Morgunblaðið - 01.04.2009, Síða 34
34 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 2009
Sudoku
Frumstig
5 4
3 5
2 6
7 1 3 2
7 8 5 1
2 5 6
7 2 9 4
6 4 9 8
8
3 1 5
9 2 7 3
6 7
5 3 2 8 4
6 5
9 6 5
7 5 9
4 2
2 7 8
5 7
1 7 2 9 8
6 9 2
3 9 4
3 5
3 7
7 2 1
4 8
1 7 9 2 6 8 5 3 4
4 2 5 3 7 9 1 8 6
3 6 8 1 5 4 2 7 9
9 5 4 6 2 3 8 1 7
6 3 1 5 8 7 4 9 2
7 8 2 4 9 1 3 6 5
8 4 6 7 3 2 9 5 1
5 1 3 9 4 6 7 2 8
2 9 7 8 1 5 6 4 3
8 1 3 6 5 7 4 2 9
6 7 5 9 2 4 1 3 8
9 4 2 3 1 8 7 6 5
5 6 7 2 8 9 3 1 4
2 9 1 4 7 3 5 8 6
3 8 4 1 6 5 2 9 7
4 2 8 5 3 6 9 7 1
7 3 9 8 4 1 6 5 2
1 5 6 7 9 2 8 4 3
7 5 2 1 9 3 6 8 4
6 4 3 2 8 5 1 9 7
1 8 9 4 6 7 5 2 3
8 2 4 6 5 1 3 7 9
3 1 6 9 7 4 2 5 8
5 9 7 8 3 2 4 1 6
9 3 8 5 1 6 7 4 2
2 6 1 7 4 9 8 3 5
4 7 5 3 2 8 9 6 1
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er miðvikudagur 1. apríl, 91. dag-
ur ársins 2009
Orð dagsins: Þú hefur breytt eftir mér í
kenningu, hegðun, ásetningi, trú,
langlyndi, kærleika, þolgæði. (Tím. 3,
10.)
Tíðarandinn er kyndugt fyrirbæri.Það sem nú þykir sjálfsagt hefði
áður þótt fráleitt og sjálfsagðir hlutir
fyrri tíma teljast nú galnir. Víkverji
rakst nýverið á gamalt tölublað af
Vikunni, nánar tiltekið frá 30. júní
1966. Þar skrifa „tvær sem vilja vita
svolítið meira um lífið“ póstinum. Í
bréfinu er víða komið við, spurt um
flugfreyjumenntun og hvernig kom-
ast eigi í „fegurðarsamkeppnina, því
þangað hafa margir sagt okkur að
fara“, en á einum stað skín örvænt-
ing í gegn: „Svo við snúum okkur nú
að öðru, þá erum við hérna með 2
strákum (náttúrlega einum hvor),
þeir eru agalega sætir (þú ættir bara
að sjá þá) og myndarlegir, en sá er
galli á gjöf Njarðar, að þeir eru á
millilandaskipi (við segjum sko ekki
hvaða) og við erum svo ferlega ofsa-
lega hræddar um að þeir haldi fram
hjá okkur, heldurðu það? (gerðu það
segðu NEI!).“
x x x
Pósturinn er hins vegar raunsærog er ekki tilbúinn að róa þær,
en gefur hins vegar ákaflega kyndug
ráð, sem hæpið er að sæjust nú á
dögum: „Þessu varðandi strákana
eigum við erfitt með að svara, þar eð
við þekkjum ekkert til skapgerðar
þeirra. Þó er fremur trúlegt að þeir
haldi framhjá ykkur ef góð tækifæri
gefast, en ekki þarf það neitt að
verða til þess að þið missið þá, að
minnsta kosti ef þið látið það vera að
sletta ykkur nokkuð fram í það.“ Svo
góð voru þau ráð og best að sletta sér
ekkert fram í það.
x x x
Bréfritarar spyrja póstinn einnighvar hægt sé að finna upplýs-
ingar um stjórnmál, sem komi að
gagni þegar þær fái kosningarétt eft-
ir fjögur ár. Pósturinn bendir þeim á
bókina Kjósandann, stjórnmálin og
valdið, sem gæti „kannski orðið ykk-
ur til einhverrar leiðsagnar þegar þið
fáið kosningaréttinn, ef þið viljið
endilega nota hann.“ Ekki beinlínis
hvatning til hinna ungu stúlkna árið
1966, en sennilega hefði tóninn verið
annar ef fyrirspurnin hefði komið
tveimur árum síðar.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 fremsti fing-
urliður, 4 hnikar til, 7
skriðdýrið, 8 grafar, 9
umfram, 11 legils, 13
skjóta, 14 tötra, 15 strítt
hár, 17 vott, 20 títt, 22
laumuspil, 23 líkams-
hlutinn, 24 róin, 25 auð-
an.
Lóðrétt | 1 kriki, 2 kostn-
aður, 3 ránfugla, 4 þétt, 5
náðhús, 6 gera hreint, 10
rask, 12 vatnagróður, 13
spor, 15 spónamaturinn,
16 stormurinn, 18 nið-
urfelling, 19 heyið, 20
óskynsamleg ráða-
breytni, 21 ferming.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 kunngerir, 8 ausan, 9 tolla, 10 nýr, 11 bráka,
13 annir, 15 gruns, 18 sagan, 21 nyt, 22 sadda, 23 ólötu,
24 kauðalegt.
Lóðrétt: 2 umsjá, 3 nunna, 4 eitra, 5 iglan, 6 lamb, 7
gaur, 12 kyn, 14 nía, 15 gust, 16 undra, 17 snauð, 18
stóll, 19 glögg, 20 nauð.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c6 2. d4 d5 3. Rc3 dxe4 4. Rxe4
Rd7 5. Rg5 Rgf6 6. Bd3 e5 7. Bc4 Rd5
8. R1f3 exd4 9. Dxd4 R7f6 10. O-O Be7
11. c3 O-O 12. Re4 Be6 13. He1 h6 14.
Rc5 Bc8 15. Bd2 b6 16. Re4 Bf5 17.
Rxf6+ Bxf6 18. Re5 Hc8 19. Bf4 Be6
20. Bg3 b5 21. Bb3 Rb6 22. Bxe6 fxe6
23. Dg4 He8 24. h3 Dd2 25. He2 Dd5
26. b3 c5 27. He4 Dd2 28. c4 bxc4 29.
bxc4 Dg5 30. De2 Hcd8 31. Rf3 Df5 32.
Be5 Bxe5 33. Hxe5 Df4 34. Hxc5 e5 35.
Hxe5 Hxe5 36. Dxe5 Dxc4 37. De7 Hd7
38. De8+ Kh7 39. He1 Dxa2
Staðan kom upp í atskák á Amb-
er-mótinu sem lauk fyrir skömmu í
Nice í Frakklandi. Peter Leko (2.751)
frá Ungverjalandi hafði hvítt gegn
Rússanum Alexander Morozevich
(2.771). 40. Rg5+! og svartur gafst upp
enda yrði hann mát eftir 40. …hxg6 41.
Dh5+ Kg8 42. He8#.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Þvinguð vörn?
Norður
♠KDG4
♥ÁG42
♦63
♣G63
Vestur Austur
♠93 ♠62
♥D107 ♥K8653
♦ÁK ♦DG10982
♣1098754 ♣--
Suður
♠Á10875
♥9
♦754
♣ÁKD2
Suður spilar 4♠.
„Þetta var þvinguð vörn,“ sagði Her-
mann Lárusson og gerði lítið úr hrósi
andstæðinganna. Spilið er frá undan-
úrslitum Íslandsmótsins, síðustu um-
ferð á sunnudaginn. Hermann var í
vestur og Þröstur Ingimarsson í aust-
ur. Hermann kom út með hátígul og
Þröstur vísaði frá með níunni. Þröstur
hafði stokkið í 2G við Standard-
laufopnun norðurs og sýnt með því
rauðu litina, minnst 5-5 skiptingu. Her-
mann vissi því um einspil í hjarta hjá
sagnhafa og sá ekki aðra von í vörninni
en eyðu hjá makker í laufi. Hann skipti
því yfir í lauf, Þröstur trompaði, spilaði
tígli til baka og fékk aðra stungu. Einn
niður.
Nokkur pör villtust í 6♠, sem austur
doblaði til útspils. Það gefur 800-kall í
A-V, en hæsta talan í N-S var 1400 fyr-
ir vörnina í 5♥ dobluðum.
Stjörnuspá
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Mörgum finnst þú litríkur og
sjálfstæður persónuleiki. Þú hefur einn-
ig hæfileika til þess að virkja aðra til
dáða.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Það er hætt við spennu í sam-
skiptum þínum við maka þinn og nána
vini í dag. Svaraðu rökstuddri gagnrýni
af hógværð og tillitssemi.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Samskipti og samræður við
stjórnendur, foreldra og aðra yfirboð-
ara hafa tekið mið af fortíðinni upp á
síðkastið.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Góð hugmynd selur sig sjálf, er
stundum haft á orði. Þú býrð yfir með-
fæddu innsæi sem hjálpar þér til þess
að skynja lausnina sem leynist undir
niðri.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Að vinna einn síns liðs getur verið
einmanalegt. Bittu lausa enda í sam-
bandi við erfðaskrár, tryggingar og
slíkt.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú getur mætt hvaða áskorun
sem er ef þú nýtir hæfileika þína til
fulls. Ferðaáætlanir eða ráðagerðir
tengdar útgáfu vekja með þér til-
hlökkun.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Ekki láta það á þig fá þótt þú sért
óvenju gleymin/n þessa dagana. Unaðs-
legar tilfinngar hvetja þig til að gera
allt til að geðjast þeim sem þú elskar.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú nýtur stuðnings þeirra
sem þú umgengst. Reyndu að læra eitt-
hvað nýtt þrátt fyrir að það virðist létt-
vægt.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú ert síbrosandi og upplífg-
andi fyrir fólk í kringum þig. Taktu á
vandamálunum þú hefur bæði fag-
mennsku og reynslu til þess.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Ekki reyna að telja aðra á
skoðanir þínar í trúmálum og heimspeki
eða láta aðra telja þig á sitt band og
rugla þig í ríminu.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Hugsast getur að einhver láti
ummæli falla sem ná alla leið inn í kviku
á þér, vatnsberi. Slakaðu á en þó ekki of
lengi því alltaf koma ný og ný verkefni.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Flokkaðu sjálfan þig með fólki
sem þú hefur gaman að. Ef þú heldur
að þér höndum áttu á hættu að bera
ekkert úr býtum.
1. apríl 1855
Íslendingum var leyfð frjáls
verslun við þegna allra þjóða.
Áður hafði verslun verið
bundin við þegna Danakon-
ungs.
1. apríl 1936
Alþýðu-
trygg-
ingalög
tóku gildi.
Þau eru tal-
in marka
eitt stærsta
spor í ís-
lenskri fé-
lagsmálalöggjöf. Skylda varð
að stofna sjúkrasamlög í
sýslum og kaupstöðum.
1. apríl 1955
Tíminn skýrði frá því að
ákveðið hefði verið að æðstu
menn Bandaríkjanna, Sov-
étríkjanna og Bretlands
myndu hittast á heimsvelda-
fundi 20.-24. apríl og að Sov-
étmenn hefðu óskað eftir að
fundurinn yrði í Reykjavík.
Daginn eftir var sagt frá því
að fréttin hefði verið apr-
ílgabb.
1. apríl 1957
Útvarpið flutti þær fréttir að
600 lesta flatbotna fljótaskip,
Vanadís, sem áður sigldi á
Saxelfi, hefði verið keypt til
landsins og hefði hafið ferðir
til Selfoss. Þetta mun vera eitt
frægasta aprílgabbið.
1. apríl 1977
Póstnúmer voru tekin upp „til
hagræðingar við flokkun
pósts,“ eins og sagði í Morg-
unblaðinu.
1. apríl 1999
Sigríður
Einars-
dóttir varð
fyrst ís-
lenskra
kvenna
flugstjóri á
þotu hjá
Flug-
leiðum.
Fyrsta
ferðin var frá Reykjavík til
London.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
„ÉG hef alltaf haldið upp á afmælið mitt, en ég
býst við að hafa þetta bara rólegt í ár og halda lítið
kaffiboð fyrir fjölskylduna,“ segir Arnar. Í dag er
auðvitað 1. apríl og Arnar þvertekur fyrir að vera
friðhelgur frá gabbinu þrátt fyrir að eiga afmæli á
þessum degi. „Það reyna alltaf margir að ná mér,
en ég er svo meðvitaður vegna þess að ég reyni
þetta alltaf svo mikið sjálfur, svo það tekst sjaldan
að gabba mig.“ Hann viðurkennir þó að í fyrra
hafi hann látið blekkjast. Þá var hann að gera
skattskýrsluna sem var óvenjuflókin þar sem hann
bjó í Danmörku árið áður. Hann leitaði því til fé-
laga síns, sem er sleipari í dönskunni, en sá sendi hann á skrifstofu
sýslumanns til að sækja alveg bráðnauðsynlegt eyðublað.
„Ég fer þangað og segi að ég þurfi að fá blað sem heitir E24 og þar
er leitað um allt að þessu, allir spyrja alla og enginn kannast við neitt.
Þá hringdi ég aftur í félaga minn og hann sprakk úr hlátri,“ lýsir Arn-
ar sem áttaði sig á þessum tímapunkti á því að ekki aðeins hann, held-
ur allir starfsmenn sýslumanns, höfðu hlaupið 1. apríl. Afmælisdag-
urinn í dag verður sennilega ekki gabblaus frekar en áður, en Arnar
lætur ekkert uppi, enda verður gabbið að koma á óvart. una@mbl.is
Arnar Elíasson er 29 ára í dag
Gabbaður hjá sýslumanni
Nýirborgarar
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd
af barninu
til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is
Vestmannaeyjar Daníel
Þór Eduardo fæddist 3.
október kl. 10.22. Hann vó
15 merkur og var 53 cm
langur. Foreldrar hans
eru Erna Sævarsdóttir og
Magni Eduardo Júlíusson.
Reykjavík Willy Ferreira
fæddist 20. desember kl.
21.41. Hann vó 2.990 g og
var 47,5 cm. Foreldrar hans
eru Lenivalda Rodrigues
Ferriera og Wilhelmus Jo-
hannes Martinus van Rooij.