Morgunblaðið - 28.03.2009, Síða 50

Morgunblaðið - 28.03.2009, Síða 50
50 MenningFRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2009 GALLERISTI í New York var á fimmtudag ákærður fyrir að svíkja andvirði 88 milljóna dala, um tíu og hálfan milljarð króna, út úr við- skiptavinum sín- um. Þar á meðal er tennisstjarnan John McEnroe, sem er um- svifamikill list- safnari, en alls sveik gallerist- inn, Lawrence Salander, fé af 25 fjárfestum og söfnurum. Salander rak hið kunna Saland- er-O’Reilly Gallery og var um tíma galleristi Louisu Matthíasdóttur og eiginmanns hennar, Leland Bell. Meðal annarra listamanna á hans snærum voru Robert De Niro eldri, faðir leikarans, en einnig höndlaði hann með verk listamanna fyrri alda. Salender er m.a. ákærður fyrir að selja hluti í listaverkum sem hann átti ekki, og einnig fyrir að selja sama hlutinn í verki aftur og aftur. Galleristi ákærður Vann með Louisu Matthíasdóttur Galleristinn Law- rence Salander. ÍTARLEG úttekt á mjúkum osti og framtíð hans er efni bókar sem vann í gær árleg verðlaun í Bret- landi, sem veitt eru höfundi bók- ar með furðuleg- asta titilinn. Bókin nefnist The 2009-2014 World Outlook for 60-milligramme Containers of Fromage Frais og er eftir Philip M. Parker. Tímaritið The Bookseller veitir verðlaunin. Í öðru sæti var bókin Baboon Metaphysics en hún fjallar um prí- mata. Verðlaunin gætu orðið umdeild því bók Parkers er ekki skrifuð á hefðbundinn hátt, heldur hefur hann hannað tölvuforrit sem allrahanda upplýsingum er safnað inn í og síðan er bók um það efni sem kaupandinn er spenntur fyrir prentuð út sér- staklega fyrir hann. Bækur sem unnið hafa verðlaunin eru m.a. Bombproof Your Horse og Living With Crazy Buttocks. Ostabók verðlaunuð Kápa bókarinnar er ekki ásjáleg. MÍMISÞING 2009 – málþing íslenskunema við Háskóla Ís- lands – verður haldið í sam- starfi við Reykjavíkurakadem- íuna í dag. Á þinginu flytja íslensku- nemar fyrirlestra um rann- sóknir sínar. Með annars verð- ur fjallað um kaldhæðni, erótík í fornaldar- og riddarasögum og hlutverk augna í íslenska táknmálinu. Mímisþing er haldið í fundarsal Reykjavík- urakademíunnar og hefst skipulögð dagskrá klukkan 12 í dag, laugardag, og stendur til 17.30 en tvö hlé verða gerð á dagskránni. Allir eru velkomnir. Hugvísindi Kaldhæðni, erótík og hlutverk augna Frá Reykjavíkur- akademíunni. LEIRLISTARFÉLAG Ís- lands býður í dag, laugardag, milli klukkan 15 og 17, upp á hljóðfæraleik með hljómsveit- inni Mojito í Bókasafni Mos- fellsbæjar. Boðið er upp á tón- list í tengslum við „HönnunarMars“. Hljómsveitin Mojito leikur tónlist sem samanstendur af klassískum gítarverkum með suðrænum blæ. Boðið verður upp á notalega stemningu með kertaljósum og léttum veitingum. Hljóðfæraleikurinn er í tengslum við duftkerja- sýningu félagsins, Aska í öskju, í Listasal Mos- fellsbæjar. Sýningin verður opin á sama tíma. Hönnun Tónlist og duftkerasýning Frá Bókasafni Mosfellsbæjar. GÍTARLEIKARARNIR Björn Thoroddsen og hinn sænski Ulf Wakenius leika saman á tónleikum á Nalen í Stokkhólmi 3. apríl. Þeim til aðstoðar verður bassaleikarinn Jón Rafnsson. Wakenius er þekktasti djassgítarleikari Svía og hefur hróður hans borist víða. Á undanförnum árum lék Wakenius m.a. mikið með Niels Henning Örsted-Petersen og Oscar Pet- erson. Björn hefur einnig verið að hasla sér völl ytra og hefur leikið víða. Í auglýsingu í Svíþjóð er því slegið fram að tveir af allra fremstu gítaristum Svíþjóðar og Íslands leiki saman í fyrsta skipti. Tónlist Björn og Wakenius leika saman Björn Thoroddsen Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is „ÍSLENSKAR bíómyndir mæta sterkri þörf einstaklingsins til að skapa sér sérstöðu í litlu samfélagi þar sem allir þekkja alla,“ segir Sab- ine Schirdewahn, annar tveggja sýn- ingarstjóra sýningarinnar Ísland ::Kvikmyndir, sem opnuð verður í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Á sýn- ingunni verður dregin upp mynd af þróun íslenskrar kvikmyndagerðar á árunum 1904-2008. Opið skjalasafn kvikmyndanna Sýningarstjórarnir, Sabine og Matthias Wagner K, skapa sína list- rænu sýn á íslenska kvikmyndasögu með því að setja sýninguna upp sem opið skjalasafn, þar sem hægt er að fá yfirsýn yfir helstu sérkenni ís- lenskrar kvikmyndagerðar og upp- lifa þjóðfélags- og menningarsögu Íslendinga síðustu 100 ár. Spurð um hvers konar sögu hún lesi úr rannsóknum sínum á íslensk- um kvikmyndum, segir Sabine Schirdewahn að þau Wagner séu þeirrar skoðunar að íslensk kvik- myndagerð hafi sérstöðu gagnvart kvikmyndagerð í öðrum löndum, og eigi það einkum við um leiknar myndir. „Við getum reynt að skýra ástæður þess. Skyldleiki við töfraraunsæið Með Íslendingasögunum verður fljótt til raunsær frásagnarstíll í hæsta gæðaflokki og án allegóríu. Þar með skapaðist einstaklega breið munnleg og skrifleg frásagnarhefð sem þjóðin hefur borið uppi í gegn- um aldirnar. Jafnframt spunnust inn í frásagnirnar goðsagnir, óljós fyr- irbæri og draumar sögupersóna, en þessa þætti er einnig að finna í svo- kölluðu „töfraraunsæi“ suður- amerískra bókmennta.“ Sabine segir að þessi frásagn- arhefð lýsi samskiptamynstri sem endurspeglist á sérstakan hátt í kvikmyndum og listum. „Þar er sjónum beint að lífi einstaklinga sem sækjast bæði eftir að tengjast öðr- um og reka sig á og standa því oft einir gagnvart sjálfum sér. Við erum þannig vakin til umhugsunar um þjóðfélagið í heild, samfélag í ákafri leit að sjálfsskilningi og sjálfs- ímynd.“ Bókmenntafrásögn á filmu Kvikmyndirnar eru að mati Sab- ine næstum eins og flutningur bók- menntalegrar frásagnarhefðar yfir á miðlunarefnið filmu. Hin innri þörf íhugunar, hin óbeina leið samskipta sökum einangrunar og ættarvið- kvæmni þjóðfélagsins hafi fundið sjónræna samsvörun sína í kvik- myndinni. „Ef kvikmyndir miðla þjóðarsál- inni út á við, þá má segja að í íslensk- um kvikmyndum eigi sér stað leit að sjálfsmynd sem geri mögulegt að greina sig frá öðrum. Þegar litið er á íslenska samfélagið utan frá má segja að grunnuppbygging þess sé ekki sambærileg og í öðrum löndum, því hugmyndin um að þjóðin sé öll ein fjölskylda er sterk og lögð rækt við hana í ættfræðiþekkingu ein- staklinganna og sameiginlegri ímyndun heildarinnar.“ Sabine Schirdewahn segir ís- lenskt kvikmyndagerðarfólk vinna að þróun myndmáls sem sé ekki undir sterkum áhrifum af listrænum stílbrögðum. Efni kvikmyndanna sé alfarið miðlað í gegnum einstakar persónur, beint og milliliðalaust. „Heimskreppan hefur bein áhrif – sér í lagi á þjóð eins og Ísland með sinn litla gjaldmiðil. Það má gera ráð fyrir því að þessi reynsla muni koma fram í listum almennt og þó sér- staklega í kvikmyndum.“ Þjóð í leit að sjálfsskilningi  Sýning um sögu íslenskra kvikmynda opnuð í Þjóðmenningarhúsinu í dag  Þjóðmenningarhús fagnar aldarafmæli og fleiri sýningar opnaðar Morgunblaðið/Heiddi Sabine Schirdewahn „Það má gera ráð fyrir því að reynslan af kreppunni muni koma fram í listum almennt og þó sérstaklega í kvikmyndum.“ TRÍÓ eftir Karólínu Eiríksdóttur verður frumflutt á tónleikum Tríós Reykjavíkur í Hafnarborg á sunnudagskvöldið, en verkið samdi Karólína að beiðni tríósins í tilefni af 20 ára afmæli þess í haust. Tríó Reykjavíkur skipa Peter Máté, Guðný Guðmundsdóttir og Gunnar Kvaran, og segir Gunnar verk Karólínu sverja sig í ætt hennar verka. „Tríó Karólínu er í tveimur þáttum, og það er gaman að segja frá því, að í seinni þætt- inum, sem heitir Andlit í skýjum, vitnar hún bæði í einleiksverkið In vultu solis [Í andliti sólar], sem hún samdi fyrir Guðnýju, og líka í sellóverkið Skýin, sem hún samdi fyrir mig fyrir nokkrum árum. Nafn þáttarins og tilvís- anirnar tengja eldri verkin við það nýja,“ segir Gunnar. „Fyrri þáttur tríósins heitir Tilbrigði. Þetta er mjög a-tónal tónlist og alltaf spenn- andi að frumflytja ný verk. Tríóið er mjög ein- kennandi fyrir verk Karólínu, hún hefur alveg sérstakt tónmál sem lýsir sér best í skýrleika og tærleika í áferð.“ Silungakvintettinn leikinn með gestum Önnur verk á efnisskránni eru Dúett fyrir selló og kontrabassa eftir óperutónskáldið Gioacchino Rossini, Þrír madrígalar fyrir fiðlu og víólu eftir tékkneska tónskáldið Bohuslav Martinu, og loks Silungakvintettinn eftir Schubert. Gestir Tríós Reykjavíkur á tónleik- unum verða Helga Þórarinsdóttir víóluleikari og Richard Korn kontrabassaleikari. Þetta eru síðustu tónleikar starfsárs Tríós Reykjavíkur, og segir Gunnar veturinn hafa gengið vel. „Við vitum að fjárhagslega er róð- urinn þungur fyrir menninguna í landinu eftir ósköpin sem dunið hafa yfir okkur. Hins vegar held ég að viljinn til þess að njóta menningar og lista hafi jafnvel aukist hjá fólkinu í land- inu. Það þarf eitthvað að koma í staðinn fyrir tómið í sálum fólks. Það segir sig sjálft með tónleikaröð eins og okkar, sem byggist á styrkjum og sölu áskrifta, að hún er viðkvæm fyrir því að missa kannski stærsta hluta þeirra fyrirtækja sem styrkja okkur með kaupum á áskriftum. Það hefur haldið lífinu í þessu, en nú má búast við töluverðri breytingu á því. En auðvitað vonumst við til að geta haldið starf- seminni gangandi, því það er mikilvægt fyrir fólk sem vill spila að það hafi tækifæri til þess.“ begga@mbl.is Sérstakt tónmál sem lýsir sér best í tærleika Morgunblaðið/RAX Karólína Eiríksdóttir Sækir efnivið í einleiks- verk sem hún samdi fyrir Gunnar og Guðnýju. Tríó Reykjavíkur frumflytur Tríó eftir Karólínu Eiríksdóttur í Hafnarborg Í dag verður hátíðardagskrá í Þjóð- menningarhúsinu í tilefni af því að öld er nú liðin frá því að starfsemi hófst í húsinu. Húsið var reist yfir Landsbókasafnið og Lands- skjalasafnið á árunum 1906 – 1908. Forngripasafnið og Nátt- úrugripasafnið áttu einnig sama- stað í húsinu fyrstu áratugina. Söfnin fjögur komu sér fyrir í hús- inu og 28. mars 1909 var lestr- arsalur Landsbókasafnsins, hjarta hússins, opnaður almenningi með viðhöfn. Hátíðardagskráin verður í bóka- salnum og við það tækifæri verða nýjar sýningar auk sýningarinnar Ísland – kvikmyndir, en þær eru: Að spyrja náttúruna – saga Nátt- úrugripasafns Íslands og Þjóð- skjalasafn Íslands – 90 ár í Safna- húsi. Þjóðmenningarhúsið fagnar aldarafmæli Líður ekki eins og stjörnu, get nú ekki sagt það, Björk er dæmi um fræga manneskju. 52 »

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.