Morgunblaðið - 20.02.2009, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 20.02.2009, Blaðsíða 30
30 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2009 ✝ Guðrún RósborgJónsdóttir fæddist á Flateyri við Önund- arfjörð 6. janúar 1942. Hún lést á Líkn- ardeild Landspítalans í Kópavogi 10. febr- úar síðastliðinn. For- eldrar hennar voru hjónin Jón Salómon Jónsson, f. 24.2. 1913, og Jarþrúður Guð- mundsdóttir, f. 24.8. 1913, d. 16.7. 1990. Guðrún var sjötta í röð tíu systkina þau eru: Hjálmar, f. 1934, d. 2001, var kvæntur Guðrúnu Jónsdóttur og síð- ar Ingibjörgu Guðmundsdóttur, Guðbjörg Svandís, f. 1935, gift Guð- bjarti Guðbjartssyni, Guðmundur, f. 1936, d. 1936, Valborg, f. 1937, Sal- óme, f. 1940, d. 2003, var gift Grét- ari Arnbergssyni, Ingibjörg Birna, f. 1943, gift Garðari Sigurgeirssyni, Magnfríður, f. 1945, Ólafur, f. 1951, kvæntur Sólveigu Jónsdóttur, og Björn, f. 1957, kvæntur Önnu Maríu Sigurðardóttur. Þegar Guðrún var 5 ára veiktist móðir hennar og fór hún þá í fóstur til hjónanna Guðmundar Albertssonar, f. 1905, d. 1966, og Ragnheiðar Kristjánsdóttur, f. 1912, 1989. 2) Þórhallur, f. 16.10. 1962, kvæntur Jóhönnu Carlsson, f. 10.2. 1962, börn þeirra eru a) Fannar, f. 1.4. 1988, b) Karen, f. 1.7. 1993, fyr- ir á Þórhallur c) Jónu Guðnýju, f. 3.11. 1984, sambýlismaður Georg Sigurðarson, dóttir þeirra er Agnes Fjóla, f. 18.2.2005, d) Tinnu Zizka, f. 28.9. 1989. 3) Guðmundur Heiðar, f. 23.4. 1966, kvæntur Jenny Kristinsson, f. 8.10. 1972, dætur þeirra eru a) Jennie, f. 16.3. 1995, og b) Anna, f. 4.6. 2001. 4) Ás- rún Helga, f. 17.10. 1974, í sambúð með Reyni Ólafi Þráinssyni, f. 2.12. 1968, dætur þeirra eru a) Margrét Rut, f. 15.1. 1997, og b) Arna Rún, f. 7.7. 2005. Eftir að Guðrún fluttist til Grindavíkur vann hún aðallega við verslunarstörf en eftir að börnin fæddust sinnti hún þeim og heim- ilinu eins og tíðkaðist gjarnan. Þegar börnin voru komin á legg fór hún aftur út á vinnumarkaðinn og vann á gæsluvelli og á leikskóla einnig vann hún í bakaríi um ára- bil. Þau hjónin ráku í félagi við aðra fyrirtækið Rafborg og vann Guðrún þar hin síðari ár uns hún þurfti að láta af störfum vegna veikinda. Guðrún hafði mikinn áhuga á íþróttum og fylgdist jafn- an vel með þeim, sérstaklega var hún hrifin af handbolta og var ís- lenska landsliðið í uppáhaldi hjá henni. Útför Guðrúnar fer fram frá Grindavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 11. d. 1985. Uppeld- issystkini Guðrúnar voru Jónína Ásbjörns- dóttir, gift Björgvini Þórðarsyni og Magn- ús Benediktsson, kvæntur Kristbjörgu Magnadóttur. Guðrún ólst upp á Flateyri til 16 ára aldurs við mik- ið og kærleiksríkt samband við foreldra sína og systkini sem og fósturfjölskyldu. Guðrún fluttist til Grindavíkur 16 ára gömul og kynntist þar Kristni Hauki Þórhallssyni, f. 3.10. 1938. Þau giftust 25.6. 1960. Kristinn er sonur hjónanna Þórhalls Ein- arssonar, f. 23.10. 1911, d. 10.4. 1995 og Ásrúnar Magnúsdóttur, f. 16.12. 1919, d. 26.10. 1969. Systir Kristins er Helga Hrönn, gift Stef- áni Bergmann. Kristinn og Guðrún eignuðust fjögur börn, þau eru: 1) Valdís Inga, f. 3.3. 1960, gift Bjarna Ólasyni, f. 26.7. 1960, börn þeirra eru a) Rósa Kristín, f. 23.3 1983, sambýlismaður Jóhannes Haraldsson, dætur þeirra eru Emilía Ósk og Júlía Björk fædd- ar 28.3. 2006, b) Óli Baldur, f. 31.10. Sem sjálfur Drottinn mildum lófa lyki, um lífsins perlu, í gullnu augnabliki. (Tómas Guðmundsson) Lífs míns perlu hefur Drottinn nú tekið til sín. Eftir löng og erfið veik- indi fékkstu hvíld. Hálfrar aldar sam- leið er lokið, en samt skynja ég þig við hlið mér. Á þessari stundu finn ég best hversu miklvæg samheldin fjöl- skylda er, ég finn það best nú hversu vel þú skilaðir börnunum okkar út í lífið og fyrir það vil ég þakka þér nú að leiðarlokum. En fleirum ber að þakka. Þeim sem önnuðust þig í þínum veikindum ber að þakka, sérstakar þakkir til Vilhelm- ínu Haraldsdóttur læknis ásamt lækn- um og starfsfólki á deild 11G og á göngudeild 11B á Landspítala, einnig starfsfólki Líknardeildar í Kópavogi sem og heimahjúkrun í Grindavík. Á kveðjustund er margt að minnast á, er móðurhjartað góða er hætt að slá. En fátæk orð ei mikils mega sín, á móti því sem gaf hún, höndin þín. Og þegar lokið lífsins ferð er hér, og læknuð þreyta vinnudagsins er, hver minning verðu máttug heit og klökk, um móðurást og kærleik hjartans þökk. (Óskar Þórðarson frá Haga.) Ástarþakkir fyrir samfylgdina. Þinn Kristinn Haukur. Elsku mamma mín, eftir hetjulega og stranga baráttu við erfið veikindi er þrautagöngu þinni nú lokið. Þú varst ekki á því að gefast upp og sýndir fádæma baráttuþrek fram í andlátið. Hvílík fyrirmynd sem þú varst okkur öllum, aðdáunarvert var hvílíkt æðruleysi og stillingu þú sýnd- ir. Jafnan hugsaðir þú fyrst og fremst um hag okkar og settir okkur í fyr- irrúm, huggaðir okkur en gantaðist einnig þegar ljóst var hvert stefndi. Að leiðarlokum er mér efst í huga þakklæti fyrir að hafa átt þig fyrir móður og góða vinkonu. Mér er löngu ljóst hve gæfusöm ég er að hafa átt svo frábæra mömmu. Allar góðu minningarnar munu ylja okkur í fram- tíðinni þegar við tökumst á við lífið án þín. Það verður skrýtið að halda áfram án þess að heyra í þér eða hitta þig daglega og getað leitað til þín með stórt og smátt. Guð gefi pabba, afa og okkur öllum í fjölskyldunni styrk til að takast á við sorgina og söknuðinn Þín Valdís. Elsku hjartans mamma mín, mikið er sárt að sitja hér og skrifa minning- arorð um þig. Þrátt fyrir að ég vissi í hvað stefndi var ég alls ekki tilbúin að kveðja. Ég hef misst móður mína og um leið góða vinkonu. Alla tíð vorum við mjög nánar og samrýndar. Ég gat alltaf leitað til þín með alla hluti. Þeg- ar eitthvað bjátaði á varstu hvetjandi, styðjandi þegar upp á vantaði, þú hrósaðir þegar vel var gert og leið- réttir ef ég gerði eitthvað rangt. Minningarnar sem ég á um þig eru margar og dýrmætar. Efst í huga mér er góða lyktin í eldhúsinu, heimasaumuðu grímubúningarnir og okkar sameiginlega áhugamál, hand- boltinn. Það var ótrúlega gaman að horfa á handboltaleiki með þér, þvílík innlifun, þú, þessi rólega kona, skiptir um ham. Ég minnist þess þegar við Gummi bróðir fórum saman til Aust- urríkis þar sem íslenska landsliðið í handbolta tók þátt í heimsmeistara- keppni b-liða. Ég flaug til Kaup- mannahafnar þar sem ég hitti bróður minn og saman keyrðum við til Aust- urríkis. Í farangri mínum voru smurðar flatkökur með hangikjöti, heimabakað sætabrauð og harðfisk- ur. Eftir langa keyrslu stöðvuðum við systkinin bílinn í vegkanti austur- rísku Alpanna og gæddum okkur á nestinu frá þér, mamma. Þetta lýsir þér svo vel, þér var umhugað um vel- ferð okkar og þér þótti svo endalaust vænt um fólkið þitt. Það er búið að vera aðdáunarvert að fylgjast með þér í veikindum þín- um. Í fjórtán ár barðist þú eins og sönn hetja. Hvað þú varst sterk og tókst á við allt af miklu æðruleysi. Síðustu vikurnar á spítalanum voru okkur svo dýrmætar, þú komst okkur endalaust á óvart, reyndir að gera allt til að létta okkur lífið. Ég gerði mér enn betur grein fyrir því á þess- um tíma hversu yndislega fjölskyldu ég á. Þessi mikla nánd á erfiðum tím- um veikinda hefur verið ómetanleg. Allt þetta er þér og pabba að þakka. Elsku mamma mín, ég vil þakka þér fyrir að gera mig að þeirri mann- eskju sem ég er í dag. Þakka þér fyrir að vera yndislegasta amma dætra minna. Þakka þér fyrir að veita mér frelsi til að elska þig. Megi Guð og englarnir varðveita þig, mamma mín. Móðurást þín verður leiðarljós fjöl- skyldunnar. Sakna þín sárt. Þín dóttir, Ásrún. Fallin er frá elskuleg tengdamóðir mín Guðrún Rósborg Jónsdóttir eftir langa og erfiða baráttu við krabba- mein sem hún barðist hetjulega við í 14 ár en varð að lokum að láta undan. Guðrúnu kynntist ég árið 1976 þegar ég og Valdís dóttir hennar fórum að vera saman. Ég var mikið inni á heimili hennar á Sunnubrautinni og voru kynni mín af Gunnu, eins og hún var alltaf kölluð, ákaflega góð. Hún tók mér eins og sínum eigin syni og sýndi mér mikinn kærleik og um- hyggju, mér leið eins og heima hjá mömmu. Minningarnar eru margar frá þeim árum sem ég bjó hjá Gunnu og Didda. Gunna var alltaf boðin og búin að gera allt fyrir mig, hvort sem var að þvo af mér, stytta buxur, festa töl- ur og elda handa mér, en á því sviði var Gunna einstök. Minnist ég sér- staklega þess að vakna á sunnudags- morgnum við ilminn af lambalæri eða hrygg sem hún var þá ævinlega búin að setja í ofninn. Djúpsteikti fiskur- inn hennar og blómkálið er besti mat- ur sem ég hef smakkað. Margt var það í eldamennsku Gunnu sem ég lærði mikið af og átti síðar eftir að nýtast mér vel í mínu ævistarfi. Samband Gunnu við mig byggðist á trausti, samheldni, hvatningu og virðingu. Ég er ákaflega glaður að hafa átt hana að og eftir að við eign- uðumst börnin okkar Rósu og Óla, var hún alltaf tilbúin að hjálpa til og leiðbeina okkur við uppeldið á þeim. Börnin elskuðu ömmu sína og hjá henni fannst þeim gott að vera því hún gaf sér góðan tíma með þeim, var skapandi og hugmyndarík í sam- skiptum sínum við börn. Það voru ekki einungis hennar barnabörn sem kölluðu hana ömmu Gunnu heldur mörg önnur börn sem löðuðust að henni. Aldrei mátti tala illa um nokk- urn mann í hennar eyru, hún sagði alltaf að allir ættu eitthvað gott til og það vildi hún heyra. Gunna vissi undir það síðasta hvert stefndi og ræddi við okkur um fram- tíðina, hún tjáði mér hve stolt hún væri af okkur og bað okkur að passa Didda sinn. Tengdamóðir mín fór í gegnum lífið æðrulaus, þolinmóð og þakklát og minningarnar um þessa yndislegu og góðu konu sem farin er frá okkur í sína hinstu för mun ég alltaf geyma. Ég kveð þig nú, með djúpan harm í hjarta þú hefir lagt af stað þín síðstu spor til himnaföður liggur leið þín bjarta liðnar þrautir, aftur komið vor. (Rúna.) Þinn tengdasonur, Bjarni Ólason. Það er sagt að ef móðir er fjarri þá gangi tengdamóðir manni í móður- stað og það var þannig með þig, elsku Gunna mín. Fyrir 25 árum tókst þú og öll þín fjölskylda við mér opnum örmum og ég eignaðist bræður og systur í einu vetfangi, það er sama hve langur tími líður frá því að ég sé eða heyri í ykkur, það er alltaf eins og það hafi verið í gær. Þegar ég fékk skilaðboðin um að þú hefðir látist hljómaði fyrir eyrum mér lagið Um- vafin englum sem Valgeir Skagfjörð samdi og Guðrún Gunnarsdóttir syngur svo vel. „Þótt tómið og treginn mig teymi út á veginn ég veit að ég hef alla tíð verið umvafin englum sem að vaka hjá meðan mannshjörtun hrærast þá er huggun þar að fá. Þó að vitskert sé veröld þá um veg- inn geng ég bein því ég er umvafin englum aldrei ein – aldrei ein.“ Elsku Gunna mín, ég er viss um að þú verður að eilífu umvafin englum, því þú varst svo yndisleg kona. Ég þakka fyrir að hafa fengið að kynnast þér, einnig þakka ég þér fyrir að hafa kennt mér æðruleysi og æðruleysis- bænina. Þín vinkona, Brynhildur Kristín Klemensdóttir. Þú komst og fórst með ást til alls sem grætur á öllu slíku kunnir nákvæm skil. Þín saga er ljós í lífi einnar nætur eitt ljós sem þráði bara að vera til. (Vilhjálmur frá Skáholti.) Elsku Gunna mín. Mig langar að kveðja þig með nokkrum orðum. Það eru nokkrir einstaklingar sem ég hef hitt á lífsleiðinni sem hafa haft þau áhrif á mig að mér finnst ég vera betri maður. Einstaklingar sem ég ber virðingu fyrir og hef lært mikið af. Gunna mín, þú ert ein af þessum einstaklingum. Hetjulegri baráttu er nú lokið. Aðdáunarvert var að fylgjast með hversu mikinn dugnað og vilja þú sýndir. Á þessum 14 árum sem þú glímdir við þennan erfiða sjúkdóm heyrði ég þig aldrei kvarta. Síðast- liðin tvö ár hefur Drottinn tekið marga sem mér voru kærir. Á þess- um tíma var ótrúlega gott að hafa þig nálægt. Þó svo að þú værir sjálf að berjast við þinn sjúkdóm stóðstu eins og klettur við hlið fjölskyldu minnar. Ég gat alltaf komið til þín og rætt málin yfir kaffibolla. Þú sýndir svo mikinn skilning og nærvera þín var svo notaleg, endalaust gastu gefið af þér. Á þessum tíma sem og öðrum reyndist þú dætrum mínum frábær amma og eiga þær eftir að búa að því um ókomna tíð. Í þér átti ég góðan vin og skemmtilegt er að hugsa til þess að með þér gat ég rætt um ensku knattspyrnuna eða hvaða íþrótt sem var. Þú varst mikil íþrótta- áhugakona og það sem var einna best við þetta allt saman var það að þú varst Púllari númer 1. Diddi minn, missir þinn er mikill en samt sem áð- ur ertu ríkur. Þú átt dýrmætar minn- ingar um yndislega konu sem skildi eftir sig mikinn fjársjóð. Þú getur treyst því að saman förum við í gegn- um þennan erfiða tíma. Elsku Gunna mín, ég þakka þér fyrir allt sem þú varst okkur og gerð- ir fyrir okkur. Það er erfitt að hugsa sér lífið án þín en minningin um ein- staka konu lifir í hjarta okkar allra. Þinn tengdasonur Reynir Ólafur. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Elsku amma mín, takk fyrir allt. Þinn Óli Baldur. Elsku amma „gullið mitt góða“ sem gerðir svo margt fyrir mig. Í dag er komið að kveðjustund, elsku besta amma mín. Þau eru ólýsanlega mörg lýsingarorðin sem koma upp í huga mér er ég minnist ömmu Gunnu, æðrulaus, skilningsrík, þolinmóð, yndisleg, jákvæð og hreinlega algjört gull af manni. Enda kallaði ég hana alltaf ömmu gullið. Góðhjartaðri manneskju er vart hægt að hugsa sér. Amma var mér svo miklu meira en bara amma, hún var besta vinkona mín og leiðbeinandi. Hún kenndi mér svo margt, sagði mér svo skemmti- legar sögur og hugsaði um mig sem barn. Hún passaði mig bæði heima- fyrir og á leikskólanum, svo var hún svo oft heima og tók á móti mér eftir að skóladegi lauk. Þegar ég var ung- lingur bjó ég um tíma hjá ömmu og afa og er ég þeim svo óendanlega þakklát fyrir allt. Ég tel það vera að mörgu leyti þeim að þakka hvernig manneskja ég er í dag. Amma var alltaf glöð og það var svo stutt í skemmtilega húmorinn hennar og aldrei heyrði maður hana kvarta. Amma var ótrúlega næm og fann alltaf á sér ef eitthvað var að og var hún þá alltaf fyrst á staðinn til þess að hlúa að manni og kippa hlutunum í lag. Sama hvað það var þá átti maður alltaf skilning hennar vísan. Það virð- ist varla hægt að ímynda sér að aldrei eigi ég eftir að sjá fallegu ömmu mína aftur. Það er líka svo sárt að hugsa til þess að dætur mínar eigi ekki eftir að eiga ömmu Gunnu að lengur, en minningarnar eru óteljandi og munu þær ylja okkur um hjartaræturnar um ókomna tíð. Þegar komið er að leiðarlokum er ég svo þakklát fyrir allan þann ynd- islega tíma sem við áttum saman. Ég bið góðan Guð og englana að styrkja afa Didda á þessum sorgartímum og lofa ég að gera slíkt hið sama. Að lok- um vil ég segja þér að ég elska þig of- urheitt, elsku besta amma mín og að ég verð alltaf rósin þín. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sigurðardóttir.) Þín elsta ömmustelpa, Rósa Kristín. Gaman væri að gleðja hana ömmu og gleðibros á vanga hennar sjá, því amma hún er mamma hennar mömmu og mamma er það besta sem ég á. Í rökkrinu hún segir mér oft sögur, svæfir mig er dimma tekur nótt, syngur við mig kvæði fögur, þá sofna ég bæði sætt og vært og rótt. (Björgvin Jörgensson.) Elsku amma mín, það er svo skrýt- ið að þú sért ekki hér lengur, en ég veit að þú ert komin á góðan stað. Þú varst og verður alltaf besta amma mín. Það var svo gaman þegar við vorum að baka saman og líka þegar ég svaf hjá þér, það var svo notalegt. Í sumar þegar ég fór með ykkur afa til Svíþjóðar í sumarhúsið ykkar Haukholt þá man ég eftir þegar dúf- an skeit á hausinn á mér. Ég kom há- grátandi til þín og þú fórst strax að þrífa mig á meðan mamma og afi hlógu og hlógu. Þú nenntir alltaf að gera allt, alveg sama hvort það var eitthvert leiðindaverk þá gerðir þú það jafnvel með gleði í hjarta og bros á vör. Amma mín, þú varst eins og mamma númer tvö, þú ólst mig nokk- urn veginn upp með pabba og mömmu. Alltaf þegar mér leið illa vildi ég komast til þín og fá að sofa hjá þér. Það var alveg sama hvað klukkan var, ég mátti alltaf koma til þín. Mér þótti svo vænt um þegar þú bauðst mér að sofa hjá þér á spít- alanum um daginn. Ég sé þig fyrir mér þegar þú vaknaðir nokkrum sinnum um nóttina, leist til mín, vink- aðir og brostir. Það var svo fallegt brosið sem þú sendir mér að það bræddi hjarta mitt. Þú varst alltaf svo dugleg og sterk, amma mín. Ég mun varðveita minn- ingarnar um þig eins og gull í hjarta mínu. Þú verður að vita að afi er í góðum höndum hjá okkur. Hann er strax búinn að bjóða mér með sér í helgarbíltúr í Kolaportið. Það verður skrýtið að hafa þig ekki með í þeirri ferð. Ég veit samt að þú verður alltaf hjá okkur og afa, við finnum svo vel fyrir því. Ég elska þig ómetanlega mikið, litla ofuramma mín. Takk fyrir allt. Þín, Margrét Rut. Guðrún Rósborg Jónsdóttir  Fleiri minningargreinar um Guð- rúnu Rósborgu Jónsdóttur bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.