Félagsblað íþróttafélags Reykjavíkur - 01.03.1931, Qupperneq 1

Félagsblað íþróttafélags Reykjavíkur - 01.03.1931, Qupperneq 1
FJELAGSBLAÐ iMémFJEIAGS FElKJSWlHIR 3. ÁRG. 1. TÖLUBL. ÚTGEFANDI: STJÓRN í. R. ÁBYRGÐARMAÐUR: SIGURLIÐI KRISTJÁNSSON M A R S 1931 Aðalfundur í. R. var haldinn 25 janúar í húsi félagsins að Landakoti. Eitt af því merkasta sem á fundinum gerðist, var lagabreyting, að í stað 5 manna er áður voru í stjórn skulu nú »i stjórn félagsins vera sjö menn og sltal að minsta kosti einn stjórn- armaður vera kona«. Þessir hlutu kostningu: Þorst. Sch. Thorsteinsson, lyfsali, form. Laufey Einarsdóttir, bókhaldari, ritari. Þórarinn Arnórsson, forstjóri, gjaldkeri. Jón Kaldal, ljósmyndari. Haraldur Jóhannessen, bankafulltrúi. Sigurliði Kristjánsson, kaupmaður. Helgi Jónasson frá Brennu. Stjórnin heldur fasta fundi á skrif- stofu fjelagsins lrvern fimmtudag og skrifstofan er opin á mánudögum, mið- vikudögum og föstudögum kl. 8 til 9 og á þriðjudögum kl. 6 til 7. B r o t. 1907, þann 11. marz, var íþróttafélag Reykja- víkur stofnað af nokkurum Reykvíkingum, sem áhuga höfðu fyrir íþróttum. Aðalhvatamaður og fyrsti formaður var hr. stórk. Andr. J. Bertelsen. Það sýndi sig brátt, að þessir ungu menn, sem þarna komu saman fyrir tuttugu og fjórum ár- um, létu ekki sitja við orðin tóm, því á skömm- um tíma efldist félagið að meðlimum og ýms- um áhugamálum, ber því eltki úr vegi, í sam- bandi við 24 ára afmæli félagsins, að minnast nokkuð á sum af helztu atriðum í starfsemi þess. I öll þessi ár hefir starfsemi félagsins svo að segja legið sem rauður þráður gegnum íþrótta- hreifingu þessa bæjar og landsins í heild, og varla hefir nokkru atriði í því máli verið hrundið af stað, án þess að það hafi lagt þar góðan skerf til, eða beitt sér fyrir því upp á eigin spýtur, af eigin ramleik. Og eins og alltaf vill verða, mæðir mest á sttjórn félagsins með allar framkvæmdir, og svo hefir það einnig verið hjá í. R. Það hefir því komið sér vel, að félagið hefir ávallt haft at- orku- og hugsjónamenn til þess að skipa í þau sæti. í. R. er fyrsta íþróttafélag á landinu, sem beitir sér fyrir æfingum í frjálsum íþróttum, og fyrst til þess að kaupa fullkomin áhöld til þeirra hluta frá útlöndum. í. R. var eitt þeirra félaga, sem beitti sér fyrir byggingu íþróttavallar í Reykjavík. í. R. stofnaði, ásamt öðrum íþróttafélögum á landinu, íþróttasamband Islands, og sendi I. S. í. í því sambandi fyrsta starfsfé þess. í. R. hélt fyrsta víðavangshlaup hér á landi, og heldur árlega; þá kepptu einungis menn frá í. R. í. R. myndar 1920 Olympíusjóð íslands, með kr. 500.00. I. R. heldur 1922 fyrsta íþróttanámsskeið fyr- ir allt Island, í fimleikum, frjálsum útiíþróttum,

x

Félagsblað íþróttafélags Reykjavíkur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsblað íþróttafélags Reykjavíkur
https://timarit.is/publication/760

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.