Morgunblaðið - 18.04.2009, Blaðsíða 25
Fréttir 25INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2009
NÍU af hverjum tíu gróðureldum eru af manna-
völdum. Einu náttúrulegu orsakir gróðurelda
eru eldingar sem slær niður. Flestir gróðureldar
verða á vorin og snemma sumars og það þarf
enga langvarandi þurrka til þess að hætta á
gróðureldum skapist, segir á heimasíðu Bruna-
málastofnunar.
Leyfi sýslumanns nauðsynlegt
Fólk sem er á ferð í skóglendi eða utan alfara-
leiða getur gert margt til að koma í veg fyrir að
gróðureldur kvikni og við upphaf gróðurelds er
hægt að ráða niðurlögum hans með tiltölulega
einföldum aðgerðum.
Á Íslandi þarf að sækja um leyfi til sýslumanns
til þess að kveikja bál og einungis ábúendur á
jörðum geta fengið leyfi til að brenna sinu á jörð-
um sínum.
Ávallt á að tilkynna gróðureld í síma 112 eins
fljótt og auðið er. Það er mikilvægt að bíða ekki
of lengi með að tilkynna slíkan eld svo að eld-
urinn sé ekki orðinn óviðráðanlegur þegar
slökkviliðið kemur á vettvang, segir á heimasíð-
unni. aij@mbl.is
Eldur í gróðri verður
oftast af mannavöldum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Öskjuhlíð Sviðin jörð eftir sinubruna.
MIKILL hávaði á keppnisbraut-
inni olli mörgum hrossum óþæg-
indum, segir m.a. í skýrslu um
heilbrigðisskoð-
un keppnishesta
á landsmóti síð-
asta sumar.
Áríðandi er að
huga betur að
staðsetningu há-
talara fyrir
næsta stórmót,
segir í skýrsl-
unni.
Einnig kemur þar fram að mikið
reyndi á þrek einstakra hesta á
mótinu og litlu hafi mátt muna að
hross yrðu uppgefin. Nauðsynlegt
sé að fara betur yfir hversu langt
hrossum er ætlað að fara á yf-
irferðargangi.
Í lokaorðum skýrslunnar segir
að almennt hafi verið gerður góður
rómur að ástandi keppnishestanna
og engin alvarleg slys hafi orðið í
keppnisbrautinni.
„Aðeins þurfti að vísa þremur
hestum frá keppni en ætla má að
eftirlitið hafi hvatt knapa til að
huga betur að heilbrigði hesta
sinna og meta sjálfir hvort þeir
væru klárir í keppni,“ segir í
skýrslunni sem birt er á mast.is.
aij@mbl.is
Hávaði olli
hrossum
óþægindum
Huga þarf betur að
staðsetningu hátalara
TVEIR reyndir blaðamenn, þau
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir og Krist-
inn Hrafnsson, eru í framboði til for-
mennsku í Blaðamannafélagi Ís-
lands. Kosið verður á aðalfundi
félagsins í næstu viku og verður það í
fyrsta sinn sem kosið er á milli
manna frá því árið 2003.
Arna Schram, formaður Blaða-
mannafélagsins, gefur ekki kost á
sér til áframhaldandi formennsku.
Arna hefur verið formaður í tæp
fjögur ár, varaformaður í tæp tvö ár
og hefur setið í stjórn félagsins í
nærri tíu ár. Í tilkynningu frá Örnu
segir að henni þyki kominn tími til að
söðla um og að nýtt fólk taki við.
Keppa um
formennsku
Þóra Kristín
Ásgeirsdóttir
Kristinn
Hrafnsson
LÖGREGLUSTJÓRINN á Vest-
fjörðum sendi í gær frá sér tilkynn-
ingu þar sem hann kom því á fram-
færi við ökumenn sem hyggjast
ferðast um hálendið að þeir taki tillit
til þess að snjó er farið að leysa og
frost að fara úr jörðu.
Lögreglustjóri vekur athygli á að
bannað er að aka vélknúnum öku-
tækjum utan vega í náttúru Íslands,
þó er heimilt að aka þeim á jöklum
svo og snævi þakinni og frosinni jörð,
svo fremi sem það skapist ekki hætta
á náttúruspjöllum.
Viðvörun til
hálendisfara
Morgunblaðið/Árni Sæberg