Morgunblaðið - 01.05.2009, Blaðsíða 18
18 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2009
ZHANG Yining frá Kína mænir á boltann í einliðaleik gegn Nikoletu Stef-
anovu frá Ítalíu í gær en þær eru meðal þátttakenda á heimsmeist-
aramótinu i borðtennis sem fram fer í Yokohama í Japan. Kínverjar eru
geysisterkir í íþróttinni og hirtu öll gullverðlaun á síðustu ólympíuleikum
og á tveimur síðustu heimsmeistaramótum.
Reuters
Einbeiting í Yokohama
FIMM dóu og minnst 12 manns slös-
uðust þegar maður keyrði inn í
mannþröng í borginni Apeldoorn í
Hollandi í gær. Mikill fjöldi var sam-
ankominn til þess að fagna hollensku
konungsfjölskyldunni en landsmenn
héldu í gær svonefndan drottning-
ardag hátíðlegan. Maðurinn mun
hafa keyrt á miklum hraða inn í
mannfjöldann og stefnt að opinni
rútu Beatrix drottningar og fjöl-
skyldu hennar. „Það var blóð úti um
allt,“ segir Cynthia Boll, sjón-
arvottur að árásinni.
Maðurinn slasaðist sjálfur og var
þegar handtekinn. Embættismenn
sögðu í gærkvöldi að maðurinn hefði
sagt lögreglunni að hann hefði ætlað
að aka á rútu drottningarinnar.
Mikill fjöldi fólks var á staðnum
en drottningardagurinn er almenn-
ur frídagur í landinu. Hollendingar
hafa haldið hann hátíðlegan frá 1949
en þann dag fæddist dóttir Wilhelm-
ínu drottningar, Júlíana. Beatrix
valdi þennan dag árið 1980 til þess
að sverja eiðinn er hún tók við.
Ók inn í
mann-
þröngina
Fimm dóu í árás á
rútu drottningar
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
CHRYSLER-bílaverksmiðjurnar
bandarísku fengu í gær ígildi
greiðslustöðvunar og sagði í yfirlýs-
ingu frá Hvíta húsinu að um væri að
ræða „stutta gjaldþrotameðferð“
sem tekið gæti 30-60 daga.
Barack Obama forseti sagði að
fyrirtækið myndi nú hefja samstarf
við ítölsku Fiat-verksmiðjurnar sem
fullyrt er að muni smám saman eign-
ast meirihluta í Chrysler án þess að
þurfa að greiða fyrir hann.
Obama sagði stjórn sína hafa
reynt að hindra þessa niðurstöðu en
sumir lánardrottnar Chrysler hefðu
ekki viljað semja. Var ljóst að hann
hugsaði þeim þegjandi þörfina.
Fyrirtækið er mjög skuldsett, það
fékk fyrir áramótin skilyrta fjár-
hagsaðstoð frá ríkinu og hefur að
undanförnu reynt árangurslaust að
endurskipuleggja reksturinn. Um
54.000 manns unnu hjá Chrysler í
árslok 2008 og eru þá meðtaldir
starfsmenn utan Bandaríkjanna.
Ekki er talið að margir muni missa
vinnuna. Tapið lendir einkum á sum-
um lánardrottnum Chrysler sem
una illa sínum hlut og segja lög hafa
verið brotin.
Chrysler er þriðji stærsti bíla-
framleiðandi landsins, seldi hálfa
aðra milljón bíla á heimamarkaði í
fyrra. Stærri eru General Motors,
sem einnig á við geysimikinn fjár-
hagsvanda að stríða, og Ford.
Dómstólar munu nú skipa tilsjón-
armenn með Chrysler sem fær að
sögn embættismanna milljarða doll-
ara í opinberan stuðning til að greiða
fyrir endurskipulagningunni.
Chrysler, sem kennt er við frum-
kvöðulinn Walter P. Chrysler, er
fornfrægt fyrirtæki í bandarískum
iðnaði og var formlega stofnað 1925.
Fyrsti Chrysler-bíllinn var kynntur
1924, hann var með loftsíu, olíusíu og
háþrýsta vél, allt búnað sem aðrir
framleiðendur tóku síðan upp.
Bílafyrirtækið
Chrysler í þrot
Sameinast Fiat sem sagt er eignast
meirihluta í bandaríska fyrirtækinu
Reuters
Fornfrægt Merki Chrysler við bíla-
sölufyrirtæki í New York.
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
EMBÆTTISMENN Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunarinnar (WHO)
reyndu í gær að draga úr ótta manna
við svínaflensuna sem hefur breiðst
út til að minnsta kosti tólf landa.
Embættismennirnir sögðu að ekkert
benti til þess að skæður heimsfar-
aldur væri yfirvofandi eða að hækka
þyrfti viðbúnarstig WHO í sjötta og
efsta stigið. Þeir vöruðu þó við því að
svínaflensutilfellum kynni að fjölga á
flensutímabilinu á komandi vetr-
armánuðum á suðurhveli jarðar.
„Varast ber ofsahræðslu“
Embættismenn Evrópusam-
bandsins tóku í sama streng. „Við
þurfum að vera á varðbergi en var-
ast ber ofsahræðslu,“ sagði Andro-
ulla Vassiliou, sem fer með heilbrigð-
ismál í framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins.
„Það er mjög líklegt að þetta verði
að heimsfaraldri, en það þýðir ekki
að hann verði mannskæður,“ sagði
Vassiliou. Hún benti á að þótt svína-
flensan hefði valdið dauðsföllum í
Mexíkó hefði hún ekki verið skæð í
öðrum löndum. „Á ári hverju deyja
250.000 manns af völdum inflúensu,
jafnvel við venjulegar aðstæður,“
hafði fréttastofan AFP eftir Vassi-
liou.
Frönsk stjórnvöld beittu sér fyrir
banni við farþegaflugi til Mexíkó til
að hefta útbreiðslu flensuveirunnar
en lítill stuðningur var við þá tillögu
á fundi heilbrigðisráðherra ESB-
landanna í Lúxemborg í gær.
Heilbrigðisráðuneyti Mexíkó
sagði í gærkvöldi að 260 svínaflensu-
tilfelli hefðu verið staðfest í landinu
og þar af hefðu tólf manns dáið. Talið
er nú líklegt að 84 hafi dáið af völd-
um veirunnar í Mexíkó, mun færri
en óttast hefur verið. Ný svína-
flensutilfelli voru staðfest í Bret-
landi, Hollandi, Perú og Sviss í gær.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
sagði að hún myndi hér eftir kalla
svínaflensuveiruna „inflúensu A
(H1N1)“. Svínabændur víða um
heim hafa lagt fast að stjórnvöldum
að breyta nafni veirunnar þar sem
sala á svínakjöti hefur minnkað þótt
fólk geti ekki smitast af flensunni
með því að borða kjöt.
Ekki horfur á skæðri farsótt
Reuters
Komin til Perú Piltur bólusettur á sjúkrahúsi í Lima, höfuðborg Perú.
Fyrsta svínaflensutilfellið í landinu var staðfest í gær.
Embættismenn WHO segja að ekkert bendi til þess núna að heimsfaraldur sé yfirvofandi og fram-
kvæmdastjórn ESB segir að ekki sé ástæða til að óttast að svínaflensuveiran verði mjög mannskæð
Hvað veldur vanda bílarisanna?
Bent er á að bandarísku fyrirtækin
hafi verið sein að bregðast við kröf-
um neytenda um eyðslugranna bíla,
þau hafi látið erlendum keppinautum
sínum eftir þá framleiðslu. Einnig
hafi stéttarfélög fengið samninga
um mjög hagstæð kjör, einkum á
sviði lífeyrisgreiðslna, sem íþyngi
mjög rekstri fyrirtækjanna.
Er samruni við Fiat góð lausn?
Slíkt samstarf gæti reynst vel en
sporin hræða óneitanlega í þeim efn-
um. En árið 1998 sameinuðust
Chrysler og þýska bílafyrirtækið
Daimler-Benz og gekk sú tilraun ekki
vel. Samvinnunni var í reynd slitið
2007 er Chrysler-hluti samsteyp-
unnar var seldur fjármálafyrirtækinu
Cerberus.
S&S
TÍMAMÓT voru í Írak í gær þegar
yfirmaður breska herliðsins afhenti
Bandaríkjamönnum formlega frið-
argæsluhlutverk það sem Bretar
hafa haft með höndum í suðurhluta
Íraks frá 2003. Allt breskt herlið
verður á brott frá Írak fyrir lok vik-
unnar, mánuði á undan áætlun.
Minningarathöfn var haldin í
Basra í gær vegna þeirra 179 Breta
sem fallið hafa í Írak frá innrásinni
20. mars 2003. Fyrr á árinu tóku
Írakar aftur við yfirstjórn á alþjóða-
flugvellinum í Basra en Bretar not-
uðu hann sem herstöð.
Bretar hyggjast nú fjölga um 700
manns í friðargæsluliðinu í Afganist-
an. kjon@mbl.is
Breskt her-
lið frá Írak
BANDARÍSKIR vísindamenn sem
rannsaka afbrigðið af H1N1-
veirunni er veldur svínaflensunni
núna eru sammála um að það virð-
ist ekki líklegt til að valda jafn-
miklu manntjóni og þekktar far-
sóttir eins og t.d. spænska veikin
1918, segir á vefsíðu Los Angeles
Times í gær. Sé jafnvel hugsanlegt
að manntjónið verði ekki jafn mik-
ið og í hefðbundnum flensufaraldri
að vetrarlagi. Þá veikjast að jafn-
aði 5-20% Bandaríkjamanna og að
meðaltali deyja 36.000.
Er fyrst var farið að rannsaka af-
brigðið urðu margir óttaslegnir
vegna þess að hegðun þess minnti
mjög á afbrigðið sem olli spænsku
veikinni er banaði 50-100 millj-
ónum manna, að því er talið er,
flestum í þriðja heiminum. Hún fór
hins vegar rólega af stað, mann-
tjónið var í fyrstu mjög lítið.
„Þetta afbrigði skortir viss sam-
eindafræðileg einkenni [sem veir-
an frá 1918 hefur],“ segir Peter Pa-
lese, sérfræðingur í inflúensu við
Mount Sinai-læknamiðstöðina í
New York. Mestu skipti að í af-
brigðinu séu ekki ákveðnar am-
ínósýrur sem talið er að fjölgi
veiruhlutum í lungunum og geri
þannig sjúkdóminn mannskæðari
en ella. En Palese segir jafnframt
að haldi veiran áfram að herja
fram á sumarið aukist hættan á að
hún stökkbreytist og verði í kjöl-
farið mannskæðari.
Gæti verið hættulítið afbrigði