Morgunblaðið - 30.03.2009, Qupperneq 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MARS 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
„Í ÞESSUM kaflaskilum í lífi
þjóðarinnar höfum við nú svarað
kallinu um breytingar og tekið til
við að skrifa nýjan kafla í sögu
flokksins okkar,“ sagði Bjarni
Benediktsson, nýkjörinn formað-
ur Sjálfstæðisflokksins, þegar
hann ávarpaði fundargesti á
landsfundi flokksins í Laugardals-
höll í gær. Bjarni fékk 990 at-
kvæði af 1.705 greiddum atkvæð-
um eða 58,1%.
Kristján Þór Júlíusson, sem
einnig hafði lýst yfir framboði í
embætti formanns, fékk 688 at-
kvæði eða 40,4%. Bjarni þakkaði
Kristjáni fyrir „snarpa og góða“
kosningabaráttu og sagði að hún
hefði verið Kristjáni til sóma.
Bjarni gagnrýndi Samfylk-
inguna harðlega í ræðu sinni án
þess að nefna flokkinn á nafn.
Hann sagði að hjól atvinnulífsins
færu ekki að snúast ef hér væru
við völd stjórnmálaflokkar sem í
„stefnuleysi láta berast fram og til
baka með síbreytilegum straum-
um dægurumræðunnar, vegna
þess að helsta stefnumál þeirra er
að koma vel út í skoðanakönn-
unum“, sagði Bjarni og salurinn
tók undir með dynjandi lófa-
klappi. Hann sagði að endurreisn
atvinnulífsins, þetta stærsta vel-
ferðarmál samtímans, næði þá og
því aðeins fram að ganga ef sá
stjórnmálaflokkur fengi braut-
argengi, sem alla tíð hefði skilið
og borið virðingu fyrir þeirri stað-
reynd að „órjúfanleg tengsl“ væru
á milli öflugs atvinnulífs og vel-
ferðar fólksins í landinu. „Sá
flokkur er Sjálfstæðisflokkurinn,“
sagði Bjarni.
Kristján bar sig vel þrátt fyrir
ósigur. Hann lagði áherslu á að
flokksmenn stæðu saman um
þann ágæta og góða dreng sem
Bjarni Benediktsson væri. „Ég
munstra mig í áhöfn Bjarna Bene-
diktssonar,“ sagði Kristján og
voru orðin viðeigandi í ljósi þess
að Kristján er gamall skipstjóri.
Árangur Kristjáns þykir merki-
legur í ljósi þess að hann tilkynnti
fyrir aðeins viku að hann byði sig
fram í embætti formanns. „Ég hef
verið viku við þetta verkefni með
mínu fólki og tíminn knappur.
Þessi árangur er mjög góður þótt
Kynslóðaskipti í flokknum
Bjarni Benediktsson nýr formaður Sjálfstæðisflokksins og Þorgerður Katrín fékk yfirburðakosningu
í embætti varaformanns Kristján Þór styrkti stöðu sína Óvissa um stefnu í gjaldmiðilsmálum
Morgunblaðið/Ómar
Ný forysta Bjarni sagði að sameiginlegt verkefni allra væri að endurheimta traust landsmanna.
„ENDANLEG ályktun
fundarins ber með sér að
um málamiðlun sé að
ræða milli mismunandi
viðhorfa,“ segir Friðrik
Sophusson, fyrrverandi
varaformaður Sjálfstæð-
isflokksins og ráðherra,
um ályktun landsfundar
um Evrópumál.
„Ályktunin breytir að
mínu mati afstöðu flokksins þar sem nú er
viðurkennt að ýmis álitamál verði aðeins
skýrð í viðræðum við Evrópusambandið og
að þjóðin eigi að skera úr í málinu enda
málið stórt og umdeilt og ekki eingöngu á
forræði stjórnmálaflokka. Hins vegar er
bent á að endurnýjað hagsmunamat hafi
ekki leitt til grundvallarbreytinga á af-
stöðu flokksins en það þýðir að flokkurinn
muni ekki hafa frumkvæði að viðræðum að
sinni. Aðalatriðið að mínu áliti er að ný for-
ysta sé sífellt að láta skoða málið og end-
urmeta hagsmuni Íslands í ljósi breyttra
aðstæðna því þannig getum við unnið tíma
ef nýjar aðstæður koma upp,“ segir Frið-
rik. Hann hefur aldrei lýst því yfir að Ís-
landi eigi að ganga í ESB, hann hefur hins
vegar talið að umsókn um aðild gæti skýrt
málin. „Ég held að það sé eitthvað sem við
þurfum á að halda fyrr en síðar þegar við
erum að koma okkur út úr þessari
kreppu,“ segir Friðrik. thorbjorn@mbl.is
Málamiðlun
um Evrópumál
Friðrik Sophusson
Aflamarkskerfi
með framselj-
anlegum heim-
ildum hefur skilað
þjóðarbúinu mikl-
um ávinningi, segir
í ályktun lands-
fundar Sjálfstæð-
isflokksins um sjávarútvegsmál.
Landsfundur telur að hagsmunum ís-
lensks sjávarútvegs sé betur borgið utan
ESB en innan, enda sé sjávarútvegsstefna
sambandsins andstæð hagsmunum íslensks
sjávarútvegs og þar með íslenskra sjáv-
arbyggða. Hart var deilt í umræðum um
ályktunina á laugardeginum. Guðmundur
Halldórsson, fyrrverandi formaður Eld-
ingar, félags smábátaeigenda á Vest-
fjörðum, gagnrýndi tilvist kvótakerfisins
harðlega. „Kvótakerfið er krabbamein
sjávarútvegsins. Krabbameinið er komið á
það stig að það er ólæknandi, burt með
meinið, burt með kvótakerfið,“ sagði hann.
Árétta stuðning
við kvótakerfi
„STEINGRÍMUR J. er hinn nýi Skattmann og skikkjan
hefur verið send með hraðpósti frá Bessastöðum. Skatt-
mann er mættur aftur,“ sagði Þorgerður Katrín Gunn-
arsdóttir er hún ávarpaði landsfund Sjálfstæðisflokksins
á laugardag en hún hlaut í gær yfirburðakosningu í emb-
ætti varaformanns og hlaut 80,4% atkvæða.
Þorgerður Katrín sagði að hún myndi ávallt standa að
baki nýkjörins formanns. Allir sjálfstæðismenn þyrftu
að fara út af fundinum baráttuglaðir og berjast fyrir
þjóðina. „Bjarni, við verðum að klára þetta dæmi,“ sagði
Þorgerður Katrín. „Koma svo, áfram Ísland. Berjast,
berjast berjast,“ sagði hún síðan að íþróttasið og upp-
skar mikil fagnaðarlæti fundarmanna.
Í framboðsræðu sinni á laugardag var Þorgerður á
persónulegu nótunum. „Það sem mest tók á voru erfið
veikindi litlu dóttur okkar. Þegar hún náði bata sem var
kraftaverki líkastur, guði sé þökk, var gleðin svo mikil að
áhyggjur af öðru urðu sem hjómið eitt.“ Hún sagðist
telja að hún yrði dæmd af sínum verkum sem varafor-
maður. Hún sagðist telja að kona þyrfti ekki að svara
fyrir starf og laun eiginmanns síns, en Kristján Arason,
eiginmaður Þorgerðar, var sem kunnugt er fram-
kvæmdastjóri einkabankaþjónustu hjá Kaupþingi.
thorbjorn@mbl.is
Þorgerður varaði við nýjum
Skattmann og fékk 80,4%
Sagði að sjálfstæðismenn þyrftu að berjast fyrir þjóðina
Morgunblaðið/Ómar
Hylltur Geir H. Haarde var hylltur með dynjandi lófa-
klappi og var klappað í takt til að sýna Geir virðingu.
BJARNI Benediktsson sagðist í gær þeirrar skoð-
unar að hagsmunum Íslands væri betur borgið utan
Evrópusambandsins. Þetta vekur spurningar um
hvaða leið Bjarni vilji fara í gjaldmiðilsmálum. Í við-
tali við Fréttablaðið 21. mars sagðist hann ekki
hlynntur einhliða upptöku evru. „Rætt hefur verið
um einhliða upptöku annarrar myntar, en ég tel að í
gjaldmiðilsmálum sé enginn kostur jafnsterkur og
evran með ESB-aðild í stað krónunnar,“ sagði hann.
„Ég hef ávallt sagt að ég teldi að hagsmunum okk-
ar væri best borgið utan ESB,“ segir Bjarni. „Stefna
Sjálfstæðisflokksins hefur verið byggð á hags-
munamati hverju sinni. Við eigum enga valkosti í
gjaldmiðilsmálum fyrr en við höfum komið á efna-
hagslegu jafnvægi að nýju á Íslandi. Það þarf að end-
urnýja peningastefnuna og umræðan um Evrópu-
sambandið er drifin áfram af kröfunni um
breytingar í gjaldmiðilsmálum. Ég hef ákveðinn
skilning á því vegna þess að evran er betri kostur í
samstarfi við ESB heldur en einhliða upptaka án
samstarfs. Hins vegar er heildarmat á hagsmunum
sem leiðir til þeirrar niðurstöðu flokksins að okkar
hagsmunum sé betur borgið utan ESB heldur en að
fara þá leið,“ segir Bjarni.
Ekki hlynntur einhliða upptöku evru
ég hefði vissulega viljað hafa sig-
ur. Yfirlýsing fundarins við þessa
nýju forystu er mjög traust og ég
styð hana heils hugar,“ segir
Kristján.
Landsfundarfulltrúar sem
blaðamaður ræddi við í Laug-
ardalshöll voru almennt ánægðir
með hvernig Kristján tók ósigr-
inum. Og þykir hann hafa styrkt
stöðu sína innan flokksins með
þessu góða fylgi. Aldrei hafa fleiri
tekið þátt í landsfundi flokksins
en tæplega 2.000 manns voru á
fundinum þegar flest var.