Morgunblaðið - 01.05.2009, Blaðsíða 1
1. maí - baráttudagur verkalýðsins
Morgunblaðið/RAX
Iðjuþjálfun Vistmennirnir á Grund muna tímana tvenna. Margir tóku á sínum tíma þátt í baráttunni fyrir bættum kjörum en í ellinni verja þeir deg-
inum með ýmsu móti. Þessi kona naut aðstoðar við saumaskapinn en sumir prjóna, mála eða eru við annað handverk.
F Ö S T U D A G U R 1. M A Í 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
116. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
segðu
smápestum
stríð á hendur!
Fæst í apótekum og
heilsubúðum um land allt.
«DAGLEGTLÍF
FERMINGARVEISLA
Á FARALDSFÆTI
«MENNING
LISTINNI TEFLT
GEGN KREPPUNNI
Reuters
Sóttvarnir Lögreglumenn með sótt-
varnagrímur í Mexíkóborg.
„MJÖG líklegt“ er að svínaflensan
verði að heimsfaraldri en ekki er víst
að hann verði mannskæður, að sögn
Androulla Vassiliou, sem fer með
heilbrigðismál í framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins.
Embættismenn Alþjóðaheilbrigð-
ismálastofnunarinnar (WHO) sögðu
að ekkert benti til þess núna að
heimsfaraldur væri yfirvofandi.
„Við þurfum að vera á varðbergi
en varast ber ofsahræðslu,“ sagði
Vassiliou og bætti við að Evrópuríki
væru vel undir það búin að takast á
við flensuveiruna.
Staðfest hefur verið að veiran hef-
ur borist til sex Evrópuríkja en ekk-
ert flensutilfellanna í álfunni hefur
verið alvarlegt.
Nokkrir sjúklingar hafa komið á
Landspítalann í Reykjavík vegna
gruns um svínaflensusmit en enginn
þeirra reyndist hafa fengið veiruna,
að sögn Ólafs Guðlaugssonar, yf-
irlæknis sýkingavarnadeildar
sjúkrahússins, í gær.
Utanríkisráðuneytið ráðleggur Ís-
lendingum að ferðast ekki til Mexíkó
vegna svínaflensunnar nema brýna
nauðsyn beri til. | 14, 18
Telja ekki miklar líkur á skæðum heimsfaraldri
„Varast ber ofsahræðslu“
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
VINNUMÁLASTOFNUN hyggst á
næstunni herða eftirlit með misnotk-
un atvinnuleysisbóta. Að sögn Giss-
urar Péturssonar forstjóra hefur
stofnunin fengið fjölmargar ábend-
ingar um misnotkun að undanförnu.
Nú eru um 18 þúsund manns á at-
vinnuleysisskrá og margir þeirra
hafa freistast til að misnota kerfið en
til þess eru margar leiðir.
Ein leiðin er að senda einhvern
annan fyrir sig þegar viðkomandi er
boðaður á fund til þess að staðfesta að
hann sé atvinnulaus. Mörg dæmi eru
um slíkt, að sögn
Gissurar. Nokkrir
útlendingar, sem
farnir eru til síns
heimalands, hafa
reynt að blekkja
Vinnumálastofn-
un með þessum
hætti. Hafa þeir
sent vini sína, sem
staddir eru á Ís-
landi, í sinn stað. Til að sporna við
þessum svikum er farið að krefja fólk
um persónuskilríki þegar það kemur í
viðtöl.
Þá hafa 50-60 manns verið sviptir
atvinnuleysisbótum á síðustu vikum
vegna þess að þeir mættu ekki í at-
vinnuviðtöl.
Í kjölfar þess að atvinnuleyisskráin
var samkeyrð við nemendaskrár há-
skólanna voru 20 manns sviptir bót-
um. Þá hafa fjölmargar ábendingar
borist um að atvinnulausir stundi
svarta vinnu og hefur slíkum málum
verið vísað til skattyfirvalda.
Bæturnar misnotaðar
Vinnumálastofnun hyggst auka eftirlit
með svikum vegna atvinnuleysisbóta
Gissur Pétursson
Í HNOTSKURN
»Á mánudaginn verðarúmlega tveir milljarðar
króna greiddir í atvinnu-
leysisbætur. Er það hærri
upphæð en nokkru sinni áð-
ur.
»Með því að taka harðar ámisnotkun bótanna telur
Vinnumálastofnun að lækka
megi þessa upphæð umtals-
vert. Aukinn kraftur verður
settur í eftirlit á þessu sviði.
SKÝRSLUTÖKUR yfir flestum
þeirra sjö stúlkna, sem í hóp réðust
á fimmtán ára stúlku í Heiðmörk á
miðvikudag, fóru fram í gærkvöldi.
Að sögn Friðriks Smára Björgvins-
sonar, yfirmanns rannsókn-
ardeildar lögreglu höfuðborg-
arsvæðisins, er málið að mestu leyti
upplýst. Játningar liggja fyrir og
svo virðist sem þrjár stúlkur hafi
haft sig mest í frammi við árásina.
Friðrik Smári segir málið nú fara
sína leið í réttarkerfinu auk þess
sem barnarverndaryfirvöld koma
að því.
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri,
segir málið litið afar alvarlegum
augum. »4
Þrjár stúlkur hafa játað að
hafa haft sig mest í frammi
CHELSEY
Kristina Sveins-
son, sextán ára
hálfíslensk
stúlka, hefur sett
stefnuna á að
keppa fyrir hönd
Bandaríkjanna í
langhlaupum á
Ólympíu-
leikunum í London árið 2012.
Chelsey, sem er fædd á Íslandi, er
aðeins 16 ára gömul en hefur vakið
mikla athygli fyrir frammistöðu
sína í Bandaríkjunum að und-
anförnu og fengið ýmsar við-
urkenningar. »Íþróttir
Stefnir á sæti í bandaríska
ólympíuliðinu fyrir 2012
MIÐAÐ við upplýsingar frá Hag-
stofunni um innflutning á kaffi hef-
ur hlutur íslenskra kaffiframleið-
enda á markaði aukist til muna frá
bankahruninu. Á fyrstu þremur
mánuðum þessa árs nam innflutn-
ingur á óbrenndu kaffi 44,4% af
heildarinnflutningi, en á sama tíma
í fyrra nam hlutfallið 29,4%. Aukn-
ingin á milli ára er einstök, segir
Aðalheiður Héðinsdóttir, forstjóri
Kaffitárs. »16
Drekka meira íslenskt