Morgunblaðið - 30.03.2009, Síða 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MARS 2009
FERSKIR ÁVEX
TIR
FERSKT GRÆN
METI
ótrúlegt úrval!
fyrst og fremst ódýr!
HREIN
SNILLD
Drjúgt, fjölhæft og þægilegt...
Gott á:
gler
plast
teppi
flísar
stein
ryðfrítt stál
fatnað
áklæði
tölvuskjái
omfl.
ATH. frábært á
rauðvínsbletti
og tússtöflur
S. 544 5466 • www.kemi.is • kemi@kemi.is
Eftir Þorbjörn Þórðarson
og Magnús Halldórsson
GEIR H. Haarde, fráfarandi formað-
ur Sjálfstæðisflokksins, sagði í ávarpi
á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í
gærmorgun að Davíð Oddsson, fyrr-
verandi formaður flokksins, forsætis-
ráðherra og seðlabankastjóri, hefði
vegið með ómaklegum og óverðskuld-
uðum hætti að Vilhjálmi Egilssyni og
starfi endurreisnarnefndar Sjálf-
stæðisflokksins í ræðu deginum áður.
Geir sagði að hann hefði gefið Vil-
hjálmi Egilssyni bestu meðmæli í
starfið. Hann hrósaði einnig Vilhjálmi
og sagði hann hafa staðið sig vel í
starfi sem formaður endurreisn-
arnefndar. Hann lagði einnig til að
landsfundarfulltrúar greiddu atkvæði
og samþykktu ályktun um end-
urreisn atvinnulífsins til þess að sýna
tillögum nefndarinnar og starfi Vil-
hjálms stuðning.
Fundargestir gengu út
Davíð, sem flutti óvænta ræðu á
landsfundinum á laugardaginn, fór
mikinn og sagði „útrásarvíkingana
hafa átt sameiginlega eina ósk“; að
koma sér úr Seðlabankanum. Hann
gagnrýndi endurreisnarskýrslu Sjálf-
stæðisflokksins harkalega og sagði
hana illa skrifaða og þar væru marg-
ar rangfærslur. Sagði hann ekki trú-
verðugt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að
láta þann mann, sem Hreiðar Már
Sigurðsson, Jón Ásgeir Jóhannesson
og Hannes Smárason hefðu fengið til
þess að stýra Samtökum atvinnulífs-
ins, hlutast til um gerð siðareglna fyr-
ir Sjálfstæðisflokkinn. Þar átti hann
við Vilhjálm Egilsson, fram-
kvæmdastjóra Samtaka atvinnulífs-
ins. Nokkrir fundargestir gengu út
þegar þessi orð féllu, og fór kliður um
salinn. „Mér finnst þessi ummæli al-
mennt séð mjög ómakleg, ekki bara í
minn garð heldur líka í garð þessara
80 einstaklinga sem voru virkir í
vinnuhópunum og tóku að sér að
skrifa þetta rit,“ segir Vilhjálmur.
Davíð fór vítt og breitt yfir hið póli-
tíska svið og margendurtók að hin
„verklausa vinstri stjórn“ Samfylk-
ingarinnar og Vinstri grænna hefði
valdið „stórkostlegu tjóni“. Í lok
ræðu sinnar sagði hann alveg ljóst, að
ef vinstristjórn yrði við völd eftir
kosningar myndi kreppan dýpka um
„að minnsta kosti fjögur ár“. Davíð
gerði margsinnis hlé á ræðu sinni þar
sem fundargestir klöppuðu og hlógu.
Í lok ræðunnar stóðu landsfund-
arfulltrúar upp og klöppuðu vel og
lengi.
Geir sagði orð
Davíðs ómakleg
Morgunblaðið/Ómar
Hrós Geir hrósaði Vilhjálmi Egils-
syni fyrir endurreisnarstarfið.
Morgunblaðið/Ómar
Gagnrýni Davíð Oddsson fór vítt og
breitt yfir hið pólitíska svið.
Vó með ómaklegum hætti að Vilhjálmi
Í HNOTSKURN
»Davíð líkti Jóhönnu Sig-urðardóttur forsætisráð-
herra við álf í ræðunni.
»Hann gagnrýndi nýjanseðlabankastjóra, Svein
Harald Oygaard, fyrir að segj-
ast ekki muna hvenær hann
var beðinn að taka við emb-
ættinu.
»„Annaðhvort er maðurinnmeð Alzheimer á alvar-
legu stigi eða hann sagði ís-
lensku þjóðinni ósatt,“ sagði
Davíð.
„SVO virðist sem fjármálastofnanir séu nú enn og aft-
ur byrjaðar að bjóða heimilunum upp á flóknar fjár-
málalausnir sem settar eru í fallegan markaðsbúning
s.s. eins og greiðslujöfnunarleiðina,“ segir í tilkynningu
frá Hagsmunasamtökum heimilanna, sem barst í gær-
kvöldi.
„Slík lausn er í raun eingöngu bráðabirgða- og
skammtímalausn sem leysir ekki vandann en heldur
heimilunum áfram í rússíbanareiðinni með gengi ís-
lensku krónunnar. Vandanum er í raun kastað inn í
framtíðina, jafnvel til elliáranna, ef ekki til barnanna
sem verða þeirrar gæfu aðnjótandi að erfa skulda-
bagga foreldranna sem gistu í þrælabúðum krónunnar
og fjármálastofnana frá lántökudegi árið 2007,“ segir
þar ennfremur.
Hagsmunasamtökin voru stofnuð í janúar sl. og er
markmiðið m.a. að beita sér fyrir breytingum á gjald-
þrotalögum og leiðrétta stöðu íbúðalána heimilanna.
Boðið verði upp á að breyta lánum í krónulán
Samstökin skora á stjórnvöld að koma fram með
raunhæfa langtímalausn „fyrir þá sem voru ginntir
með markaðstilboðum bankanna til að taka erlend lán,
með því að leiðrétta þessi lán áður en þingi er slitið og
áður en lánin losna úr frystingu. Leiðréttingin felst í
því að boðið verði upp á að breyta lánunum í krónulán
frá og með þeim degi sem þau voru tekin. Til sam-
ræmis við önnur íbúðalán í landinu mætti setja á þau
verðtryggingu líkt og á önnur íbúðalán“, segir m.a. í
fréttatilkynningu.
Gagnrýna tilboð fjármálastofnana
Víkingar með Samfylkingu
MBL.IS | SJÓNVARP