Morgunblaðið - 01.05.2009, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2009
Framkvæmda- og eignasvið Reykjavíkurborgar ı Borgartúni 12-14 ı www.reykjavik.is/fer
Tökum vel
á móti sumrinu
Reykjavíkurborg hvetur borgarbúa til að taka höndum saman við að hreinsa til í borginni eftir
veturinn og taka á móti vorinu með bros á vör. Reykjavíkurborg mun í ár ekki fjarlægja
garðúrgang og greinaafklippur sem skilin eru eftir við lóðamörk. Kallað er eftir auknu
frumkvæði og ábyrgð borgarbúa og vakin athygli á því að endurvinnslustöðvar Sorpu taka við
2 rúmetrum í hverri ferð af garðaúrgangi og greinaafklippum frá íbúum að kostnaðarlausu.
Hvetjum til dáða með eigin frumkvæði.
Með því að hreinsa rusl, snyrta tré og runna í garðinum okkar hvetjum við aðra til að taka til
hendinni. Stígum skrefinu lengra og tínum rusl utan girðingar, við næsta göngustíg eða á
nálægu útivistarsvæði. Hreinsunardagur í götunni eða í hverfinu býður upp á skemmtilega
samveru. Notum hugmyndaflugið og gerum tiltektina að skemmtilegu verkefni.
Nánari upplýsingar á reykjavik.is/fer og í síma 411 1111.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
LANDSPÍTALINN hefur virkjað
viðbragðsáætlanir sínar vegna
þess möguleika að svínainflúensa
berist hingað. Landspítalinn er
hluti af heilbrigðiskerfinu og leik-
ur stórt hlutverk í viðbrögðum við
farsóttum sem sóttvarnalæknir
stýrir.
Ólafur Guðlaugsson, yfirlæknir
sýkingavarnadeildar á Landspít-
alanum, sagði nokkra sjúklinga
hafa komið á spítalann í rannsókn
vegna gruns um smit. Í gær hafði
enginn þeirra reynst vera með
svínainflúensu. Ef grunur leikur á
að einhver hafi sýkst af svínainflú-
ensu er tekið strokpróf úr nefkoki.
Ólafur sagði að skyndipróf, sem
greinir ekki undirtegundir, skilaði
niðurstöðu á nokkrum klukku-
stundum. Nákvæmari próf eru um
tvo daga í vinnslu áður en nið-
urstaða liggur fyrir.
Ólafur var spurður hvernig spít-
alinn væri í stakk búinn til að
bregðast við ef svínainflúensan
yrði að farsótt hér á landi.
„Við erum með takmarkaða að-
stöðu til að taka á móti mjög
mörgu fólki. Spítalinn er bara með
800 rúm og ekkert aukalega fyrir
utan það. Við erum með áætlanir
um hvernig við getum nýtt sem
best þau rúm sem við höfum,“
sagði Ólafur.
Til er áætlun um viðbrögð ef til
þess kemur að sjúklingar þarfnist
innlagnar vegna smitandi sjúk-
dóms á borð við svínainflúensu.
Ólafur sagði að í byrjun yrðu
væntanlega notuð fimm einangr-
unarherbergi sem eru á deild A-7.
Síðan er stærri aðstaða til ein-
angrunar þar sem hægt er að hafa
um tíu sjúklinga. Ef fleiri þyrftu
einangrunar við taldi Ólafur að
breyta þyrfti deildum, sem nú eru
í annarri notkun, í einangr-
unardeildir. Hann benti á að það
væri flóknara mál því spítalinn
væri alltaf fullsetinn af sjúkling-
um.
Vel birg af veirulyfjum
Birgðir af veirulyfinu Tamiflu
hér á landi eru með því mesta sem
þekkist í heiminum miðað við íbúa-
fjölda. Þær nægja til meðferðar á
um þriðjungi þjóðarinnar. Ólafur
sagði að undirbúningur fyrir
inflúensufaraldra sem unninn var
á árunum 2005-2007 hefði stuðlað
að talsverðri birgðasöfnun af lyf-
inu. Þessar lyfjabirgðir eru undir
verndarvæng sóttvarnalæknis.
Ólafur sagði reiknað með að
þeir sem sýndu sjúkdómseinkenni
fengju lyfjameðferðina.
44 dóu vegna flensu 1988
Ólafur benti á að í sjálfu sér
væru fréttir af þessu fyrirbæri,
sem H1N1-svínainflúensan er, um
margt jákvæðar. Aðallega þó það
að hún virtist ekki hafa valdið
miklum veikindum utan Mexíkó.
Hækkun viðbúnaðarstigs hjá Al-
þjóðaheilbrigðismálastofnuninni
(WHO) endurspeglaði að smitleið-
ir sjúkdómsins væru virkar. Ólaf-
ur sagði að það að fara af fjórða
stigi á fimmta stig þýddi að fleiri
væru að smitast, en ekki að sjúk-
dómurinn væri orðinn svæsnari
eða orðinn að drepsótt.
Inflúensa er árviss gestur en
breytileg ár frá ári. Ólafur sagði
fólk e.t.v. ekki átta sig á því að
allmörg dauðsföll tengdust venju-
legri inflúensu. Á vef Hagstof-
unnar mætti sjá flokkun látinna
eftir dánarorsökum. Þar sést með-
al annars að frá 1981-2007 eru
skráð alls 309 dánartilvik vegna
inflúensu. Flest urðu þau á árinu
1988 þegar flensan lagði 44 að
velli.
Unnið eftir viðbragðsáætlun
Nokkrir hafa komið á Landspítalann til skoðunar en enginn reynst vera smitaður af svínainflúensu
Fjölmörg dánartilvik eru tengd venjulegri inflúensu og 1981-2007 dóu 309 vegna flensu hér á landi
Norður-Ameríka
Suður Ameríka
Asía/Ástralía
Evrópa
Afríka
Nýja-Sjáland
Ísrael
Ástralía
Suður-Kórea
Mexíkó*
Bandaríkin
Kanada
Gvatemala
Kosta Ríka
El Salvador
Perú
Chile
Brasilía
Kólumbía
Argentína
101
23
12
2
25
30
11
-
1
1
10
2
114
5
2.500
-
-
3
2
2
3
26
20
10
4
13
8
3
1
1
-
-
1
-
-
3
2
-
-
260
113
28
-
-
-
84
1
-
-
-
-
1
-
-
-
-
Spánn
Bretland
Þýskaland
Austurríki
Sviss
Frakkland
Danmörk
Holland
Finnland
Noregur
Líkleg tilfelli
Staðfest tilfelli
Dauðsföll
L
S
D
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
2 -Suður-Afríka -
-
-
-
-
-
-
-
-
L S D
Forseti Mexíkó hefur hvatt landsmenn til að vera heima hjá sér í dag og
næstu fimm daga eftir að Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hækkaði
viðbúnaðarstig sitt vegna svínaflensu í fimm sem er næsthæsta stigið
Tveggja ára mexíkóskt barn varð fyrsta fórnarlamb flensunnar í
ÚTBREIÐSLA SVÍNAFLENSU
LÖND ÞAR SEM FÓLK HEFUR SMITAST AF SVÍNAFLENSU
Eins og staðan var
í gærkvöldi
Mexíkó
BANDARÍKIN
Fyrsta dauðs-
fallið staðfest
Talið er nú líklegt að 84 hafi dáið af völdum svínaflensu í Mexíkó
en Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur aðeins staðfest
tólf dauðsfallanna og 260 smittilfelli. Tala líklegra
svínaflensutilfella í Mexíkó byggist á upplýsingum frá
CDD C C9 C4 CA
Svínaflensan breiðist út
EKKI verður gripið til skimunar
farþega við komu á Keflavík-
urflugvöll að svo stöddu þar sem
það er talið þjóna litlum tilgangi.
Samráðsfundir til að undirbúa við-
brögð við mögulegum svínaflensu-
faraldri voru haldnir í gær. Víðir
Reynisson, deildarstjóri almanna-
varnadeildar Ríkislögreglustjóra,
sagði að m.a. hefði verið fundað með
ráðuneytisstjórum og áhöfn sam-
hæfingarstöðvarinnar. Einnig var
farið yfir viðbragðsáætlun sem gerð
var fyrir ári.
Í flugstöð Leifs Eiríkssonar á
Keflavíkurflugvelli hefur verið opn-
uð inflúensumóttaka. Ferðamenn
geta leitað þangað hafi þeir inflú-
ensulík einkenni.
Handþvottur er mikilvægur
Sóttvarnalæknir áréttaði í gær,
að gefnu tilefni, að andlitsgrímur
fyrir hinn almenna borgara gerðu
lítið gagn til að verjast svínainflú-
ensu. Þær væru hins vegar gagn-
legar heilbrigð-
isstarfsmönnum
sem önnuðust
sjúklinga og
gætu minnkað
smithættu ef
sýktur ein-
staklingur bæri
slíka grímu.
Þá benti sótt-
varnalæknir á að handþvottur og
notkun handspritts væri áhrifarík
aðgerð til að minnka hættu á smiti.
Á þessu stigi er ekki talin ástæða til
að ráðleggja fólki að forðast um-
gang við annað fólk.
Notkun veirulyfja er einungis
ráðlögð sjúklingum sem læknir tel-
ur líklegt að séu með svínainflúensu.
Sjúklingar fá lyfin afhent á heilsu-
gæslustöð og/eða sjúkrahúsi. Fyr-
irbyggjandi notkun lyfjanna er ekki
ráðlögð að sinni og einstaklingum
ekki ráðlagt að birgja sig upp af
lyfjum heima. gudni@mbl.is
Ekki gripið til
skimunar strax
Reuters
Óþarft Grímur fyrir almenna borgara gagnast lítið til að verjast flensunni.
Víðir Reynisson.