Morgunblaðið - 01.05.2009, Síða 8
ÞRÍR menn hafa verið handteknir
og einn gefið sig fram við lögreglu
vegna innbrota í verslanir og til-
rauna til innbrota í hraðbanka á
undanförnum dögum. Mennirnir
sem um ræðir eru útlendingar og
var lýst eftir þeim fyrir nokkrum
dögum og myndir birtar af þeim í
fjölmiðlum.
Að sögn Ómars Smára Ármanns-
sonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns
hjá lögreglunni á höfuðborg-
arsvæðinu, voru mennirnir þrír
handteknir í Leifsstöð þegar einn
þeirra var á leið úr landi. Þeir hafa
verið yfirheyrðir, en ekki verður
gerð krafa um gæsluvarðhald.
Ómar Smári segir ekki útilokað
að fleiri kunni að verða handteknir
í tengslum við rannsókn málsins og
varar fólk við því að taka boðum
um skartgripi og nýlegar snyrtivör-
ur til sölu utan verslana, þar sem
þar gæti verið um að ræða þýfi.
Hann bendir fólki á að hafa sam-
band við lögregluna á höfuðborg-
arsvæðinu ef það fær slík tilboð.
Innbrot Menn grunaðir um þjófnað
voru handteknir eftir myndbirtingu
Hraðbankaþjófar
voru handteknir
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2009
Breytt
áskriftarverð
ÁSKRIFTARVERÐ Morgunblaðsins
hækkar 1. maí og kostar nú mán-
aðaráskrift 3.390 kr. en kostaði
2.950 krónur áður. Helgaráskrift að
Morgunblaðinu kostar nú 2.070 kr.
en kostaði 1.800 kr. áður. Netáskrift
kostar 1.950 en kostaði 1.700 kr.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
FRÁ því Fjarskiptasjóður og Sím-
inn gengu frá samningi um upp-
byggingu háhraðanets á lands-
byggðinni hafa óánægjuraddir orðið
háværar hjá samkeppnisaðilum Sím-
ans, þar á meðal Vodafone, en einnig
hjá smærri fjarskiptafyrirtækjum
sem boðið hafa upp á netþjónustu á
landsbyggðinni. Óánægjan snýr
einkum að því að samningurinn sem
gerður var 25. febrúar sl. skuli ekki
hafa verið gerður á þeim forsendum
sem útboð vegna verkefnisins hafði
kveðið á um.
Síminn bauð um 390 milljónir í
verkefnið í útboði sl. haust. Mikill
verðmunur var á tilboðum í það sem
skýrðist m.a. af því að fyrirtækin
lögðu til ólíkar, tæknilegar lausnir
við uppbyggingu háhraðanetsins,
skv. upplýsingum frá Gunnari
Svavarssyni, formanni Fjar-
skiptasjóðs.
Vildu hætta við
Eins og greint var frá í Morg-
unblaðinu í gær vildu forsvarsmenn
Símans hætta við þátttöku í verkefn-
inu, m.a. annars vegna þess að tilboð
fyrirtækisins í verkefnið væri of
lágt.
Kristján Möller, samgöngu-
ráðherra og ráðherra fjarskipta-
mála, hefur sjálfur lýst því þannig í
útvarpsviðtali við Ísland í bítið á
Bylgjunni að forstjóri Símans hafi
komið til hans 4-5 sinnum og sagt að
fyrirtækið gæti ekki staðið við til-
boðið. „En alltaf hefur okkur tekist
að blása lífi í það [verkefnið innsk.
blm.],“ sagði Kristján í viðtalinu 27.
febrúar sl.
Verkefninu breytt án útboðs
Viðræður Kristjáns og forstjóra
Símans, Sævars Freys Þráinssonar,
báru árangur og settu verkefnið í
annan farveg.
Ákveðið var að fjölga stöðum sem
háhraðatengingin átti að ná til úr
1.100 í 1.800. Þau heimili sem þiggja
þjónustuna sem Síminn mun byggja
upp munu eiga kost á 2Mb/s teng-
ingu en það er umtalsvert meiri
hraði en í boði er á mörgum stöðum
á landinu. Áætlað er að uppbygg-
ingu verði lokið í árslok 2010. Sam-
kvæmt samningnum verður Síman-
um skylt að veita öllum
fjarskiptafyrirtækjum á landinu að-
gang að ADSL-tengingunum sem
settar verða upp í verkefninu. Sam-
hliða uppbyggingu á netþjónustunni
hyggst Síminn byggja upp 3G-
farsímasamband á stöðunum. Samn-
ingurinn segir meðal annars til um
að Síminn fái einkaleyfi á 3G-
þjónustunni í sex mánuði á hverjum
stað. Óánægja samkeppnisaðila Sím-
ans beinist meðal annars að þessu
ákvæði. Þeir telja einkaleyfið óþarft
og hugsanlega lögbrot.
Blási lífi í verkefnið
Fjarskiptafyrirtæki eru ekki sátt við hvernig staðið var
að samningi við Símann um uppbyggingu háhraðanets
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á tali Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans, og Kristján Möller samgönguráðherra sjást hér slá á létta strengi
þegar gsm-sendi á vegum Símans var komið upp í Norðurárdal í fyrra.
Samningur Fjarskiptasjóðs við
Símann var stærri en upphafleg
áform gerðu ráð fyrir. Fjarskipta-
fyrirtæki eru ósátt við hvernig
staðið var að því að breyta for-
sendum samningsins.
STUTT
390
milljónir bauð Síminn upp-
haflega í uppbyggingu há-
hraðanets um land allt
606
milljónir var samningur
Símans við Fjarskiptasjóð að
lokum
1.800
staðir á landinu öllu munu
njóta góðs af háhraðanetinu
fullbúnu
JOE Borg, sem fer með sjáv-
arútvegsmál í framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins, sagði á blaða-
mannafundi í Brussel í síðustu
viku að ef Ísland sækti um aðild að
sambandinu væri hann þess full-
viss að lausn fyndist á sjáv-
arútvegsmálum sem mundi
tryggja að fiskveiðum á Íslandi
yrði stjórnað með sama hætti og
gert hefði verið til þessa.
Þetta kom fram á blaðamanna-
fundi, þar sem Borg kynnti
skýrslu, svonefnda grænbók, um
sjávarútvegsstefnu ESB. Þar kom
m.a. fram að níu af hverjum 10
fiskistofnum í lögsögu bandalags-
ins væru ofveiddir. Fram-
kvæmdastjórnin er að skoða hvort
taka eigi upp frjálst framsal á
veiðikvótum að íslenskri fyr-
irmynd og vísaði Borg til þess á
fundinum.
Borg sagði að flytja yrði ákvörð-
un um stjórn fiskveiða á mismun-
andi svæðum í lögsögu bandalags-
ins nær svæðunum og íbúum þar.
Erlendur blaðamaður spurði Borg
hvort hann teldi að sjávarútvegs-
mál yrðu minni fyrirstaða en áður
var talið í hugsanlegum viðræðum
Íslands og ESB í ljósi þess að borið
væri lof á fisk-
veiðistjórnun Ís-
lands.
Borg svaraði
að það væri rétt
að ESB væri að
taka upp ýmsar
ráðstafanir sem
norræn lönd á
borð við Ísland
og Noreg hefðu
tekið upp, m.a. til að vinna gegn
brottkasti.
„Ef Ísland ákveður að sækja um
aðild þarf að semja um (sjáv-
arútvegsmál) sem hafa til þessa
verið viðkvæm. Ég get ekki sagt
fyrir um hver niðurstaða slíkra
viðræðna yrði en ég er viss um að
ef Ísland ákveður að sækja um að-
ild … mun landið finna í fram-
kvæmdastjórninni samningsaðila
sem er reiðubúinn til að ræða með
mjög jákvæðum hætti hvort hægt
sé að finna lausn sem tryggir að
framtíð íslenskra sjómanna verði
svipuð og verið hefur til þessa, en
það yrði að vera innan marka sam-
eiginlegu sjávarútvegsstefnunnar.“
Borg sagði að Ísland myndi án
efa geta lagt sitt til málanna við
endurskoðun fiskveiðistefnunnar.
„Lausn finnst á
sjávarútvegsmálum“
Ræddi um stöðu íslenskra sjómanna
Joe Borg
Síminn átti lægsta boð í uppbygg-
ingu háhraðanets fyrir rúmlega
1.100 staði. Var farið í verkið á
þeim forsendum.
Verkefnið breyttist hins vegar
verulega að umfangi eftir að sam-
starf Fjarskiptasjóðs og Símans
hófst. Að lokum var samningurinn,
sem gengið var frá 25. febrúar,
upp á 606 milljónir en ekki 390
eins og tilboð Símans hljóðaði
upp á.
Fjarskiptasjóður leitaði til Rík-
iskaupa vegna þess að umfang
verkefnisins hafði aukist. Var það
metið svo að ekki þyrfti að bjóða
verkefnið út að nýju þrátt fyrir
aukið umfang.
Ríkiskaup féllust á breyttar forsendur
NÚ stendur yfir viðamikil æfing á
Vallarheiði í Reykjanesbæ hjá Ís-
lensku alþjóðasveitinni en hún er sú
sjöunda af alþjóðlegum rústabjörg-
unarsveitum, sem fá mun úttekt og
vottun hjá Sameinuðu þjóðunum að
henni lokinni.
Stóræfing á Vall-
arheiði hjá ÍA