Félagsblað íþróttafélags Reykjavíkur - 23.04.1931, Qupperneq 1

Félagsblað íþróttafélags Reykjavíkur - 23.04.1931, Qupperneq 1
FJ E lAG S B LAÐ iM’ómr.nr «is eeykmvíkidir 3. ARG. 2. TÖLUBL. ÚTGEFANDI: STJÓRN í. R. ÁBYRGÐARMAÐUR: SIGURLIÐI KRISTJÁNSSON 1. Sumardag' ur 1931 HvERSU mikil ástæða er það ekki fyrir okkur Islendinga að fagna vel hverju sumri, er held- ur innreið sína. — En það vill oftast nær verða svo, að við erum varla búnir að átta okk- ur á því, hvað hefir verið að ske fyrr en sum- arið er horfið, daginn er farið að stytta, myrkrið farið að fær- ast yfir og kuldi og snjór farinn að gera vart við sig. Allan veturinn, frá . því snemma að haustinu til, þegar við sjáum, að við erum búnir aS missa af því sumri, sem var að kveðja, bíðum við í eftirvænt- ingu eftir því að næsta sumar ’.áti bóla á sér, en svo fer allt á sömu leið, að við verðum of sein, of seinir að njóta þessara táu mánaða, sem eru lífgjafar þess, sem hefir legið í dái í kulda og myrkri vetrarins. Því skyldum við mennirnir ákki þurfa að íklæðast nýjum ham eins og jörðin, sem við göngum á? Því ekki að verða að- njótandi þess sama, sem gefur grasinu á jörðinni endurlífgun, sólarljóssins hreina og heilnæma fjallaloftsins og vatnsins, sem er orðið tárhreint af því að brjót- ast upp úr djúpi jarðarinnar. Þetta er þess utan sá unaður sem engu fé þarf að fleygja fyr- ir, og hann gefur oftast nær mest varanlegt í aðra hönd. Hversu meiri ástæða er ekki fyrir okkur hér heima að fagna vel sumrinu, heldur en margai aðrar þjóðir á hnettinum, þar sem mjög lítil skilgreining er á vetri og sumri, og þó er þar uppi fótur og fit. Fyrir íþróttamanninn er sérstaklega ástæða til að gdeðjast, því að vetrinum til er starfi hans of mikið afmarkaður bás, þar sem æfingar þurfa að mestu leyti að fara fram inn- anhúss og fjölbreittni afar lítil. En þegar hlýnar í veðri og jörð- in tekur stakkaskiptum, þegai blotinn fer úr jarðveginum og jörðin íklæðist grænum skrúða sínum, getur íþróttamaðurinn víkkað starfssvið sitt. Þá er svo margt, sem stendur honum til boða, margt sem laðar: frjálsar útiíþróttir, knattspyrna, sund, tennis, hlaup og göngur um fjöll og firnindi. Það er því óskandi, að allir íþróttamenn stígi nú á stokk og ákveði með sjálfum sér: nú verð eg að nota komandi sumar vel, byrja snemma og æfa af kost- gæfni undir þær keppnir, sem fram eiga að fara, þegar líður að miðju sumri, en ekki að láta kæruleysi og drátt valda þvi að hann komi óundirbúinn til keppni, eins og svo oft hefir vilj- að brenna við. Það eru ekki einungis meðlim- ir íþróttafélaga, sem þurfa að hafa gát á sumrinu. Jafnvel enn- þá meiri ástæða er fyrir þá bæj- arbúa, sem sjaldan hafa nokkra hreyfingu að vetrinum til, að njóta veðurblíðunnar, ennþá meiri ástæða fyrir þá að fara 5LKT1RR Það blotar í fönnum í jöfcla sal. Vídananshlaiipsbikar i. R., gefin af Silla & Valda. — Handhafi Knatt- spyrnufélag Reijkjaníkur.

x

Félagsblað íþróttafélags Reykjavíkur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsblað íþróttafélags Reykjavíkur
https://timarit.is/publication/760

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.