Lesbók Morgunblaðsins - 21.02.2009, Side 11

Lesbók Morgunblaðsins - 21.02.2009, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2009 Lesbók 11 U m síðustu jól ákvað ég að setja saman fullkomna blöndu af góðum mynd- um svo ég leigði Fanny og Alex- ander eftir Ingmar Bergman og The Party með Peter Sellers. Fanny og Alexander var 6 eða 8 tíma „full version“, sem hentaði ágætlega, þannig gat ég verið að horfa meira eða minna öll jólin. Þessi mynd er þvílíkt meist- araverk og ennþá skemmtilegra að horfa á hana yfir hátíðarnar. Sagan gerist í Svíþjóð á árunum 1907-08 og segir frá lífi Ekdahls-fjölskyldunnar. Í myndinni er að finna þá allra bestu veislusenu sem til er, ótrúlega flottar persónur og vandaðan leik. Það er eitthvað við þessa mynd sem vekur hjá manni einhverskonar nostalgíu. Ingmar Bergman var snillingur. Legg til að Sjónvarpið sýni þessa mynd á jól- unum kannski bara á eftir Hnotubrjótnum eða í staðinn fyrir Sigríði Ellu og kórinn, þó það sé ekki slæmt. Í The Party er að finna aðra mjög góða veislusenu, þar sem Peter Sellers leikur indverskan leikara sem fyrir mis- tök er boðið í mjög fínt boð, þar er að finna nokkrar sjúk- lega fyndnar senur. Það er bara svo gott að fá hláturkast – ég held það hljóti að vera heilsusamlegt. Næst ætla ég að horfa á Vicky Cristina Barcelona frá vini mínum Woody Allen og svo þarf ég að fara að setja saman páskapakk- ann. Gláparinn | Edda Björg Eyjólfsdóttir Það er bara svo gott að fá hláturkast - ég held það hljóti að vera heilsusamlegt. Höfundur er leikkona. Á Landnámssýningunni í Aðalstræti 16 mætast elstu minjar um búsetu í Reykjavík og nýjasta margmiðlunartækni. Úrval af fallegri gjafavöru í safnbúðinni. Opið alla daga frá kl. 10-17. www.minjasafnreykjavikur.is/www.reykjavik871.is ÞVERSKURÐUR: Sýning Textílfélagsins 7. febrúar-8. mars Opið kl. 11-17 alla daga nema mánudaga Leiðsögn á sunnudag klukkan 15.00 Ókeypis aðgangur www.gerdarsafn.is ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS LISTASAFN KÓPAVOGS GERÐARSAFN LISTASAFN ÍSLANDS Endurfundir - fornleifarannsóknir styrktar af Kristnihátíðarsjóði Sýning fyrir alla fjölskylduna! Leiðsögn á íslensku alla sunnudaga kl. 14 Spennandi safnbúð og kaffihúsið Kaffitár Opið alla daga nema mánudaga kl. 11-17 www.thjodminjasafn.is Söfnin í landinu Görðum, 300 Akranes Sími: 431 5566 / 431 1255 www.museum.is museum@museum.is Listasalur: Eyjólfur Einarsson Söknuður Bátasalur: 100 bátalíkön Poppminjasafn: Rokk Bíósalur: Úr safneign Listsafsnins Opið virka daga 11.00-17.00, helgar 13.00-17.00. Ókeypis aðgangur. LISTASAFN ASÍ 7. febrúar - 1. mars 2009 Þuríður Sigurðardóttir Á milli laga Ný málverk og verk unnin í aðra miðla LISTAMANNASPJALL SUNNUDAGINN 22. FEBRÚAR KL. 15.00 Aðgangur ókeypis Safnið er opið alla daga nema mánudaga kl. 13-17 Freyjugötu 41, 101 Rvk www.listasafnasi.is SKART OG SKIPULAG Danska skartgripaskrínið Guðbjörg Kr. Ingvarsdóttir Hveragerði – nýr miðbær 1. feb.- 19. apr. OPIÐ: fim. – sun. kl. 12-18 AÐGANGUR ÓKEYPIS Hveragerði NOKKRIR VINIR 13.2.–3.5. 2009 DIETER ROTH - PUZZLE Heimildarmynd Hilmars Oddssonar um myndlistarmanninn Dieter Roth er sýnd í sal 2. LEIÐSÖGN Sunnudag kl. 14-15 í fylgd Rakelar Pétursdóttur safnafræðings. Hádegisleiðsögn þriðjudaga og föstudaga kl. 12.10–12.40 Safnbúð Listasafns Íslands - Gjafir listunnandans Opið kl. 11-17 alla daga, lokað mánudaga. Allir velkomnir! ÓKEYPIS AÐGANGUR. www.listasafn.is E ftir að hafa pælt í nokkrum plötum sem ég ætlaði að taka fyrir með ákveðnum tónlistarmanni þá gat ég ekki gert upp á milli þeirra. Þess vegna tek ég fyrir tónlistar- mann og fæ því að segja aðeins meira frá manninum á bak við meistaraverkin. James Yancey (Jay Dee, J Dilla) stofnaði rappgrúpp- una Slum Village ásamt skólafélögum sínum T3 og Baatin ungur að árum í menntaskóla. Jay Dee hafði lagði mikinn metnað í tónlistina og eyddi öllum sínum stundum í kjallaranum að taka upp á tapedeck, en síðar fékk hann lánaðan sampler hjá félaga sínum Amp Fiddler. Í kringum 1995 var Jay Dee byrjaður að vinna með ógrynni af lista- mönnum, t.d. Janet Jackson, Pharcyde, De La Soul, Busta Rhymes, A Tribe Called Quest, Q Tip og fleirum. En hópurinn Ummah var skráður fyrir flestu sem stofnað var af Q Tip og Ali Shaheed úr Tribe Called Quest. 1995 kom út platan Labcabincalifornia með Pharcyde og sá Jay Dee mestmegnis um upptökur á henni. Árið 1997 fékk Janet Jackson Grammy-verðlaun fyrir lagið „Got Till It́s Gone“ sem Jay Dee tók upp. Hann var einn af stofnendum Soulquarians ásamt Questlove, D’angelo og James Poyser. Á þeim tíma vann hann með Erykhu Badu, Talib Kweli og Common. Árið 2000 kom út plata með Slum Village, Fantastic Vol. 2 sem hafði mikil áhrif á mig og er enn í dag ein af mínum uppáhaldsplötum. Hann vann síðan með Common á plötunni Like Water for Chocolate sem er að mínu mati ein af betri hipphopp-plötum fyrr og síðar. Ég gæti haldið endalaust áfram. James Yancey hafði mjög mikil áhrif á mig og hann kom með ákveðinn karakter inn í senuna. James Yancey hafði mjög mikil áhrif á mig og hann kom með ákveðinn karakter inn í senuna. Hlustarinn | Benedikt Freyr Jónsson Höfundur er tónlistarmaður og plötusnúður. É g les nú reyndar aðallega nótur þessi dagana. En það liggja samt nokkrar lesnar bækur á náttborðinu; Tanguy – Barn vorra tíma eftir fransk/spænska skáldið Michel del Castillo. Þar lýsir hann bernskuárum í fangabúðum í Frakklandi, útrýmingarbúðum í Þýskalandi og „uppeld- isstofnun“ í Barcelona. Ágætt mótvægi við Woody Allen. Ólýs- anleg grimmd andspænis von- inni. Ótrúleg lotning fyrir valdinu andspænis frelsinu. Minnir okkur á milljónir flóttabarna nútímans. Öll vanda- mál verða smá í samanburðinum við það sem þessi börn þurfa að þola. Þegar ég horfi á bókabunkann virðist eins og ég hafi tekið þemavikur um ástina: Enduring Love eftir Ian McEw- an, Ástin á tímum kólerunnar og Um ástina og annan fjára eftir Marquez. En kannski fjalla allar skáldsögur um ástina þótt orðið rati ekki alltaf í titilinn. MacEwan og Marquez eru náttúrlega snillingar en það liggur við að snilld McEw- ans sé of áberandi. Maður verður jafnvel heillaðri af virtú- ósískri frásagnartækninni en sögunni sjálfri. En að lokum eru það Lófasögur Yasunari Kawabata sem eru aldrei langt undan. Þar er til dæmis vasaútgáfa af meistaraverkinu Snjóalandið, bara kjarninn í þeirri sögu. Tær og djúpur skáldskapur. Lesarinn | Kolbeinn Bjarnason Öll vandamál verða smá í sam- anburðinum við það sem þessi börn þurfa að þola. Höfundur er tónlistarmaður

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.