Morgunblaðið - 30.05.2009, Blaðsíða 13
13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAÍ 2009
! ""#$%
"$%
&#$
"%%
"$$
'(!)
*+ "
!
"!
!##
''( )
*+ "
"!
#!
','! ) "* (
!$
$
#$!
$"
#$
'-
.
/
)(')
0(')-
1,-
-
)
)"
"
%&
#
#!
"
#&
!
#
%
&
#
02'--
3)
0*')
3)
0*)(3-) 4
'!-' 56-'
#
0(')-
0)01
"! %
7')''( ),'! )
""&
7 )-)-83(')-
-9
&
!&$
56-'
&
0(')-
#
0)01
"
7')''( ),'! )
"
7 )-)-83(')-
-9
"&
&$
&
%
#
&
'(
8 6"9' ' 7')''( ),'! )
"#& #
7 )-)-8 ,-
-9
#&$
:& )& $
& & & # & & % & $
!
"
#$
7'))8-) 49;
7- (<--
7'));==="-*'")-
>' '
-
3((')-
FRÉTTASKÝRING
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
STÆRSTI hluti útsöluverðs áfengis og tóbaks
rennur á einn eða annan hátt í ríkissjóð. Af
venjulegri rauðvínsflösku fara 54,9% í áfeng-
isgjald og virðisaukaskatt. Að auki er vínbúð-
unum gert að greiða arð til eiganda síns, rík-
isins, og er hann hluti af 18% álagningu ÁTVR.
Ef dæmi er tekið af vodkaflösku er hlutfallið
enn hærra; áfengisgjald og virðisaukaskattur
nema 75,4% af útsöluverði vodkaflöskunnar.
Til viðbótar kemur síðan arður, sem er greidd-
ur af álagningu ÁTVR.
Svipað er upp á teningnum þegar skattar á
tóbak eru skoðaðir. Af kartoni af vindlingum
sem kostar 6.506 krónur í heildsölu, tekur ríkið
2956 krónur í tóbaksgjald, 1280 krónur í virð-
isaukaskatt og fær síðan hlut af 18% álagningu
ÁTVR í arð.
Í fyrra fékk ríkissjóður rúmlega 3,9 millj-
arða króna í tóbaksgjald, tæplega 6,8 milljarða
í áfengisgjald, 5,2 milljarða í virðisaukaskatt og
182,5 milljónir voru greiddar ríkinu í arð.
Syndaskattarnir svokölluðu skiluðu ríkinu því
16,1 milljarði króna í fyrra. Í ár er ÁTVR gert
að skila ríkissjóði 210 milljónum króna í arð.
Hverjar tekjur ríkisins af syndasköttunum
verða í ár er erfitt að segja fyrir um. Til loka
aprílmánaðar var 1% samdráttur í magni
seldra vindlinga. Sala áfengis fyrstu fjóra mán-
uði ársins jókst um 1,1% miðað við sama tíma-
bil í fyrra. Sala bjórs jókst um 2,8% og hvítvíns
um 4,9% en sala á rauðvíni dróst saman um
2,4%.
Áfengisgjald er innheimt við innflutning og
er innifalið í innkaupsverði ÁTVR frá birgjum.
Í samræmi við reglur verður birgjum gefinn
kostur á að tilkynna nýtt verð til ÁTVR og mun
verðhækkunin taka gildi að því loknu, vænt-
anlega upp úr helginni. Annir voru í vínbúðum
ÁTVR í gær, föstudag fyrir hvítasunnu. Reikna
má með að léttvín og bjór hækki um 6-7%, en
sterk vín um 10-11%.
ÁTVR selur tóbak í heildsölu til söluaðila
sem hafa tóbakssöluleyfi. Nýtt verð tók gildi í
gær í samræmi við breytingar á tóbaksgjaldi.
800 krónur fyrir einn
pakka af sígarettum
Tóbak hækkar í heildsölu frá ÁTVR um því
sem næst 10% að meðaltali í kjölfar skatta-
hækkana sem samþykktar voru á Alþingi í
fyrrakvöld. Eftir hækkun kostar karton af al-
gengri sígarettutegund 6.506 krónur í heild-
sölu, en tíu pakkar eru í hverju kartoni.
Smásöluálagning á tóbaki er frjáls. Fyrir
hækkun kostaði pakki af algengri sígarettuteg-
und 730 krónur í smásölu en hækki verðið um
10% fer það upp í um það bil 800 krónur.
Önnur algeng tegund er sögð hafa kostað
690-780 krónur, mismunandi eftir sölustöðum,
og enn önnur 750-795 krónur. Verð þeirra teg-
unda færi því vel yfir 800 krónur og yrði nær
900 kr. markinu, ef miðað er við 10% hækkun
smásöluverðs.
Hafa ekki náð að fylgja
breytingum á vísitölu neysluverðs
Í umsögn fjárlagaskrifstofu fjármálaráðu-
neytis um breytingu á fyrrnefndum gjöldum og
hækkun á olíugjaldi kemur fram að þessum
gjöldum var síðast breytt í desember 2008 en
þá voru þau hækkuð um 12,5%. Fram að þeim
tíma höfðu gjöldin verði óbreytt um árabil, sum
frá árinu 2005 og önnur frá árunum 2003 og
2004, en áfengisgjald af léttum vínum og bjór
hafði verið óbreytt frá árinu 1998.
„Vísitala neysluverðs hefur hækkað frá
árinu 1998 um 83% og um 40-46% frá árunum
2003 til 2005. Þrátt fyrir hækkun gjaldanna
samkvæmt þessu frumvarpi hafa þau ekki náð
að fylgja breytingum á vísitölu neysluverðs,“
segir m.a. í umsögninni.
„Syndaskattar“ skiluðu ríkinu
16 milljörðum kr. á síðasta ári
Stærsti hluti útsöluverðs áfengis og tóbaks fer í ríkissjóð 75,4% af útsöluverði vodkaflösku til ríkisins
Mikið var að gera í vínbúðum ÁTVR í gær
og er líklegt að yfirvofandi hækkanir hafi
átt hlut að máli. Einnig hvítasunnuhelgin,
sem oft er nefnd fyrsta ferðahelgi sum-
arsins. Hvort hækanir á gjöldum hafa áhrif
á eftirspurn er of snemmt að segja til um.
ÁTVR á að skila ríkissjóði 210 milljónum króna í arð í ár
Aukin sala á bjór og víni fyrstu fjóra mánuði ársins
Til loka apríl var 1% samdráttur í magni seldra vindlinga
Verð á pakka af algengum vindlingum fer yfir 800 krónur
Áfengis- og tóbaksgjaldi var síðast breytt í desember
OLÍUGJALD var hækkað minna
en bensíngjald með lögum sem
samþykkt voru á Alþingi í fyrrra-
kvöld. Þetta er gert til að ýta undir
frekari dísilvæðingu fólksbílaflota
landsmanna, eins og til stóð með
lögum frá 2004 um olíugjald og kíló-
metragjald, eins og segir í at-
hugasemdum með frumvarpinu.
Algengt verð á bensíni í sjálfsaf-
greiðslu var rúmlega 181 króna í
gær. Ríkið hækkaði bensíngjald um
tíu krónur í fyrrakvöld með laga-
breytingu á Alþingi og leggst virð-
isaukaskattur á þá upphæð. Hækk-
unin fór beint út í verðlagið, rúmar
12 krónur. Þá hækkaði bensínverð
einnig um tæpar fjórar krónur á
lítra í fyrradag af öðrum ástæðum.
Vörugjald af hverjum lítra af
bensíni er 20,44 krónur, bensín-
gjald, eða vegaskattur, er 37,07
krónur. Síðan leggst 24,5% virð-
isaukaskattur á útsöluverðið.
Olíugjald hækkaði mun minna en
bensíngjaldið eða um fimm krónur.
Sjálfsafgreiðsluverð á dísilolíu
var í gær 171,70 krónur hjá Olís. Þá
hækkaði dísilolían minna en bensín-
ið í fyrradag.
Umhverfisvænni valkostur
Í athugasemdum með frumvarp-
inu sem varð að lögum í fyrrakvöld
segir: „Lögð er til minni hækkun ol-
íugjalds en bensíngjalds til að gera
rekstrarumhverfi dísilfólksbifreiða
hagstæðara í samanburði við bens-
ínfólksbifreiðar, en dísilbifreiðar
eru almennt álitnar umhverfisvænni
valkostur en bensínfólksbifreiðar.
Þar sem útsöluverð á dísilolíu
hefur verið nokkuð hærra en út-
söluverð á bensíni undanfarin ár
hefur fjölgun dísilfólksbifreiða ekki
verið eins hröð og vonast var til
með upptöku olíugjalds í stað
þungaskatts árið 2005. Með því að
hækka olíugjald minna en bensín-
gjald er reynt að koma jafnvægi á
útsöluverð þessara eldsneytisgjafa
þannig að lítri af dísilolíu verði
ódýrari en lítri af bensíni.“
Með lögunum sem samþykkt
voru í fyrrakvöld var kílómetra-
gjald lækkað, bæði almennt og sér-
stakt, á móti hækkun bensíngjalds
og olíugjalds. Með því móti er dreg-
ið úr áhrifum þessara breytinga á
flutningskostnað og þar með vöru-
verð.
Ýtt undir dísilvæðingu fólksbílaflotans
Bensíngjald hækkaði um 10 krónur
Olíugjaldið hækkaði um 5 krónur
Morgunblaðið/Golli
Dýr dropi Bensínlítrinn er nú í 180 kr. og ekki fer á milli mála, að kostnaður
við einkabílinn er að verða einn stærsti útgjaldaliður hverrar fjölskyldu.