Morgunblaðið - 30.03.2009, Page 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MARS 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt-
ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
KANNABISGRÓÐURHÚS fannst í kjallara ný-
byggðs íbúðarhúss í Úlfarsárdal í gær. Þar voru tæp-
lega tvö hundruð plöntur og voru þær orðnar mjög
stórar, nærri fullþroska og mjög blómlegar. Upp-
skeran hefði því vegið þungt ef tekist hefði að full-
vinna plönturnar til sölu. Enginn var búsettur í hús-
inu. Ræktunin reyndist vera tengd annarri
kannabisverksmiðju sem var upprætt í nýbyggðu
íbúðarhúsi í Hafnarfirði á föstudaginn var.
Karl Steinar Valsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn
fíkniefnadeildar Lögreglu höfuðborgarsvæðisins,
sagði að kjallari hússins hefði verið undirlagður af
ræktuninni. „Þetta er mikið í kílóum talið, mjög öfl-
ugar plöntur. Þær hefðu verið þungar á götunni,“
sagði Karl Steinar. Ekki er búið í húsinu. Hann sagði
að svipað fyrirkomulag hefði verið á þessari ræktun
og þeirri sem fannst í íbúðarhúsi í Hafnarfirði á
föstudag.
Unnt hefði verið að þurrka plönturnar í gróð-
urhúsinu í Úlfarsárdal, en talið er að hægt hefði ver-
ið að nýta aðstöðuna í Hafnarfirði til þess.
Þrír menn voru yfirheyrðir vegna málsins í gær og
var búist við að yfirheyrslur yfir þeim stæðu fram á
kvöld. Þeir sem voru í haldi lögreglunnar í gær og
yfirheyrðir vegna ræktunarinnar í Úlfarsárdal voru
líka yfirheyrðir vegna ræktunarinnar í Hafnarfirði.
Lögreglan er því búin að yfirheyra fjóra ein-
staklinga vegna þessara tveggja mála og þrjá vegna
beggja málanna. Mennirnir eru frá því að vera rúm-
lega tvítugir og að fertugsaldri. gudni@mbl.is
Blómlegar
plöntur komn-
ar að uppskeru
Tæplega 200 kannabisplöntur
fundust í kjallara í Úlfarsárdal
Morgunblaðið/Júlíus
Uppskerutími Kannabisplönturnar í Úlfarsárdal
voru nær fullvaxta og orðnar mjög blómlegar.
Efni Virku efnin eru í blómhnöppum plöntunnar.
FLÓTTAMENN og stuðningsmenn
þeirra munu eiga fund með dóms-
málaráðherra í dag klukkan 10.
Fundurinn var ákveðinn í gær þeg-
ar um 70 manna hópur gekk frá
Lækjartorgi að heimili dóms-
málaráðherra til að krefjast réttar
hælisleitenda til að setjast að hér á
landi og njóta fullra mannréttinda.
Meðal göngumanna voru flóttamenn
úr flóttamannabúðum á Fitjum í
Njarðvík.
Í fréttatilkynningu frá hópnum
segir að umfjöllun um málefni hæl-
isleitenda hafi jafnan einkennst af
skilningsleysi almennings og Útlend-
ingastofnunar á aðstöðu flóttamanna.
Funda með
ráðherra
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Mótmæli Mótmælendur fóru að
heimili dómsmálaráðherra í gær.
VEÐURSTOFAN varaði í gær-
kvöldi við stormi norðan- og aust-
anlands. Spáð var norðan- og norð-
vestanátt, víða 15-25 m/s fram eftir
degi, hvössustu við norður- og aust-
urströndina. Viðbúnaður var vegna
snjóflóðahættu á norðanverðum
Vestfjörðum. Ekki hafði þó þurft
að rýma nein hús í gærkvöldi, að
sögn lögreglu á Ísafirði.
Ekkert ferðaveður var víða um
land í gær. Stórhríð var um norð-
anvert landið og var fólk varað við
að vera á ferð um Óshlíð og Súða-
víkurhlíð vegna snjóflóðahættu. Í
gærkvöldi var orðið ófært um
Djúpið og eins fjallvegi fyrir vest-
an. Stórhríð var á Ströndum.
Stórhríð fyrir norðan
Hált var á vegum og skafrenn-
ingur eða stórhríð víða fyrir norðan
og austan Húsavíkur var víða ófært
eða þæfingur á vegum. Veður fór
versnandi á Austurlandi í gær-
kvöldi.
Veginum um Kjalarnes var lokað
um tíma í gærkvöldi. Einkum var
erfitt ferðaveður milli Kollafjarðar
og Mosfellsbæjar. Fimm bíla
árekstur varð rétt fyrir kl. 20 við
Leirvogsá. Engin slys urðu á fólki.
Þar var vegurinn mjög háll og eins
var mjög blint. gudni@mbl.is
Óveður
víða á
landinu
Óveður Stórhríð og ófærð tafði
umferð víða um landið í gær.
Fimm bíla árekstur
við Leirvogsá í gær
HÉÐINN Steingrímsson og Hannes
Hlífar Stefánsson eru í 5.-12. sæti
með 4½ vinning að lokinni sjöttu
umferð Reykjavíkurmótsins, sem
fram fór í Listasafni Reykjavíkur í
gær. Héðinn gerði baráttujafntefli
við stigahæsta keppanda mótsins,
úkraínska stórmeistarann Alexand-
er Aerschenko, en Hannes vann
ítalska alþjóðlega meistarann Denis
Rombaldoni. Úkraínski stórmeist-
arinn Yuriy Kruvoruchko er efstur
með 5½ vinning.
Sjöunda umferð hefst klukkan
fjögur í dag og er fólk hvatt til að
mæta og fylgjast með. Metþátttaka
er í mótinu, 110 manns.
Sá úkraínski
ennþá efstur
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
VIÐRÆÐUR standa nú yfir á milli
Landhelgisgæslu Íslands og hinnar
norsku systurstofnunar hennar um
að hið nýja varðskip Íslendinga
verði leigt Norðmönnum. „Kannaðir
hafa verið möguleikar á að koma
skipinu í leigu tímabundið, í
tengslum við samstarfssamninga
okkar við Norðmenn,“ segir Georg
Lárusson, forstjóri Landhelgisgæsl-
unnar. Hann segir óvíst hvernig
þetta verði útfært, en það gæti
tengst því hvernig eftirlitssvæðum
yrði skipt upp og mögulega gæti
norskt skip komið til leigu á móti.
Þá segir Georg að ef fækka þurfi
þyrluáhöfnum muni það hafa nei-
kvæð áhrif á möguleika Gæslunnar
til að sinna öryggis- og björg-
unarmálum. Á laugardag greindi
Morgunblaðið frá því að hámarks-
drægni þyrlnanna yrði minnkuð af
öryggisástæðum ef fækka þyrfti
áhafnarmeðlimum. „Það gefur auga-
leið,“ segir Georg. Hann kveðst
hvorki geta fullyrt að við þá nið-
urstöðu verði unað eða að við hana
verði ekki unað. Það verði að meta ef
til þess kemur.
Nýtt varðskip LHG gæti
farið í útleigu til Noregs
Fækkun þyrluáhafna hefur neikvæð áhrif á öryggisstig
Harald M. Valderhaug
Nýtt Tölvuteiknuð mynd af nýja varðskipinu sem nú er í smíðum í Chile.