Morgunblaðið - 01.05.2009, Page 40
FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 121. DAGUR ÁRSINS 2009
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Landgrunn Íslands metið
Greinargerð um landgrunn Ís-
lands hefur verið afhent landgrunns-
nefnd Sameinuðu þjóðanna. Hún
liggur til grundvallar um þau svæði,
utan 200 sjómílna, sem munu til-
heyra landgrunni Íslands sam-
kvæmt hafréttarsamningi SÞ.
Íslendingar hafa nýtingarrétt yfir
þeim auðlindum sem kunna að finn-
ast í þeirra landgrunni. »15
Þrjár hafa játað
Árás sem var gerð á fimmtán ára
stúlku í Heiðmörk á miðvikudag er
að mestu leyti upplýst. Játningar
liggja fyrir, en þrjár stúlkur virðast
hafa haft sig mest í frammi. »4
Ekki endilega mannskæður
Mjög líklegt er talið að svínaflens-
an verði að heimsfaraldri en ekki
víst að hann verði mannskæður.
Ekki er vitað til þess að Íslendingar
hafi smitast af flensunni. »14, 18
SKOÐANIR»
Staksteinar: Meiri misskilningur
Pistill: Varúð! Evrópuáróður
Forystugrein: 1. maí
Ljósvakinn: Kiljan hefst strax að
leik loknum
UMRÆÐAN»
Fjárlagahallinn
Öflug löggæsla er skynsamleg fjár-
festing
Viltu deyja frammi á gangi?
Höfðinginn Pontiac heyrir brátt sög-
unni til
Sitt lítið af hverju fyrir bíleigandann
Krúsað á Cruze
BÍLAR»
!
"
# $
%
%
"
&' ("'
" )
*+,-./
*00-11
*2,-,,
++-,3,
*.-1+*
*/-3,.
***-.+
*-+.+.
*.2-+*
*,0-.+
4 564 12# 758 +22.
*+3-+/
*00-3.
*2,-.3
++-39+
*.-130
*/-0*/
**+-+1
*-+.,3
*.2-30
*,.-1.
++2-+239
&:7
*+3-//
*0.-+/
*23-+0
++-020
*.-91/
*/-0,*
**+-/9
*-122/
*.*-1/
*,.-0,
Heitast 10° C | Kaldast 3° C
Austan- og norð-
austan 5-13 framan af
en 8-13 suðvestanlands
í kvöld. Talsverð úr-
koma suðaustanlands. » 10
Leikarar hafa hækk-
að launataxta sinn í
trássi við kvik-
myndaframleið-
endur sem eru að
vonum ósáttir. »37
KVIKMYNDIR»
Í hár
saman?
ANDANS MÁL»
Bjargvætturinn David
Lynch er kominn. »34
Eyfirski safnadag-
urinn fer fram í
þriðja skiptið um
helgina og af nógu
er að taka í safna-
flórunni þar. »36
SÖFN»
Safnasæla
fyrir norðan
ÍSLENSKUR AÐALL»
Bjartmar lætur ekki að
sér hæða. »33
TÓNLIST»
Ný plata væntanleg frá
Sigur Rós? »32
Menning
VEÐUR»
1. Gáfu sig fram við lögreglu
2. „Hefði aldrei getað greitt þetta“
3. Fjölskyldan er í sjokki
4. Fæddi barnið í framsætinu
Íslenska krónan stóð í stað
»MEST LESIÐ Á mbl.is
MÉR er efst í huga ótrúleg aðdáun á keppendunum, þeir toppuðu sig hver
á fætur öðrum,“ segir Andrés Guðmundsson, framkvæmdastjóri Skóla-
hreysti. „Þegar krakkarnir hafa keppnina til að stefna að sjáum við að
kaðlarnir og armbeygjurnar hafa aftur öðlast tilgang. Við erum búin að
dusta rykið af gamla Tarsanleiknum.“ Heiðarskóli fór með sigur af hólmi
og á eftir fylgdu Foldaskóli og Háteigsskóli. halldorath@mbl.is
Heiðarskóli sigraði í tólf skóla úrslitum Skólahreysti í Laugardalshöllinni
Morgunblaðið/Kristinn
Skólahreysti dustar rykið af Tarsanleiknum
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
HALLDÓR Helgason, 18 ára piltur úr Hörgárbyggð í
Eyjafirði, sigraði á dögunum á sterku snjóbrettamóti í
Geilo í Noregi; hafði þar betur í einvígi við tvo mjög
þekkta kappa og hlaut 100.000 norskar krónur í sig-
urlaun. Það eru tæpar tvær milljónir íslenskra króna.
Halldór fetaði aðeins níu ára í fótspor eldri bróð-
urins, Eiríks, sem einnig hefur getið sér gott orð á snjó-
bretti. Báðir hafa verið meira og minna erlendis síð-
ustu ár og Halldór stundar nú nám við snjóbrettaskóla í
Svíþjóð þótt mestur tíminn fari raunar í flakk um heim-
inn ásamt kvikmyndatökumönnum. Þær upptökur eru
fyrir kvikmynd sem væntanlega verður tekin til sýn-
ingar í haust.
Hann segir starfið draumi líkast. Í vetur hefur Hall-
dór verið við stökk og myndatökur í Ástralíu, Aust-
urríki, Sviss, Kanada, Bandaríkjunum, Noregi, Þýska-
landi og hér heima á Íslandi.
Mótið í Noregi er kennt við Andreas Wiig, goðsögn í
snjóbrettaheiminum, og hann var einmitt einn kepp-
enda. Það að sigra slíkan kappa þykir glæsilegt afrek.
Annar frægur, Torstein Horgmo, keppti á mótinu og
laut í lægra haldi fyrir Halldóri. Bæði Horgmo og Wiig
hafa sigrað á X-leikunum í Aspen í Bandaríkjunum,
stærstu snjóbrettakeppni í heiminum árlega, en þang-
að er aðeins þeim bestu boðið.
Halldór sigraði á mótinu í Noregi með glæsilegu tvö-
földu heljarstökki aftur á bak með tvöfaldri skrúfu.
100.000 norskar Halldór Helgason tekur við verð-
launafénu í Noregi. Andreas Wiig afhenti það sjálfur.
Fékk 2 milljónir í sigurlaun
á snjóbrettamóti í Noregi
Brattur á brettinu
BRETTAFÉLAG Íslands, sem
m.a. hefur hjólabrettaiðkun á sín-
um snærum, stendur fyrir sér-
stöku átaki nú um helgina og
snýst það um að fá fleiri stelpur
til að skella sér á brettin. Nú er
vor í lofti og gósentíð slíkra æf-
inga að ganga í garð og vill Linda
Björk Sumarliðadóttir, formaður
félagsins, eindregið hvetja kyn-
systur sínar til að kýla á það og
mæta á brettavöllinn sem er á
horni Vesturgötu og Seljavegar.
„Við hvetjum stelpur til að koma í
parkið og koma út að skeita. Það
hefur ekki verið mikið af stelpum í
þessu, þær eru svolítið feimnar,“
segir Linda m.a. í spjalli við
Morgunblaðið. Herlegheitin fara
fram á morgun, laugardag, kl. 18
og því ráð að pússa brettið upp,
fægja það og bóna í dag. | 32.
Stelpur fetti
sig og bretti
Brattar Heba og Linda.