Morgunblaðið - 03.01.2009, Blaðsíða 17
Morgunblaðið |17
Það er aldrei skemmtilegt að verða veikur og sumir
kvarta undan því að hafa einfaldlega ekki tíma til að
leggjast í rúmið. Ýmislegt má gera til þess að reyna að
bæta ónæmiskerfið og sporna við veikindum.
Ótal rannsóknir hafa sýnt fram á að mikilvægt er að
byrja daginn á góðum morgunmat og slíkt hefur einnig
sitt að segja þegar kemur að kvefi og flensu. Einnig er
gott að fá sér banana á morgnana þar sem hann inniheld-
ur trefjar sem auka vöxt skaðlausra baktería í maganum.
Regluleg líkamsrækt er alltaf góð og stuðlar að því að
líkaminn framleiði átfrumur, sem ráðast á bakteríur í lík-
amanum. Að finna sér tíma til að slappa vel af með heitu
baði eða jóga er líka mikilvægt því stress dregur úr losun
adrenalíns og cortisols út í líkamann sem veikir ónæm-
iskerfið. Þá hefur rannsókn sýnt að fólk sem borðar eina
jógúrt á dag fékk kvef í 25 prósent færri skipti en þeir
sem slepptu jógúrtinni. Ómega-3 fitusýrur styrkja líka
ónæmiskerfið en þær fást úr túnfiski, laxi, sardínum og
makríl og því gott að borða sem mest af slíkum fiski. Nei nei Enginn tími finnst hér til að verða veikur.
Ekkert stress,
enga flensu
Þekkt er að nota trönuber og
trönuberjasafa til að vinna bug á
blöðrubólgu en sumir segja að blá-
ber virki alveg jafnvel. Bláber inni-
halda sömu efnasamsetninguna og
þá í trönuberjum sem ræðst að sýk-
ingunni. Innihald þessara efna er
dálítið minna í bláberjunum en oft
er auðveldara að kaupa þau fersk
og þannig eiga við höndina. Talið
er að góð handfylli af bláberjum á
dag geti nægt til að bægja frá
blöðrubólgu auk þess sem þau eru
stútfull af andoxunarefnum.
Nytsamleg Bláber geta veitt fyr-
irbyggjandi áhrif við blöðrubólgu.
Handfylli af
bláberjum
Það getur verið ansi erfitt að púsla
án þess að vita hvernig púsluspilið
á að líta út eða að miða ör án þess
að vita hvert er verið að skjóta. Að
sama skapi eru markmið mjög mik-
ilvæg þegar kemur að heilsurækt.
Með því að sjá greinilega hvert er
stefnt er leiðin hálfnuð. Frá upphafi
hafa heimsleiðtogar með sterka og
augljósa sýn getað hvatt fólk til
stórra afreka. Á sama hátt geta
ákveðin markmið hvatt fólk áfram
og haldið því áhugasömu. Í stað
þess að skjögra áfram og vonast til
að bæta líf þitt þá muntu þekkja ár-
angur þegar hann birtist og vita
hvað þarf að gera til að komast á
leiðarenda. Því nákvæmara sem
markmiðið er því auðveldara verð-
ur að ná því.
Markmið Það er mikilvægt að vita
hvert skal stefna í heilsurækt.
Mikilvæg
markmið
mbl.is
ókeypis
smáauglýsingar
Ný uppbygging, nýtt efni, nýjar æfingar!
Átaksnámskeið Hreyfingar hafa aldrei verið betri.
Leiðbeinendur sem búa yfir áralangri reynslu hafa fengið
sérþjálfun til að leiða hin nýju og árangursríku námskeið
sem skila þér pottþéttum árangri.
Fjölbreytt 6-vikna námskeið.
Mismunandi áherslur eftir því hvort þú ert byrjandi eða
lengra komin. Tímarnir eru 3 x í viku.
Lestu umsagnir ánægðra þátttakenda á hreyfing.is
Ágústa, Anna og Guðbjörg hafa sett saman
ný 6-vikna námskeið sem tryggja þér þann
árangur sem þú vilt ná í heilsu- og líkamsrækt
Álfheimar 74
Sími: 414 4000
hreyfing@hreyfing.is
www.hreyfing.is
P
L
Á
N
E
T
A
N
Öll Árangurs námskeiðin eru byggð upp á
svipaðan hátt nema með mismunandi áherslum.
Allar nánari upplýsingar á hreyfing.is
Veldu þér námskeið sem hentar þér:
Árangur
Árangur/elítan
Árangur framhald
• Komdu þér út úr röngu fæðumynstri og byrjaðu að borða fæðu
sem gerir þig granna
• Losnaðu við eilífa sætindaþörf
• Mataræðið tekið í gegn – fylgt eftir nokkrum einföldum reglum
- örugg leið til árangurs
• Lærðu að borða til að næra vöðvana þína og svelta fitufrumurnar
• Einfaldar æfingar sem miðast við að tryggja hámarks fitubruna
• Þú losar þig við aukakílóin
• Þú minnkar fitufrumurnar og styrkir og mótar vöðvana
• Þú minnkar ummál um mitti, læri og mjaðmir
• Þú eykur orku þína, þrek og vellíðan
Láttu skrá þig strax í síma 414 4000 eða á hreyfing@hreyfing.is
HEFST 12. JANÚAR
ÁRANGUR
Á NÝJU ÁRI