Félagsblað íþróttafélags Reykjavíkur - 24.10.1931, Blaðsíða 10
8
FÉLAGSBLAÐ ÍÞRÓTTAFÉLAGS REYKJAVÍKUR
Fennis.
Tennismótin fóru fram í september og októ-
ber eins og að undanförnu. Þátttaka var með
betra móti, enda gott tennis-veður í sumar, og
því vellir félagsins notaðir óspart. Byrjað var á
innanfélagskeppni karla um Simon-bikarinn.
Tóku 4 Í.R.-ingar þátt í henni, þeir: Kjartan
Hjaltesteð (handh. 1930), Helgi Eiríksson, Frið-
rik Sigurbjörnsson og núverandi meistari Magn-
ús Andrésson. 2. verðlaun fékk Friðrik. — Þá
fór fram tvímenningskeppi karla um bikar gef-
inn af frú B. Sch. Thorstiensson. Þátttakendur
voru 10 (2X5) þar af 8 frá Í.R. og 2 frá K.R.
Úrslitin urðu þau að Magnús og Friðrik (sem
spiluðu saman) unnu mótið eins og í fyrra. 2.
verðl. fengu Kjartan og Gísli Sigurbjörnsson
(allir úr Í.R.). — Þá fór fram meistaramót ís-
lands. Þátttakendur voru 6 frá Í.R. og 4 frá K.R.
Meistari varð í þetta sinn Friðrik, en 2. verðl.
fékk Kjartan (handh. 1930). Að lokum fór fram
einmenningsmeistaramót kvenna. Þátttakendur
voru fjórir. Allir úr Í.R. Þessu móti lauk svo að
tennisdrotning varð Ágústa Pétursdóttir og 2.
verðl. Mabel Goodall. Frú Klara Helgadóttir
(drotning tvö undanfarin ár) varð nr. 3 og Anna
Claessen sú fjórða í röðinni. — Aðaldómari var
kaupm. Ingvar Ólafsson og ber að þakka honum
ásamt öllum þátttakendum fyrir góða fram-
komu. Væntanlega fjölgar keppendum árlega,
enda á Í.R. svo góða velli, að hægt er að æfa svo
að segja alt árið.
F.inmenningskeppni
um meistaratign í fimleikum fór fram í í.-R.-hús-
inu 6. maí síðastliðinn; þátttakendur voru 4, all-
ir frá Í.R. Úrslit urðu þessi:
Ósvaldur Knudsen........... 492,12 stig.
Tryggvi Magnússon.......... 484,66 —
Jón Jóhannesson............ 477,10 —
Ólafur Tryggvason.......... 428,09 —
Ósvaldur vann því bikarinn að þessu sinni.
Dylst engum, að hann sé vel að sigrinum kom-
inn. þar sem hann hefir í fiölda mörg ár verið
einn af áhugasömustu og duglegustu fimleika-
mönnum félagsins.
ÍSAFOnPARPRlONTSMIÐJA H.F.
Benedikt Jakobsson hefir nú verið ráðinn
kennari við Í.R. í stað Björns Jakobssonar. Bene-
dikt hefir stundað nám tvö undanfarin ár við
kgl. Gymnastiska Central Instituttet í Stock-
hólmi. Eftir öllu að dæma virðist félagið hafa,
verið heppið með val á hinum nýja kennara, en
búast má við, að hinir eldri nemendur verði
kröfuharðir með kennsluhæfileika eftirmanns
Björns Jakobssonar.
Samsæti var Birni Jakobssyni haldið í Kirkju-
torgi 4 í tilefni af því, að hann hætti nú að kenna
við í. R. Sátu það 42 af nýjum og gömlum nem-
endum hans.
Haraldur Jóhannessen talaði fyrir hönd stjórn-
arinnar, rakti starf Björns við félagið þessi tutt-
ugu ár, og þakkaði honum fyrir hið langa og
góða samstarf. Björn Jakobsson hélt því næst
langa ræðu, og þakkaði stjórn og nemendum
góða samvinnu. — Frú Anna Guðmundsdóttir
flutti Birni sérstakt þakklæti fyrir 1. fl. kvenna
fyr og síðar, og afhenti honum fagran silfurbik-
ar, fullan af rósum áletruðum með nöfnum allra
gefendanna. Eftir borðhald og ræður skemmtu
menn sér við dans fram til kl. 2(4. Síðan fylgdi
allur hópurinn Birni heim og kvaddi hann með
margföldum árnaðaróskum með hið nýja starf
hans við Laugarvatnsskóla.
Farandbikar Oslo Turnforening.
Keppni um bikarinn fór fram síðastliðið vor,
23. apríl. Kepptu fiórir flokkar frá þrem félög-
um: 1 frá í. R., 1 frá K. R. og tveir frá Ármann.
í þetta sinn varð Ármann hlutskarpastur, með
nokkrum stigum fram yfir í. R. Vonandi standa
í.-R.-ingar sig betur næsta vor.