Félagsblað íþróttafélags Reykjavíkur - 24.10.1931, Side 8
6
FÉLAGSBLAÐ ÍÞRÓTTAFÉLAGS REYKJAVÍKUR
og göfugar íþróttir, og á þann hátt veita mönn-
um alhliða þroska, ekki-einungis alhliða líkam-
legan þroska, heldur einnig andlega. Gera menn
fegurri, traustari og prúðari í allri framgöngu
og ekki sist efla fagran og drengilegan hugsun-
arhátt í hvívetna.
Kæru félagar! Máttur samtakanna er mikill,
tökum nú saman höndum og reynum að sýna það
í verkinu á 25 ára afmæli félagsins að þessar
hugsjónir séu að rætast fremur en nokkurn tíma
áður. Höldum til afmælisins með því að sýna alla
flokka félagsins fullskipaða. Ennfremur er hægt
að bæta mönnum í hvern flokk.
Eg treysti því, að þið fjölmennið á næstu æf-
ingar í vetur. Hver félagsmaður á skilyrðis-
laust að koma með minnsta kosti einn nýjan fé-
laga. Sæmd félagsins er ykkar sæmd. f.R. hefir
oftast átt bezta fimleika- og íþróttamenn þessa
lands, en í framtíðinni á það einnig að eiga þá
fleiri en nokkurt annað íþróttafélag.
Með kærri kveðju og bezta trausti.
Ykkar einlægur
Aðalsteinn Hallsson.
H vöt.
Kæru félagar!
Heilbrigðar iþróttir og leikfimi skapa and-
legt og líkamlegt þol. Baráttan fyrir tilverunni
útheimtir viljafestu og líkamlegan þrótt, þessa
eiginleika eiga íþróttir og leikfimi að þroska hjá
okkur, það veganesti sem hver maður og kona
þarf á að halda í hinu daglega lífi.
Andleg og líkamleg menning eru ekki tvær
andstæður sem eiga að keppa um völdin, held-
ur tvær hálfur, þar sem hvoruga má vanta eigi
jafnvægi að haldast í lífi einstaklinga og þjóða.
Nýtt starfsár fer í hönd. Ungir og gamlir,
konur og karlar verið ötul, vaknið til verka fyr
en vorsólin skín inn um gluggan til ykkar. Kröf-
ur lífsins eru margar og margvíslegar, en grund-
völlur allrar starfsemi bæði andlegrar og lík-
amlegrar er: Heilsan.
19. október.
Benedikt Jakobsson.
fimleikakennari.
Pfaff-
saumavélar
sauma -
stoppa -
bródera.
Þægilegir greiðsluskilmálar.
Einkasali:
Magnús Þorgeirsson,
Bergstaðastræti 7. Sími 2136.
Meðferð vélanna kenn-
ir stúlka, sem lært
hefir hjá PFA FF-verksmiðjunni_
NB.
Beztu
myndirnar
eru frá
KALDAL