Morgunblaðið - 04.01.2009, Page 25
Eftir Orra Pál Ormarsson
orri@mbl.is
B
reidd og næmi verkanna
er yfirþyrmandi, skrifar
Karen Wilkin, myndlist-
argagnrýnandi The Wall
Street Journal, um yf-
irlitssýningu á verkum bandaríska
alþýðulistamannsins James Castles
í listasafni Fíladelfíu og klykkir út
með því að hann hafi án efa skipað
sér á bekk með helstu risum sam-
tímateikningar. Falleg orð. Synd að
þau skuli fyrst rata á prent þremur
áratugum eftir að Castle lést
óþekktur og einangraður í fásinninu
í Boise-dalnum.
Castle fæddist heyrnarlaus. Hann
óx úr grasi á litlum bóndabæ í
Idaho og heimildir herma að hann
hafi varið fimm árum í heyrnleys-
ingjaskóla. Námið þar virðist þó
hafa verið til málamynda því hvorki
lærði Castle að tala né lesa. Ætt-
ingjar hans fullyrða að hann hafi
ekki verið mállaus en aldrei lært að
mynda orð. Táknmál þekktist ekki á
þessum tíma og heyrnarlausu fólki
var kennt að lesa af vörum. Það
virkaði ágætlega fyrir fólk sem
misst hafði heyrnina en var þrautin
þyngri fyrir fólk sem aldrei hafði
heyrt.
Castle þótti snemma af-
brigðilegur í háttum og var fyrir
vikið álitinn þroskaheftur. Læknar
sem í seinni tíð hafa kynnt sér sögu
hans gera því hins vegar skóna að
hann hafi haft fulla greind en verið
einhverfur.
Dæmdur til einangrunar
Tjáskipti gengu treglega og for-
eldrar Castles gáfust fljótt upp á
því að láta hann hjálpa til við bú-
skapinn. Hann kom heldur hvorki
að gagni á pósthúsinu né í versl-
uninni sem fjölskyldan rak. Castle
var dæmdur til einangrunar á háa-
lofti býlisins.
Þar tók hann upp á því að teikna.
Aðföng voru ekki sótt yfir lækinn.
Castle bjó til blýanta úr spýtum og
trjágreinum og blekið samanstóð af
sóti og munnvatni. Pappírinn var af
ýmsu tagi, hann notaðist við heild-
sölupakkningar, pappa, sígar-
ettupakka og afdankaðar bækur,
svo eitthvað sé nefnt.
Með tímanum fór Castle líka að
búa til myndabækur og hanna og
smíða húsgögn og fleiri nytjamuni.
Talið er að eftir hann liggi um tutt-
ugu þúsund smíðisgripir.
Wilkin talar um ásækið myndmál
í skrifi sínu en Castle hefur þurft að
láta hugann reika við sköpunina
enda tilvera hans æði fábrotin. En
eins og gefur að skilja var býlið
hans helsta yrkisefni fyrstu árin,
einkum hlaðið. Oftar en ekki voru
þó dularfull tótem á sveimi yfir
bóndabænum og útihúsunum sem
Castle teiknaði af natni. Það vekur
aftur á móti athygli Wilkins að fí-
gúrur eru yfirleitt flatar og fjar-
lægar í teikningum Castles. Það
gæti bent til þess að listamaðurinn
hafi haft betri skilning á dauðum
hlutum og tengt betur við þá en
mannfólkið.
Listfræðingar segja talsverðan
húmor í verkum Castles en líka
mikla sorg, einkum í sjálfsmynd-
unum. Á einni slíkri getur að líta
Castles handalausan og verkfæra-
lausan eftir að honum var vísað úr
skóla. Hvað skyldi þessi duli maður
hafa viljað segja umheiminum?
Þegar Castle var 25 ára flutti fjöl-
skyldan búferlum í Boise-dalinn og
þar bjó hann allt til æviloka.
Upp á yfirborðið
Fjölskylda Castles lét sér fátt um
listsköpunina finnast en dró heldur
ekki úr honum kjarkinn. Á sjötta
áratugnum, þegar Castle var á sex-
tugsaldri, fór ungur frændi hans,
Robert Beach, hins vegar að sýna
verkum hans áhuga. Hann bar sýn-
ishorn undir listfræðinga í Portland
og fékk mjög jákvæð viðbrögð. Í
kjölfarið kom list Castles upp á yf-
irborðið og haldnar voru sýningar í
Washington, Oregon, Kaliforníu og
Idaho.
Aðstandendur Castles fögnuðu
þessum áhuga í fyrstu en smám
saman fóru þeir að vantreysta list-
miðlurum og sýningarstjórum sem
áttu til að búta verkin niður eða
skila ekki óseldum verkum. Þá var
það Castle fjötur um fót að það
þótti ekki sérlega fínt í bandarísk-
um listheimi á þessum árum að vera
sjálfmenntaður. Listaverkakaup-
endur hvorki þekktu né skildu slíka
list.
Fyrir vikið staldraði Castle stutt
við á yfirborðinu í það skiptið. Hann
hélt hins vegar áfram að vinna að
list sinni í ró og næði allt til dauða-
dags 1977. Eftir andlátið lá fjöldi
verka um árabil undir skemmdum.
Árið 1994 urðu hins vegar
straumhvörf þegar ákveðið var að
efna til sýningar á meira en fimmtíu
bókverkum eftir Castle í Bóka-
miðstöð Idaho í Boise. Féll hún í
frjóan jarðveg og voru ættingjar
Castles í kjölfarið hvattir til að fá
sér miðlara, láta skrá verk hans og
koma þeim í viðunandi geymslur.
Eftir þetta beindist kastljósið á ný
að bókverkum Castles og voru þau
sýnd víðsvegar um Bandaríkin á tí-
unda áratugnum við góðar und-
irtektir.
Snilligáfan staðfest
Árið 2000 óx vegur Castles enn
þegar verk hans voru sýnd á einka-
sýningum í Teiknimiðstöðinni og
Knoedler-galleríinu í New York. Þá
átti hann verk á umfangsmikilli
samsýningu í MoMA skömmu síðar.
Við þetta opnuðust augu margra
fyrir snilligáfu hans sem yfirlitssýn-
ingin í Fíladelfíu virðist staðfesta.
Listheimurinn í Bandaríkjunum
hefur tekið James Castle í sátt og
hróður hans borist víðar um lönd.
Mörgum spurningum er þó enn
ósvarað um þennan huldumann og
Ann Percy, sem setti upp sýninguna
í Fíladelfíu, segir þurfa að rannsaka
höfundarverk hans betur. Varði hún
þó rúmum þremur árum í verkefnið.
Wilkin botnar heldur ekkert í því
hvernig maður sem hvorki heyrði
né talaði og hlaut enga formlega
listkennslu gat náð svona góðu og
persónulegu valdi á forminu. „Við
þessu eru engin svör en þegar upp
er staðið skiptir það engu máli.
Hjartnæm saga hans kallar á at-
hygli okkar. Það gerir líka hin mis-
lynda ljóðræna í verkum hans.“
Hin mislynda ljóðræna
Yfirlitssýning á verkum bandaríska alþýðulista-
mannsins James Castles í listasafni Fíladelfíuborgar
hefur vakið mikla athygli á umliðnum vikum. Augu
margra hafa opnast fyrir umfangsmiklu og hug-
myndaríku höfundarverki þessa huldumanns sem
er löngu látinn og þekkti ekki aðra leið til að hafa
samskipti við umheiminn en að teikna myndir.
Nostur Sýnishorn af bókverkum Castles. Hann vandaði
jafnan vel til verks.
Utangarðs Castle var heyrnarlaus og mætti litlum skilningi á sinni tíð. Var
álitinn þroskaheftur. Margt bendir til þess að hann hafi verið einhverfur.
Snjall Ein teikninga Castles af búgarðinum í Idaho, gerð
með munnvatni og sóti á pappír sem féll til.
Alþýðulist 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 2009
Laugaveg 53 • sími 552 3737
Opið virka daga 10-18 • laug. 10-17
Útsalan er hafin
allar vörur með
40% afslætti
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050
Fréttir á SMS