
há laun og ágóðahluta að auki.
Hann sagði við mig: „Það er mjög ánægju-
legt íhve fatlað fólk getur leyst mörg verk
prýðilega af hendi. Sé það á réttum stað, af-
kastar það meiru en þeir, sem heilir eru.
Maður, sem notar hækjur, fær sterka hand-
leggi og herðar og á auðveldara með að stjórna
erviðum vélum en venjulegur maður, og
blindur maður, sem vanur er að lesa blindra-
skrift, á hægra með að leysa af hendi verk,
sem krefjast næmleika í fingurgómunum".
Ef þú kemur i heimsókn til G. Barr &
Co., þá varar George þig við því, að láta
nokkra meðaumkun eða vorkunnsemi í ljós
við fólkið. „Það hvorki þarf eða vill neitt
slíkt“, segir hann hreykinn. Og þú finnur
það líka brátt; fólkið er leiftrandi af glað-
lyndi og góðu skapi.
Við eitt hreyfiborð eru 25 karlar og konur
blind. Fingur þeirra þjóta skjótt og öruggt
og þau kastast á glensi og gamanyrðum. Við
annað langt borð eru 30 daufdumbir, andlitin
ljóma af áhuga, þegar þeir „tala“. Og hér eru
15 karlar og konur, sem misst hafa handlegg
eða fót; nokkrir, sem misst hafa annað aug-
að. Þau stjórna vélum, vinna við hreyfiborð,
vegna, mæla, búa um og flytja til vörurnar,
og vinna skrifstofustörf, eins vel og oft betur
en ófatlaður meðalmaður.
Fyrirtækið speglar persónuleika hins 32
ára gamla forstjóra. George Barr fékk heið-
ursverðlaun frá háskólanum í Wisconsin
1933. Þremur mánuðum eftir að hann fékk
sína fyrstu atvinnu missti hann fótinn í bíl-
slysi. Hann fékk gerfifót og lærði að ganga
óhaltur; nú þýtur hann um við verk sitt
eins og hvirfilbylur.
Vegna fötlunar sinnar gat Barr ekki fengið
vinnu, en hann vildi ekki gerast skrifstofu-
þræll. Hann fann upp nýja forskrift að hár-
liðunar-meðali, bjó það til á nóttunni og á
daginn heldi hann það snyrtistofum og verzl-
unum.
Hann fékk daufdumban mann, Mitchell
Echikovitz, til að vinna með sér. Salan óx
og George og Mitchell þurftu á þriðja manni
að halda. Mitchell þekkti atvinnulausa, dauf-
dumba stúlku, og hún var fengin til að
líma miða á flöskur. Hún vinnur enn hjá
félaginu — og er nú gift Mitchell.
Eftir fjögur ár framleiddi fyrirtækið marg-
ar tegundir af lyfjum og snyrtivörum og við
það unnu 18 manns, allir daufdumbir. Þá
var það einn dag, þegar George var að vinna
20 ÁRROÐÍ