Morgunblaðið - 17.04.2009, Page 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. APRÍL 2009
Katrín Jakobsdóttir mennta-málaráðherra sýndi lofsverða
hreinskilni þegar hún lýsti því yfir á
kosningafundi að lækka yrði laun rík-
isstarfsmanna til að loka gatinu í rík-
isfjármálum – auk þess að hækka
skatta.
Áhugi Vinstrigrænna á
skattahækkunum
hefur ekki farið á
milli mála. Reynd-
ar bólar ekkert
enn á útreikn-
ingum á því
hvernig þeir ætla
að afla tekna með
skattahækkunum
án þess að skerða
ráðstöfunartekjur fólks með með-
altekjur.
Hins vegar hefur gengið verr að fáVG til að útskýra hvar eigi að
skera niður í ríkisrekstrinum. Nú er
komið eitt handfast svar. Flokkurinn
vill frekar lækka laun opinberra
starfsmanna en fækka þeim.
Þetta er skiljanleg afstaða út fráþví sjónarmiði að VG vilji við-
halda sem mestu af þeirri þjónustu,
sem hið opinbera veitir, en samt
spara peninga. Með launalækkunum
er komizt hjá því að segja upp fólki
og það heldur vinnunni sinni.
Aðgerð eins og þessa getur ríkiðleyft sér þegar atvinnuástandið
er slæmt. Sambærileg launalækkun
hefur þegar verið framkvæmd hjá
flestum einkareknum fyrirtækjum í
landinu. Hins vegar verður VG að
átta sig á því að allar launalækkanir
koma niður á tekjum ríkissjóðs af
launasköttum.
Sennilega er meira að segja Ög-mundur Jónasson, formaður
BSRB, spenntur fyrir þessari sparn-
aðarhugmynd. Að minnsta kosti hef-
ur hann ekki ráðizt á mennta-
málaráðherrann fyrir hana, sem
einhverjir hefðu þó kannski búizt við.
Katrín
Jakobsdóttir
Eitt handfast svar
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 8 skýjað Lúxemborg 10 skúrir Algarve 18 léttskýjað
Bolungarvík 4 skýjað Brussel 13 skúrir Madríd 11 léttskýjað
Akureyri 10 léttskýjað Dublin 10 skúrir Barcelona 16 léttskýjað
Egilsstaðir 10 heiðskírt Glasgow 13 heiðskírt Mallorca 16 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 10 skýjað London 13 léttskýjað Róm 20 léttskýjað
Nuuk -6 snjókoma París 14 skýjað Aþena 19 léttskýjað
Þórshöfn 7 heiðskírt Amsterdam 16 heiðskírt Winnipeg 11 skúrir
Ósló 7 skúrir Hamborg 20 heiðskírt Montreal 11 heiðskírt
Kaupmannahöfn 12 heiðskírt Berlín 18 heiðskírt New York 12 heiðskírt
Stokkhólmur 7 heiðskírt Vín 23 skýjað Chicago 14 heiðskírt
Helsinki 2 heiðskírt Moskva 1 alskýjað Orlando 25 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
17. apríl Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5.39 1,5 11.44 2,6 17.41 1,5 5:48 21:08
ÍSAFJÖRÐUR 0.57 1,6 7.38 0,7 13.28 1,3 19.20 0,7 5:43 21:23
SIGLUFJÖRÐUR 3.11 1,1 9.48 0,5 16.02 0,9 21.43 0,6 5:26 21:06
DJÚPIVOGUR 2.34 0,9 8.16 1,4 14.26 0,8 21.08 1,5 5:15 20:40
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á laugardag
Suðaustan 5-10 m/s, dálítil
rigning eða súld suðaustan til
og einnig um landið suðvest-
anvert síðdegis, en annars úr-
komulaust. Hiti 3 til 8 stig að
deginum.
Á sunnudag
Suðaustan 5-13 m/s, hvassast
og rigning eða súld um sunnan-
og vestanvert landið, en annars
þurrt. Hiti 5 til 10 stig.
Á mánudag og þriðjudag
Suðlæg átt, allhvöss á köflum
og vætusamt, en þurrt að kalla
norðaustan til. Fremur milt í
veðri.
Á miðvikudag
Útlit fyrir austlæga átt með úr-
komu um allt land og heldur
kólnandi veðri.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Hæg austlæg átt og skýjað
með köflum SV-til en annars
bjartviðri eða léttskýjað. Hiti á
bilinu 3 til 10 stig yfir daginn.
Erlend skip sem stunda karfa-
veiðar á Reykjaneshrygg eiga
talsverð viðskipti í Reykjavík
og Hafnarfirði.
Fimm rússnesk skip hafa
verið í Hafnarfirði frá því í
október og lágmarksáhöfn ver-
ið um borð. Nóg pláss er í
höfninni og hafa þau því ekki
tekið pláss frá öðrum. Tvö skip
bættust við í vikunni, meðal
annars til að taka veiðarfæri,
en einnig taka skipin olíu og
kost hér á landi. Talsverð við-
skipti fylgja því skipunum og
hugsanlega landa skipin einnig
afla sínum í Hafnarfirði í sumar.
Eitt skipanna lét úr höfn í Hafn-
arfirði í gær.
Sömu sögu er að segja frá
Reykjavík, en þangað hafa und-
anfarin ár komið nokkur erlend
karfaskip um þetta leyti árs og
þá ekki aðeins rússnesk. Útgerð-
irnar kaupa hér ýmsa þjónustu,
en einnig hafa japönsk túnfisk-
veiðiskip árlega keypt olíu og
vistir í Reykjavík.
Talsverð viðskipti við erlendu skipin
FRÉTTASKÝRING
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
FYRSTU úthafskarfaskipin birtust
á Reykjaneshrygg fyrir nokkrum
dögum og þegar Landhelgisgæslan
fór í eftirlitsflug á þriðjudagskvöld
voru fimm skip komin á miðin, tveir
Spánverjar, tveir Portúgalir og einn
Rússi. Halldór Nellett, fram-
kvæmdastjóri aðgerðasviðs Land-
helgisgæslunnar, sagði í gær að öll
skipin hefðu verið löglegum megin
við landhelgislínuna, en nokkur
þeirra þó í línudansi rétt utan við.
Hann sagði að lítið hefði frést af
aflabrögðum, en búast mætti við að
skipunum fjölgaði verulega á næst-
unni. Engin íslensk skip eru byrjuð
veiðar á úthafskarfa, en ætla má að
þær byrji um miðjan maímánuð. Ís-
lendingar eiga rúmlega 20 þúsund
kvóta og má nefna að HB Grandi á
samtals um 6.600 tonn.
Meira en þreföld ráðgjöf
Á samráðsfundi fulltrúa Íslands,
Færeyja, Grænlands, Evrópusam-
bandsins, Noregs og Rússlands um
stjórn veiða á karfa á Reykjanes-
hrygg í febrúarmánuði varð nið-
urstaðan sú að aflamagn og fyr-
irkomulag veiðanna í ár yrði að
mestu óbreytt frá síðasta ári. Af-
staða Íslands á fundinum var sem
fyrr sú að draga úr sókn í karfa á
Reykjaneshrygg enda hefur verið
veitt umtalsvert umfram vís-
indaráðgjöf á undanförnum árum.
Ekki náðist samstaða um slíkt á
fundinum og sætti Ísland sig við
þessa niðurstöðu í ljósi þess að ella
hefði engin stjórn orðið á veiðunum,
segir í frétt sem sjávarútvegsráðu-
neytið sendi frá sér að fundinum
loknum. Ráðgjöf fiskifræðinga er að
leyfa veiðar á alls um 20 þúsund
tonnum af djúpkarfa. Veiðiríkin
hafa hins vegar úthlutað sér meira
en þreföldu því magni.
Innan Alþjóða hafrannsóknaráðs-
ins, ICES, hefur undanfarin ár ver-
ið unnið að endurskoðun á stofn-
gerð karfa á Reykjaneshrygg.
Vísindamenn Hafró hafa lengi talið
að núverandi stjórnun endurspegli
ekki líffræðilegar stofneiningar. Í
byrjun mars kynnti sérfræð-
inganefnd á vegum ICES síðan ráð-
gjöf sína og er vonast er til að þessi
ráðgjöf leiði til þess að hægt verði
að koma betri stjórn á veiðar næsta
árs.
Karfaskipin
í línudansi
!"
!
"
# $
%
"
"$
"
#
Talsvert veitt um-
fram ráðgjöf fiski-
fræðinga síðustu ár
Í HNOTSKURN
»Sérfræðinganefnd komstað þeirri niðurstöðu að
djúpkarfi við Ísland auk
Grænlandshafs og nærliggj-
andi hafsvæða væru þrír líf-
fræðilega aðgreindir stofnar.
»Ákvörðun um svæða-stjórnun á næsta ári bygg-
ir á því að veiðar á karfa í
Norðaustur-Grænlandshafi
eru að mestu á meira en 500 m
dýpi en veiðar í Suðvestur-
Grænlandshafi að mestu á
minna en 500 m dýpi.