Morgunblaðið - 01.05.2009, Side 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2009
UNIFEM á Íslandi Laugavegi 42
Miðstöð Sameinuðu þjóðanna á Íslandi
Sími 552 6200 unifem@unifem.is www.unifem.is
Miðstöð Sameinuðu þjóðanna, Laugavegi 42
Laugardaginn 2. maí kl. 13-14.
UNIFEM-UMRÆÐUR
um mansal
Katrín Hauksdóttir, meistaranemi í alþjóðasamskiptum
- Mansal og vændi á alþjóðavísu-
Hildur Jónsdóttir, sérfræðingur á jafnréttis- og vinnumálasviði
félags- og tryggingamálaráðuneytisins
-Mansal á Íslandi og aðgerðaáætlun íslenskra stjórnvalda-
Allir velkomnir og ókeypis inn.
Landsnefnd UNIFEM á Íslandi.
BYRJUNARÖRÐUGLEIKAR við
notkun nýs tölvuforrits við skrán-
ingu á breyttum atkvæðaseðlum
urðu þess valdandi að tölur sem yfir-
kjörstjórnir þriggja kjördæma
veittu um útstrikanir voru ónákæm-
ar og yfirkjörstjórn í fjórða kjör-
dæminu treysti sér ekki til að gefa
tölurnar.
Yfirkjörstjórnir hafa talið breyt-
ingar og útstrikanir á atkvæðaseðl-
um á talningarstað, í beinu fram-
haldi af talningunni sjálfri enda er
það hluti af henni. Þetta hefur verið
gert í höndunum nema Reykjavík-
urkjördæmum þar sem tölvuforrit
hefur verið haft til aðstoðar. Þorkell
Helgason, starfsmaður landskjör-
stjórnar, segir að þegar grunur
vaknaði fyrir þessar kosningar um
að mikil aukning yrði á útstrikunum
og öðrum breytingum hafi verið ráð-
ist í það verk með stuttum fyrirvara
að útbúa töluforrit fyrir yfirkjör-
stjórnirnar til að halda utan um
þessa talningu. Nokkrir byrjunar-
örðugleikar urðu við notkun forrits-
ins þar sem það sá ekki við sér-
stökum innsláttarvillum sem hent
gátu. Þá veittu yfirkjörstjórnirnar
upplýsingar um útstrikanir með
mismunandi hætti.
Röðin breyttist ekki
Starfsmenn yfirkjörstjórnar hafa
frá kosningum farið nákvæmlega yf-
ir talninguna og gáfu í gær út end-
anlegar tölur um úrslit. Villurnar
sem fram komu á tölum um útstrik-
anir höfðu í engum tilvikum áhrif á
röð frambjóðenda.
Útstrikanir í Norðvesturkjör-
dæmi reyndust minni en uppgefnar
tölur hafa áður sýnt. Samkvæmt töl-
um sem fengust á sunnudag vantaði
til dæmis útstrikanir Einars K. Guð-
finnssonar og Ólína Þorvarðardóttir
þá ranglega sögð hafa fengið flestar
útstrikanir. Lilja Rafney Magn-
úsdóttir var aðeins strikuð út á broti
þeirri atkvæðaseðla sem upphaflega
var talið. Fyrstu tölur um útstrik-
anir í Suðvesturkjördæmi reyndust
of lágar. Tölurnar úr Suður-
kjördæmi voru nálægt lagi enda
voru þær byggðar á handtalningu.
Tölurnar sem yfirkjörstjórnir í
Reykjavíkurkjördæmum gáfu út
voru réttar enda gefnar út seinna.
helgi@mbl.is
Forritið skilaði
röngum tölum
um útstrikanir
Starfsmenn lands-
kjörstjórnar hafa
yfirfarið talningu
! #! $
% &"'
( )
* +,! - )
./0
-
1 2 .
( )
/1 ! '"-
-
3
% +2"(
&,"* ( 4
5
1 & 6,. +
(
/ ../
& 671
-
8 ! ,$
"( )
- "% 3- )
#1 -!
( 9
,
+
/:0 )
-
!
1 ,
-!
""- 9
, "&"'
"( )
- !
/
/ /
(
3
3+ "( 9
2 ;6 2-
$
- $ "/ )
< !+'
- 4
=
.0 )
'
+
<"'>"0
.'
( ?
&+. +
- )
3'
( @
* /1&6( 4
# 8 - A
B
B
B
B
B
B
B
B
B
B
B
B
B
B
B
B
B
B
B
B
B
B
B
B
B
B
B
B
B
Í HNOTSKURN
»Útstrikunum var beittmiklu meira nú en í fyrri
alþingiskosningum.
»Landskjörstjórn kemursaman til fundar á mánu-
dag til að úthluta formlega
þingsætum.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
MÁL Alsírbúans Hitchems Mansrís
lá óhreyft hjá Útlendingastofnun í
heilt ár áður en það var tekið til
meðferðar. Stofnunin synjaði honum
um hæli í síðasta mánuði og er málið
nú til kærumeðferðar hjá dóms-
málaráðuneytinu.
Mansrí er nú í hungurverkfalli
þar sem hann dvelst á flótta-
mannahælinu Fit í Reykjanesbæ en
níu dagar eru síðan hann neytti síð-
ast matar. Ákvörðun Útlend-
ingastofnunar var birt honum 19.
maí sl. en hún hljóðaði upp á synjun
á hæli og brottvísun með end-
urkomubanni í fimm ár. Að sögn
Hauks Guðmundssonar, forstjóra
Útlendingastofnunar, varð nið-
urstaðan þessi þar sem saga manns-
ins hefði verið metin ótrúverðug þar
sem misræmis gætti í frásögn hans
um aðstæður sínar.
Fyrir úrskurðinn hafði Mansrí
beðið hátt í tvö ár eftir úrlausn sinna
mála. „Þetta er hluti af fortíðinni
þegar hér var langur hali af þessum
málum,“ segir Haukur. „Þessi mað-
ur sótti um í ágúst 2007 og það var
ekki byrjað að vinna í málinu fyrr en
í ágúst 2008. Ég vil þó taka skýrt
fram að svona er þetta ekki lengur.
Við byrjum að vinna í málum nokk-
urn veginn um leið og þau koma.“
Reyndist vera með falsað
franskt vegabréf
Eftir að málið var loks tekið til
meðferðar tók að sögn Hauks nokk-
urn tíma að úrskurða hvort franskt
vegabréf Mansrís væri falsað og
komst stofnunin að raun um að svo
væri í nóvember sl. „Eftir það dróst
málið af því að hann var stöðugt að
leggja fram ný gögn, án þess að beð-
ið væri um þau. Í janúar fékk hann
svo lokafrest og hann klárar ekki
málið fyrr en 6. mars. Við erum svo
tilbúin með úrskurðinn rúmri viku
seinna.“ Þá hafi Mansrí nýtt sér 15
daga kærufrest áður en málið fór til
kærumeðferðar hjá dómsmálaráðu-
neytinu þar sem það er enn.
Í gær kom fram að Mansrí hefði
verið boðið að skrifa undir staðlaða
yfirlýsingu þess efnis að hann óskaði
ekki eftir læknisaðstoð missti hann
meðvitund í hungurverkfallinu.
Haukur segir alls ekki lagt að mönn-
um að undirrita þessa yfirlýsingu.
„En ef menn ætla að svelta sig í hel
og vilja ekki aðstoð er eins gott að
það sé alveg á hreinu.“ En væri ekki
réttara að hafa þann valkost í yf-
irlýsingunni, að þiggja lækn-
isaðstoð? „Ef maðurinn vill að gripið
verði inn í þá undirritar hann þetta
ekki,“ segir Haukur og telur að
þannig eigi vilji hans að vera skýr.
Morgunblaðið/Kristinn
Löng bið Mansrí á flóttamannahælinu Fit í Reykjanesbæ en hann hefur nú verið í hungurverkfalli í níu daga.
Mál hælisleitanda
lá óhreyft í heilt ár
Hitchem Mansrí var synjað um hæli hér á landi í síðasta
mánuði og hefur kært úrskurðinn til dómsmálaráðuneytisins
Í HNOTSKURN
» Hitchem Mansrí hefurbeðið í tvö ár eftir úrlaus
sinna mála en það dróst að
taka þau fyrir í heilt ár.
» Í ljós kom í nóvember sl.,að franskt vegabréf hans
var falsað.
» Fimm einstaklingar, sembeðið hafa um hæli, hafa
farið í hungurverkfall í vetur.
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
HANNES Sigmarsson, yfirlæknir
við Heilsugæslu Fjarðabyggðar,
hefur enn ekki aftur snúið til vinnu
þrátt fyrir að embætti ríkissaksókn-
ara hafi ákveðið að vísa kæru Heil-
brigðisstofnunar Austurlands (HSA)
frá. Endurkoma hans hefur frestast
þar sem Ríkisendurskoðun tók ný-
verið ákvörðun um að hefja rann-
sókn á málefnum læknisins auk þess
sem embætti landlæknis hefur ekki
lokið rannsókn á faglegum þáttum
verka hans.
Hannes sem var grunaður um
fjárdrátt í starfi nýtur mikils stuðn-
ings og nýverið voru stofnuð Holl-
vinasamtök heilsugæslunnar í
Fjarðabyggð. Um 90 manns eru í
samtökunum sem m.a. vinna að því
að standa vörð um heilsugæsluna,
starfsemi hennar og starfsfólk.
Á sjálfur sæti í stjórninni
Á stofnfundinum síðastliðinn
sunnudag komu málefni Hannesar,
sem á reyndar sæti í stjórn samtak-
anna, til umræðu. Í fundargerð segir
svo: „Fundurinn var spennuþrung-
inn og það brann mjög á fólki að
Hannes Sigmarsson læknir byrjaði
störf sem fyrst. Einar Rafn Haralds-
son [forstjóri HSA] vildi ekki svara
ítrekuðum spurningum þess efnis
hvenær eða hvort Hannes kæmi aft-
ur til starfa. […] Greinilegt var af
viðbrögðum Einars Rafns, að hann
vildi ekki Hannes aftur til starfa.“
Einar Rafn sagði í samtali við
Morgunblaðið að engin persónuleg
óvild lægi þar að baki. Hann hefði á
fundinum skýrt afstöðu stofnunar-
innar og aðdraganda málsins. Grun-
ur hefði leikið á að Hannes hefði
dregið sér fé með því að ofreikna sér
laun. Mál hans væru ennfremur enn
til rannsóknar og á meðan svo væri,
hæfi hann ekki störf að nýju.
Til rannsóknar hjá land-
lækni og Ríkisendurskoðun
Í HNOTSKURN
»Hafin hefur verið undir-skriftasöfnun á Eskifirði
þar sem skorað er á yfirstjórn
HSA að segja af sér vegna
máls Hannesar.
»Hannes hefur starfað semlæknir á Austurlandi í
tæpa tvo áratugi.