Morgunblaðið - 28.03.2009, Qupperneq 52
52 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2009
Mest spilaða lag landsins í dag er
„Í hjarta mér“ með Egó. Það verð-
ur að teljast athyglisvert, miðað við
yfirreið sveitarinnar í eina tíð og
miklar vinsældir, að þetta er í
fyrsta skipti sem lag með sveitinni
nær toppsæti á vinsældalista. Það
eru því breyttir tímar eins og ein
vinsæl hljómsveit söng með hárri
raust í upphafi níunda áratugarins.
Egó á toppinn
... loksins
Fólk
… með mynd sína A Good Heart. Og spútniksveitin Hjaltal-
ín flytur lokalag hennar, sem verður útgáfa af lagi Slow-
blow, „Very Slow Bossanova“, en sveitina skipa þeir Dagur
og Orri Jónsson.
„Ég kláraði hana bara í gær,“ segir Dagur. „Við vorum
að ganga frá hljóði og svoleiðis. Hún var svo send út í
dag, en við erum að fara að kynna hana fyrir kvik-
myndahátíðarhöldurum. Hernaðaráætlunin
miðar að því að frumsýna hana á einhverri
góðri hátíð.“
Dagur segir það eðlilega hafa verið góða
tilfinningu að binda lokahnútinn á myndina,
en gerð hennar hefur nú tekið fjögur ár.
„Myndin tók vissulega lengri tíma en áætl-
að var,“ segir Dagur. „Tökur áttu að hefjast
2004 en hófust svo ekki fyrr en vorið 2008.
Þessi biðtími var um margt sérkennilegur, ég renndi svolítið
blint í sjóinn með það að taka upp í Bandaríkjunum og þar
eru leikreglurnar allt aðrar en hér á landi og í Evrópu. Mað-
ur er vanur að hugsa í dögum, í mesta lagi vikum hér heima
en þarna hugsa menn í mánuðum, jafnvel árum.“
Dagur segist búinn að vera það mikið á kafi í þessu verk-
efni að hann hafi eiginlega ekki gert ráð fyrir því að sá dag-
ur myndi nokkru sinni renna upp að því yrði lokið. Hann sé
því ekki með nein plön á prjónunum eins og stendur.
„Utan að mig langar til að sinna tónlistinni aðeins meira
en ég hef gert. Hún hefur setið svolítið á hakanum. Ég býst
við því að stússa eitthvað í henni fram á haustið a.m.k.“
arnart@mbl.is
Leikstjórinn Dagur Kári er klár …
Flugfélagið Icelandair hefur
reglubundið flug til stórborg-
arinnar Seattle í sumar. Tilkynnt
var um þau plön með pomp og
prakt á blaðamannafundi í vikunni
og var hann skreyttur með tónlist
grugggoðsins Kurts Cobain. Hann
hefur svo hiklaust tekið nokkra
kollhnísa í gröfinni þegar glað-
hlakkalegir markaðspésar messuðu
um dásemdir Seattle undir níhíl-
ískum, sjálfsmorðsdaðrandi texta
„Come As You Are“. Menn sáu þó
greinilega fljótt að sér og báðust af-
sökunar á þessu smekkleysi á tákn-
rænan hátt. Og spiluðu því „All
Apologies“...
Cobain snýst í gröfinni
Goðsögnin Rúnar Júlíusson á
greinilega nægt rými í hjörtum
landsmanna. Nú er orðið uppselt á
Minningartónleika honum til heið-
urs sem verða haldnir 2. maí í
Laugardalshöllinni. Aukatón-
leikum verður því bætt við sama
dag kl. 16. Shady Owens hefur þá
staðfest komu sína og Stuðmenn
munu frumflytja nýtt lag um Rúnar
á tónleikunum.
Meiri Rúnar
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
PETER Jensen er ekkert minna en rokkstjarna í
heimi hönnunar en þeir þrír hönnuðir danskir
sem eru hvað mest í umræðunni í dag eru þeir
Henrik Vibskov, Jens Laugesen og svo Peter
Jensen. Af þeim hefur Jensen hvað víðasta skír-
skotun, hann nýtur góðra og almennra vinsælda
og vörur hans eru til sölu um heim allan.
Jensen kemur hingað vegna HönnunarMars/
Norræna tískutvíæringsins og mun halda tölu í
Norræna húsinu á sunnudeginum, tekur þar þátt
í ráðstefnu sem hefst kl. 12.00. Í kvöld ætlar hann
hins vegar að slá upp teiti í KronKron á Lauga-
veginum en vörur hans eru þar til sölu og mun
hann um leið standa fyrir sýningu á verkum sín-
um þar.
Grænland og Færeyjar
Jensen útskrifaðist úr Central Saint Martins-
skólanum í London árið 1999. Hann beið ekki
boðanna eftir útskrift og tók að hanna mjög sér-
stæðan herrafatnað sem hlaut mikla athygli og
lof. Jensen sækir jafnt í danska hefð og glysgirni
Hollywood en nýjasta lína hans, haustlínan 2009
sem hann kynnti fyrir stuttu, hefur ekki bara
vakið athygli heldur og úlfúð. Þar vinnur hann
markmiðsbundið með þjóðbúninga Grænlendinga
og hafa þarlendir brugðist afar illa við þeim æf-
ingum og hefur Jensen fengið morðhótanir vegna
þessa.
-Þú kallar fyrirlestur þinn Vestnorræna anda-
gift á tískupöllum Lundúna („West-Nordic in-
spiration on the London catwalk“) …
„Hmm … Fyrirlestur … þetta hljómar voða-
lega alvarlega. Ég hyggst aðallega ræða um og
kynna nýjustu línuna mína sem kallast „Jytte“ en
hún snýst um Grænland og Færeyjar. Ég sýndi
hana í London nú í febrúar og ég er afar stoltur af
henni.“
Ekki beðinn um eiginhandaráritanir
-Eru skandinavískir straumar áberandi í þinni
hönnun? Eða ertu meira að vinna í heimsþorpinu?
„Er ekki alveg viss … það er mjög sterkur nor-
rænn tónn í þessari nýjustu línu og það er líkast
til ástæðan fyrir því að ég var kvaddur á þennan
tvíæring. Ég veit samt ekki með fyrri verk … Ég
er Dani en bjó í London í þrettán ár og það er
alltaf eitthvað danskt í öllu sem ég geri. En líka
eitthvað enskt myndi ég segja. Púff … einhver
svona blanda myndi ég segja.“
Einhverjir íslenskir hönnuðir sem þú ert sér-
staklega hrifinn af? Og hvernig stendur íslensk
hönnun í samanburði við önnur lönd?
„Íslendingar fylgjast með og eru í tískunni, það
vantar ekki. Ég verð samt að nefna nýju skólín-
una hjá KronKron, hún rokkar. Hugrún og Magni
(eigendur KronKron) eru líka algjör tískutröll.
Ég dýrka hinar eldrauðu varir Hugrúnar!“
-Nú ertu einn af frægustu hönnuðum Dana í
dag. Hvernig virkar það eiginlega? Ertu beðinn
um eiginhandaráritanir úti á götu?
„Ó nei (hlær). En djö… væri það nú samt gam-
an! Eða hvað? Mér líður ekki eins og stjörnu, get
nú ekki sagt það, Björk er dæmi um fræga mann-
eskju. En ég fæ annað slagið fínar gjafir, ætli það
sé ekki hægt að telja það fram sem kost?
Vestnorræn andagift
Peter Jensen, einn frægasti fatahönnuður Dana, er staddur hérlendis
Heldur tölu í Norræna húsinu á sunnudaginn í tengslum við hönnunardaga
Djarfur Grænlendingar eru brjálaðir vegna nýj-
ustu línu Jensen. Takið eftir stígvélunum.
æfingunni,“ segir Björn hinn fyrri.
„Það tók klukkustund. Á næstu æf-
ingu hringdum við í Baldvin Esra
hjá Kima og hann gerði samning
við okkur í gegnum símann – án
þess að heyra einn tón. Hann fékk
að heyra tvö orð, „vélinda“ og „sið-
blinda“ og það var nóg.“ Platan var
svo tekin upp á fjórum tímum og er
komin út hjá undirmerki Kima,
Brak. Björn segir að hugmyndin að
sveitinni hafi fæðst í góðæri en
textarnir hafi verið samdir í krepp-
unni.
„Þeir sömdu sig eiginlega sjálfir.
Það þarf ekki að leita langt í dag
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
KREPPUPÖNKIÐ er byrjað af
krafti, en nýjasta afsprengi við-
sjárverðra tíma er pönksveitin Blóð
sem er lítið að skafa utan af því og
fá ráðamenn og misvitrir auðjöfrar
að finna rækilega til tevatnsins.
Sveitina skipa þeir Björn Gunn-
laugsson, Björn Kristjánsson og
Þráinn Árni Baldvinsson en fyrir
einskæra tilviljun kenna þeir allir
saman í Norðlingaskóla.
„Við hittumst fyrir fáeinum vik-
um og sömdum fjögur lög á fyrstu
eftir samfélagsmeinum til að ráðast
á.“
Vinnsluhraði plötunnar hefur
verið ógurlegur en hljómsveitin
hittist í fyrsta sinn fyrir nokkrum
vikum.
„Ég veit nú ekkert um slíkt,“
segir Björn. „Purrkurinn var miklu
fljótari. Eigum við ekki að kalla
þetta „ásættanlegan“ vinnslu-
hraða.“
Sveitin fagnar plötunni, sem kall-
ast Fólkið heimtar blóð á Grand
Rokk í kvöld. Morðingjarnir hita
upp. Aðgangur er ókeypis og platan
er til sölu fyrir „skid og ingenting“.
Fólkið heimtar Blóð!
Morgunblaðið/RAX
Beittir Blóð er barn kreppunnar og hegðar sér samkvæmt því.
Setti hljómsveitin Blóð Íslandsmet í vinnsluhraða?
Meðlimirnir kenna saman við Norðlingaskóla
Það er Hönnunarmiðstöð sem stendur fyrir
HönnunarMarsi, víðfeðmri sýningu/hátíð sem
fagnar íslenskri hönnun af margvíslegum
toga. Dagarnir hófust á fimmtudaginn en lýk-
ur nú á sunnudaginn. Þetta er í fyrsta sinn
sem staðið er fyrir svona hönnunardögum og-
verða þeir hér eftir árviss viðburður. Norræni
tískutvíæringurinn sem stendur yfir um þess-
ar mundir í Norræna húsinu fléttast inn í dag-
skrána en þar mun Peter Jensen einmitt ræða
um áherslur sínar í hönnun nú á sunnudaginn.
Frekari upplýsingar um viðburði og uppá-
komur má finna á www.honnunarmidstod.is.
HönnunarMars
Peter Jensen Sterkur norrænn tónn.
Búinn? Dagur Kári trúir því varla sjálfur
að hann sé búinn með A Good Heart.