Morgunblaðið - 01.05.2009, Síða 30
30 Velvakandi
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2009
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
SKRÍTINN
DRAUMUR, HA?
RÚMLEGA
ÞAÐ
ER MIG AÐ DREYMA
EÐA ÞIG?
HEF EKKI
HUGMYND
KANNSKI ER
ÞÁ AÐ DREYMA
HVAÐ?!? AUMINGJA FRÚ RÓSA...
HÍ
HÍ
ÉG GERÐI SAMKOMULAG VIÐ
FRÚ RÓSU... ÉG LOSA MIG
VIÐ TEPPIÐ EF HÚN HÆTTIR
AÐ NAGA NEGLURNAR SÍNAR
OG ÞÚ ERT VISS UM AÐ HÚN
GETI EKKI HÆTT...
ÞAÐ ER
RISASTÓR
HROSSAFLUGA
Á HNAKKANUM
Á ÞÉR! ÉG NÆ
HENNI! EKKI
HREYFA ÞIG!
ER HÚN
ENNÞÁ
ÞARNA?
HREYFÐIR ÞÚ
ÞIG NOKKUÐ?
BURT MEÐ
ÞIG!
HVERNIG GETUM VIÐ
FENGIÐ PABBA ÞINN TIL
AÐ FARA SVO VIÐ
GETUM VERIÐ EIN?
GERÐU EITTHVAÐ
ÓVIÐEIGANDI...
SYNGDU
FYRIR
OKKUR
ÉG VEIT
EKKI HVAÐ
ÉG ÆTLA AÐ
KALLA ÞÁ...
EN MÉR ER
MJÖG ILLT
Í ÞEIM
KALLI, VIÐ HÖFUM
ÁKVEÐIÐ AÐ FINNA NÝJAN
GÍTARKENNARA HANDA ÞÉR
HVAÐ?
EN
SÓLEY ER
FRÁBÆR!
JÁ... EN
HÚN HEFUR
EKKI KENNT
ÞÉR NEITT!
OG?!?
EF ÞÚ ÞARFT EINHVERN
TÍMANN KENNSLU Í ÞVÍ
AÐ FÍFLAST ÞÁ GETUM
VIÐ HRINGT Í HANA
HVAÐ
ER AÐ,
JONAH?
STÆRSTI AUGLÝSAND-
INN OKKAR ER HÆTTUR
AÐ AUGLÝSA HJÁ OKKUR!
HELDUR ÞÚ AÐ
ÓVINUR ÞINN
HAFI HÓTAÐ
HONUM?
ÉG SÉ
ENGA AÐRA
SKÝRINGU
ÉG ÞORI AÐ
VEÐJA AÐ ÞESSI
FANTUR HEFUR
FUNDIÐ HANN
ÞAÐ ER KOMINN
TÍMI TIL AÐ ÉG
FINNI ÞENNAN
FANT!
MEÐAL sumarboðanna í Miðbænum eru útisölubásar á Laugaveginum.
Einn slíkur var fyrir utan Glætuna bókakaffi í sólskininu á dögunum og
setti notalegan svip á verslunargötuna.
Morgunblaðið/Heiddi
Nýtur sólarinnar
Þakkir
ÉG VIL koma á fram-
færi þakklæti til
starfsfólks hjartadeild-
ar Landspítalans, bæði
til lækna og annarra.
Ég vil árétta að hvert
fyrirtæki sem hefur
svo gott fólk í sinni
þjónustu má vera stolt
af því. Ég þakka mikið
fyrir mig og sendi
bestu kveðjur til allra
og gangi þeim sem
allra best.
Sæmundur
Þorsteinsson.
Sigur Vinstri grænna
VINSTRIHREYFINGIN – grænt
framboð vann stórsigur um allt
land en ekki síst í Norðvest-
urkjördæmi. Við fengum hér þrjá
menn kjörna á þing. Þar komu ný
inn þau Lilja Rafney Magnúsdóttir
frá Suðureyri og Ásmundur Einar
Daðason, bóndi á Lambeyrum í
Dalasýslu. Ásmundur er jafnframt
yngsti þingmaðurinn sem nú tekur
sæti á Alþingi, 26 ára gamall, fædd-
ur 1982. Geta má þess einnig að
fyrsti varaþingmaður VG í kjör-
dæminu, Halldóra Lóa Þorvalds-
dóttir í Reykholti er fædd 1981 og
annar varaþingmaður VG, Telma
Magnúsdóttir í Steinnesi, Austur-
Húnavatnssýslu er fædd 1983.
Kosningarbarátta VG í kjördæm-
inu var bæði kraftmikil og
skemmtileg. Formlegar kosn-
ingaskrifstofur voru á tíu stöðum í
kjördæminu en auk þess var á
mörgum heimilum, götuhornum og
hvar sem fólk hittist rekin kosn-
ingabarátta og málin skýrð. Við
háðum heiðarlega og málefnalega
baráttu sem hvíldi á okkar eigin
málstað og pólitískri sýn.
Við síðustu alþingiskosningar
fyrir tveimur árum fengu Vinstri
græn 16% atkvæða í kjördæminu
og voru hársbreidd frá því að fá tvo
menn kjörna. Nú fékk hreyfingin
22,8 % atkvæða og hefur þá ríflega
tvöfaldað fylgi sitt frá kosningunum
2003.
Fyrir hönd okkar sem erum nú
kjörin á þing fyrir VG í Norðvest-
urkjördæmi og annarra þeirra sem
skipuðu sæti á listanum okkar vil
ég þakka öllum þeim
fjölmörgu sem lögðu á
sig ómælda vinnu, hug
og hönd sem leiddi
okkur fram til þessa
glæsilega sigurs. Kjós-
endum þökkum við
stuðninginn og traust-
ið. Við höfum verk að
vinna, vorið með björt-
um nóttum fer í hönd.
Með óskum um
gleðilegt sumar og
baráttukveðjur á há-
tíðisdegi verkafólks 1.
maí.
Jón Bjarnason.
Nova hagstæðast
EFTIR að hafa farið í gegnum
hafsjó af tilboðum símafyrirtækj-
anna, skipt yfir frá einu í annað
vegna „best price for you“ tilboða
komst ég að þeirri niðurstöðu að
Nova er hagstæðasta símafyr-
irtækið í dag enda ekki sóandi
stórfé í auglýsingaherferðir – þang-
að hlýtur jú stór hluti „afraksturs-
ins“ að fara hjá hinum símafyr-
irtækjunum.
Harpa Karlsdóttir.
Lýst eftir armbandsúri
SILFURLITAÐ Delma-dömu-
armbandsúr með steinum, á bleikri
leðuról tapaðist í febrúar inni í
versluninni Krónunni á Bíldshöfða
eða á bílaplaninu þar fyrir framan.
Finnandi er vinsamlega beðinn
um að hafa samband við Ernu Elí-
asdóttur í síma 587-9027.
Eiginmaður Siggu týndi hring
GIFTINGARHRINGUR úr hvíta-
gulli fannst í Bankastræti. Inni í
hringnum stendur „Þín Sigga
22.07.06.“ Eiginmaður Siggu getur
haft samband í síma 692-0444.
Svuntan sem fauk
DÖKKBLÁ svunta fauk af Silver
Cross barnavagni 29. apríl í ná-
grenni við Framnesveg og Seljaveg.
Finnandi vinsamlegast hafi sam-
band í síma 697-5463.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Félag kennara á eftirlaunum | Á morg-
un, laugardag: Síðasti fræðslu- og
skemmtifundur vetrarins í Stangarhyl 4
hefst kl. 13.30. Aðalfundarstörf í lokin.
Félagsheimilið Gjábakki | Hin árlega
Vorsýning í Gjábakka hefst í dag kl. 14.
Vorsýningin verður opin 1.-3. maí kl. 14-
18. Handunnir nytja- og skrautmunir
unnir af högum höndum og hugviti eldra
fólks. Vöfflukaffi í boði frá kl. 14-17.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Hin ár-
lega vorsýning verður í Gullsmára dag-
ana 1.-3. maí og verður opin alla dagana
frá kl. 14-18. Vöfflukaffi verður selt alla
dagana kl. 14-17.
Hraunsel | 1. maí kaffi á vegum verka-
lýðsfélaganna, í Hraunseli, þar sem
kröfugangan endar.
Hæðargarður 31 | Málverkasýning Erlu
Þorleifsdóttur og Stefáns Bjarnasonar
opin kl. 13-17. Upplýsingar í Ráðagerði, s.
411-2790.