Morgunblaðið - 18.04.2009, Page 27
Fréttir 27VIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2009
ÚTISTANDANDI skuldabréf á Ís-
landi nema alls rúmum 1.600 millj-
örðum króna. Þar af eru bréf ríkis
og sveitarfélaga fyrir um 280 millj-
arða og Íbúðalánasjóðs fyrir um
540 milljarða. Því standa eftir um
790 milljarðar króna. Þar af eru
bréf banka og fjármálafyrirtækja
fyrir um 445 milljarða og bréf ann-
arra fyrirtækja fyrir um 345 millj-
arða króna.
Þegar þau fjármálafyrirtæki eru
tekin frá, sem óumdeilanlega eiga í
verulegum erfiðleikum eða eru
þegar komin í þrot, standa eftir að-
eins um 10% af bréfum fjármálafyr-
irtækja. Hvað varðar önnur fyr-
irtækjabréf þá standa eftir tæp 50%
þegar illa stödd fyrirtæki eru tekin
frá. Vissulega mun eitthvað nást
upp í kröfur í þessi illa stöddu fyr-
irtæki. Ef gert er ráð fyrir að
kröfuhafar þessara illa stöddu fyr-
irtækja fái um 30% í sinn hlut – og
að engin afföll verði hjá öðrum fyr-
irtækjum – fást um 65% allra fyr-
irtækjabréfa greidd. Með öðrum
orðum verði 35% afföll af skulda-
bréfum fyrirtækja annarra en lána-
stofnana miðað við þessar for-
sendur. Lífeyrissjóðir hafa hins
vegar aðeins fært niður eign sína í
fyrirtækjabréfum sem nemur tæp-
um 16% frá því sem var í ágúst
2008. bjarni@mbl.is
Búast
má við
afföllum
Morgunblaðið/Jim Smart
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.is
LANDIC Property, sem fékk
greiðslustöðvun samþykkta í gær,
gaf út skuldabréf fyrir um 30 millj-
arða króna. Skuldabréf frá Landic
voru meðal annars keypt inn í verð-
bréfasjóði bankana og af lífeyrissjóð-
um. Heimildir Morgunblaðsins
herma að eigendur þeirra reikni ekki
með miklum endurheimtum. Viðar
Þorkelsson, forstjóri Landic, segir
að ekki sé hægt á þessari stundu að
segja til um hvað eigendur skulda-
bréfa frá félaginu muni bera úr být-
um. „Við munum vinna þetta í sam-
ráði við helstu eigendur skuldabréfa
og síðan mun þetta koma í ljós þegar
við leggjum fram okkar tillögur að
endurskipulagningu.“
Stoðum/FL Group, sem var
stærsti einstaki eigandi Landic, var
veitt heimild til að leita nauðasamn-
inga í byrjun apríl. Félagið er einnig
einn af stærstu kröfuhöfum Landic.
Að sögn Júlíusar Þorfinnssonar,
talsmanns Stoða/FL Group, var fullt
tillit tekið til stöðu Landic í mati á
eignum félagsins. „Í matinu sem við
kynntum fyrir kröfuhöfum Stoða/FL
Group, og við byggðum okkar nauða-
samningsumleitanir á, var búið að
meta allt hlutafé okkar í Landic og
lánveitingar okkar til félagsins af
mikilli varkárni.“
Óvissa ríkir um skuldabréf
Landic Property gaf út skuldabréf fyrir um 30 milljarða
Ekki liggur fyrir hversu mikið eigendur þeirra fá til baka
ÚTBOÐI í þrjá flokka ríkisskulda-
bréfa, sem hófst síðdegis í gær, lauk
með því að seld voru bréf fyrir 15
milljarða króna að nafnvirði og var
ávöxtunarkrafan á bilinu 8,82-9,98%.
Kjörin eru því aðeins verri en á al-
mennum skuldabréfamarkaði, þar
sem ávöxtunarkrafan var síðast á
bilinu 8,69-9,91% á sömu flokkum.
Arnar Jónsson, sérfræðingur hjá IFS
Ráðgjöf, segir að fara verði varlega í
að draga ályktanir af þessum verð-
mun. „Markaðurinn hefur verið á
töluverðri hreyfingu undanfarna
mánuði og eru kjörin, sem ríkið fær í
útboðinu, því innan skekkjumarka.“
Um var að ræða flokka sem koma á
gjalddaga á árunum 2010, 2017 og
2026. Alls bárust tilboð að fjárhæð
24,6 milljarðar króna í bréfin og var
samkeppnin öllu meiri um þau bréf,
sem fyrr koma á gjalddaga. T.d. bár-
ust tilboð í alls 4.748 milljónir í stysta
flokkinn, en tekið var tilboðum fyrir
1.541 milljón. bjarni@mbl.is
Skuldabréf
seld fyrir
15 milljarða
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
Meðeigandi / framkvæmdastjóri
Bókhaldsfyrirtæki með góða verkefnastöðu
óskar eftir meðeiganda/framkvæmdastjóra.
Þarf að hafa góða reynslu og verkefni með sér.
Áhugasamir hafi samband í síma 862 5028
Farðu á 1X2.is eða á næsta sölustað
og tippaðu á enska boltann fyrir
klukkan 13.00 í dag.
Aðeins 12 krónur röðin.
www.1X2.is