Morgunblaðið - 01.05.2009, Page 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2009
Ekki á af forseta Íslands að ganga.
Fyrst kom misskilningur erlendusendiherranna í hádegisverð-
inum, þar sem Ólafur Ragnar átti að
hafa boðið Rússum herstöðvar og
hellt sér yfir Breta. Frásögn norska
sendiherrans rataði í þarlenda fjöl-
miðla. Forsetinn
mátti bruna í Kast-
ljósið til að bera
misskilninginn til
baka.
Svo var það mis-skilningurinn
um innistæðu-
tryggingarnar.
Þýzkir fjölmiðlar
ætluðu af göfl-
unum að ganga af því að þýzkur
blaðamaður hafði tekið orð forsetans
„úr samhengi“ og hélt að hann hefði
sagt að Íslendingar ætluðu ekki að
borga erlendum sparifjáreigendum,
sem áttu innistæður á reikningum í
Kaupþingi. Þetta var óheppilegt, því
að Þjóðverjar eru mjög viðkvæmir
fyrir sparifénu sínu. Hálft utanrík-
isráðuneytið var á öðrum endanum í
heilan dag að leiðrétta misskilninginn.
Ofan á þetta bættist misskilning-urinn milli forseta vors og eigin-
konu hans. Hann sagði henni að hún
mætti ekki segja ákveðna hluti í við-
tali við útlent glanstímarit. Hún sagði
þá samt og vakti talsverða athygli á
landi og þjóð.
Nú síðast er það furðulegur mis-skilningur út af fálkaorðunni,
sem hefur pirrað voldugasta ríki í
heimi og gert forsetaembættið hlægi-
legt.
Ólafur Ragnar hefur viljað efla sjálf-stæði forsetaembættisins, ekki
sízt í erlendum samskiptum.
Gæti hugsazt að það yrði minni mis-skilningur ef hann hlítti forsögn
utanríkisráðuneytisins um þau sam-
skipti, eins og forverar hans gerðu?
Ólafur Ragnar
Grímsson
Meiri misskilningur
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 7 léttskýjað Lúxemborg 16 heiðskírt Algarve 19 léttskýjað
Bolungarvík 3 rigning Brussel 17 skýjað Madríd 17 léttskýjað
Akureyri 11 skýjað Dublin 13 léttskýjað Barcelona 16 léttskýjað
Egilsstaðir 8 rigning Glasgow 12 skýjað Mallorca 19 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 8 heiðskírt London 17 léttskýjað Róm 13 léttskýjað
Nuuk -3 skýjað París 18 heiðskírt Aþena 21 léttskýjað
Þórshöfn 9 þoka Amsterdam 18 heiðskírt Winnipeg 5 skúrir
Ósló 18 heiðskírt Hamborg 22 léttskýjað Montreal 17 heiðskírt
Kaupmannahöfn 18 heiðskírt Berlín 26 heiðskírt New York 15 léttskýjað
Stokkhólmur 10 heiðskírt Vín 17 léttskýjað Chicago 17 alskýjað
Helsinki 10 heiðskírt Moskva 7 alskýjað Orlando 28 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
1. maí Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5.10 0,9 11.24 3,0 17.27 1,1 23.55 3,3 4:59 21:52
ÍSAFJÖRÐUR 0.43 1,9 7.25 0,4 13.37 1,5 19.37 0,6 4:48 22:13
SIGLUFJÖRÐUR 2.50 1,2 9.23 0,2 16.00 1,1 21.42 0,5 4:30 21:56
DJÚPIVOGUR 2.13 0,7 8.03 1,6 14.21 0,6 21.03 1,9 4:24 21:25
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á laugardag
Vestan 8-13 m/s og skúrir eða
slydduél, en léttir til á Austur-
landi. Kólnar og hiti 1 til 6 stig
seinnipartinn.
Á sunnudag
Hæg suðvestlæg átt og stöku
skúrir um vestanvert landið, en
léttskýjað fyrir austan. Snýst í
vaxandi sunnanátt með rigningu
eða slyddu sunnan- og vest-
anlands þegar líður á daginn.
Hiti breytist lítið.
Á mánudag
Allhvöss suðvestanátt og skúrir
eða rigning, en hægari vindur og
þurrt að mestu um austanvert
landið. Hiti 0 til 5 stig.
Á þriðjudag og miðvikudag
má búast við breytilegum eða
norðlægum áttum með skúrum
eða éljum víða um land og frem-
ur svölu veðri.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Austan- og norðaustan 5-13 og
víðast rigning framan af og tals-
verð úrkoma suðaustanlands.
Dregur úr veðri um allt land síð-
degis en norðvestan 8-13 með
skúrum suðvestanlands í kvöld.
Hiti 3 til 10 stig en hiti um frost-
mark norðvestantil í nótt.
REYNIR Traustason, ritstjóri DV og fyrrverandi
ritstjóri Mannlífs, var í Hæstarétti í gær dæmdur
til að greiða hálfa milljón króna til ríkissjóðs fyrir
að birta áfengisauglýsingar í fylgiriti Mannlífs í
júlí árið 2006. Sonur Reynis, Jón Trausti, var jafn-
framt dæmdur í Hæstarétti í gær. Hann var,
ásamt ritstjóra Nýs lífs, dæmdur til að greiða Ás-
geiri Þór Davíðssyni miskabætur vegna ummæla
sem birtust í tímaritinu Ísafold.
Með dómi sínum yfir Reyni var staðfestur dóm-
ur Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í júní á síðasta
ári. Reynir krafðist sýknu í málinu og byggði á því
að ekki hefði verið um auglýsingar að ræða, heldur
umfjöllun um áfengi. Talið var að um hefði verið að
ræða tilkynningar til almennings vegna markaðs-
setningar þar sem sýndar hafi verið áfengisteg-
undir. Það væri brot á áfengislögum.
Þar sem höfundur var ekki nafngreindur var
Reynir talinn bera refsiábyrgð sem ritstjóri.
Miskabæturnar lækkaðar
Hæstiréttur staðfesti einnig að hluta dóm yfir
Jóni Trausta Reynissyni, ritstjóra DV og fyrrver-
andi ritstjóra Ísafoldar, og Ingibjörgu Dögg
Kjartansdóttur, fyrrverandi ritstjórnarfulltrúa
Ísafoldar, vegna ummæla um Ásgeir Þór í tímarit-
inu í júní 2007. Í héraði voru þau dæmd til að
greiða Ásgeiri eina miljón kr. í miskabætur.
Fallist var á með Ásgeiri að í ummælum hefðu
falist aðdróttanir um refsiverða háttsemi. Hins
vegar var talið að tvenn ummæli í greininni væru
almenns eðlis og beint að ótilgreindum mönnum.
Jón Trausti og Ingibjörg voru dæmd til að
greiða Ásgeiri 500 þúsund kr. í miskabætur og 300
þúsund kr. til að standa straum af birtingu nið-
urstöðu dómsins.
Hæstiréttur dæmir ritstjóra DV
Kveðinn upp dómur yfir feðgunum Reyni Traustasyni og Jóni Trausta Reynissyni
Eftir Sigurð Sigmundsson
Bláskógabyggð | Nýtt gistiheimili
sem hjónin Vilborg Guðmundsdóttir
og Loftur Jónasson í Myrkholti í
Bláskógabyggð hafa byggt var
formlega tekið í notkun á dögunum.
Það hefur hlotið nafnið Skálinn.
„Drekkum nú í Skála skál/
skörungum til sóma,“ segir í vísu
sem Jón Karlsson í Gýgjarhólskoti
skrifaði á servíettu við athöfnina.
Fjölmenni var við opnun hússins.
Séra Sigurður Sigurðarson, biskup í
Skálholti, flutti hugvekju og blessaði
húsið.
Bygging hússins hófst í ágúst í
fyrra en þau hjón hafa að mestu leyti
unnið að byggingarvinnunni sjálf
með annarri vinnu. Húsið er 285 fer-
metra timburhús með 8 fjögurra
manna herbergjum, 100 ferm. sal,
góðri eldunaraðstöðu og rúmgóðum
baðherbergjum.
Gistiaðstaðan verður leigð út sem
svefnpokapláss með eldunaraðstöðu
fyrir gesti. Húsið stendur skammt
frá Gullfossvegi og verður opið allt
árið. Þarna eru kjörnar aðstæður,
m.a. fyrir hestamenn, en góðar og
greiðar reiðleiðir eru við hálend-
isbrúnina. Nú þegar hafa allmargir
hestahópar pantað Skálann fyrir
sumarferðir sínar.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Gistihúseigendur Vilborg Guðmundsdóttir og Loftur Jónsson unnu sjálf
við byggingu Skálans í Myrkholti í Bláskógabyggð.
„Skörungum til sóma“
Nýtt gistiheimili opnað í Myrkholti