Morgunblaðið - 21.06.2009, Síða 43

Morgunblaðið - 21.06.2009, Síða 43
Minningar 43 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ 2009 Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, SIGMARS BJÖRNSSONAR, Vættaborgum 96, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks gjörgæsludeildar Landspítalans við Hringbraut. Unnur Kristinsdóttir, Hrefna Sigmarsdóttir, Bergþór Kristleifsson, Ólöf Sigmarsdóttir, Quentin Elliott, Íris Sigmarsdóttir, Ómar Pétursson, Jóhannes Sigmarsson, Þórdís Sigurðardóttir, Elísabet Sigmarsdóttir og afabörnin. ✝ Hjartans þakkir til allra sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÁSLAUGAR GUÐJÓNSDÓTTUR BACHMANN, Berugötu 9, Borgarnesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Dvalarheimilis aldraðra, Borgarnesi fyrir góða umönnun síðustu árin. Guð blessi ykkur öll. Jón Þór Karlsson, Helga Ólafsdóttir, Guðrún Karlsdóttir, Guðjón B. Karlsson, Bára Guðmundsdóttir, Ásgeir Karlsson, Hjördís E. Karlsdóttir, Sturla Karlsson, Birna Gunnarsdóttir, ömmubörn og langömmubörn. ✝ Alúðarþakkir fyrir þann vinarhug og samúð sem okkur var sýnd við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalang- ömmu, SIGURLAUGAR ARNDÍSAR JÓHANNESDÓTTUR, Furugrund 73, Kópavogi. Jóhanna Kristbj. Guðmundsdóttir, Magnús Guðmundsson, Auður Guðmundsdóttir, Sumarliði Ingvarsson, Einar Guðmundsson, María Ólöf Kjartansdóttir, Örn Guðmundsson, Margrét Steinunn Ellertsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu vegna andláts og útfarar ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, SIGRÍÐAR SIGURSTEINSDÓTTUR, áður til heimilis að Krókatúni 3, dvalarheimilinu Höfða, Akranesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Höfða og Lionsklúbbsins Eðnu. Hákon Björnsson, Sigursteinn Hákonarson, Sesselja Hákonardóttir, Guðbjörg Hákonardóttir, Ásgeir H. Magnússon og ömmubörn. ✝ Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar móður okkar og tengdamóður, SÆUNNAR JÓNSDÓTTUR, Hrafnistu, Reykjavík, áður til heimilis á Hjallabraut 3, Hafnarfirði. Ósk Kristinsdóttir, Guðmundur Brynjólfsson, Heiðar Kristinsson, Rakel Ingvadóttir, Þórunn Kristinsdóttir, Guðmundur Pálsson, Auður B. Kristinsdóttir, Svavar Stefánsson, Guðrún Kristinsdóttir, Halldór Kristjánsson og fjölskyldur. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við útför föður okkar, stjúpföður, tengdaföður, afa, langafa og langalangafa, HÖGNA STURLUSONAR, Hlíf, Ísafirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks öldrunardeildar Sjúkrahúss Ísafjarðar fyrir alla umhyggjuna. Ingibjörg Högnadóttir, Svanberg Einarsson, Jónína Högnadóttir, Birkir Þorsteinsson, Júlíus Högnason, Guðmunda Reimarsdóttir, Sturla Högnason, Sigrún Reimarsdóttir, Guðrún Högnadóttir, Þórður Jónsson, stjúpbörn, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður, sonar, bróður og frænda, ÞÓRÐAR VIÐARS VIÐARSSONAR, Breiðvangi 57, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir fær starfsfólk deildar 13G og gjörgæsludeildar Landspítalans við Hringbraut. Einnig þökkum við starfsfólki Hafrannsóknarstofnunarinnar og okkar yndislegu nánustu fjölskyldu og vinum. Sigurlína Ellertsdóttir, Viðar Þórðarson, Elísa Hildur Þórðardóttir, Arnar Þórðarson, Erla Gestdóttir, Viðar Þórðarson, Birgir Viðarsson og fjölskylda, Guðrún Ruth Viðarsdóttir og fjölskylda. ✝ Sigríður GuðrúnJónsdóttir fæddist í Hólkoti í Hörgárdal 8. september 1924. Hún lést á Landspít- alanum við Hring- braut föstudaginn 12. júní 2009. Foreldrar hennar voru Jón Guð- mann Sigurjónsson, f. 20. júní 1892, d. 12. apríl 1987 og Anna Steinunn Árnadóttir, f. 9. nóvember 1894, d. 15. febrúar 1955. Látin systkini Sigríð- ar eru Árni Jónsson, f. 1912, d. 1987, Sigurjón Jónsson, f. 1913, d. 1914, Snorri Jónsson, f. 1915, d. 1984, eftirlifandi er Mary Valdís Jónsdóttir, f. 1927. Sigríður giftist Gunnari Bjarna- syni, f. 1924, d. 1980. Þau eignuðust tvö börn, Önnu G., f. 1946, og Jón K., f. 1949, en slitu síðar samvistum. Maki Önnu er Þráinn Tryggvason, f. 1944, börn þeirra eru Guð- rún, f. 1970, og Tryggvi, f. 1974. Maki Jóns er Kristrún E. Pétursdóttir, f. 1949, og börn þeirra eru Pétur S., f. 1971, Gunnar, f. 1974, og Friðrik Már, f. 1989. Sigríður bjó framan af á Ak- ureyri en bjó síðan í Reykjavík í um 65 ár. Útför Sigríðar fór fram í kyrr- þey. Elsku amma mín, það var alltaf svo gott að koma til þín. Við vorum svo nánar að amma vissi alltaf allt hvað var að gerast í lífi mínu og var ávallt til staðar fyrir mig. Við vorum meira eins og vinkonur enda hittumst við næstum daglega eða töluðum sam- an í síma. Amma var svo raunsæ og góð kona og laus við allt pjatt og prjál, vildi ekkert stúss, enda fannst henni ég vera helst til mikið fiðrildi, alltaf erlendis. Ég mun sakna þín sárt, elsku amma mín. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Þín Guðrún. Elsku amma Rúna. Ég var staddur nærri þínum æskuslóðum á Norðurlandi þegar ég fékk þær fregnir að þú værir lögst til hinstu hvílu. Það kom allt- af glampi í augun á þér þegar þú rifjaðir upp uppvaxtarárin á Ak- ureyri og sagðir mér sögur úr Glerárþorpinu. Norðurlandið og fjallafegurðin stóð þér nærri – þú varst stoltur og sannur Þorpari. Ég man hvað þú varst ánægð með mig þegar ég sagði þér að ég hefði nælt mér í norðlenska konu. Ég á mér stórt og ómetanlegt safn góðra minninga af samverustund- um okkar á Langholtsveginum. Þangað var alltaf jafngott að koma og heimsækja þig og best af öllu var að fá að gista. Þú stjanaðir við mig eins og ég væri konungborinn og alltaf voru móttökurnar jafn hlýlegar. Oft kom ég til þín eftir skóla og klukkutímarnir voru fljót- ir að hverfa því við höfðum um margt að tala. Sérstaklega þegar talið barst að pólitíkinni þar sem við höfðum bæði mikinn áhuga og sterkar skoðanir og oftast vorum við sammála. Það var alltaf stutt í stuðninginn og hvatninguna frá þér. Ég hef alltaf haldið því fram að það sé þér að þakka að ég klár- aði stúdentsprófið mitt á réttum tíma. Ég hafði stundað námið illa síðasta árið mitt í framhaldsskóla og varið kröftum mínum frekar í félagslífið. Fyrir stúdentsprófin bauðstu mér að koma og vera hjá þér í tvær vikur til þess að lesa og undirbúa mig. Á Langholtsvegin- um var fullkomin kyrrð og þú stjanaðir við mig nótt og dag og veittir mér ómetanlegan stuðning, sem varð til þess að ég náði stúd- entsprófunum. Það var þér að þakka. Það var mér þungbært að kveðja þig á Landspítalanum áður en ég fór, því þá var ljóst hvert stefndi. Það er sárt að kveðja ömmu sem hefur ávallt reynst mér jafnvel og þú hefur gert. Öll mín ár hefur þú stutt mig og hvatt og haft mikla trú á mér og því sem ég er að gera hverju sinni. Ég vona að mér takist að gera það sama fyrir mín börn og barnabörn í framtíðinni. Þú hafðir mjög góð áhrif á mitt líf og uppvöxt og fyrir það verð ég þér ævinlega þakk- látur. Takk, elsku amma, fyrir allt það sem þú hefur gert fyrir mig og samverustundir okkar. Guð blessi þig. Gunnar Jónsson Sigríður Guðrún Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.