Morgunblaðið - 01.05.2009, Side 27
Minningar 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2009
Atvinnuauglýsingar
Markaðsmál og sala
Starfsmaður óskast til að sinna markaðs-
setningu og sölu á nýrri áhugaverðri vöru fyrir
alþjóðlegan markað. Verður að geta starfað
sjálfstætt. Áhugasamir sendi umsókn
og ferilskrá á netfang myjobin2010@gmail.com
Óskum eftir matreiðslumanni í áhugavert
verkefni við þróun og uppbyggingu á nýjum
veitingastað.
Umsóknir sendist á esjustofa@internet.is
Raðauglýsingar 569 1100
Fundir/Mannfagnaðir
Aðalfundur
ReykjavíkurAkademíunnar
félags sjálfstætt starfandi fræðimanna verður
haldinn fimmtudaginn 7. maí kl. 15:00
í fundarsal félagsins að Hringbraut 121, 4. hæð.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Tillaga að lagabreytingu verður borin upp og
liggur hún frammi á skrifstofu RA og
heimasíðu félagsins (www.akademia.is).
Stjórnin.
Nauðungarsala
Uppboð
Uppboð munu byrja þriðjudaginn 5. maí 2009, kl. 10:00, í
skrifstofu embættisins að Hnjúkabyggð 33, Blönduósi, sem
hér segir, á eftirfarandi eignum:
Snæringsstaðir (145316, 213-7702), Svínadal, Húnavatnshreppi, þingl.
eig. Benedikt Steingrímsson o.fl., gerðarbeiðendur Vörður tryggingar
hf., Fóðurblandan hf. og Jötun vélar ehf.
Kúfustaðir (145379), Húnavatnshreppi, þingl. eig. Jón B. Sigvaldason
o.fl., gerðarbeiðandi Áki bifreiðaþjónusta ehf.
Sýslumaðurinn á Blönduósi,
30. apríl 2009,
Bjarni Stefánsson sýslumaður.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að
Aðalstræti 92, Patreksfirði, 2. h. fimmtudaginn 7. maí
2009 kl. 14:00 á eftirfarandi eignum:
Gilsbakki 2-4, íbúð 0001, fastanr. 212-4879, Bíldudal, Vesturbyggð,
þingl. eig. Mjóni ehf, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Gilsbakki 2-4, íbúð 0002, fastanr. 212-4880, Bíldudal, Vesturbyggð,
þingl. eig. Mjóni ehf, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Gilsbakki 2-4, íbúð 0101, fastanr. 212-4881, Bíldudal, Vesturbyggð,
þingl. eig. Mjóni ehf, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Gilsbakki 2-4, íbúð 0102, fastanr. 212-4882, Bíldudal, Vesturbyggð,
þingl. eig. Mjóni ehf, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Gilsbakki 2-4, íbúð 0103, fastanr. 212-4883, Bíldudal, Vesturbyggð,
þingl. eig. Mjóni ehf, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Gilsbakki 2-4, íbúð 0104, fastanr. 212-4884, Bíldudal, Vesturbyggð,
þingl. eig. Mjóni ehf, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Gilsbakki 2-4, íbúð 0105, fastanr. 212-4885, Bíldudal,Vesturbyggð,
þingl. eig. Mjóni ehf, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Gilsbakki 2-4, íbúð 0201, fastanr. 212-4886, Bíldudal, Vesturbyggð,
þingl. eig. Mjóni ehf, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Gilsbakki 2-4, íbúð 0202, fastanr. 212-4887, Bíldudal, Vesturbyggð,
þingl. eig. Mjóni ehf, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Gilsbakki 2-4, íbúð 0203, fastanr. 212-4888, Bíldudal,Vesturbyggð,
þingl. eig. Mjóni ehf, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Gilsbakki 2-4, íbúð 0204, fastanr. 212-4889, Bíldudal, Vesturbyggð,
þingl. eig. Mjóni ehf, gerðarbeiðandi Íbú
Sýslumaðurinn á Patreksfirði,
30. apríl 2009.
Úlfar Lúðvíksson.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir
Hraunbær 42, 204-4622, Reykjavík, þingl. eig. Ásgerður Ólafsdóttir,
gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Vátryggingafélag Íslands hf,
þriðjudaginn 5. maí 2009 kl. 11:30.
Reykás 43, 204-6419, Reykjavík, þingl. eig. Bjarni Friðjón Karlsson,
gerðarbeiðendur Reykjavíkurborg ogTryggingamiðstöðin hf,
þriðjudaginn 5. maí 2009 kl. 10:30.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
30. apríl 2009.
Tilkynningar
Landskjörstjórn
Fundur um úthlutun
þingsæta
Landskjörstjórn kemur saman til fundar
mánudaginn 4. maí 2009 kl. 17.00 til að úthluta
þingsætum á grundvelli kosningaúrslita í
kjördæmum eftir almennar alþingiskosningar
sem fram fóru hinn 25. apríl sl.
Hér með er umboðsmönnum þeirra
stjórnmálasamtaka sem buðu fram við
alþingiskosningarnar gefinn kostur á að koma
til fundarins, sem haldinn verður á 2. hæð í
Austurstræti 8—10, Reykjavík, húsnæði nefnda-
sviðs Alþingis. Gengið er inn frá Vallarstræti.
Reykjavík, 30. apríl 2009,
landskjörstjórn.
Folketingets ombudsmand
Hans Gammeltoft-Hansen heldur fyrirlestur í
Norræna húsinu laugardaginn 2. maí kl. 16.30
um starf sitt og áhugamál.
Á eftir mun hann spila flautusónötu eftir
Händel og kompositionir fyrir flautu og píanó
eftir Ibert með aðstoð Steens Lindholm.
Allir velkomnir.
Dansk-íslenska félagið.
Ertu að leita þér að vinnu?
Vantar þig starfskraft?
Farðu inn á mbl.is/atvinna
Elsku tengda-
mamma. Nú er komið
að kveðjustund. Eins
og alltaf á stundum sem þessum kem-
ur margt upp í hugann og margar
minningar renna hjá eins og fallegar
myndir. Alveg frá fyrstu stundu þeg-
ar við hittumst fyrst varstu mér góð
og hlý. Betri tengdamömmu hefði ég
ekki getað fengið. Það hefur verið
mér heiður að fá að fylgja þér í gegn-
um árin. Þú ert kona sem fórst ekki
fram á mikið en gafst þeim mun
meira.
Elsku Björg, að fá að hjálpa þér og
styðja síðasta spölinn var ómetanlegt
og þær stundir mun ég geyma djúpt í
hjarta mér. Manstu ferðina okkar til
Reykjavíkur þegar þú háöldruð fórst
að kaupa þér nýtt í búið? Við tvær að
borða saman og spjalla. Parísarferðin
okkar. Aldrei gleymi ég því hvað þú
varst hrærð og glöð þegar sunginn
var fyrir þig afmælissöngurinn í sigl-
ingunni á Signu, tár á kinn og einlæg
gleði, glampar í augunum á þér.
Ávallt hefur fylgt þér lítillæti og hóg-
værð. Kleinulykt í lofti, pönnukökur
og annað góðgæti á borðum. Talaðir
aldrei illa um nokkurn mann og vildir
öllum vel.
Börnunum mínum varstu alveg
einstök amma og Gumma mínum góð
móðir. Þeirra söknuður er mikill.
Núna sé ég þig fyrir mér á himnum,
Björg Hallvarðsdóttir
✝ Björg Hallvarðs-dóttir fæddist á
Geldingaá í Leir-
ársveit 27. mars 1921.
Hún andaðist á lyf-
lækningadeild Sjúkra-
húss Akraness aðfara-
nótt sumardagsins
fyrsta, 23. apríl síðast-
liðins og fór útför
hennar fram frá Akra-
neskirkju 30. apríl.
að klappa saman lóf-
um, hlæja og segja
sögur.
Elsku Björg, ég ætla
að kalla þig Björgina
mína. Vonandi næ ég
að taka þig mér til fyr-
irmyndar. Hjá þér
skiptu veraldleg gæði
ekki máli heldur
hjartahlýja og það að
vera til staðar.
Takk fyrir samferð-
ina og það sem þú
skildir eftir þig. Við
sjáumst seinna á nýj-
um stað. Megi guð og góðir englar
vernda þig í nýjum heimkynnum.
Með tár á kinn og kertaljós lýk ég
þessum kafla í okkar sameiginlega
lífi. Börnum og öðrum aðstandendum
sendi ég mína dýpstu samúð. Góða
nótt.
Þú mátt svífa hærra og hærra
heiðblámans um ljósan stig.
Allt sem þú átt yndislegast
er aðeins draumur fyrir mig.
Ætti sál mín auðlegð þína,
yndi og fegurð, vorsins hljóm.
Mætti ég alla ævi mína
yrkja ljóð um vor og blóm.
(Halldóra B. Björnsson.)
Þín
Guðrún Ísleifsdóttir.
Elsku amma Björg. Núna þegar þú
hefur kvatt þennan heim renna marg-
ar minningar í gegnum hugann. Þú
ert sú manneskja sem ég hef um-
gengist í gegnum lífið sem ég lít einna
mest upp til. Aldrei hef ég heyrt þig
hallmæla einum einasta manni og
alltaf varstu brosandi. Aldrei mátti
sjá á þér að lífið væri erfitt eða ósann-
gjarnt. Alltaf þegar maður kom til þín
mætti maður viðmóti sem ekki öllum
er gefið en þú varst svo rík af.
Margar minningar koma upp í hug-
ann þegar maður fer að hugsa til
baka. Það voru hrein forréttindi að fá
tækifæri til þess að upplifa allan æv-
intýraheiminn sem fylgdi því að koma
til þín á Breiðina. Húsið sjálft alger
ævintýraheimur fyrir ungan dreng og
gleymi ég því aldrei þegar ég var orð-
inn nógu stór og sterkur til þess að fá
að lyfta hleranum á eldhúsgólfinu
þínu og fá að fara sjálfur niður í kjall-
ara. Þá var maður orðinn að manni.
Fjaran og klettarnir voru hluti af
þessum ævintýraheimi, eyddi maður
ófáum stundunum að safna rekaviði,
kíkja í gullfjöruna sem meira að segja
fólk sem hefur búið á Skaganum í
mannsævi veit ekki af. Þessu fékk
maður að kynnast í gegnum þig. Svo
var ekkert betra en að koma inn eftir
öll ævintýrin, setjast á kollinn sinn við
eldhússkenkinn horfa á út á hafið í
gegnum gluggann með Svala og
brúna köku með hvíta kreminu í
höndunum.
Það voru alltaf ákveðnir hlutir sem
maður gat gengið að vísum þegar
maður heimsótti þig, elsku amma,
sama hvort það var Svala-ferna,
Remi-kex, pönnsurnar, kleinurnar
góðu, eða bara hlýjan sem fylgdi þér.
Eftir að þú fluttir á Höfðagrundina
og ég var orðinn eldri fæddust fleiri
svona góðar stundir. Við feðgar og
fleiri reyndum eftir fremsta megni að
gefa þér, amma mín, það sem þú áttir
skilið. Aldrei skoraðist maður undan
því, sama hvort maður var að smíða
pallinn góða, teppaleggja, síðar park-
etleggja eða mála fyrir þig fallega
húsið að innan sem utan. Því alltaf
fann maður hversu þakklát þú varst
og kunnir svo vel að meta þá hluti
sem maður gerði fyrir þig.
Við vorum svo heppin hér í Jörund-
arholtinu að fá að njóta margra jóla
og áramóta með þér og Lárusi
frænda. Þegar maður fékk mjúkan
pakka vildir þú alltaf fá að skoða inni-
haldið, enda varst þú mikil handa-
vinnukona, og var gaman að fylgjast
með þér þrátt fyrir aldurinn hversu
klár þú varst í höndunum og sértak-
lega í saumnum. Það sem mig langar
að taka með mér inn í lífið frá þér er
æðruleysið og einlægnin. Þessar
klukkustundir sem ég fékk að eiga
með þér um nóttina sem þú fórst eru
mér gríðarlega mikilvægar, það að
hafa fengið að halda í litlu höndina
þína og fylgja þér síðustu skrefin í
þessum heimi er fyrir mér ómetan-
legt. Það var svo mikill friður yfir þér.
En mikið er ég feginn að þú hafir
fengið hvíldina og friðinn sem þú átt
svo sannarlega skilið eftir langa ævi.
Ég veit að þú ert kominn á fallegan
stað, örugglega sveitina þína, með
þinn Lazyboy-stól og afa Skúla þér
við hlið. Og auðvitað brosandi. Það
varst þú, eitt stórt bros. Hetja í einu
orði sagt.
Takk fyrir allt, elsku amma, ég
mun sakna þín mikið.
Bjarki Þór Guðmundsson.
Hinsta kveðja til elsku mömmu.
Elsku móðir mín kær,
ætíð varst þú mér nær,
ég sakna þín, góða mamma mín.
Já, mild var þín hönd
er um vanga þú straukst,
ef eitthvað mér bjátaði á.
Við minningu um þig geymum
og aldrei við gleymum,
hve trygg varst þú okkur og góð.
Við kveðjum þig, mamma,
og geymum í ramma
í hjarta okkar minningu um þig.
(Gylfi V. Óskarsson.)
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífs þíns nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði nú sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Kysstu Björn Skúla og pabba frá
okkur, elsku mamma.
Hvíl í friði.
Ástarkveðja,
Þín
Málfríður Guðbjörg og
Gísli Hallberg.
Hlý og góð, kát og kærleiksrík
varst þú, elsku amma mín. Nú þegar
jarðvist þinni er lokið og minningarn-
ar streyma fram í huga minn þá verð-
ur mér ljóst hversu rík við höfum ver-
ið að eiga þig að. Það var alltaf svo
hlýtt og notalegt að koma til þín, bæði
niður á Breið í ævintýrahúsið og
seinna á Höfðagrundina. Alltaf vor-
um við velkomin til þín og ekki kom til
mála að kveðja án þess að hafa
smakkað á einhverju góðgætinu.
Heimsókn þín til Parísar er mér af-
ar minnisstæð. Þar áttum við saman
ógleymanlegar stundir og lentum í
skemmtilegum ævintýrum, m.a. læst-
umst við í lyftu við la Tour Eiffel, okk-
ur báðum mál, og öryggisverðirnir
sko aldeilis ekkert að flýta sér. Við
hlógum nú mikið þegar við höfðum
losnað úr prísundinni. Enda sást þú
auðveldlega broslegu hliðarnar á
hlutunum.
Ég mun sakna þín sárt amma, en
ég veit að þú ert hvíldinni fegin. Hlæj-
andi, með glampa í augum og klapp-
andi saman lófunum situr þú eftir í
huga mér.
Megi englarnir vaka yfir þér á góð-
um stað, elsku amma.
Þín,
Andrea.