Morgunblaðið - 01.05.2009, Síða 32
32 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2009
Hljómsveitin
Steed Lord með
Svölu Björgvins-
dóttur í broddi
fylkingar er á
leiðinni til Pól-
lands þar sem
sveitin mun spila
í samkvæmi á vegum hinnar evr-
ópsku MTV-sjónvarpsstöðvar. Sam-
kvæmið verður í Varsjá 16. maí og
því ljóst að Steed Lord mun ekki
fylgjast með úrslitunum í Evr-
óvisjón sem fram fara sama kvöld.
Enda kannski ekki þeirra tebolli...
Spila fyrir fína og
fræga fólkið á MT
Fólk
Sá orðrómur
er kominn á
kreik að hljóm-
sveitin Sigur Rós
sé á leið í hljóð-
ver í maí til að
taka upp sjöttu
breiðskífu sveit-
arinnar. Eitt-
hvað mun vera til í þeim orðrómi þó
að skipulegar upptökur hafi ekki
verið niðurnegldar skv. heimildum
Morgunblaðsins. Þá mun það setja
strik í reikninginn að Jónsi, söngv-
ari Sigur Rósar, hefur nýverið gef-
ið út plötuna Riceboy Sleeps með
kærasta sínum Alex Somers. Sam-
an hyggjast þeir kynna plötuna eins
víða og mögulegt er og því tak-
markaður tími sem söngvarinn hef-
ur til að sinna upptökum. Þar fyrir
utan hafa þær sögusagnir heyrst að
Jónsi sé með í undirbúningi sóló-
plötu en þær fréttir hafa enn ekki
fengist staðfestar úr herbúðum
sveitarinnar.
Sigur Rós á
leiðinni í hljóðver
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞAÐ er rosalega mikill áhugi, meiri
en ég bjóst við,“ segir Linda Björk
Sumarliðadóttir, formaður Bretta-
félags Íslands, um hjólabretta-
samkomu sem haldin verður um
næstu helgi og er eingöngu ætluð
stelpum. „Við hvetjum stelpur til að
koma í Parkið, og koma út að skeita.
Það hefur ekki verið mikið af stelpum
í þessu, þær eru svolítið feimnar.
Þannig að allar stelpur eru velkomn-
ar, hvort sem þær hafa aldrei farið á
hjólabretti eða eru vanar,“ segir
Linda, en samkoman verður haldin í
Skateparkinu á horni Vesturgötu og
Seljavegar laugardaginn 9. maí.
„Við gerðum þetta fyrir svona
tveimur árum og þá mættu margar
stelpur. Það var rosalega gaman og
hvatti margar stelpur til að byrja að
skeita,“ útskýrir Linda.
Snjóbrettin vinsæl
Á staðnum verða nokkrir kennarar
sem munu aðstoða byrjendur sem og
lengra komna við að fóta sig á brett-
inu. „Það verða stelpur á staðnum
sem eru mjög góðar, og svo verður
strákur frá Brettafélagi Reykjavíkur
sem ætlar að leiðbeina. Þannig að
hvort sem menn eru lengra komnir
eða nýbyrjaðir geta menn fengið
ábendingar um hvernig eigi að gera
hitt og þetta.“
Aðspurð segir Linda að Bretta-
félag Íslands hafi hingað til einblínt á
snjóbrettin, en nú ætli félagið að
víkka sjóndeildarhringinn og gera
meira varðandi hjólabrettin. Þá segir
hún að þessi tvö jaðarsport fari oft
saman hjá fólki. „Það var allavega
þannig í gamla daga að þetta var
mikið til sama fólkið. En í dag er það
að fara á snjóbretti bara eins og að
fara á skíði. En fólkið sem er í kjarn-
anum, ef hægt er að orða það þannig,
er rosalega mikið bæði á hjóla- og
snjóbretti,“ segir Linda og bætir því
við að vinsældir snjóbretta séu stöð-
ugt að aukast. „70% þeirra sem
stunda Bláfjöll og Hlíðarfjall eru t.d.
snjóbrettafólk, sem eru ansi margir.“
Linda hvetur stelpur á öllum aldri
til að mæta í Skateparkið hinn 9. maí
kl. 18. Miðaverð er 500 kr. og sérstök
hvatningarverðlaun verða veitt.
Allar stelpur út að skeita
Brettafélag Íslands hvetur stelpur til að koma á hjólabretti um næstu helgi
„Það hefur ekki verið mikið af stelpum í þessu, þær eru svolítið feimnar“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Brettastelpur Linda (t.h.) ásamt Hebu Shahin sem vinnur einnig að skipu-
lagningunni fyrir næstu helgi. Þær hvetja stelpur á öllum aldri til að mæta.
Linda segir aðstöðu fyrir hjóla-
brettafólk góða um þessar
mundir, og að þar skipti Skate-
parkið sköpum. „En við höfum
oft verið búin að setja upp
svona aðstöðu, en svo misst
húsnæðið. Það er nefnilega ekki
mikill peningur settur í þessa
senu, en fólkið sem stendur að
þessu er svo áhugasamt að það
kemur hlutunum bara í gang,“
segir hún.
Góð aðstaða
www.brettafelag.is
Öruggt skjól í nýrri eign
FAGMENNSKA
METNAUR
REYNSLA
www.bygg.is
Glæsilegar,
vandaðar íbúðir
• Vandaðar íslenskar
innréttingar úr eik frá
Brúnás
• Innihurðir og flísar frá
Agli Árnasyni
• AEG eldhústæki frá
Ormsson
• Gólfhiti í baðherbergi
• Álklæðning utanhúss
Sími 562 4250
www.fjarfesting.is
FJÁRFESTING
FASTEIGNASALA EHF
BORGARTÚNI 31
Kynntu þér eignir á sölu hjá Bygg á heimasíðu þeirra, bygg.is
Lundur • Langalína • Jónshús • 17. júní torg
Lundur 1-3
Jónshús
Langalína 9-11
Vesturbrú 1
17. júní torg
GLÆSILEGAR SÝNINGARÍBÚIR– hafðu samband og við aðstoðum þig við að finna íbúðina þína
Einnig er möguleiki á leigu!
UPPLÝSINGAR UM SKOÐUN
Hilmar: 896 8750
Benedikt: 693 7304
fyrir 60 ára og eldri
fyrir 50 ára og eldri