Morgunblaðið - 20.06.2009, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 20.06.2009, Blaðsíða 31
Umræðan 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 2009 ÞETTA er áleitin spurning og svarið skiptir miklu um það hvernig tekið er á mál- efnum lesblindra. En hvað er lestur eða læsi? Á Lesvef mennta- málaráðuneytisins seg- ir svo um lestur eða læsi: Lestur er ekki eðlislægur, meðfæddur eiginleiki, heldur lærð aðgerð og að því leyti gjörólíkur mál- tökunni. Lestur og ritun eru hugvit mannsins og menning læsis hefur að- eins fylgt hluta mannkyns í nokkra mannsaldra. Flest börn læra að lesa án sérstakrar fyrirhafnar og sum að því er virðist algjörlega áreynslu- laust. Fyrir önnur verður lestr- arnámið óyfirstíganleg hindrun og sársaukafull reynsla, sem jafnvel markar alla þeirra skólagöngu og líf í heild. Ef um alvarlega erfiðleika er að ræða getur það haft í för með sér skert lífsgæði fyrir viðkomandi ein- stakling. Skilningur og þekking á eðli lestrarerfiðleika getur hjálpað, ekki aðeins við að draga úr alvarleika lestrarerfiðleikanna sjálfra, heldur einnig til að draga úr þeim afleið- ingum sem slíkir erfiðleikar hafa á lífsgæði fólks. Ég er sammála upp- hafsorðunum: „Lestur er ekki eðl- islægur, meðfæddur eiginleiki, held- ur lærð aðgerð …“ en ósammála því að lestur sé að þessu leyti gjörólíkur máltökunni. Tungumálið er mann- gert verkfæri þróað til samskipta og málnotkunin – það að tala, lesa og skrifa – er því lærð færni en ekki meðfædd. Aftur á móti er skynjun okkur meðfædd – við upplifum að vera til og upplifum tengsl við um- hverfið – „lesum“ umhverfið – okkur til bjargar og afkomu. Skynjun leiðir af sér hugsun, en hugsun er forsenda sjálfsvitundar. Skynjun kveikir hugs- un sem byggir upp færni til að leysa vandamál – gera óþekkta hluti þekkta og gera síðan það þekkta óþekkjanlegt! Segja má að með því að kveikja hugsun leiði skynjun þannig af sér skynsemi, vit eða greind. Veruleikinn hefur enga merkingu fyrir okkur ef við upplifum hann ekki. Skynjun og upplifun veru- leikans gefur okkur merking- armyndir – merkingarmyndir sem eru forsenda máltökunnar. Upplifun merkingar og hugsun (í myndum) eru forsendur talmáls sem síðan leið- ir af sér ritmál. Máltakan hefst með talmálinu, – hlustun og tali, – en notkun ritmáls, – lestur og ritun, – er lokaþátturinn. Án lestrar er mál- takan ekki fullkomnuð. Myndræn skynjun og myndhugsun er okkur meðfædd en þegar við lærum að tala förum við flest að hugsa í orðum eða hljóðmyndum orða í stað merking- armynda. Hljóðmyndir orða eru síð- an varðveittar í tákngerðum sjón- myndum, eða rituðu máli. Orð málsins eiga sér þannig þrjár mynd- ir: a) merkingarmynd - sem við upp- lifum eða sjáum fyrir okkur sem mynd í huga af þeim veruleika sem orðið stendur fyrir, b) hljóðmynd – sem við heyrum sem mælt mál, talað orð, – hljóðræna táknmynd þess veruleika sem orðið stendur fyrir, c) sjónmynd – sem við sjáum sem ritað mál eða texta, skrifað/prentað orð, – sjónræn táknmynd hljóðmyndar þess veru- leika sem orðið stendur fyrir. Að læra að lesa er lokastig máltökunnar. Barn, sem upplifir merkingu talaðs mál og hefur vald á hljóð- rænum táknmyndum veruleikans, er tilbúið til að læra að lesa – bæta sjónrænu tákn- myndinni við hljóð- myndina og merking- armyndina. Málnotkun er lærð – lestur er því lærð aðgerð. Skólarnir annast lestrarkennslu. Flest börn læra að lesa á þeim aldri sem þeim er ætlað og með þeim að- ferðum sem skólinn ákveður. Þó er alltaf nokkur fjöldi barna sem fellur utan ramma lestrarkennslunnar. Kennslan nýtist ekki þessum börn- um, þau læra ekki að lesa, þau læra að geta ekki lært að lesa – þau læra að verða lesblind. Lesblinda er því ekki fyrirbæri eða sjúkdómur sem fólk „fær“ eða „er með“ – lesblinda er lærð í tengslum við máltöku. Les- blinda er afleiðing misheppnaðrar lestrarkennslu – lestrarkennslu sem ekki hentar þeim, sem hugsa í þrí- víðum myndum. Þeir, sem hugsa í þvívíðum myndum, læra að verða les- blindir ef lestrarkennsla þeirra bygg- ir á hljóðum tákna og hljóðmyndum orða. Lestrarkennsla, sem byggir á merkingarmyndum orða, er þeim nauðsynleg til árangurs. Myndræn börn, sem ekki njóta lestrarkennslu við hæfi, ná þá ekki valdi á lestri og eru sögð lesblind. Þau lenda síðan í afleiddum erfiðleikum þegar fram í sækir og velgengni í námi byggir æ meir á lestri námsbóka. Getur þá svo farið að góðir námsmenn gefist upp og hverfi frá námi, jafnvel að ráði skólans. Það er aldrei of seint fyrir myndhugsuði, sem hafa „lært“ les- blindu, að læra að lesa með sínu lagi – losna þannig við lesblinduna og fara að njóta hæfileika sinna. Lesblindan er ekki meðfædd, hún er lærð. Les- blindu læra þeir sem eiga þá náð- argáfu að geta hugsað í myndum – upplifað hugsanir sem myndasýn- ingu. Með Davis lesblinduleiðrétt- ingu er auðvelt að komast upp á lag með að nýta náðargáfu sína, mynd- hugsunina, til þess að ná fullkomnum tökum á lestri og útrýma þannig „les- blindunni“. Davis lesblinduleiðrétt- ing hentar öllum myndhugsuðum, sem ekki hafa notið lestrarkennslu við hæfi og eru því sagðir lesblindir. Er lesblinda meðfædd? Eftir Sturlu Kristjánsson »Er málið ekki mann- gert samskiptatæki? Er málnotkun þá ekki lærð – líka lestur? Getur þá lesblinda verið meðfædd? Sturla Kristjánsson Höfundur er sálfræðingur og rekur LES.IS. @ Fréttir á SMS VITA er lífið VITA | Skútuvogi 13a | Sími 570 4444 Skráðu þig í netklúbbinn - VITA.is Brekkurnar bíða þín á Ítalíu VITA er í eigu Icelandair Group og flýgur með Icelandair á vit ævintýranna. Verð 219.900 kr. og 15.000 Vildarpunktar á mann miðað við 2 í herbergi. Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting, hálft fæði og íslensk fararstjórn. Almennt verð er 229.900 kr. Verðdæmið miðast við ferðina 30. janúar. Oswald Nýuppgert fjögurra stjörnu glæsihótel. Vinsælt hjá Íslendingum síðustu ár. Tilkomumikið, virkilega vel staðsett og frábær aðbúnaður. Mikil gæði á góðu verði. Verð 157.900 kr. og 15.000 Vildarpunktar á mann miðað við 2 í herbergi. Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting, hálft fæði og íslensk fararstjórn. Almennt verð er 167.900 kr. Verðdæmið miðast við ferðina 30. janúar. Alpen hotel Vidi Hlýlegt með vistlegri herbergjum en búast má við af þriggja stjörnu hóteli. Miðbærinn í göngufæri. Hálft fæði innifalið í gistingunni. Spennandi kostur á góðu verði. Flugáætlun 30. janúar 6., 13., 20. og 27. febrúar Madonna di Campiglio Selva 7 dagar 7 dagar Fararstjórar: Einar og Anna Hjá VITA getur þú lækkað verðið á ferðinni þinni um allt að 10.000 kr. með 15.000 Vildarpunktum. Auk þess eru veittir 2.500 Vildarpunktar fyrir allar keyptar ferðir í leiguflugi með VITA. Þannig öðlast þú stöðugt fleiri tækifæri til þess að njóta lífsins. Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur ÍS L E N S K A S IA .I S V IT 46 46 8 06 .2 00 9

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.