Morgunblaðið - 20.06.2009, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 20.06.2009, Blaðsíða 10
10 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 2009 Gylfi Magnússon viðskiptaráðherrasagði hér á viðskiptafréttasíðu í Morgunblaðinu í gær, að hann hefði blendnar tilfinningar gagnvart nýj- um leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja.     Fram kom í málihans að til- finningablendnin væri ekki vegna þess að nýju regl- urnar væru slæm- ar.     Nei, hann sagðiað það hefði ekki bara verið farið á svig við siðareglurnar, heldur virt- ist sem ekki hafi alltaf verið farið að lögum.     Í fréttinni sagði orðrétt: „Gylfi von-ast eftir hugarfarsbreytingu, sem taki nokkur ár, þar sem viðskiptalífið sýni meira aðhald, m.a. með því að eiga ekki í viðskiptum við fyrirtæki sem starfi á gráu svæði.“     Hvers vegna er viðskiptaráðherratilbúinn til þess að sýna við- skiptalífinu biðlund í nokkur ár, þeg- ar rætt er um nauðsyn þess að við- skiptalífið sýni meira aðhald? Er ekki hægt að gera kröfu um breytt hug- arfar þegar í stað, þar sem ákveðið verði gengið eftir því að viðskiptalífið í heild virði þær siðareglur sem því eru settar og farið verði að lögum?     Hvað á ráðherrann við þegar hannræðir um „fyrirtæki sem starfi á gráu svæði“? Hér er þörf á frekari skýringum.     Mikið verk er fyrir höndum viðuppbyggingu viðskipta- og at- vinnulífsins í landinu og endurheimt trausts fólksins í landinu. Við- skiptaráð Íslands, Kauphöllin og Samtök atvinnulífsins þurfa að skýra miklu betur hvað felst í nýjum leið- beiningum um stjórnarhætti fyr- irtækja, en þau gerðu á blaðamanna- fundi í fyrradag. Gylfi Magnússon Blendnar tilfinningar ráðherra! Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður Reykjavík 12 léttskýjað Lúxemborg 18 heiðskírt Algarve 24 skýjað Bolungarvík 10 heiðskírt Brussel 18 léttskýjað Madríd 35 léttskýjað Akureyri 7 léttskýjað Dublin 15 léttskýjað Barcelona 27 léttskýjað Egilsstaðir 8 skýjað Glasgow 15 léttskýjað Mallorca 29 heiðskírt Kirkjubæjarkl. 15 léttskýjað London 18 heiðskírt Róm 31 heiðskírt Nuuk 6 skúrir París 20 heiðskírt Aþena 30 heiðskírt Þórshöfn 11 skýjað Amsterdam 16 léttskýjað Winnipeg 23 skýjað Ósló 10 þrumuveður Hamborg 16 léttskýjað Montreal 18 alskýjað Kaupmannahöfn 17 skýjað Berlín 18 heiðskírt New York 22 alskýjað Stokkhólmur 13 skýjað Vín 21 skýjað Chicago 23 alskýjað Helsinki 13 skýjað Moskva 16 skúrir Orlando 30 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ HALLDÓR STAKSTEINAR VEÐUR 20. júní Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3.51 3,2 10.07 0,8 16.23 3,6 22.46 0,8 2:55 24:05 ÍSAFJÖRÐUR 0.04 0,7 5.54 1,8 12.18 0,5 18.31 2,1 1:35 25:35 SIGLUFJÖRÐUR 1.59 0,3 8.20 1,1 14.17 0,4 20.38 1,2 1:18 25:18 DJÚPIVOGUR 0.59 1,7 7.02 0,7 13.31 2,0 19.53 0,6 2:10 23:49 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið Á sunnudag Suðvestan 8-13 m/s og skúrir, en hægari vindur og dálítil rign- ing fram eftir degi NA- og A- lands. Hiti 10 til 17 stig hlýjast á austanverðu landinu. Á mánudag Suðvestan 8-13 m/s og skúrir, einkum V-lands, en þurrt að mestu á A-landi. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast á Austfjörðum. Á þriðjudag Breytileg átt, skýjað og víða dá- lítil úrkoma. Fremur svalt. Á miðvikudag og fimmtudag Austlæg átt, rigning með köfl- um og milt veður. VEÐRIÐ NÆSTU DAGA SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 5-10 m/s, bjartviðri á NA- og A-landi en skýjað ann- ars staðar og súld eða dálítil rigning S- og V-lands síðdegis. Hiti yfirleitt 10 til 17 stig, hlýjast norðantil. Eftir Andra Karl andri@mbl.is STRANDVEIÐIFRUMVARPIÐ svonefnda var afgreitt frá Alþingi sem lög á fimmtudagskvöld, og tóku þau þegar gildi. Aðeins á eftir að birta lögin og ljúka vinnu við reglugerð vegna laganna áður en Fiskistofa hefur afgreiðslu leyfa. Samkvæmt upplýsingum úr sjávarútvegsráðuneytinu er áætl- að að reglugerðin verði tilbúin strax í upphafi næstu viku. Því er ljóst að strandveiðar munu hefjast fyrir lok mánaðarins. Þegar áformin um strandveiðar voru kynnt á sínum tíma, var áformað að þær gætu hafist 1. júní. Frumvarpið kom hins vegar það seint fram í þinginu, að þær áætlanir stóðust ekki. Mikið hefur verið um fyrirspurnir til Fiskistofu það sem af er mánuði en þar á bæ biðu menn samþykktar lag- anna og setningar reglugerðar. Tekur nokkra daga að afgreiða leyfi Árni Múli Jónasson, aðstoðarfiskistofustjóri, segir ekki standa á þeim að hefja afgreiðslu leyfa. Hann segir ekki algilt hversu langan tíma taki að afgreiða leyfin enda farið það eftir aðstæðum við- komandi auk fjölda þeirra leyfa sem sótt er um. Almenna reglan verður þó líklega sú að það taki ekki nema nokkra daga. Í bráðabirgðaákvæði laganna kemur fram að auk þeirra aflaheimilda sem úthlutað er á fisk- veiðiárinu 2008/2009 er í júní, júlí og ágúst 2009 heimilt að veiða á handfæri allt að 3.955 lestir af óslægðum þorski, sem ekki reiknast til aflamarks eða krókaaflamarks. Hverju fiskiskipi er aðeins heimilt að draga 800 kg af kvótatengdum tegund- um í hverri veiðiferð. Strandveiðar fyrir lok mánaðar Vinnu við reglugerð lýkur í næstu viku og í kjölfarið hefst afgreiðsla leyfa DAGSKRÁ þjóðhátíðardagsins á Hrafnseyri hófst með guðsþjónustu þar sem séra Leifur Ragnar Jóns- son prédikaði og séra Agnes M. Sig- urðardóttir þjónaði fyrir altari. Kirkjukór Þingeyrar söng. Sturla Böðvarsson, fv. forseti Alþingis og fv. ráðherra, flutti hátíðarræðu dagsins. Að því loknu fluttu tvær listakonur nokkur lög, Bjarney Ingibjörg Gunnarsdóttir söng undir harmonikkuleik Helgu Krist- bjargar Guðmundsdóttur. Að lokn- um tónlistarflutningum var gestum hátíðarinnar boðið upp á kaffihlað- borð. Ljósmynd/Guðlaugur Albertsson Spilað Bjarney I. Gunnarsdóttir og Helga K. Guðmundsdóttir. Hátíðleiki á Hrafnseyri ÞRÍR karlmenn hafa verið úrskurð- aðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 1. júlí að kröfu lögreglunnar á höf- uðborgarsvæðinu á grundvelli rann- sóknarhagsmuna. Mennirnir eru grunaðir um aðild að innflutningi fíkniefna og peningaþvætti. Úrskurðurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness í gær en mennirnir, sem eru á þrítugs-, fimm- tugs- og sextugsaldri, hafa allir kært niðurstöðuna til Hæstaréttar. Þeir hafa allir áður komið við sögu hjá lög- reglu. Lögreglan segir, að rannsókn málsins sé mjög viðamikil en að henni hafa komið lögregluliðin á höfuðborg- arsvæðinu og Suðurnesjum auk toll- yfirvalda. Rannsóknin er einnig unnin í samvinnu við lögregluyfirvöld í nokkrum öðrum löndum. Lögreglu grunar, að mennirnir hafi stundað peningaþvætti með fíkniefnagróða. Fram hefur komið að elsti maður- inn hefur verið umsvifamikill á fast- eignamarkaði hér á landi og erlendis um árabil og rekið nokkur eignar- haldsfélög. Þá er hann skráður fyrir fatamerkjunum Criminal Record, In- mate og Bastille sem tengjast fyrir- hugaðri atvinnustarfsemi fanga á Ís- landi. Fötin átti að hanna og framleiða í íslenskum fangelsum und- ir merkinu Made in Jail. Úrskurðaðir áfram í gæsluvarðhald til 1. júlí

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.