Morgunblaðið - 01.05.2009, Síða 22
Rau›arárstígur 14, sími 551 0400 · www.myndlist.is
Opið í Galleríi Fold á Rauðarárstíg, virka daga 10–18,
laugardaga kl. 11–16 og sunnudaga kl. 14–16
Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu
G
uðm
unda
A
ndrésdóttir
Listmunauppboð
Allir velkomnir
mánudaginn 11. maí
Sumargleði
í Galleríi Fold við Rauðarárstíg
Í dag kl. 15:00 opnum við tvær sýningar stórmálaranna
Tryggva Ólafssonar og Daða Guðbjörnssonar.
Kvartett Guðmundar Steingrímssonar leikur léttan jazz við opnunina.
Nýr valkostur
Eigðu eða leigðu
Gallerí Fold býður upp á nýjan valkost.
Nú gefst viðskiptavinum Gallerís Foldar færi
á að leigja listaverk til allt að þriggja ára.
Eftir þrjú ár eignast leigutakinn verkið.
Hægt er að skila verkinu hvenær sem
er á samningstímanum eða greiða
það upp.
Daði Guðbjörnsson sýnir ný olíuverk í
Hliðarsal Gallerís Foldar.
Titill sýningarinnar er Ísland án tára.
Myndirnar eru allar málaðar á undanförnum
mánuðum og eins og titillinn gefur til kynna horfir
listamaðurinn bjartsýnum augum til framtíðar.
Tryggvi Ólafsson er fluttur heim á
gamla Frón eftir næstum hálfrar aldar
búsetu hjá Dönum. Nú sýnir hann ný og nýleg
verk í Forsal Gallerís Foldar. Ragnhildar Ágústsdóttur
Síðasta sýningarhelgi
Nú eru síðustu forvöð að skoða
sýninguna „Memento Mori“,
en henni lýkur 3. maí.
Opið 1. maí frá kl. 14–17
22 Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2009
ÍSLENDINGAR
standa frammi fyrir
mesta efnahagsvanda á
lýðveldistímanum. Við
glímum bæði við fjár-
mála- og gjaldeyris-
kreppu sem leitt hefur
til alvarlegrar efna-
hagskreppu. Þessi
staða kallar á að við
tökum með ábyrgð og
festu á vandanum því
annars er hætta á enn frekari efna-
hagsþrengingum og jafnvel öðru
hruni.
Nú í sumarbyrjun verða kjara-
samningar á almennum vinnumark-
aði endurskoðaðir og gengið verður
frá samningum launafólks við ríki og
sveitarfélög. Aðilar vinnumarkaðar-
ins, hvort heldur það eru atvinnu-
rekendur, fulltrúar starfsmanna rík-
is og sveitarfélaga eða fulltrúar
launafólks á almenna vinnumark-
aðinum eru sammála um að samhliða
gerð og endurskoðun kjarasamninga
verði tvennt að eiga sér stað. Annars
vegar viljum við gera nýjan sáttmála
milli vinnumarkaðarins og stjórn-
málaflokkanna um forsendur var-
anlegs stöðugleika þar
sem hlutverk og
ábyrgð samningsaðila á
vinnumarkaði og
stjórnvalda er skil-
greind. Hins vegar vilj-
um við ná víðtækri sátt
um hvernig við getum
sameiginlega unnið
okkur út úr þessum
mikla vanda. Til
skamms tíma eru mik-
ilvægustu markmiðin
að ná niður atvinnu-
leysinu, lækka vexti og
koma á stöðugleika í gengi krón-
unnar. Aðilar vinnumarkaðarins eru
sammála um að í lok næsta árs þurfi
atvinna að hafa vaxið á ný þannig að
atvinnuleysi verði undir 8%. Einnig
er mikilvægt að marktæk skref hafi
verið stigin til að uppfylla stöð-
ugleikaskilyrði fyrir upptöku evru.
Þetta þýðir að verðbólgan verði ekki
yfir 2,5%, halli hins opinbera ekki
meiri en 10,5% af landsframleiðslu,
vextir hafi lækkað þannig að nafn-
vextir ríkisskuldabréfa til tíu ára
verði að hámarki 4% hærri en á
evrusvæðinu og að dregið hafi úr
gengissveiflum og gengið styrkst
þannig að evran verði á bilinu 130-
140 kr.
Markmiðið að lífskjör árið 2013
verði svipuð og fyrir hrun
Til þess að ná þessum markmiðum
þarf að ná víðtækri samstöðu um
áætlun um það hvernig við fyr-
irbyggjum hraðan fjármagnsflótta
úr landi og sköpum þannig skilyrði
fyrir afnámi gjaldeyrishafta og hrað-
ari lækkun vaxta. Þetta er lykilatriði
til þess að taka á vanda heimilanna
og til að skapa hagstæð rekstrarskil-
yrði fyrir fyrirtækin þannig að störf-
in verði varin og aðstæður skapaðar
fyrir fjölgun þeirra á ný. Samhliða
þessu er mikilvægt að draga úr
hallarekstri ríkisins í samræmi við
sameiginlega áætlun stjórnvalda og
Alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Það
verður erfitt og sársaukafullt verk-
efni og því eru aðilar vinnumark-
aðarins sammála um mikilvægi þess
að verja velferðarkerfið eins og kost-
ur er.
Til lengri tíma eru aðilar vinnu-
markaðarins sammála um að setja
sér þau markmið að vinna bug á at-
vinnuleysinu, tryggja hér bætt lífs-
kjör og koma hér á varanlegum stöð-
ugleika. Stöðugleikanum náum við
með því að setja okkar það markmið
að fyrir árslok 2013 höfum við náð að
uppfylla skilyrði fyrir upptöku evru.
Það þýðir að við þurfum að hafa náð
tökum á krónunni þannig að hún
verði stöðug, að við búum við lága
nafnvexti, að verðbólga verði hófleg
og að komið verði á jafnvægi í
rekstri hins opinbera. Það er ljóst að
til að vinna bug á atvinnuleysinu
þurfa að hafa orðið til a.m.k. 15.000
ný störf fyrir árslok 2013. Jafnframt
vilja aðilar vinnumarkaðarins setja
sér það sem markmið að lífskjör
mæld sem landsframleiðsla á mann
vaxi þannig að þau verði a.m.k. þau
sömu og fyrir bankahrunið.
Til að ná þessum markmiðum
þurfum við að tryggja að hagvöxtur
á árunum 2011-2013 verði ekki minni
en 4-4,5%. Það gerum við bara með
því að auka traust og trú á íslenskt
efnahagslíf, örva innlendar fjárfest-
ingar í atvinnulífinu og stuðla að
beinum erlendum fjárfestingum
samhliða því að koma á eðlilegum
lánaviðskiptum við erlenda banka.
Það er augljóst að við munum ekki
ná þessum markmiðum með því að
þvinga erlendar fjármálastofnanir til
að dvelja hér með fjármagn sitt með
gjaldeyrishöftum og ofurvöxtum.
Það er skoðun ASÍ að við þessar
aðstæður verðum við að hafa kjark
til að horfast í augu við staðreyndir,
bregðast við þeim og leita nýrra
leiða að sameiginlegum markmiðum.
Eina færa leiðin að mati ASÍ að
þessum markmiðum er að Íslend-
ingar sæki um aðild að ESB og setji
sér það sem markmið að taka upp
evru á eins skömmum tíma og hægt
er. Í millitíðinni getum við fengið
stuðning Evrópska seðlabankans við
fastgengisstefnu með aðild að geng-
issamstarfi ESB-þjóðanna í gegnum
ERM II. Með slíkri ábyrgri afstöðu,
þar sem samið verði við ESB um
grundvallarhagsmuni einstakra at-
vinnugreina út frá sjónarmiði bæði
atvinnurekenda og launafólks, náum
við að skapa aukinn trúverðugleika á
fjármála- og gjaldeyrismörkuðum
þannig að við fáum svigrúm til að
takast á við vandann.
Forsendur þríhliða sáttmála um stöðugleika
Eftir Gylfa
Arnbjörnsson »Eina færa leiðin að
mati ASÍ að þessum
markmiðum er að Ís-
lendingar sæki um aðild
að ESB og taki upp evru
eins fljótt og hægt er.
Gylfi Arnbjörnsson
Höfundur er forseti Alþýðusambands
Íslands.