Morgunblaðið - 20.02.2009, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 20.02.2009, Qupperneq 27
Minningar 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2009 gagnvart þeim er gengu í öðrum takti en hann sjálfur. Málalengingar voru honum ekki að skapi, hlutirnir urðu að gerast hratt en vel. Hann beitti sjálfan sig miklum aga og fannst sjálf- sagt að aðrir gerðu slíkt hið sama. Við upphaf kynna okkar var Sig- urður enn við stjórn Flugleiða og hafði nokkrum árum áður siglt félag- inu í gegnum mikla erfiðleika. Hann stóð fyrir aðgerðum til bjargar fyr- irtækinu sem lítt voru til þess fallnar að afla honum vinsælda, þó sagan hafi síðar tekið af öll tvímæli um réttmæti þeirra. Um tíð Sigurðar hjá Loftleið- um og síðar Flugleiðum hefur margt verið skrifað og sitt sýnst hverjum. Yfirburðaþekking hans á flugrekstri var óumdeild, en margir kveinkuðu sér undan skorti á fínstillingum í mannlegum samskiptum. Þeir sem hæst gagnrýndu Sigurð á þessum umbrotatíma voru oft einstaklingar sem sjálfir kusu hlutverk áhorfand- ans í baráttunni, tilbúnir að forða sér ef illa skyldi til takast. En fyrirtækið náði sér þó fljótlega á strik og varð aftur eftirsóttasta hnossið í valdatafli íslensks viðskiptalífs. Það þurfti ekki langa viðkynningu við Sigurð til að átta sig á því að hann var ekki allra og oftar en ekki var hann manni ráðgáta. Hans bestu eig- inleikar: hörkugreind, kappsemi og trygglyndi blönduðust svo í skaphöfn hans að þeir urðu honum á vissan hátt til trafala í umgengni við aðra. En um leið voru þeir algjör forsenda þess ár- angurs sem hann náði á lífsleiðinni. Og vissulega var Sigurður Helgason enginn veifiskati í viðskiptum. Hann tefldi sínar skákir af miskunnarleysi og til sigurs – og marga lagði hann að velli í þeirri taflmennsku. En þó hann væri harður gagnvart umhverfi sínu var hann tilfinningarík- ur maður og viðkvæmur fyrir sjálfum sér. Honum fannst á stundum hann ekki njóta sannmælis og það viðhorf gerði, án efa, daglegt líf hans flóknara en efni stóðu til. Um sína daga efn- aðist Sigurður betur en flestir sam- landar hans og það veitti honum frelsi til að njóta þess er hugur hans stóð til. En daglegt líf hans einkenndist alla tíð af stakri reglusemi, allt að því meinlæti. Hann var höfðingi heim að sækja, en sá lífsstíll sem sporgöngu- menn hans í íslensku viðskiptalífi stunduðu til skamms tíma var honum fullkomlega framandi. Atvikin höguðu því svo, að þau Unnur og Sigurður Helgason urðu mínir fyrstu kúnnar þegar ég opnaði eigin teiknistofu. Verkefnið, sem þau fólu mér var að sönnu hvorki flókið né viðamikið, en fyrir mig var það helj- arstökk. Þau sýndu hinum unga og óreynda ráðgjafa sínum mikla velvild en um leið hæfilegt aðhald; þau voru opin fyrir hugmyndum og óspör á lof- ið fyndist þeim vel að verki staðið. Af þessum kynnum spruttu fleiri verk- efni, bæði innanlands og utan, en einkum þó vinátta sem stóð í hartnær aldarfjórðung, vörðuð af rausn og veglyndi þeirra hjóna. Alls þess er nú gott að minnast. Ögmundur Skarphéðinsson. Mér er ljúft að minnast vinar míns Sigurðar Helgasonar sem nú hefur kvatt þennan heim eftir heilladrjúgt starf. Það er ekki langt síðan fundum okkar bar síðast saman, en það var í desember á síðasta ári þegar hann bauð mér og konu minni að heim- sækja sig á eyjunni Mustique í Vestur Indíum. Sigurður sagði að staðurinn væri paradís og það upplifðum við svo sannarlega á þeim dögum sem við dvöldum hjá honum í góðu yfirlæti. Kynni okkar ná aftur um ein 20 ár, en það sem hæst stendur var vinna í tengslum við Íslensk-ameríska félag- ið og samskipti við American Scand- inavian Foundation (ASF) í New York. Sigurður hefur sennilega að öll- um öðrum Íslendingum ólöstuðum unnið hvað ötulast að stuðningi við Ís- lensk-ameríska félagið og að söfnun í sjóði ASF sem voru fyrst og fremst til stuðnings Íslendingum til framhalds- náms í Bandaríkjunum. Um árabil safnaði Sigurður að eigin frumkvæði peningum frá velvildarmönnum í Bandaríkjunum til stuðnings Thor Thors-sjóðnum sem er í vörslu ASF. Því til viðbótar hafði Sigurður veg og vanda að því að safna sérstaklega til nýrrar byggingar ASF í New York á árunum 1997 til 2002. Í þeirri söfnun söfnuðust frá einstaklingum og fyr- irtækjum á Íslandi um 500 þúsund dollarar fyrir utan fjárframlag sem kom frá ríkisstjórn Íslands. Framlag Íslendinga til þessarar byggingar var hlutfallslegar meira en frá nokkru öðru Norðurlandanna. Ég er þess fullviss að þessum árangri hefði tæp- ast verið náð nema vegna þess að Sig- urður leiddi þetta starf og var óþreyt- andi í að leita eftir stuðningi frá íslenskum fyrirtækjum og kynna mikilvægi þess að eiga öflugan bak- hjarl í New York. Meðan á dvöl okkar stóð á eynni Mustique ræddum við Sigurður um heima og geima og aðallega viðskipti. Þar var aldrei komið að tómum kof- unum og hafði hann ætíð skoðun á mönnum og málefnum. Sigurður gerði kröfu til viðmælenda sinna og því var eins gott að hafa eitthvað til málanna að leggja þegar að málin voru krufin til mergjar! Það var ljóst af þeim kunningjum Sigurðar sem við hittum í þessari ágætu ferð okkar til Mustique að mikil virðing og traust var borið til hans. Sigurðar verður líklega minnst sem forystumanns í flugmálum, en mér segir svo hugur, að eftir því sem árin líða muni hans ekki verða síður minnst sem fagstjórnanda. Hann átti þátt í að leiða fyrirtæki í mikilli upp- sveiflu og ná slíkum árangri að eftir var tekið á heimsmælikvarða og einn- ig að takast á við öll þau vandamál sem fylgja niðursveiflu. Hann hafði af þeim sökum skýra sýn og skoðun á því sem hefur verið að gerast á Ís- landi á undanförnum misserum og í hvaða skipbroti þjóðin hefur lent. Það er heiður að hafa fengið að kynnast Sigurði náið. Hann var mað- ur sem ég hef mikið lært af. Sigurður var sportmaður, en fyrst og fremst var hann stjórnandi og síðast en ekki síst einn af öflugustu stuðningsmönn- um um aukin menningar- og við- skiptatengsl milli Íslands og Banda- ríkjanna. Ég votta börnum Sigurðar og öðr- um aðstandendum samúð okkar hjóna. Þórður S. Óskarsson. ✝ Bjarni Guð-brandsson fædd- ist í Vallarhjáleigu í Gaulverjabæj- arhreppi 16. sept- ember 1918. Hann lést á Landspítala, Landakoti, 12. febr- úar síðastliðinn. For- eldrar hans voru Guð- brandur Kristinn Þorsteinsson, f. í Ása- hreppi í Rang. 13.9. 1884, d. 13.11. 1948, og Valborg Bjarna- dóttir, f. í Hólsbæ á Stokkseyri 28.3. 1889, d. 10.11. 1974. Systkini Bjarna eru: Guðríður Bjarney, f. 26.3. 1912, Þorsteinn Óskar, f. 26.10. 1914, Ágúst, f. 1.8. 1921, Ólafur, f. 9.9. 1923, og Guð- mann, f. 17.3. 1926. ára fór Bjarni til sjós á veturna en stundaði alltaf vegavinnu á sumrin. Flutti til Reykjavíkur 1941, fór í byggingarvinnu og vinnu hjá breska setuliðinu. 1946 kynnist hann Lilli Hansen og gengu þau í hjónaband 1947 í Ráðhúsinu í Kaupmannahöfn. Þau byrjuðu búskap að Óðinsgötu 32 í Reykjavík. 1952 byggðu þau sér einbýlishús að Borgarholtsbraut 18 í Kópavogi og bjuggu þar til dauðadags. Hóf störf 1947 hjá bíla- verkstæðinu Bílaiðjan hf. við bíla- réttingar og varð það hans ævi- starf. Gerðist meðeigandi að bílaverkstæðinu Réttir hf. með Ingólfi Böðvarssyni og Sverri Svendsen. Varð sinn eigin herra og rak bílaréttingaverkstæði þar til hann gerðist forstöðumaður tjóna- skoðunar hjá Sjóvá Almennum tryggingum. Útför Bjarna fer fram frá Kópa- vogskirkju í dag og hefst athöfnin kl. 13. Eiginkona Bjarna var Lilli Hansen Guð- brandsson frá Ny- borg á Fjóni, f. 29.6. 1925, d. 12.9. 1995. Þeim var ekki barna auðið en ættleiddu stúlkubarn frá Skaga- strönd. Valborg Bjarnadóttir, f. 3.9. 1950, maki Lúðvík D. Wdowiak, þau skildu, börn þeirra 1) Lilli Karen, f. 10.5. 1971, d. 11.1. 2004, 2) Bjarni Veigar, f. 21.11. 1976. Sambýlismaður Valborgar er Karl Óskar Óskarsson, f. 3.11. 1954. Bjarni hóf störf ungur að árum við að stokka upp línu á veturna og stundaði vegavinnu á sumrin, 16 Þegar ég sest niður og skrifa minn- ingargrein um Bjarna Guðbrandsson tengdaföður minn veit ég varla hvar á að byrja eftir 12 ára góðvild og vin- skap. Ég kynntist Bjarna 1997 þegar ég kom inn í fjölskylduna. Upp frá því hófst okkar vinskapur og bar aldrei skugga á. Hann var alltaf í góðu skapi og vildi öllum alltaf það besta. Bjarni var öllum stundum úti í skúr eða úti á plani að gera við beyglaða bíla sem var hans líf og yndi. Hann var mjög heimakær og vildi helst ekk- ert vera að ferðast, þó var ein ferð alltaf farin á hverju ári, til Grindavík- ur og Stokkseyrar að heimsækja ætt- ingja og vini. Við fórum stundum á bílauppboðin til að skoða bíla. Eitt sem hann mátti aldrei missa af voru fréttir á klukkutíma fresti og Formúlan. Morgunblaðið var kapítuli út af fyrir sig, það voru lesnar allar greinar í blaðinu. Á þriðjudegi eða miðvikudegi fór hann út á Kársnes til að kaupa Víkingalottó. Hann hafði ótrúlegt minni og skarpa hugsun þar til yfir lauk. Þegar ég keypti mikið beyglaðan bíl 2004 bað ég Bjarna að kenna mér hvernig ætti að rétta bílinn, tók hann vel í það og var það eitt af síðustu verkum hans. Bjarni lét það ekki eftir sér liggja, að skríða undir bílinn og mæla, þó hann væri 86 ára gamall. Bjarni kenndi mér öll trixin í bókinni á þessum 8 mánuðum sem það tók að gera við bílinn. Síðan höfum við gert við smá beyglur og hefur Bjarni alltaf setið á stól og gefið góð ráð. Þegar við Valborg hófum að gera upp Borgarholtsbrautina var hann mjög sáttur við allt sem við gerðum, bæði innan- og utandyra. Bjarni, það er mér mikill heiður að hafa kynnst þér, réttlátum og góðvilj- uðum manni eins og þér. Guð blessi minningu þína. Karl Óskar Óskarsson. Bjarni Guðbrandsson ✝ Ástkær stjúpmóðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, VALDÍS ÞÓRÐARDÓTTIR, Silfurtúni, Búðardal, áður Búðardal II, Skarðsströnd, lést föstudaginn 13. febrúar. Útför hennar fer fram frá Skarðskirkju, Skarðsströnd laugardaginn 21. febrúar kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á dvalarheimilið Silfurtún. Guðrún Þorsteinsdóttir, Eyjólfur Kristjánsson, Guðbjörg Þorsteinsdóttir, Þorgeir Hafsteinsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur sambýlismaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR ÓLASON húsasmíðameistari, Hlíf II, Ísafirði, sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði þriðjudaginn 17. febrúar, verður jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 21. febrúar kl. 14.00. Sigríður Halldórsdóttir, Kristján Bjarni Guðmundsson, Helga Kristjana Einarsdóttir, Guðrún Ólöf Guðmundsdóttir, Örn Sveinbjarnarson, Salvar Finnbogi Guðmundsson, Jóna Þórdís Magnúsdóttir, Vignir Guðmundsson, Rebekka Rut Rúnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORVALDUR ÓSKAR KARLSSON, Jökulgrunni 2, Reykjavík, lést mánudaginn 9. febrúar. Útförin hefur farið fram. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Ljósið, reikn. 0130-26-410520, kt. 590406-0740. Karl Þorvaldsson, Ólöf Þorvaldsdóttir, Lárus Óli Þorvaldsson, Jóna Sveinsdóttir, Þorvaldur Óskar Karlsson, Branddís Jóna Garðarsdóttir, Valgerður Rós Karlsdóttir, Rakel María Karlsdóttir, Heiðrún Rut Unnarsdóttir, Erla Dögg Unnarsdóttir, Hulda Lárusdóttir, Guðrún Lárusdóttir, Benedikt Kári Valgerðarson, Rúnar Karl Þorvaldsson. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, ANNA FRÍÐA WINTHER OTTÓSDÓTTIR, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi þriðjudaginn 17. febrúar. Ottó V. Winther, Ellen H. Haraldsdóttir, Valdís Vilhjálmsdóttir, Þórir M. Sigurðsson, Ingvar Vilhjálmsson, Helga María Garðarsdóttir og ömmubörn. ✝ Okkar ástkæra MARGRÉT GUÐMUNDSDÓTTIR, Arahólum 4, Reykjavík, andaðist miðvikudaginn 18. febrúar á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ. Ingibjörg Sigvaldadóttir, Þórunn Magnúsdóttir, Kristján Gissurarson. ✝ Okkar elskulega ÞÓRA MARGRÉT GUÐLEIFSDÓTTIR, lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi þriðjudaginn 10. febrúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Við þökkum auðsýndan stuðning og hlýju. Björn Helgason, Kristín Anna Björnsdóttir, Sigþór Bragason, Daníel Freyr Birkisson, Margrét Hansen, Arnar Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.