Morgunblaðið - 01.05.2009, Side 31
Menning 31FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2009
MIKIÐ verður um að vera í
Kaffistofu eða nemendagalleríi
myndlistarnema við Listahá-
skóla Íslands í kvöld þegar list-
nemar stofna fríríkið Kevidíu
sem opnar dyr sínar aðeins
þetta eina kvöld. Í Kevidíu lifa
allir sem kóngar, þar ráða allir
jafn miklu og gleðin er alltaf
við völd. Í Kevidíu er ekki bara
nammidagur á laugardögum
og þar er ávallt gott veður. All-
ir þekktir gjaldmiðlar eru verðlausir í Kevidíu en
með því að gefa af sjálfum sér má græða ýmislegt.
Viðburðurinn hefst stundvíslega kl. 20 á Hverf-
isgötu 42b. Allir eru velkomnir og allir geta tekið
þátt í því að móta ríkið.
Myndlist
Fríríkið Kevidía
stofnað
Ævintýr? Skjald-
armerki Kevidíu.
Í KVÖLD kl. 20 munu lista-
mennirnir Ylva Westerlund,
Runo Lagomarsino og Olivia
Plender kryfja hugmyndir sín-
ar og velta upp marglaga
spurningum varðandi sýn-
inguna Notes from The Living
Dead Museum sem verður
opnuð í Nýlistasafninu á morg-
un kl. 15. Sýningin stendur í
óákveðinn tíma fram á sumar í
bland við aðra viðburði, uppá-
komur og skrásetningu safneignar í Nýlistasafn-
inu. Áhugasömum er bent á viðamikla heimasíðu
safnsins: www.nylo.is. Safnið er á Laugavegi 26 og
er gengið inn Grettisgötumegin. Opið er alla daga
nema sunnudaga frá kl. 10-17.
Myndlist
Spurningum velt í
Nýlistasafninu
Nýló Verkin verða
brotin til mergjar.
HALDIÐ verður á Vopnafirði í
dag sameiginlegt málþing
Kaupvangs, menningar- og
fræðaseturs á Vopnafirði og
ReykjavíkurAkademíunnar í
dag. Um allt land er vaxandi
áhugi á fræðum og menningu
og byggðarlög eru að vakna til
vitundar um þau verðmæti sem
leynast í eigin ranni og aka-
demískir fræðimenn sýna þeim
vaxandi áhuga, eins og segir
tilkynningu. ReykjavíkurAkademían hefur unnið
markvisst að því undanfarin ár að efla með sam-
vinnuverkefnum fræðastarf um land allt. Mál-
þingið er liður í þeirri viðleitni að auka þá sam-
vinnu. Málþingið er öllum opið og hefst kl.12.
Málþing
Verðmætin í
menningunni
Þátttakandi Guð-
jón Friðriksson.
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
„DAGSKRÁIN verður í sérstöku
andrúmlofti Vatnasafnsins, þar sem
birtan leikur um glersúlurnar með
vatninu í,“ segir James Lingwood,
forstöðumaður bresku liststofnunar-
innar Artangel sem kom að stofnun
Vatnasafns í Stykkishólmi. Lingwo-
od er að tala um árlega vorhátíð
safnsins sem verður í kvöld. Þá
kveður gestahöfundurinn Anne Car-
son með upplestri, tónlistarmenn
koma við sögu, og Óskar Árni Ósk-
arsson sem tekur við af Carson.
„Öllum sem vilja sækja okkur
heim er boðið, dagskráin er til-
tölulega óformleg og afslöppuð.
Það má líta á þetta sem eins konar
uppskeruhátíð, leið til að deila því
sem Anne Carson og samstarfsfólk
hennar hefur ræktað meðan á dvöl
hennar hefur staðið.“
Carson er þriðji rithöfundurinn
sem er á launum í Vatnasafni; áður
hafa Guðrún Eva Mínervudóttir og
Rebecca Solnit verið þar við skriftir.
„Þetta eru allt framúrskarandi
höfundar og sýna vel hvers konar
gæði við viljum að Vatnasafn standi
fyrir,“ segir Lingwood. „Það er vel
búið að þessum höfundum og þeir
eru beðnir um að einbeita sér að sín-
um verkum og njóta aðstæðnanna
og aðbúnaðarins í Stykkishólmi.
Við opnun Vatnsafns vitnaði ég í
Virginiu Woolf sem sagði að það sem
kvenhöfundar þyrftu á að halda, og
þetta á við um karla líka, væru ein-
hverjir peningar og sérherbergi.
Þessir höfundar fá hvort tveggja.“
Hefur ekki hvolft
Lingwood flytur fyrirlestur á
mánudaginn klukkan 17.00, í ráð-
stefnusal Kaupþings í Borgartúni
17. Þar mun hann meðal annars
fjalla um Artangel, starfsemi sam-
takanna og fjármögnun menningar-
verkefna. Meðal stærri verkefna Ar-
tangel, auk Vatnasafns, er
fjármögnun hins víðfræga verkefnis
Rachel Whiteread, House, Seizure
eftir Roger Hiorns, og innsetningar
eftir Steve McQueen og Matthew
Barney. Artangel veltir, að sögn
Lingwoods milli einni og tveimur
milljónum punda árlega.
„Fjármögnum Artangel er blanda
af stuðningi ríkisins, stuðningi
einkageirans og alþjóðleg sam-
starfsverkefni. Í augnablikinu er
stuðningur ríkisins óbreyttur, fram-
lög einkageirans nokkuð stöðug –
við verðum að leggja harðar að okk-
ur við að ná í féð! – en alþjóðlegu
verkefnin byggjast á þeim að-
stæðum sem samstarfsaðilar okkar
eru í. Það er viðkvæmasti þátturinn.
En þetta eru erfiðir tímar. Við
verðum að finna leiðina um þennan
úfna sjó. Sem betur fer hefur okkur
ekki hvolft,“ segir hann.
Menningin er aflvaki
Lingwood segir menningarlífið
standa í ágætum blóma í Englandi,
þrátt fyrir umrót á mörkuðum.
„Aðsókn á alla menningar-
viðburði, á söfn og á tónleika er mjög
góð. Við höfum áhyggjur af því hvort
vera kunni af óveðrið sé enn ekki
skollið á af fullum krafti. Við vitum
ekki hvort, eða hver áhrifin verða þá
á menningarstarfsemi.
Það má færa góð rök fyrir því að
menning og listir hafi ekki komið
okkur ofan í þessa holu, en hins veg-
ar er ég sannfærður um að menning
og listir geta átt stóran þátt í að
koma okkur úr henni!
Þá verður að viðhalda fjárfesting-
unni sem sett er í þetta svið þjóðlífs-
ins. Fé sem hið opinbera setur í list-
sköpun af öllu tagi er afar mikilvæg
fjárfesting þessa dagana. Menningin
er einn aðalaflvaki samfélagsins.“
Menningin til bjargar
James Lingwood, forstöðumaður Artangel-stofnunarinnar, er sannfærður um að
menning og listir geti átt þátt í að koma samfélögum upp úr efnahagslægðinni
Morgunblaðið/Einar Falur
Uppskeruhátíð Í kvöld er dagskrá í Vatnasafni sem hýsir verk Roni Horn,
sem er hér með James Lingwood, stjórnanda liststofnunarinnar Artangel.
LISTMÁLARARNIR Tryggvi Ólafsson og Daði
Guðbjörnsson opna sýningar í Gallerí Fold við
Rauðarárstíg í dag klukkan 15.00.
„Þetta er í fyrsta sinn sem ég hef prófað að vera
málari hér á Íslandi,“ segir Tryggvi sem flutti
heim frá Danmörku 67 ára gamall en þangað flutti
hann 21 árs. Hann sýnir 20 málverk frá síðustu
þremur árum. „Nú get ég málað á minni litlu
vinnustofu hér,“ segir hann. „Að mála hefur með
vellíðan að gera. Ég get ekki málað á hlaupum. Í
nýja hreiðrinu mínu er hægt að matbúa og hlusta
á músík – og mála.
Ég kom heim þegar allir þessir vitleysingar
voru búnir að velta bönkunum. Þegar ég fór til
Danmerkur voru fyrirmyndirnar menn sem voru
að yrkja og tóku í nefið. Á síðustu árum voru fyr-
irmyndirnar gangsterar sem þóttust kunna betur
að fara með peninga en allir aðrir í heiminum.“
Tryggvi hristir höfuðið. „Svo kemur í ljós að þetta
voru vitleysingar. Það er alltaf talað niður til okk-
ar listamanna, eins og við kunnum ekkert. En ég
er ekki kominn á hausinn ennþá! Ég gat keypt
mér íbúð, skuldlausa – og mála þar.“
Daði sýnir ný olíumálverk í Hliðarsal Gallerís
Foldar. Ísland án tára kallar Daði sýninguna en
myndirnar eru allar málaðar á síðustu mánuðum.
„Það er kannski ekki ástæða til bjartsýni en
þessi efnisheimur er tóm blekking, þannig að þótt
fólk leggist í neikvæðni þá sé ég ekki ástæðu til að
vera þeim samferða,“ segir Daði. „Ég kýs að
halda mínu striki. Jarðlífið er alltof stutt til að
njóta þess ekki. Ég reyni að auka jákvæðnina í
heiminum með því að mála jákvæðar myndir.
Nógu margir eru í einhverju öðru.“
Halda sínu striki
Málararnir Daði Guðbjörnsson og Tryggvi Ólafs-
son halda ótrauðir áfram þótt stofnanir nötri.
Tryggvi Ólafsson og Daði Guðbjörnsson sýna ný verk
DAGSKRÁ verður í Vatnasafni í
Stykkishólmi í kvöld klukkan
20.00, þar sem haldið verður upp
á upphaf þriðja sumars safnsins
sem hýsir verk listakonunnar Roni
Horn.
Kanadíska skáldkonan Anne
Carson, sem hefur verið starfandi
gestahöfundur í Vatnasafni síð-
ustu mánuði, les í fyrsta sinn úr
sonnettusveig sem hún hefur unn-
ið að meðan á dvölinni hefur stað-
ið og er tileinkaður Horn; You Can
Cage A Swallow Can’t You But You
Can’t Swallow A Cage Can You.
Sambýlismaður Carson, Robert
Currie, kemur að flutningnum, og
einnig tónlistarfólkið Ólöf Arnalds
og Kjartan Sveinsson.
Þá les Óskar Árni Óskarsson,
sem er að taka við sem starfandi
höfundur í Vatnasafni, úr verkum
sínum og þýðingar Gyrðis Elías-
sonar á ljóðum eftir Carson. Allir
eru velkomnir í Vatnasafn og að-
gangur er ókeypis.
Carson, Ólöf, Kjartan og Óskar Árni
Einfaldlega leið til
að uppgötva þá
orku sem býr innra með
okkur öllum 34
»
Enn sem stundum áðursannaðist á sinfóníutón-leikunum á föstudaghvernig aðsókn getur
verið í öfugu hlutfalli við gæði –
jafnt verkavals sem flutnings. Há-
tíðarforleikur Dmitris Sjostakovitsj
frá 1954 er borinn uppi af sérlega
orkuríku pjátri og var hressilegur
áheyrnar að sama skapi. Undarlegt
til þess að hugsa að hann skyldi
fyrst fluttur hér
40 árum síðar
eða 1994.
Sömuleiðis var
sláandi hvað
sveitin var komin
í mikið banastuð
nánast frá fyrsta
takti, ólíkt því
sem algengt er –
jafnvel þótt
þrautþjálfaðir at-
vinnumenn eigi
ekki að þurfa undangengna upp-
hitun eins og tíðkast með söng-
kórum. Hvernig sem á því stóð, þá
small Hátíðarforleikur Sjostako-
vitsjar (1954)
manni í vit þegar
í blábyrjun líkt
og einhver hefði
æpt „Gas! Gas!“
Ekki sízt þökk sé
smellandi sam-
taka lúðra-
blæstri, er hefði
sómt sér með
glæsibrag í
breiðtjaldsvestra
frá Hollywood.
Kankvís c-moll konsert sovézka
meistarans fyrir píanó, fylgitrom-
pet og strengi frá 1933 virkar
stundum eins og sýruð skrumskæl-
ing á hárómantík. Hann er ekki
verri fyrir það, og á sínar skáldlegu
hliðar þrátt fyrir íbyggið grín og
glens. Hinn ungi Cédric Tiberghien
lék snotvakurt við fágaðan tromp-
etmótleik Eiríks Arnar Pálssonar í
fullkomnu jafnvægi við strengja-
sveitina, og tók Tiberghien síðan
tvö vesturrúmensk þjóðlög Bélu
Bartóks að eldheitu uppklappi.
Rússneska melódíkin hélt áfram
að flæða óheft eftir hlé, nú í 5. sin-
fóníu Tsjækovskíjs frá 1888. Þótt
sú Fjórða („Litlarússneska“) sé
persónulega í meira uppáhaldi (og
t.a.m. lausari við fullmörgu fjór-
tekningar Fimmunnar á smáhend-
ingum), býður verkið samt upp á
ríkulega möguleika í túlkun. Ru-
mon Gamba nýtti sér flest í hörgul,
með áberandi meiri ljóðrænni yf-
irvegun en hann hefur stundum átt
til á hægum stöðum. Snerpan hélzt
samt neistandi fjörug á sprækari
augnablikum, með allt upp í fjað-
urhá „Lenny leaps“ á la Bernstein
þegar sá gállinn var á stjórnand-
anum. Enda var túlkunin í hvílíkum
toppflokki að verðskuldaði hiklaust
24 tíma vaktavinnu við að koma
framtíðarkonserthúsinu upp sem
snarast, hvað sem öllu kreppunið-
urtali líður. Eftir foráttubrimseyga
lófatakinu að dæma voru áheyr-
endur á sama máli.
Kvöld
hinna lið-
ugu lúðra
Háskólabíó
Sinfóníutónleikar bbbbb
Sjostakovitsj: Hátíðarforleikur í A Op.
96; Píanókonsert nr. 1 Op. 35. Tsjækovs-
kíj: Sinfónía nr. 6 í e Op. 64. Cédric Ti-
berghien píanó; Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands. Stjórnandi: Rumon Gamba.
Föstudaginn 24. apríl kl. 20.30.
RÍKARÐUR Ö.
PÁLSSON
TÓNLIST
Tónskáld
Sjostakovitsj
Hljómsveitarstjór-
inn Rumon Gamba