Morgunblaðið - 17.04.2009, Side 16
16 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. APRÍL 2009
8;< 8;< &+,
(-.
/+0&
/&0&
'
'
8;< :=<
1-+(
&,*
/-0,
/&0,
'
'
:>5
9
*
?
*1&+
1.('
/10&
/&0(
'
'
6@7A
:1<
-'+,
-.'2
/&01
/10,
'
'
8;<;%
8;<<
.++
.+(
'0(
/,02
'
'
Þetta helst ...
● Landic Property seldi finnskt fast-
eignasafn sitt og skrifaði undir samn-
ing um sölu á dönskum og sænskum
dótturfélögum sínum skömmu áður en
félagið óskaði eftir greiðslustöðvun í
gær. Kaupandinn var fjárfestingafélagið
Trackside Holding, en eigendur þess
eru umsvifamiklir fjárfestar í fast-
eignum í Evrópu. Samningurinn er
háður samþykki lánveitenda Landic
Property.
Landic selur fasteignir
● Embætti sér-
staks saksóknara
er með nokkra
tugi mála í sigtinu
samkvæmt heim-
ildum Morgun-
blaðsins. Nokkrir
hafa fengið rétt-
arstöðu grunaðra
en ekki fæst upp-
gefið hversu
margir þeir eru.
Eftir að embættið fékk aðgang að
endurskoðendaskýrslum sem unnar
voru um bankana hefur verið mikill
gangur á málum. Búið er að vinna
rannsóknaráætlun fyrir nokkur mál
og fjölgun starfsmanna hefur gengið
hratt fyrir sig. Þeir verða orðnir tólf á
næstu vikum og búið verður að full-
manna það í lok sumars.
thordur@mbl.is
Tugir mála í sigti
sérstaks saksóknara
Ólafur Þór
Hauksson
● Víðar er verðhjöðnun en í Banda-
ríkjunum. Nýlega hófst hin fornfræga
árlega forsala á Bordeaux-vínum. Ár-
gangurinn 2008 þykir sambærilegur
við þá sem framleiddir voru 2006 og
2007, en þrátt fyrir það er hann seld-
ur á mun lægra verði.
St. Emilion vínin frá Angélus eru
42% ódýrari en þau voru í fyrra og
Latour hefur lækkað um 45%. Hafa
ber í huga að þessir framleiðendur
tveir eru taldir í hópi þeirra allra
bestu og hafa vín þeirra venjulega
selst á mun hærra verði en vín sam-
keppnisaðilanna.
bjarni@mbl.is
Verðhjöðnun í
Bordeaux-héraði
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
HREIN eign lífeyrissjóðakerfisins
til greiðslu lífeyris minnkaði um
1,4% í febrúar, samkvæmt tölum frá
Seðlabanka Íslands. Tölurnar eru
byggðar á upplýsingum, sem lífeyr-
issjóðirnir veita Seðlabankanum.
Stærstu breytingarnar frá janúar-
mánuði eru aukin eign sjóðanna í
ríkistryggðum skuldabréfum, en á
móti hefur eign þeirra í hlutabréf-
um, innlendum sem erlendum,
minnkað til muna.
Athygli vekur að eign lífeyrissjóð-
anna í skuldabréfum fyrirtækja,
annarra en lánastofnana, minnkaði
aðeins um 3,8% í febrúar og nemur
nú 159 milljörðum króna. Hefur
þessi eign lækkað um 16% frá því
fyrir bankahrun.
Þegar horft er á skuldabréfa-
markaðinn hér á landi nemur heild-
arfjárhæð útistandandi skuldabréfa
fyrirtækja um 348 milljörðum króna
að nafnvirði. Þegar frá eru tekin þau
fyrirtæki sem eru annaðhvort farin í
þrot, eða eiga í alvarlegum greiðslu-
vanda, standa um 173 milljarðar eft-
ir. Áður hefur komið fram að lífeyr-
issjóðirnir áttu 52% af útgefnum
fyrirtækjabréfum. Miðað við þessa
stöðu á skuldabréfamarkaði má ætla
að enn eigi eftir að afskrifa töluvert
af fyrirtækjabréfum í eigu lífeyr-
issjóðanna.
Enn á eftir að afskrifa
töluvert af skuldabréfum
Morgunblaðið/Ómar
Bréf Stoðir/FL Group er í hópi skuldabréfaútgefenda sem eiga í miklum
vanda. Hannes Smárason, Jón Ásgeir Jóhannesson og Jón Sigurðsson.
FULLNAÐARÚTGÁFU skýrslu
Olivers Wymans um samhæft end-
urmat á Nýja Landsbankanum
(NBI), Nýja Kaupþingi og Íslands-
banka hefur enn ekki verið skilað inn
til Fjármálaeftirlitsins (FME).
Skýrslunni átti að skila fyrir mið-
nætti á miðvikudag en samkvæmt
upplýsingum frá FME mun fulln-
aðarútgáfa hennar ekki liggja fyrir
fyrr en í næstu viku.
Formlegar viðræður milli ráðgjafa
skilanefndanna og ráðgjafa rík-
isstjórnarinnar um skiptingu eigna
milli gömlu og nýju bankanna geta
ekki hafist fyrr en skýrslan liggur
fyrir. Ríkisstjórnin stefnir að því að
ljúka þessum viðræðum í síðasta lagi
18. maí. Skýrslan verður í tveimur
hlutum. Í fyrri hlutanum verður lýst
aðferðafræði, forsendum og verð-
mæti eigna sem fluttar voru úr bönk-
unum á tilteknu verðbili. Í síðari hlut-
anum verður síðan að finna mat á
einstökum eignum. Sá hluti geymir
viðkvæmar upplýsingar og er bund-
inn ríkum trúnaði samkvæmt upplýs-
ingum frá FME. thordur@mbl.is
Skýrslunni
ekki skilað
SAMSON, eignarhaldsfélagi Björg-
ólfsfeðga, hefur ekki verið birt
stefna vegna fimm milljarða skuld-
ar við Nýja Kaupþing, að sögn Ás-
geirs Friðgeirssonar, talsmanns
Samson. Í Fréttablaðinu hinn 9.
apríl var sagt frá því að feðgunum
hefði verið stefnt vegna skuld-
arinnar. Björgólfur Thor sendi frá
sér yfirlýsingu í kjölfarið þar sem
hann sagði að viðræður um
greiðslu hefðu staðið yfir síðustu
vikur. Hann hefði ekki í hyggju að
hlaupast undan ábyrgð á greiðslu
skuldarinnar, frekar en annarra
skulda við íslenskar og erlendar
lánastofnanir. thorbjorn@mbl.is
Engin stefna
frá Kaupþingi
birt Samson
ir ljóst að staða félagsins muni hafa umtalsverð
áhrif á hluthafana. Um mitt síðasta ár voru vaxta-
berandi skuldir Landic um 470 milljarðar króna.
Kröfuhafar félagsins hafa reglulega verið upp-
lýstir um breytingar á stöðunni en félagið hefur
ekki viljað birta nýjar skuldatölur opinberlega.
Bankarnir stærstu innlendu kröfuhafarnir
Að sögn Viðars er afgerandi meirihluti
skuldanna við erlendar fjármálastofnanir. „Starf-
semi okkar er 80 prósent erlendis en 20 prósent
hérna heima. Hér á Íslandi eru stærstu kröfuhaf-
arnir Landsbankinn, Íslandsbanki eða Glitnir,
Kaupþing, lífeyrissjóðirnir og Stoðir. Auk þess
eru það ýmsir sjóðir. Stærstu lánardrottnar fé-
lagsins eru hins vegar erlendis. Gengi krónunnar
hefur auðvitað haft mikil áhrif á lánin okkar, enda
er mikill hluti þeirra í erlendum gjaldmiðlum.“
Helstu skráðu eigendur Landic eru Stoðir/FL
Group, Fons og Ingibjörg Pálmadóttir og aðilar
tengdir henni. Aðrir aðilar eiga fjórðung.
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.is
KRÖFUHAFAR fasteignafélagsins Landic Pro-
perty hf. hafa tekið yfir stjórn þess og vinna nú að
endurskipulagningu ásamt stjórnendum félags-
ins. Óskað var eftir greiðslustöðvun fyrir móð-
urfélagið Landic Property í gær ásamt nokkrum
dótturfélögum þess í Danmörku. Starfsemi ann-
arra dótturfélaga á Íslandi, í Svíþjóð, Danmörku
og Finnlandi helst hins vegar óbreytt.
Kröfuhafar Landic settust í stjórn Landic á
hluthafafundi hinn 4. apríl síðastliðinn. Heimildir
Morgunblaðsins herma að hluthafar þess telji
eignarhluti sína að mestu tapaða. Viðar Þorkels-
son, forstjóri Landic, vill ekki fullyrða um það á
þessum tímapunkti að allt hlutafé sé tapað en seg-
Landic Property óskaði eftir greiðslustöðvun í gær Kröfuhafar félagsins sett-
ust í stjórn þess í byrjun apríl Hluthafar hafa líklega tapað eign sinni að mestu
Kröfuhafar ráða Landic Property
Kringlan Landic Property er stærsta fasteigna-
félag landsins. Meðal eigna þess er Kringlan.
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
ÍSLENSKAR auglýsingastofur fóru
í naflaskoðun í sínum rekstri í haust í
kjölfar bankahrunsins þegar stórir
auglýsendur hurfu af markaðnum.
Hins vegar er ennþá líf á markaðn-
um og nýju ríkisbankarnir hafa verið
duglegir að kynna lausnir. Það er því
engin ládeyða sem einkennir mark-
aðinn þótt tekjuflæði hafi minnkað
verulega. Auglýsendur eru varfærn-
ari og gera meiri kröfur sem veitir
auglýsingastofunum aðhald.
Margar stofur hafa glímt við erf-
iðleika. Sameining stærri stofa þykir
þó ólíkleg. „Markaðurinn er þannig
samsettur að það þarf að vera ákveð-
inn fjöldi stofa. Fyrirtækin þurfa að
geta valið sér stofur án þess að sam-
keppnisaðilar séu þar fyrir,“ segir
Magnús Loftsson, framkvæmda-
stjóri Hvíta hússins.
Jón Sæmundsson, framkvæmda-
stjóri ENNEMM, tekur undir með
Magnúsi og segist ekki eiga von á
sameiningu hjá stóru auglýsinga-
stofunum. „Það yrðu hagsmuna-
árekstrar,“ segir Jón. Forsvars-
menn þeirra stofa sem rætt var við
eru sammála um að þótt frekari sam-
eining auglýsingastofa sé ekki á döf-
inni muni smærri stofur líklega helt-
ast úr lestinni. „Reynslan í þessum
bransa almennt er að sameining fel-
ur það í sér að einhverjir starfsmenn
fara yfir í hið nýja fyrirtæki, skuld-
irnar eru skildar eftir og menn reyna
að færa viðskiptavini á milli. Þannig
gengur það fyrir sig,“ segir Hjalti
Jónsson, framkvæmdastjóri Ís-
lensku auglýsingastofunnar.
Auglýsingastofurnar Jónsson
&Le’macks (J&L) og Gott fólk hafa
nú sameinast undir merkjum JLGF.
Hin nýja stofa verður til helminga í
eigu eigenda Góðs fólks og J&L, að
sögn Ingvars Sverrissonar, fram-
kvæmdastjóra Góðs fólks. „Við mun-
um ekki færa skuldirnar yfir í nýja
félagið, en við munum ganga frá
þeim í samstarfi við okkar skuldu-
nauta,“ segir Ingvar.
Ragnar Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri FÍTON, segist telja
að frekari sameining sé líkleg hjá
minni auglýsingastofum en að stofu-
fjöldi verði alltaf svipaður. Þannig
hafi það verið „gegnum árin“.
Auglýsendur eru varfærnari og gera meiri kröfur í kreppunni
Smærri stofur
heltast úr lestinni
Morgunblaðið/Golli
Auglýsingageirinn Gott fólk hefur
nú sameinast Jónssyni&Le’macks.
● SAMKVÆMT tölum vinnumálaráðu-
neytisins bandaríska um atvinnuleysi er
það nú komið í 8,5%. Þegar horft er hins
vegar til þeirra, sem hættir eru að leita
sér að vinnu, eða hafa þurft að minnka
við sig vinnu nemur atvinnuleysið 15,6%.
Er þetta niðurstaða stofnunar, sem held-
ur utan um tölfræði tengda vinnumark-
aði þar í landi. Segir stofnunin að alls
hafi 3,7 milljónir Bandaríkjamanna
neyðst til sætta sig við hlutastörf vegna
efnahagsástandsins. bjarni@mbl.is
Raunverulegt
atvinnuleysi 15,6%
Eftirtaldir útgefendur skulda-
bréfa eru meðal þeirra sem eiga
við alvarlegan vanda að etja og
óvíst er hversu mikið kröfuhafar
fá greitt til baka:
Atorka
Askar Capital
Bakkavör
Egla
Exista
FL Group
Hf. Eimskipafélag Íslands
Landic Property
Landsafl
Milestone
Mosaic Fashions
Samson
Teymi
Fyrirtæki í vanda