Morgunblaðið - 01.05.2009, Síða 16
16 FréttirVIÐSKIPTI | ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2009
E7F
E7F
B
B
E7F
!/F
B
B
(G.
5 !!
B
B
8-%
(#F
B
B
E7F"@
E7F?
!
B
B
Þetta helst ...
● HÆKKUN um 5,82% á gengi bréfa
Marels leiddi til 0,67% hækkunar úr-
valsvísitölu Kauphallarinnar í gær. Bréf
Bakkavarar lækkuðu hins vegar um
0,87% og Össurar um 0,64%. Önnur
hlutabréf hreyfðust ekki, en velta á
hlutabréfamarkaði nam aðeins um 71
milljón króna.
Velta á skuldabréfamarkaði nam hins
vegar rúmum 6,9 milljörðum króna.
bjarni@mbl.is
Marel hækkar
● SAMKOMULAG
hefur tekist um
sameiningu bíla-
framleiðendanna
Chrysler og Fiat.
Barack Obama,
Bandaríkjaforseti,
greindi frá þessu í
gær.
Stjórn Chrysler
hefur óskað eftir
gjaldþrotavernd
samkvæmt bandarískum gjald-
þrotalögum þar sem ekki tókst að ná
frjálsum samningum við lánardrottna
félagsins.
Bandarísk stjórnvöld gera ráð fyrir
að greiðslustöðvunin muni vara í 1-2
mánuði og að Chrysler fái að minnsta
kosti 3 milljarða dala lán á lágum vöxt-
um frá ríkissjóði. gummi@mbl.is
Chrysler og Fiat
munu sameinast
Barack Obama,
Bandaríkjaforseti.
● Á MIÐNÆTTI í nótt rann út kyrr-
stöðusamningur við lánardrottna
sem Atorka Group hf. tilkynnti þann
8. apríl síðastliðinn. Samningurinn fól
það í sér að ekki voru greiddir vextir
eða afborganir af tveimur skulda-
bréfaflokkum útgefnum af félaginu.
Útistandandi skuldabréf Atorku
eru 20,7 milljarðar króna að nafn-
virði og gilti kyrrstöðusamningurinn
um stærstan hluta þessara bréfa. Í
tilkynningu segir að Atorka vinni
áfram að fjárhagslegri end-
urskipulagningu félagsins, en ekki
náðist í talsmann félagsins í gær.
bjarni@mbl.is
Kyrrstöðusamningur
Atorku útrunninn
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.is
TÓLF félög, sem eru með skulda-
bréf skráð í Kauphöllinni, hafa til-
kynnt að þau muni ekki birta árs-
reikning sinn fyrir árið 2008 innan
þeirra tímamarka sem þeim ber að
skila honum. Á meðal þeirra eru
Exista, Milestone og Stoðir/FL
Group, sem voru umsvifamikil í ís-
lensku viðskiptalífi fyrir hrun bank-
anna síðastliðið haust. Reikningun-
um átti að skila í síðasta lagi í gær.
Flest umrædd félög eru í gjald-
þrotameðferð, greiðslustöðvun eða
glíma við alvarlega rekstrarerfið-
leika. Þau vísa öll í sömu undan-
þáguheimildina í lögum um verð-
bréfaviðskipti.
Páll Harðarson, aðstoðarforstjóri
Kauphallarinnar, segir hana geta
gripið til ýmissa úrræða telji hún
útgefanda hafa brotið reglur. „Við
munum skoða hvert tilfelli fyrir sig
og það er alveg ljóst að Kauphöllin
mun fylgja þessum málum mjög
fast eftir. Almennt í svona tilvikum
þá sendum við fyrirspurn til við-
komandi útgefanda og hann er beð-
inn að skýra upplýsingagjöf sína til
markaðarins. Síðan fer það eftir eðli
hvers máls fyrir sig hvert fram-
haldið verður. Þar kemur til greina
áminning eða jafnvel févíti ef útgef-
andi reynist brotlegur.“ Þegar hafa
nokkrir skuldabréfaútgefendur ver-
ið beittir slíkum févítum sem hafa
numið allt að 1,5 milljónum króna.
Stóru félögin vilja ekki
skila ársreikningum sínum
Í HNOTSKURN
»Félögin sem ætla ekki aðbirta reikninga sína eru:
365, Atorka, Stoðir/FL Group,
Kögun, Landic Property,
Landsafl, Teymi, Exista, Egla,
Milestone, Moderna Finance og
Askar Capital.
»Kauphöllin getur beitt fé-lögin ýmiss konar úrræðum
telji hún að þau hafi brotið regl-
ur.
»Hún getur meðal annarssett fjármálagjörninga
þeirra á athugunarlista, áminnt
þau, birt opinbera yfirlýsingu
um málið, beitt févítum eða tek-
ið fjármálagjörningana úr við-
skiptum Kauphallar.
Exista Á meðal þeirra sem hafa tilkynnt um frestun á birtingu ársreikninga
eru félög sem voru umsvifamikil í íslensku viðskiptalífi fyrir bankahrun.
ENN hefur ekki verið gengið frá
sölu á Sjóvá til áhugasamra kaup-
enda en bæði erlendir og innlendir
aðilar hafa átt í viðræðum um kaup á
tryggingafélaginu.
Áreiðanleikakönnun á Sjóvá hefur
þegar verið framkvæmd og sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
kom ekkert óeðlilegt fram í henni.
Vonast er til að hægt verði að kom-
ast að niðurstöðu í málinu í næstu
viku.
Á meðal þeirra erlendu aðila sem
hafa lýst yfir áhuga á að kaupa Sjóvá
er færeyska tryggingafélagið Føroy-
ar. Hinir áhugasömu erlendu bjóð-
endur eru allir úr Evrópu, meðal
annars frá hinum Norðurlöndunum.
thordur@mbl.is
Ekki búið að
selja Sjóvá
Niðurstaða fæst
jafnvel í næstu viku
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ (FME)
birti í gær athugasemd við frétta-
skýringu Morgunblaðsins um efna-
hagsreikning nýju bankanna, sem
birtist á fimmtudag. Þar fullyrðir
FME að þær tölur sem birtar voru
varðandi heildareignir bankanna,
sem byggjast á minnisblaði Olivers
Wymans frá því í janúar, end-
urspegli ekki niðurstöður þess verð-
mats sem skilað var í endanlegri
gerð 22. apríl. Ekki er þó sagt frá
því hver niðustaða þess verðmats er.
Í fréttaskýringu Morgunblaðsins var
skýrt tekið fram að hún byggðist á
umræddu minnisblaði Wymans frá
því í janúar og ekki gefið til kynna
að um endanlegt verðmat væri að
ræða. thordur@mbl.is
Segja matið
ekki rétt
MP BANKI ætlar að opna útibú
SPRON í Borgartúni í þarnæstu
viku. Þar verður rekin þjónustu-
miðstöð fyrir viðskiptavini MP
banka. Ólafur Haraldsson mun stýra
viðskiptabankaþjónustu fyrirtæk-
isins sem netbankinn tilheyrir
einnig.
Ólafur vann í um 30 ár hjá SPRON
áður en sparisjóðurinn fór í þrot.
Hann segir að sextán fyrrverandi
starfsmenn SPRON muni vinna í
þjónustumiðstöðinni sem rekin verð-
ur undir merkjum MP banka. Þarna
verður rekið hefðbundið útibú, net-
bankinn og þjónustuver.
„Við vonumst til að fyrrverandi
viðskiptavinir SPRON komi til baka.
Við höfum fundið fyrir því að marg-
ir bíða eftir að útibúið verði opnað.
Þarna starfar fólk sem áður var í
útibúum SPRON og viðskiptavin-
irnir þekkja,“ segir Ólafur.
MP banki hefur gert leigusamn-
ing við eiganda hússins sem hýsti áð-
ur útibú SPRON og eins leigir skila-
nefnd sparisjóðsins MP banka tæki
og húsbúnað.
Ólafur segir að þetta feli ekki í sér
að búið sé að ganga frá kaupum MP
á SPRON eins og til stóð. Verðmæti
sparisjóðsins hafi fallið vegna taf-
anna og forsendur breyst.
„Við ætlum að byggja þessa þjón-
ustu upp hægt og rólega. Þetta er
fyrsta útibúið sem við opnum og svo
sjáum við til með næstu skref,“ segir
Ólafur. bjorgvin@mbl.is
Sextán fyrrverandi starfsmenn SPRON
fá vinnu í útibúi MP banka í Borgartúni
Opnar Bráðlega geta fyrrverandi
viðskiptavinir SPRON farið í sitt
gamla útibú í Borgartúni.
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
HLUTUR íslenskra kaffiframleið-
enda á markaði virðist hafa aukist til
mikilla muna frá bankahruninu, ef
marka má tölur Hagstofunnar um
vöruskiptajöfnuð. Á fyrstu þremur
mánuðum þessa árs nam innflutn-
ingur á óbrenndu kaffi 44,4% af
heildarinnflutningi á kaffi, en á sama
tíma í fyrra nam hlutfallið 29,4%.
„Aukningin á milli ára er einstök og
hefur aldrei verið svona mikil á þeim
nítján árum sem ég hef starfað hér,“
segir Aðalheiður Héðinsdóttir, for-
stjóri Kaffitárs. Segir hún að und-
anfarin ár hafi heldur verið á bratt-
ann að sækja fyrir íslenskar
kaffibrennslur og markaðshlutdeild
íslensks kaffis frekar dalað en auk-
ist. „Þar til fyrir kreppu var fólk
e.t.v. minna að velta fyrir sér hvort
varan væri íslensk eða ekki. Við lít-
um svo á að kaffi sem brennt er og
malað hér á landi sé íslensk vara
enda verður verðmætasköpunin til
hér við þá meðferð.“
Lægra verð á sjávarafurðum
Fyrstu þrjá mánuðina 2009 voru
fluttar út vörur fyrir 100,7 milljarða
króna en inn fyrir 86,1 milljarð
króna. Afgangur var því á vöruskipt-
unum við útlönd, reiknað í fob-verð-
mæti, sem nam 14,6 milljörðum en á
sama tíma árið áður voru þau óhag-
stæð um 37,5 milljarða á sama gengi.
Snorri Jakobsson, sérfræðingur hjá
IFS Greiningu, segir að þrátt fyrir
afganginn sé hann minni en vonast
hefði verið til fyrir nokkrum mán-
uðum og ekkert í líkingu við það sem
var fyrir áramót. „Verð á helstu út-
flutningsvörum okkar, sjávarafurð-
um og áli, hefur lækkað mikið und-
anfarna mánuði, eða um nær 20% í
íslenskum krónum talið. Þetta skipt-
ir gríðarlegu máli fyrir okkur.“
Ef meðalverð áls og sjávarafurða
verður 10% lægra í ár en á síðasta ári
glatast 45 milljarðar í útflutnings-
tekjum. Að sama skapi þarf verðið
ekki að hækka mikið til að skila stór-
auknum afgangi af vöruskiptum, að
því er segir í skýrslu IFS.
Verðlækkanir á sjávarfangi og áli draga úr útflutningstekjum
Vegur íslensks
kaffis fer vaxandi
Morgunblaðið/Sverrir
Kaffi Innflutningur á óbrenndu
kaffi jókst um 53 tonn.● NAFNI FL Group var í gær formlega
breytt í Stoðir, en sú breyting hefur
lengi staðið til. Á hluthafafundi, sem
lokaður var fjölmiðlum, var tekin
ákvörðun um nafnbreytinguna.
Þá var ákveðið að færa niður allt
hlutafé í fyrirtækinu og gefa út nýtt
hlutafé í fjórar milljónir króna, til að
uppfylla lagaskyldu þar um.
Félagið er í nauðasamningum við
kröfuhafa og fengu stjórnendur heimild
frá hluthöfum til að halda áfram að
endurskipulagningu þess í samræmi við
áður kynnta hagræðingaráætlun.
Þá var samþykktum félagsins breytt
á þá lund að halda skuli aðalfund þess
fyrir ágústlok, en samkvæmt eldri
reglum þurfti fundurinn að fara fram
fyrir maílok.
Eins og áður segir var fundurinn lok-
aður fjölmiðlum og sagði Júlíus Þor-
finnsson, upplýsingafulltrúi FL Group,
venjuna þá að aðalfundir séu opnir fjöl-
miðlum en ekki almennir hluthafa-
fundir. Blaðamenn Morgunblaðsins
hafa hins vegar bæði setið hluthafa-
fundi sem og aðalfundi félagsins í gegn-
um tíðina. bjarni@mbl.is
Hlutafé FL var fært
niður og nafni breytt