Morgunblaðið - 21.06.2009, Qupperneq 1
2 1. J Ú N Í 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
166. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
Óheimilt er að veðsetja aflahlutdeild fiskiskips sérstaklega
þótt aðilaskipti geti orðið að henni með öðrum hætti sam-
kvæmt ákvæðum laga eða reglugerða. Fylgi hlutdeildin aftur
á móti skipi er þekkt að lánastofnanir láni út á hana og þá
umfram verðmæti skipsins. Hafi fiskiskip verið veðsett er
eiganda þess einnig óheimilt á gildistíma veðsetningar að
skilja aflahlutdeildina frá skipinu nema fyrir liggi þinglýst
samþykki veðhafa.
Af lögum um stjórn fiskveiða má skilja að veiðiheimildir
feli fyrst og fremst í sér takmarkaðan og tímabundinn nýt-
ingarrétt og að ákvæði laganna feli ekki í sér breytingu á eðli og inntaki þess
réttar. Hvað þýðir það þá í raun þurfi lánastofnun að leysa til sín aflahlutdeild
með skipi? Felst í þeim gjörningi viðurkenning á því að aflahlutdeild njóti vernd-
ar sem „eign“ í skilningi 72. gr. stjórnarskrár lýðveldisins?
Fiskur í veðböndum þótt ekki
megi veðsetja veiðiheimildir
LÁN Í ÓLÁNI?»4 ICESAVE-HAMFARIRNAR»6 „HVER ER ÞESSI 1325?“»8
Konum er enn haldið fjarri friðar-
viðræðum og þær eru fastar í hlutverki
þolenda á átakasvæðum. Níu ár eru lið-
in frá því að Öryggisráð SÞ samþykkti
ályktun sem miðaði að því að konur öðl-
uðust stærri þátt í að ákveða framtíð
samfélaga eftir stríð. Ályktunin hefur
enn ekki náð hljómgrunni meðal
margra aðildarríkja SÞ og spyrja tals-
menn kvenréttinda hvað þurfi til að
stjórnvöld fleiri ríkja taki hana til greina.
Ekki sé endilega um aðferðafræðileg-
ar spurningar að ræða heldur frekar
stjórnvöld sem telji ályktunina óþarfa.
Konur við
sáttaborðið?
Vöxtur Icesave
í Hollandi
Hollenski seðlabankinn gat lítið sem
ekkert beitt sér til að stöðva vöxt Ice-
save-reikninganna. Slíkt hefði verið í
andstöðu við reglur ESB og hefði auk
þess nær örugglega orsakað áhlaup á
Landsbankann, hvar sem hann starf-
aði. Ábyrgðin á þeim lá hjá Lands-
bankanum og FME. Morgunblaðið fer
yfir sögu og öran vöxt Icesave í
Hollandi.
Feðgar Hjörtur Ingvi Jóhannsson, tónlistarmaður og nemi í hagfræði, segir að faðir sinn, Jóhann Hjartarson, stórmeistari í skák og lögfræðingur, stand-
ist samanburð við flesta ef ekki alla íslenska skákmenn. Jóhann segir að Hjörtur eigi framtíðina fyrir sér í tónlistinni og almenn menntun skipti miklu. | 14
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Feðgar á skákborði lífsins
JÓNÍNA HERDÍS
JÖRUNDUR
SEM
KÓNGUR
RÍKTI
HANN...
ADRENALÍN
OGHUGARRÓ
Í KÖFUN
TÆKNI
Núna
hlustar
Nipper
á i-Pod
GENGIS-
VÍSITALA
HAM
SUNNUDAGUR
SENDISKRIFSTOFUM verður
enn fækkað á þessu ári og því næsta
jafnframt því sem starfsfólki verður
fækkað, skv. frétt sem birt hefur
verið á heimasíðu utanríkisráðuneyt-
isins um sparnaðaraðgerðir. Hefur
verið ákveðið að selja embættisbú-
staði í New York, London, Wash-
ington, Ottawa og Tókíó. Nokkuð
fækkar í hópi sendiherra og nýir
verða ekki skipaðir í staðinn um
sinn.
Framlög til Varnarmálastofnunar
verða skorin niður og er ætlunin að
leggja stofnunina niður í núverandi
mynd, „án þess þó að niðurskurður
bitni á varnar- og öryggisskuldbind-
ingum Íslendinga“. Framlög til þró-
unarsamvinnu og friðargæslu verða
verulega dregin saman. Ráðuneytið
þarf að skera niður rekstrarútgjöld
um 10% á næsta ári til viðbótar áður
ákveðnum sparnaði. Einnig hefur
verið ákveðinn 190 milljóna viðbót-
arsparnaður á þessu ári.
Sendiherr-
um fækkað
og bústaðir
verða seldir
FYRIR tæplega
átta árum lenti
Selma Halldóra
Pálsdóttir í
grjóthruni í
Glymsgili með
þeim afleiðingum
að taka varð af
henni hægri fót-
inn miðja vegu
milli ökkla og
hnés. Hún á nú
fimm gervifætur til skiptanna,
kvartar ekki og horfir bjartsýn
fram á veg.
Útivist á fjöllum var hennar
helsta tómstundagaman en eftir
slysið hefur hún ekki farið á fjöll.
Hún vill ekki hætta á að meiðast
meira.
„Ég held að fólk verði aldrei full-
sátt við að missa útlim. En mér
hefur tekist á þessum átta árum að
lifa með þessu,“ segir hún.
steinthor@mbl.is | 12
Með fimm
fætur til
skiptanna
Bjartsýn Selma H.
Pálsdóttir.