Félagsblað íþróttafélags Reykjavíkur - 24.10.1931, Blaðsíða 5
FÉLAGSBLAÐ ÍÞRÓTTAFÉLAGS REYKJAVlKUR
L ö g
Iþróttafélags Reykjavíkur.
1. gr. — Félagið heitir íþróttafélag Reykja-
víkur.
2. gr. — Markmið félagsins er að iðka fim-
leika og aðrar íþróttir og glæða áhuga á þeim.
3. gr. — Félagsmaður getur hver sá orðið,
sem þess æskir og hefir samþykki stjórnarinnar,
enda greiði hann ársgjald yfirstandandi árs.
4. gr. — Heiðursfélaga má stjórnin kjósa
þegar henni þykir ástæða til, en kjörnir skulu
þeir með öllum samhljóða atkvæðum stjórnar-
ínnar. Heiðursfjelagar hafa öll réttindi félags-
manna en eru gjaldfríir.
5. gr. — Tillög til félagsmanna eru þessi:
a. Fullorðinna:
1. Ársgjald kr. 12.00.
2. Æfingagjald kr. 1.00 á mánuði.
b. Yngri félagar en 14 ára eru gjaldfríir
fyrsta árið, en greiða síðan 5 kr. ársgjald.
c. Æfifélagar greiði 50 kr. í eitt skifti fyrir
öll.
Öll gjöld greiðist fyrirfram.
Gjaldkera skal, í samráði við stjórnina heim-
ilt að breyta gjöldunum í einstöku tilfellum und-
:'r alveg sérstökum kringumstæðum, og ef félag-
íð héfir hag af.
6. gr. — í stjórn félagsins eru sjö menn og
skal minnst einn þeirra vera kona: Formaður,
varaformaður, ritari, gjaldkeri og þrír með-
stjórnendur. Stjórnin skal kosin skriflega á að-
alfundi til tveggja ára í senn. og fara þrír frá
árlega; skulu þeir dregnir út með hlutkesti
í fyrsta skifti. Formaður skal lcosinn sér og fer
hann frá hvert ár. Sjálf skiftir stjórnin með sér
störfum. Þá skal og kjósa þrjá menn í varastjórn
og tvo endurskoðendur.
7. gr. — ’Stjórninni ber að gæta hagsmuna
íclagsins í öllum greinum. Hún hefir umráð yfir
ölium eignum þess, boðar fil funda. ákveður í-
þróttaæfingar, bæði sumar og vetur, stofnar til
fimleikasýninga og íþróttakappleika og ræður
tilhögun þeirra. Stjórnin getur enga fullnaðar-
ályktun tekið nema fjórir stjórnendur sje henni
fylgjandi. Stjórnin getur vikið mönnum úr fé-
laginu álíti hún framkomu þeirra félaginu til
vansa.
8. gr. — Aðalfund skal halda í októbermán-
uði ár hvert og aukafundi svo oft sem stjórninni
þykir þurfa, eða ef skrifleg ósk kemur um það
frá eigi færri en 10 félagsmönnum.
Til aðalfundar skal boða með minnst viku fyr-
irvara, og er hann lögmætur án tillits tii þess,
hve margir mæta.
Á hverjum félagsfundi skal kjósa sérstakan
fundarstjóra.
Á aðalfundi skulu mál tekin fyrir í þeirri röð
er hér segir:
I. Stjórnin skýrir frá hag félagsins og fram-
kvæmdum á umliðnu starfsári og starfstil-
högun á yfirstandandi ári og ástæður fyrir
þeim. Hún leggur fram til úrskurðar end-
urskoðaðan reikning félagsins með svörum
stjórnarinnar.
II. Kosin stjórn, fastar nefndir og fulltrúar.
III. Önnur mál.
Á fundinum ræður meirihluti atkvæða úrslit-
um allra mála. Ef atkvæði eru jöfn, ræður at-
kvæði fundarstjóra úrslitum. Hlutlausir félagar
hafa tillögurétt á fundinum, en ekki atkvæðis-
rétt. Kjöraldur í félaginu er 14 ár.
9. gr. — Stjórnin, ásamt kennurum þeim, er
félagið ræður handa sér, sltal ákveða hverjir af
starfandi félögum skulu taka þátt í opinberum
sýningum.
Fimleikabúningur félagsins er:
a. Kvenna:
Al-grár.
b. Karla:
Al-hvítur, með merki félagsins á brjósti.
c. Útiæfingabúningur félagsins er:
Hvít skyrta með ca. 15 mm. breiðri blárri
rönd um hálsmál og félagsmerki á brjósti
og hvítar stuttar buxur einnig með ca. 15
mm. breiðri blárri rönd um mitti, skálm-
ar og á hliðarsaumum.
10. gr. — Líði félagið undir lok, skal I. S. í.
(íþróttasamband íslands) falin umráð yfir eign-
um þess, þar til er stofnað verður annað félag í
Reykjavík með líku markmiði. Á slíkt félag rétt
á að fá eignir félagsins afhentar ef í. S. í. telur
líklegt, að það muni geta starfað að því marki,
er það hefir sett sér.
11. gr. — Lögum þessum má eigi breyta
nema með samþykki minnst % hluta atkvæða á
löglegum aðalfundi.
(Samþykkt 25. jan. 1931).