Morgunblaðið - 18.04.2009, Page 33
Daglegt líf 33ÚR SVEITINNI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2009
Sterkir litir þurfa ekki að vera varasamir,“ seg-ir Björg Alfreðsdóttir, förðunarmeistari hjáMAC, og bendir á að það verði sterkir ogkraftmiklir litir í tísku í sumar. Þessa sterku
litastrauma mátti t.d. sjá í förðuninni á tískusýn-
ingum fyrir sumarið hjá John Galliano sem var með
skæra og bjarta liti eins og bleikt, grænt, og ferskju-
litað og hjá Gucci mátti sjá afgerandi sæbláan lit á
augnlokum fyrirsætanna.
Björg farðaði fyrirsætuna Kristveigu Lárusdóttur
um augun með ferskjulit og fjólubláum. „Kannski
ekki litir sem konur nota svona dags daglega, en þeir
koma skemmtilega á óvart þegar þeim er blandað
saman,“ segir Björg. Hún bendir á að appels-
ínuferskjulitaðir augnskuggar fari bláum augum
sérstaklega vel og fjólublái liturinn fari grænleit-
um augum einstaklega vel. Báðir þessir litir fara
samt flestöllum vel.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Litadýrð Kristveig Lárusdóttir var förðuð með ferskjulituðum og fjólubláum augnskuggum.
Húðlitur kremaugnskuggi settur á allt augn-
lokið til að gefa góðan grunn undir litina.
Ljósgylltur augnskuggi settur yfir mitt augn-
lokið. Yfir hann ferskjulitaður augnskuggi og til
hliðanna var notaður fjólublái liturinn. Til að
skyggja meðfram augnlokinu var notaður brúnn
augnskuggi.
Svartur eyeliner, frekar þykk lína. Gervi-
augnhár voru sett á efri og neðri augnhár og að
sjálfsögðu maskari í lokin.
Áferð húðarinnar var frekar mött til draga ekki
frá augnförðuninni. Fallega skærbleikur kinnalit-
ur var settur yfir kinnbein í þunnu lagi sem gaf
fallegt og bjart yfirbragð.
Varir hafðar ljósar í húðlitum tón.
Reuters
Leikrænir tilburðir
Hjá John Galliano var
mörgum litum bland-
að saman og árang-
urinn ansi líflegur.
Litir fyrir sumarið
Augnskuggar Creme
Royal, Paradisco,
Stylin og Lucky Tom.
Kinnalitur Tippy
Varalitur Fresh Brew,
allt úr Hello Kitty lín-
unni frá MAC.
Í smáatriðum
Sumardagurinn fyrsti rennur senn
upp. Veturinn sem er á enda hefur
verið fremur mildur hér í uppsveitum
Árnessýslu. Sjaldan stórviðri þó oft
hafi blásið nokkuð hressilega. Frost
fór nokkrum sinnum niður fyrir 10
gráður sem teljast ekki frosthörkur
og snjór hefur aldrei verið mikill.
Veðráttan er ávallt mikið rædd af
bændafólki en margir sem stunda
landbúnað eiga mikið undir sól og
regni. Mikils virði er að vorið sé gott,
að gróður komi fljótt til. Að hægt sé
að plægja og sá snemma vors, ekki
hvað síst fyrir kornbændur sem
hyggja sumir á aukningu í þeirri bú-
grein. Ræktun á hveiti hefur verið
reynd hér með góðum árangri og er
skrifara kunnugt um einn bónda sem
ætlar að sá hveiti í sumar á nokkrum
stöðum. Það verður gert í byrjun
ágúst til að fá uppskeru haustið 2010.
Þá er garðyrkja einskonar stóriðja
hér um slóðir sem skapar fjölda fólks
vinnu og verður síst dregið úr henni.
Mikið félagslíf er hér í byggðalaginu.
Kórstarf er öflugt en í kvöld, laug-
ardagskvöld, heldur Karlakór
Hreppamanna sína árlegu vor-
tónleika. Með kórnum syngur stór-
söngvarinn Egill Ólafsson. Vörðukór-
inn, sem er blandaður kór fólks úr
uppsveitunum, heldur tónleika að
kvöldi síðasta vetrardags í Félags-
heimilinu á Flúðum. Kvennakórarnir
Uppsveitasystur, Jórukórinn á Sel-
fossi og Ljósbrá á Hvolsvelli og ná-
grenni halda tónleika á Flúðum 30
apríl, á Hvolsvelli 2. maí kl. 20.30 og í
Selfosskirkju 3. maí kl 15.
Fleiri listamenn en söngfólk láta að
sér kveða. Agnar R. Róbertsson
bóndi á Jaðri heldur um þessar
mundir sölusýningu á 12 olíu-
málverkum í versluninni Strax á
Flúðum. Agnar hefur frá barnæsku
haft áhuga á að teikna og mála. Hest-
ar eru honum hugleiknir en hann rek-
ur hrossaræktarbú á Jaðri ásamt eig-
inkonu sinni Kristbjörgu
Kristinsdóttur.
Félagsstarf eldri borgara er mikið og
fjölbreytt. Til dæmis var haldin sýn-
ing á fjölbreyttri föndurvinnu eldri
Hrunamanna í Félagsheimilinu á
dögunum. Þann 3. maí fer fram vor-
fagnaður eldri borgara í Árnessýslu á
Flúðum. Þar mun m.a. ágætur kór
eldri borgara úr sveitinni syngja en
Stefán Þorleifsson söngstjóri hefur
sannað að aldurinn skiptir ekki máli
þegar þeir eldri eiga í hlut í söngnum.
Mikill þróttur hefur verið í land-
græðslufélaginu í Biskupstungum
sem er nú 15 ára en landgræðsla
hófst þar löngu fyrr. Mjög góður ár-
angur hefur náðst við uppgræðslu
lands á afrétti þeirra á undanförnum
árum en þar er m.a. notað tæki til að
dreifa úr heyrúllum í rofabörð. Í
Hrunamannahreppi
hófst landgræðslustarf í afrétt-
inum 1970 en skipulega frá 1992. Fé-
lag var þó ekki stofnað fyrr en í fyrra
og landgræðslufélag var stofnað í
Skeiða- og Gnúpverjahreppi nú í
febrúar. Þótt nú sé búið að snúa vörn
í sókn í landgræðslumálum landsins
eru mikil verkefni framundan í þeim
efnum.
Ætlunin var að taka reiðhöllina á
Flúðum formlega í notkun á morgun,
sunnudag en því verður frestað um
óákveðinn tíma. Af miklum dugnaði
hafa félagsmenn úr hestamanna-
félögum Loga og Smára unnið að
byggingu þessa veglega húss í sjálf-
boðavinnu í um eitt og hálft ár. Sann-
ast þar hve mikið er hægt að gera
þegar margir leggjast á eitt af áhuga
og elju.
Þá er einnig unnið að vallagerð rétt
við reiðhöllina á Lambatanga og hafa
verið haldin þar tvö hestamót í vetur
en svæðið allt verður glæsilegt. Fé-
lagsstarf hestamanna er öflugt og
mikið er tamið og þjálfað af hrossum
hér sem víða annars staðar á landinu.
Með bættri aðstöðu mun starfið enn
eflast og félagsstarf blómgast.
HRUNAMANNAHREPPUR
Sigurður Sigmundsson fréttaritari
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Hestamyndir Agnar Róbertsson,
bóndi á Jaðri, sýnir hestamyndir í
versluninni Strax á Flúðum.
www.gisting.dk/gisting.html
sími: 499 20 40 (Íslenskt símanúmer)
Ódýr gisting í Kaupmannahöfn
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 1200
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
7
5
7
0190 / SNÆFELLSBÆR/ÓLAFSVÍK
• Við leggjum okkur fram um að veita þér persónulega þjónustu.
• Við förum yfir kjörin sem þér bjóðast og svörum spurningum þínum.
• Við veitum einstaklingum og fyrirtækjum aðstoð við að skipuleggja fjármálin.
Olga er í kórnum, Lions
og Slysavarnafélaginu.
Hún og 4 aðrir taka vel
á móti þér á Ólafsbraut.
Komdu við í útibúinu á Ólafsbraut 21
eða hringdu í okkur í síma 410 4000.