Morgunblaðið - 30.03.2009, Blaðsíða 34
34 Menning
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MARS 2009
Wildberry
Hvammstangasveitin Wildberry tók einnig þátt í til-
raununum 2006. Liðsmenn eru þeir sömu og forðum;
Ásgeir Trausti Einarsson gítarleikari og söngvari,
Kristinn Arnar Benjamínsson, sem leikur líka á gítar og
syngur, Birkir Þór Þorbjörnsson bassaleikari og Andri
Páll Guðmundsson trommuleikari. Þeir spila math-rokk
og meðalaldur sveitarmanna er sautján ár.
Lonogdon
Árbæingarnir Daníel Guðmunds-
son, DanniSuco / Sucofés, og Fann-
ar Daníel Guðmundsson, báðir
fæddir 1993. Þeir spila hiphop.
Pascal Pinon
Því sérkennilega nafni Pascal Pi-
non heitir hljómsveit úr Reykjavík
sem skipuð er þeim Jófríði Ákadótt-
ur, sem leikur á gítar og syngur,
Ásthildi Ákadóttur, sem leikur á
hljómborð og harmonikku og radd-
ar, Kristínu Ylfu Hólmgrímsdóttur,
sem leikur á gítar og blokkflautu og
Höllu Kristjánsdóttur, sem leikur á
bassa. Þær eru allar fjórtán ára
nema Halla sem er fimmtán og lýsa
tónlist sinni svo: "Okkar tónlist er
ljúf og blíð (við!) krúttleg og sæt
(við!) og engin landsbyggðarmetall
ónei ónei."
Flawless Error
Rokktríóið Flawless Error er úr
Grundarfirði og stefnir hátt. Þre-
menningarnir eru Ásbergur Ragn-
arsson, sextán ára og leikur á bassa,
Sigþór Fannar Grétarsson, sextán
ára og leikur á gítar, og Bergur
Einar Dagbjartsson, tólf ára og leik-
ur á trommur.
Zap
Rokkhljómsveitin Zap er úr Grafarvogi og mikill
metnaður í gangi. Sveitina skipa Hermann Árnason,
bassaleikari og söngvari, Jóhann Garðarsson, gítarleik-
ari og söngvari, Davíð Ás Gunnarsson, gítarleikari,
Rafn Franklin Hrafnsson, trommuleikari, og Hjördís
Lára Hlíðberg söngkona. Þau eru á aldrinum fjórtán til
fimmtán ára.
Draumhvörf
Það koma tvær rokksveitir úr
Kópavogi fram í kvöld og Draum-
hvörf er önnur þeirra. Hljómsveit-
armenn eru Þorvaldur Sigurbjörn
Helgason, sem syngur og leikur á
hljómborð, Ástvaldur Axel Þór-
isson, sem leikur á rafgítar, Sindri
Benediktsson, sem leikur einnig á
rafgítar, og Emil Svavarsson, sem
sýslar með slagverk. Meðalaldur
þeirra er sautján ár og þeir spila til-
raunakennt popp.
The Vulgate
The Vulgate er ný af nálinni,
stofnuð í september sl., og spilar
framsækinn metal. Hún er úr Kópa-
vogi og stígur sín fyrstu skref á sviði
í kvöld. Sveitarmenn eru allir sextán
ára og heita Samúel Örn Böðvarsson,
bassaleikari, Hjalti Þór Kristjánsson,
trommuleikari, Rúnar Örn Grét-
arsson, gítarleikari, Ólafur Einar
Þorbergsson gítarleikari og Bene-
dikt Heiðar Þorgeirsson, söngvari.
The Vintage
Álftnesingarnir í The Vintage
hafa spilað saman í nokkur ár, en
sveitin hefur bæði skipt um nafn og
hljóðfæraleikara á æviferli sínum.
Nú skipa hana Óskar Logi Ágústs-
son, gítarleikari og söngvari, Hall-
dór Gunnar Pálsson, bassaleikari,
og Guðjón Reynisson, trommuleik-
ari. Þeir eru um fimmtán ára og
hyggjast spila blúsrokk.
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
Síðasta tilraunakvöld Músíktilrauna verður haldið í kvöld í Ís-lensku óperunni, en undanfarin kvöld hafa 32 hljómsveitir sleg-ist um sæti í úrslitum. Í kvöld takast síðustu tíu sveitirnar á umtvö úrslitasæti, eitt sem áheyrendur veita og annað sem dóm-
nefnd úthlutar, en eftir keppnina í kvöld mun dómnefnd líka velja tvær
hljómsveitir aukalega í úrslitin af þeim 42 sem keppa þetta árið.
Það ber meðal annars til tíðinda í kvöld að hin kvennasveit tilraun-
anna tekur þátt, en annars er í boði fjölbreytileg músík: Ýmis afbrigði af
rokki; blúsrokk, metal, math og framsækinn metall, tilraunakennt popp,
hipphopp og svo ljúf og blíð krúttleg og sæt.
Keppt er í Íslensku óperunni og hefst fjörið kl. 19:00 stundvíslega.
Úrslit Músíktilrauna verða haldin í Listasafni Reykjavíkur - Hafn-
arhúsinu næstkomandi laugardag og hefjast kl. 17:00.
Fjölbreytt flóra
Powerline
Garðabæjarsveitin Powerline
spilar mest rokk og smá metal.
Sveitarmenn, sem eru allir fimmtán
ára, eru Fannar Már Oddsson,
spunagítarleikari, Atli Fannar
Bjarnason hryngítarleikari, Leifur
Örn Eiríksson trommuleikari, og
Ríkarður Einarsson bassaleikari.
San Juan
San Juan er rokkhljómsveit úr Hafnarfirði og eru allir meðlimir hennar
þaðan komnir. Sveitina skipa Tandri Tryggvason gítarleikari og söngvari,
Arnar Freyr Kristinsson, sem leikur á bassa, Árni Þórður Sigurðsson
trommuleikari og Snorri Már Gylfason gítarleikari. Þeir eru allir sextán ára
nema Snorri Már sem er sautján. Þess má geta að Tandri var valinn besti
söngvari hljómsveitakeppninnar Hraunrokks í Hafnarfirði fyrir stuttu.
Vestanhafs þykja svokallaðar„klasalöggur“, eða „mallcops“, ekki sérlega líklegartil afreka. Þessi nauðsyn-
lega stétt manna hefur í mörg horn að
líta í verslunarmiðstöðvum, með vök-
ulum augum fylgist hún grannt með
búðaþjófum og grunsamlegum við-
skiptavinum, öryggisútbúnaði og öðru
því sem hinn almenni kúnni hefur ekki
áhyggjur af. Oftast eru þessir menn
uppgjafa lögreglumenn eða að þeir
hafa ekki náð lokaprófi úr akademí-
unni. Það kemur því fyrir að þeir verða
fyrir háði og spotti vandræðagemlinga
og undirmálsfiska í hafdjúpum við-
skiptavinanna. Nú eru þeir orðnir nýj-
asta skotmark aulamyndagerð-
armanna, Paul Mart: Mall Cop, naut
mikilla vinsælda og von er á nokkrum
slíkum gleðigjöfum til viðbótar á með-
an járnið er heitt.
Paul Blart (James), er þéttholda,
miðaldra maður sem annast örygg-
isvörslu í verslunarmiðstöð. Hann náði
ekki lokaprófi í lögguskólanum og lifir
tilbreytingarlausu lífi þar sem hann
rennir sér um mollið á rafhjóli sínu
daginn út og inn. Einhver mundi telja
hann heimóttarlega rolu því einkalífið
er síst skárra. Paul er einstæður faðir
sem elur upp stúlku á táningsaldri,
mamman er frá Suður-Ameríku og lét
sig hverfa eftir að hún giftist Paul og
fékk Græna kortið upp í hendurnar.
Feðginin búa hjá mömmu hans
(Knight) og fáskrúðugt skemmtanalíf
fjölskyldunnar fer einkum fram á mat-
málstímum.
Handritshöfundurinn James, reynir
að gera einhæft hallærislíferni Pauls
hins feita, feimna og hryggbrotna að
bakgrunni í aulagrín og það tekst að
því leytinu að James (sem gerði góða
hluti í sjónvarpsþáttunum King of
Queens), er hreint ekki sem verstur
aulagrínari og hleypir oft óvæntum
galsa í þá dellu sem myndin er. Þar
sem James semur handritið og per-
sónurnar, sníður hann Blart að sínum
takmörkuðu en óumdeilanlegu grín-
istagetu. Aðrar persónur eru nauðsyn-
legar til uppfyllingar, m.a. stúlkukvöl
sem á að falla fyrir óvæntum hetju-
skap sem hið hjólandi mannfjall sýnir
þegar illmenni setjast um klasann.
Heldur þunnur þrettándi en það
verður heldur ekki af James skafið að
áhorfandinn stendur sig að furðu
mörgum hláturrokum undir sýningu,
nokkuð sem virtari spámenn geta ekki
alltaf státað sig af.
Mall Cop „Paul Blart (James), er þéttholda, miðaldra maður sem annast ör-
yggisvörslu í nálægri verslunarmiðstöð.“
Smárabíó, Háskólabíó,
Laugarásbíó, Borgarbíó
Paul Mart: Mall Cop
bbmnn
Leikstjóri: Steve Carr. Aðalleikarar: Ke-
vin James, Jayma Mays, Keir O’Donnell,
Bobby Cannavale, Stephen Rannazzisi,
Shirley Knight. 90 mín. Bandaríkin.
2009.
SÆBJÖRN
VALDIMARSSON
KVIKMYND
Æði rennur á öryggisvörð
Gefið henni gaum, konunni sem
leikur mömmu Pauls Bart, hún á
nefnilega litríkan feril að baki þó
svo að hún sé farin að taka að sér
B-hlutverk í B-myndum sem
þessum á síðari árum. Shirley
Knight hóf leik í kvikmyndum
árið 1955, í kvikmyndagerð The
Sweet Bird of Youth (’63), leik-
ritsins fræga eftir Tennessee
Williams, og The Dark at the top
of the Stairs (’61), sem er kvik-
myndagerð leikrits eftir William
Inge. Emmy-verðlaun og -til-
nefningar eru á annan tuginn og
Knight hefur hlotið verðlaun á
hátíðum víða um heim. Hún varð
aldrei stórstjarna samt sem áður,
en er minnisstæð í myndunum
The Salton Sea, As Good as it
Gets, The Rain People (leikstj.
Francis Ford Coppola) og The
Group (leikstj. Sydney Lumet).
Hún hefur farið með hátt á ann-
að hundrað hlutverk í kvikmynd-
um og sjónvarpi og er eftirsótt
karakterleikkona enn þann dag í
dag.
Shirley Knight.
Allir þurfa salt í grautinn